Réttur


Réttur - 01.01.1971, Side 10

Réttur - 01.01.1971, Side 10
Mengunar hefur orðið vart í hafinu suour af íslandi. (Mynd frá rannsóknarferð Johan Hjort). að meta hverju sinni, hvaða umhverfisbreyt- ingar við tökum í kaup fyrir raforkuna. Auð- vitað þurfum við jafnframt að setja þessum innlenda iðnaði ströngustu reglur til varnar mengun, eins og áður var á minnzt. En með þessari leið gefst okkur allt annað og betra ráðrúm til aðlögunar en sé álbræðsluleiðin farin, og við munum með þessu móti halda okkar efnahagslega sjálfstæði og því val- frelsi, sem fylgir, í stað þess að binda trúss okkar með langtímasamningum við Gróttar- kvörn erlendra auðfélaga, sem hingað vilja ekki aðeins sækja gróða af ódýrri orku, held- ur og umhverfi, sem þau gætu ráðskazt með á annan og ódýrari hátt en í iðnvæddum löndum Evrópu og Norður-Ameríku. HAGVÖXTUR OG UMHVERFI Hér er ekki rúm til að ræða nánar þessa ólíku valkosti frá efnahagslegum sjónarhóli eða með tilliti til hins margumtalaða hag- vaxtar. Aðeins skal það staðhæft, að ég tel líkur á, að einnig á því sviði reynist leið innlendrar iðnþróunar margfalt vænlegri. Oft er réttilega á það bent, að hagvöxtur eins og algengast er að reikna hann út, sé enginn einhlítur mælikvarði á hagsæld þjóða, og einmitt þáttur umhverfisins eigi eftir að verða hátt metinn og vaxa óðfluga á næsm árum. Friðsælt og ómengað umhverfi verður að líkindum talið til allra eftirsóttustu lífsgæða fyrir lok þessarar aldar. Þar á Island með sín víðerni, fegurð og fjölbreytta náttúru ótrú- lega möguleika, aðeins ef við reynumst menn til að nýta þá og varðveita með því að setja hér strangar reglur um verndun umhverfis- ins og veljum leið innlendrar iðnþróunar í stað erlendrar stóriðju á Islandi. 10

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.