Réttur


Réttur - 01.10.1971, Side 27

Réttur - 01.10.1971, Side 27
er hann sviftur vinnu vegna skoðana sinna og starfs að því að fá verkamenn i verklýðsfélög. Þegar kreppan byrjar 1929 fær hann að kenna á atvinnu- leysinu og misþyrmingum lögreglunnar. 1933 er hann einn aðalleiðtogi hungurgöngu námuverka- manna til Washington. Nelson fer I alþjóðahersveit- ina, þegar baráttan hefst gegn uppreisn fasista á Spáni. Um þá baráttu ritar hann bók sina „Sjálf- boðaliðarnir" („The Volunteers"). Eftir heimkom- una tekur hann baráttuna aftur upp gegn auð- drottnum Bandaríkjanna: Mellon, Rockefeller og Du Pont, þessum einokunarherrum atvinnulifsins, sem grætt höfðu biljarða dollara á blóðfórnum al- þýðunnar i striðinu. Og auðkóngarnir létu þjóna sina í lögreglu og dómstólum búa til svikamál, — þar sem amerikanar kalla á sinu máli ,,frame-up" — á hendur honum, til að binda fyrir munn hans. En Nclson tætti alla þessa svikavefi sundur. „Nelson er hin sérkennilega hetja okkar aldar alþýðumannsins" — sagði rithöfundurinn Michael Gold um hann. — „Aldrei á ævinni hef ég lesið slika bók sem þessa,“ sagði rithöfundurinn Howard Fast um ,,13. kviðdómandann", „en ég hef heldur aldrei kynnst öðrum eins manni og Steve Nelson“ bætti hann við. En nú var lika brátt komið að endalokum Mc- Carthy-ismans. I desember 1954 samþykkti öld- ungaráðið með % atkvæða vítur á McCarthy. Hann var þá farinn að væna Bandarikjaher og öldunga- ráðið sjálft um að vera „gagnsýrt af kommún- isma"". Brjálæðisköst kommúnistahataranna gengu sem sé fram af afturhaldsmönnunum sjálfum. (Þau minna stundum á eykonisma Morgunblaðsins). McCarthy var búinn að vera. En eftir lá smánarblett- ur ofsóknanna: iifsstarf og lífshamingja þúsunda eyðilögð, listsköoun fremstu listamanna bæld eða stöðvuð (Paul Robeson, einn bezti söngvari allra alda, var fangi í landi sinu og fékk ei sungið þar), hundruð manna fangelsuð fyrir engar sakir og tugir saklauss fólks drepið af afturhaldsmönnum eða lögreglu og jafnvel með beinum dómsmorðum. Síðan hófst mikil sókn hinna róttæku afla og verður hún ekki rædd hér. Barátta blökkumanna, m. a. „svörtu hlébarðanna", hefur verið rakin í siðasta hefti af Sigurði Ragnarssyni. En nú er Ijóst að nýr voði vofir yfir. Morð lögreglunnar á George Jackson, hinum unga blakka rithöfundi, á eftir morðum lögreglu á fleiri foringj- um fyrir baráttusamtökum negranna, sýnir að ný ógnaröld getur hafizt i Bandarikjunum, nema al- Steve Nelson. menningsálitið i heiminum láti til sín taka. Dóm- stólarnir höfðu reynt að drepa George Jackson áður en lögreglunni tókst það. Þá átti að kenna honum og tveim meðföngum hans í fangelsinu Soledad morð á fangaverði, en það tókst að fletta ofan af þeirri svikaákæru, — en nafnið „Soledad- bræður' festist við þá félaga. Og nú bíður Angela Davis dóms í þessu riki réttarmorðanna og raunar í einu alræmdasta aftur- haldsfylki þess, Kaliforníu. Út um viða veröld ris mótmælaaldan gegn fyrir- huguðu réttarmorði hærra og hærra. Einnig hér út á Islandi þarf baráttan að harðna. Alþýðubanda- lagið, flokkur íslenzkra sósialista, hefur þegar hvatt til mótmæla. Þjóðin þarf að taka undir. 203

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.