Réttur - 01.04.1968, Blaðsíða 53
ir auðhringar væru að leggja undir
sig iðnað Italíu. Þannig náði Gene-
ral Electric, ameríski auðhringur-
inn, nýlega tökunum á ítalska hluta-
félaginu Olivetti, sem var byrjað að
þróa rafeindaiðnað á Ítalíu.
Verkamenn tóku upp baráttu fyr-
ir verndun þessa ítalska iðnaðar
með því að þjóðnýta hann og mynd-
aðist um það hin breiðasta sam-
fylking með sósíaldemókrötum og
kaþólskum.
Þá var á þessum fundi einnig rætt
um samstarf vinstri flokkanna, —
en eins og kunnugt er unnu þeir
síðan stórsigur í þingkosningum á
ftalíu.
Þá eru í heftinu margar greinar
um samstarf framfaraafla í Frakk-
landi, Spáni og Marokkó.
Þá komu greinar um efnahagsmál
sósíalistísku landanna og ýms
vandamál Suður-Ameríku.
James Klugmann, ritstjórinn að
„Marxism to-day“, skrifar um ráð-
stefnu kommúnista og kaþólskra.
/. Prazsky ritar um stríðið í Víet-
nam og ófarir amerísku árásarseggj-
anna þar.
World Marxist Review. Prag.
11. árg. 4. hefti.
Fremst í þessu hefti eru frásagnir
frá febrúar-ráðstefnu kommúnista-
flokka og fleiri verklýðsflokka í
Budapest og skjöl hennar.
Þá er minnst 98. afmælisdags
Leníns.
Þvínæst koniu allmargar greinar
um þróunina í sósíalistísku löndun-
um, síðan skilgreining á ýmsum
þáttum þróunarinnar í auðvalds-
löndunum. Skal þar sérstaklega
bent á tvær:
John Gibbons ritar um „Banda-
ríkin 1968: sjúkt þjó8félag“ og
þeir /. Gruner og K. H. Schvmnk
um „Kreppu sterlingspundsins og
ajleiðingar hennar".
Þá koma tvær greinar um stríðið
í Víetnam.
Eftirtektarverðar greinar eru þar
um baráttuna í Suður-Ameríku.
Annarsvegar er það samtal við Teo-
doro Petkov, en hann er einn af
meðlimum framkvæmdanefndar
Kommúnistaflokks Venezuelu, sem
strauk úr fangelsinu San Carlos á-
samt tveim öðrum framkvæmda-
nefndarmönnum, en allir höfðu þeir
verið í þrjú ár í þessari dýflissu
án dóms og laga. Hefur Petkov áð-
ur strokið úr fangelsum afturhalds-
ins í Venezuela. Hgnn var þing-
maður áður og forðum stúdenta-
leiðtogi. (Fréttin um strok Petkovs
kom í öllum heimsblöðum, en auð-
vitað hvorki í blöðum né útvarpi
hér). — Hins vegar er grein eftir
Chajjic Handall um stjórnlist bylt-
ingarmanna í rómönsku Ameríku.
Meir Vilner, leiðtogi Kommún-
istaflokks ísrael, skrifar um baráttu
flokksins fyrir friði og gegn árásar-
stefnu ríkisstjórnarinnar.
lb Nörlund skrifar um „kommún-
istana og horfurnar fyrir vinstri
öflin“ í Danmörku.
S. Ahmed skrifar grein um tíma-
mót í sögu Kommúnistaflokksins í
Irak, en sá flokkur hefur átt við
ægilegar ofsóknir að búa. Kommún-
istaflokkur Iraks berst fyrir frelsi
Kúrda og vill vinna með þjóðfrelsis-
hreyfingu þeirra.
Tímarit um heimsmál
og sósíalisma.
Hér skal getið nokkurra tímarita
erlendra, sem hugsanlegt er að á-
skrifendur Réttar hefðu áhuga fyrir
Eru þau ýmist gefin út af kommún-
istum eða öðrum vinstri sósíalistum:
„Verden og vi“ er norskt tímarit,
sem kemur út 10 sinnum á ári, all-
stór hefti. Árgangurinn kostar 28
norskar krónur. Heimilisfang: Boks
3715. Oslo. Ritstjóri er Arne Petter-
sen.
„Tiden“ er danskt tímarit, kemur
út 12 sinnum á ári, kostar 30 dansk-
ar krónur. Ritstjóri er Ib Nörlund.
Utanáskrift: Dronningens Tværgade
3. Köbenhavn.
Bæði eru þessi tímarit marxistísk
og flytja m. a. ýmsar greinar, þýdd-
ar úr World Marxist Review.
Labour Monthly, enska marxis-
tíska tímaritið ,hefur nú komið út
síðan 1921. Ritstjóri er R. Palme
Dutt. Kemur út mánaðarlega, kost-
ar 27 shillinga. Utanáskrift: 134
Ballards Lane, London N. 3.
New Lejt Review, 7 Carlisle
Street, London W. 1, er tímarit
ungra vinstri sósíalista. Ritstjóri er
Perry Anderson. Kostar 27 shillinga
á ári, 6 hefti.
Horizons, marxistískt ársfjórð-
ungsrit, er gefið út af útgáfufyrir-
tækinu Progress Books, 487 Ade-
laide St. West, Toronto 2 b, On-
tario, Kanada. Kostar 3 dollara á
ári. Ritstjóri er Stanley Ryerson.
Greinar í því ern bæði á ensku og
frönsku.
Monthly Review, óháð sósíalis-
tískt tímarit. 10 hefti á ári. Utaná-
skrift: 116 West, 14th Street, New
York, N. Y. 10011, U.S.A. — Rit-
stjórar: Leo Iluberman og Paul
M. Sweezy. Kostar 8 dollara á ári.
International Socialist Journal,
P. O. Box 665, Róm. Ritstjóri er
Lelio Basso. Óháð sósíalistískt tíma-
rit, kemur út 6 sinnum á ári. Kostar
36 danskar krónur, fæst frá I. S. J.
Folkets Allé 40, Köbenhavn F.
Zenith er norrænt, sósíalislískt
tímarit. Kcmiir út sex sinnum á ári.
Kostar 100 norrænar krónur. Rit-
stjóri er Gtinnar Olafsson. Utaná-
skrift: Box 19017, Stockholm 19.
„Science and Society“, óháð marx-
ista-tímarit. Kemur út ársfjórðungs-
lega. Heimilisfang: 30 East 20th
Street, New York, N.Y. 10003.
123