Réttur


Réttur - 01.01.1971, Page 35

Réttur - 01.01.1971, Page 35
Tortimingarvald og grimmd þessarar yfirstéttar gerir stjórnlist heimsbyltingarafianna erfiða og vandasama. Sú stjórnlist hlýtur að felast i því að þrengja í sifellu hringinn að villidýrinu, — imperial- ismanum — halda því í skefjum og draga stöðugt úr áhrifavaldi þess, en gefa því aldrei tækifæri til að beita á heimsmælikvarða tortímingarsprengjum sínum. Og framkvæmd slikrar stjórnlistar krefst framar öllu einingar heimsbyltingaraflanna. 8. SAMEINAÐIR STÖNDUM VÉR . . . Á þeirri öld, sem liðin er síðan Parísarkommún- an leið hefur þvi heimsbylting sósialisma og þjóð- frelsis unnið slika stórsigra að ekki þarf að efast um hvert stefnir, ef rétt er á haldið. Lenín, sá mikli meistari stjórnlistarinnar, reit fyrir fimmtíu árum i bréfi til þýzku kommúnistanna, að enginn í veröidinni gæti hindrað sigur kommúnist- anna nema kommúnistarnir sjálfir. Þetta er rétt. Málstaður sósíalismans og þjóð- frelsisins er svo góður, að sigurinn er óhjákvæmi- legur, ef beitt er réttum bardagaaðferðum. Og Lenin bætir við: „En að öfga, þótt í ofurlitlu sé, er að hindra sigurinn".* Lenin varaði þannig með hinum sterkustu orðum við þessari hættu á að ganga of langt, að fara út í öfgar, þótt i litlu væri og á takmörkuðu sviði bardagaaðferðar. Hann ræddi hvað gerzt hafði i því efni á þriðja heimsþingi Alþjóðasambands komm- únista og nálgaðist það að verða „hinum byltingar- sinnaða marxisma til vansa". Og hann segir: „Öfgarnar voru ekki miklar. En hættan af þeim var gifurleg. Baráttan gegn þessum öfgum var erfið, þvi þeir, sem þarna gengu of langt, voru ein- mitt beztu, tryggustu aðilarnir — og án þeirra væri l'klega ekkert Alþjóðasamband kommúnista til.“** Þessi varnaðarorð Leníns eiga vissulega erindi til allra sósíalista, ekki sizt þeirra af þeim, sem telja sig kommúnista og góða lærisveina Leníns. Dýrkeypt reynsla hreyfingar vorrar á siðustu ára- tugum hefur undirstrikað þau. Og þá hafa öfgarnar ekki verið neitt smáræði, enda hættan af þeim og tjónið ægilegt. Kommúnistaflokkur Sovétrikjanna, Kommúnista- flokkur Kina — og sumir aðrir valdaflokkar komm- únismans, — einmitt þessir voldugustu og harð- skeyttustu aðilar, án hverra vald sósíalismans i veröldinni væri hverfandi, — einmitt þeir hafa gert sig seka um þær öfgar að bera hver öðrum gagnbyltingu á brýn, framkvæma fangelsanir og bannfæringar, sumir jafnvel réttarhöld og aftökur á beztu og tryggustu kommúnistum og neita í slik- um ofsa samstarfi við „bersynduga". Við verðum að muna að þótt málstaður sósíal- ismans sé góður, þá er hægt mitt í öllum sigrunum að misbeita svo valdi hans að hann afskræmist í augum fólks er utan við stendur, — enda skortir ekki á viðleitnina hjá fjendum hans, þegar tækifærin gefast, til að birta hann öllum heimi í þeirri af- skræmdu mynd. Það er líka hægt, þrátt fyrir yfirburði sósialism- ans yfir kapítalismann, að flytja mál hans svo illa, eða fátæklega — að eigi vinni hann þessvegna þá áhangendur, er eðlilegt væri. Og það er einnig hægt að boða hann með sliku ofstæki að hver sem litur öðruvísi á sósíalismann en viðkomandi boðberi sé brennimerktur sem gagnbyltingarsinni, — og vissulega hafa þau viðbrögð tiðkast alltof oft og lengi. öllu þessu höfum vér kynnzt á okkar ævi, jafn- hliða því sem heimsbylting sósialisma og þjóð- frelsis hefur verið að brjóta sér braut um jarðar- kringluna svo sem sagan sýnir, — þrátt fyrir allt, þrátt fyrir eigin mistök og afglöp, — þrátt fyrir ægi- legustu ofsóknir ag útrýmingarherferðir af hálfu auðvalds og afturhalds, sem nokkur hreyfing nokk- urntíman hefur orðið fyrir. Á þýzkunni er þetta: „öbertreiben aber, wenn auch nur ein klein wenig, heiszt eben den Sieg verhindern". Sögnin „öfga" þýðir sama og „fara út 1 öfgar", Sem nú er tiðar notað. Á þýzku hljóðar þetta svo: „Die öbertreibung war nicht grosz. Aber ihre Gefahr war gewaltig. Der Kampf gegen diese öbertreibung war schwer, denn die öbertreibung begingen die wirklich best- en, treuesten Elemente, ohne die es wohl uber- haupt, keine Kommunistische Internationale gabe". (I bréfi til þýzku kommúnistanna 14. ágúst 1921). 35

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.