Réttur - 01.04.1973, Qupperneq 2
hleruðu um kommúnista og aðra róttæka menn. En þegar uppvíst varð að
einn borgaraflokkur Bandaríkjanna tók að hlera hjá öðrum, þá varð úr því
þjóðarhneyksli. Það hrelldi ekki samvizku blekktrar Bandaríkjaþjóðar, er
uppvíst varð að fjórir forsetar, hver á fætur öðrum, höfðu logið að henni um
orsök Vietnam-stríðsins. En forsetastóll Nixons riðaði, er hana tók að gruna
að hann hefði vitað um hleranir Republikanaflokksins hjá Demokrataflokkn-
um. — En hvað það má vera óþægilegt fyrir Bandaríkjastjórn að geta ekki
hótað að varpa sprengjum að sannsöglum bandarískum blöðum og tor-
tryggnum Bandaríkjamönnum, — beitt Vietnam-aðferðum heima fyrir!
Hitt er rétt að muna að fjarri fer því að rétt sé að skella allri skuldinni af
hneykslunum á Nixon einan. Hann er í þessu aðeins táknið fyrir siðspillingu
þess ,,gangster“-ríkis, sem Bandaríki Lincolns eru orðin að fyrir yfirdrottn-
un auðvalds og afturhalds í því landi, sem eitt sinn var „frelsisins fimbul-
storð". Það er rotið þjóðfélag, sem hér á í hlut, maðksmogið af mammons-
dýrkuninni, sem álítur allt leyfilegt fyrir auð og völd, ef það bara heppnast.
Lýðræðisöfl Bandaríkjanna heyja nú baráttu gegn þessu spillingarvaldi og
geta þá hagnýtt sér samkeppni stóru borgaraflokkanna. — Það er Pentagon,
CIA og forsetavaldið, sem standa nú afhjúpuð fyrir lygi, morð og svik frammi
fyrir heiminum. Og það er þetta samtvinnaða morðvald Bandaríkjanna, sem
vissir menn og þlöð og heilir flokkar á íslandi hafa falið ,,vernd“ Islands og
flækt land vort og þjóð í þetta þokkalega samfélag slíkra kumpána.
Og nú fer þessi Bandaríkastjórn þrátt að semja við Island. Hún mun treysta
á að eiga hér hundflöt Morgunblöð og þæga Natoþjóna, til að berjast fyrir
málstað hennar og láta ekkert Vietnam og Watergate á sig fá. — En hún á
máske eftir að sjá að þegar hvert Suður-Ameríku-ríkið af öðru hristir af sér
fjötra bandarísks auðvalds, þá muni íslendingar, minnugir sex alda nýlendu-
kúgunar, eigi verða eftirbátar annarra í að losa sig úr læðingi amerísks her-
valds.
★ o *
,,Réttur“ ræðir að þessu sinni herstöðvamálið, dollarakreppuna og fleiri
þætti heimsvaldastefnunnar. Ennfremur ýmislegt fróðlegt viðvíkjandi marx-
ismanum.
,,Rétti“ er mikil þörf á aukinni útbreiðslu. Vaxandi áhugi á marxismanum og
nauðsyn þess að aðlaga hann að íslenzkum staðháttum og þróunarstigi
gerir ,,Rétt“ að tímariti, sem allir áhugamenn um marxisma og alþýðubaráttu
þurfa að lesa og eiga. Hann er sósíalistískri verklýðshreyfingu Islands
ómissandi vopnabúr. Aflið honum áskrifenda.
Innheimt verður nú á ný með póstkröfum utan Reykjavíkur. Munið að ,,Rétt-
ur" á það undir skilvísi áskrifenda sinna að geta komið út og farið batnandi.