Réttur


Réttur - 01.04.1973, Side 15

Réttur - 01.04.1973, Side 15
er þjóðsagnapersóna eins og hún Grýla okk- ar hin, sem reið fyrir ofan garð og hafði á sér hala fimmtán. Og skiljanlega er vanda- verk að festa hendur á þjóðsagnapersónum. Sé aðferðum þjóðháttafræðinnar beitt til að grafast fyrir um uppruna og hlutverk svona fyrirbæris, þá verður í fyrsta lagi greinilegt, að llússagrýlan hefur verið notuð sem einskonar barnafæla líkt og nafna hennar til þess að við værum þæg og góð börn, þæg og góð við yfir- völd okkar. I öðru lagi sjáum við hana aldrei sjálf, en við heyrum mikið látið af fyrirgangi hennar í fjarlægum löndum, rétt eins og sú gamla íslenzka sást helzt í öðrum byggðar- lögum. Nú er munurinn hinsvegar sá, að við vit- um ekki til þess með vissu, að okkar Grýla hafi nokkru sinni sézt eða verið til í alvöru. Á hinn bóginn vitum við, að Rússar hafa látið illum látum á vissum takmörkuðum bletti jarðarinnar, nefnilega hér í A.-Evrópu. En hversvegna hafa þeir haldið sig á þessu tiltölulega litla svæði, ef þeir eru svona út- þenslusamir, en ekki ólmazt inn í þau mörgu hernaðarlega veiku lönd, sem liggja um- hverfis hin víðlendu Sovétríki og hafa þó ekki verið í neinu hernaðarbandalagi við Bandaríkin? Sem dæmi skulu nefnd Ind- land, Afganistan, Irak, Júgóslavía og Aust- urríki. Og hversvegna réðst Rauði herinn ekki inn í Vestur-Evrópu á árunum 1945— 1949, meðan ekkert NATO var til og hann >,réð yfir 4 milj. manna gráum fyrir járn- um", en Vesturveldin höfðu fækkað her- mönnum sínum í 800 þúsund? svo vitnað sé í nýútkominn bækling Sjálfstæðisflokksins um öryggismál Islands. (Bls. 4). Astæðan er ofureinföld. Það hefur alltaf verið lygi, að árás frá Sovétríkjunum væri yfirvofandi. I lok stríðsins, einkum á ráð- stefnunni í Jalta í febrúar 1945, komu stór- veldin sér saman um skiptingu Evrópu í áhrifasvæði. Aðrir heimshlutar voru að mestu látnir eiga sig, eins og verið höfðu fyrir stríð, mas. fengu Frakkar afmr Indókína, sem þeir voru búnir að missa úr höndum sér til íbú- anna sjálfra, og þar er að leita rótanna að flestum hörmungum Víetnama síðustu ára- tugi. Sovétríkin fengu semsé úthlutað ákveðið áhrifasvæði, ,og út fyrir þau mörk hafa þau aldrei hreyft sig. Td. lét Stalín það óátalið, að vinstri öflin í Grikklandi væru brotin á bak aftur með erlendum herstyrk skömmu eftir stríðið — áður en nokkurt NATO var til. Þetta var ekki að ástæðulausu. I fyrstá lagi höfðu Sovétríkin og hafa átt meira en nóg með sig og sitt svæði. Sagt hef- ur verið, að hernaðarlegur vanmáttur Sov- étríkjanna hafi verið bezt varðveitta hernað- arleyndarmál eftirstríðsáranna. Það er ósköp auðvelt að sjá þetta í hendi sér núna. Þeir misstu um 20 milljónir manna í styrjöldinni, flest karlmenn á aldrinum milli tvítugs og fimmtugs. Landbúnaður og iðnaður voru að verulegu leyti starfræktir af konum, börnum og gamalmennum fyrstu árin eftir stríðslok. Þegar við bætist, hvílíkur grúi fullhraustra manna starfaði við skriffinnsku og persónu- njósnir leynilögreglunnar, þá er auðsætt, að þetta sundurflakandi ríki var ekki til stórræð- anna. En það kom sér vel fyrir stjórnina í Kreml að geta dulið veikleika sinn að nokkru, svo að síður yrði á þá ráðizt. I öðru lagi, og þetta er aðalatriði, þá var þarna um að ræða samninga milli stórvelda. Og ráðamenn í Kreml hafa aldrei viljað ganga á gerða samninga við Bandaríkin né önnur stórveldi, þótt þeir hiki ekki við að rjúfa gerðir við smáríki á eigin áhrifasvæði eins og Tékkóslóvakíu. Þannig stóðu þeir við allar skuldbindingar gagnvart Þýzkalandi nazismans, enda mun Adolf Hitler hafa ver- 79

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.