Réttur - 01.04.1973, Qupperneq 28
Fangelsun mótmælt.
„Að vörmu spori má sjá, að yfir þvera
bryggjuna, allframarlega, hefur myndazt
fylking, og hefur hún fyrir sér strengdan
kaðal.
Er sýnt, að fyrir andstæðingunum vakir að
hrekja lið verkfallsmanna upp af bryggjunni
eða öllu heldur sópa bryggjuna. En ekki hef-
ur fylking þessi þokazt langt í áttina, þegar
hún er stöðvuð af liði verkfallsmanna, sem
nú einbeitir sér á kaðalinn, gegn hinum. Og
ekki líður á löngu, þar til þeir kaðalmenn
byrja að hopa á hæl með spegilsléttan Poll-
inn fyrir enda bryggjunnar að baki. Gerist
þá hvortveggja, að hvítliðar fara að forða
sér upp í skipin beggja vegna bryggjunnar,
og hitt, að einhver úr liði verkfallsmanna,
Adolf Kristjánsson skipstjóri er mér sagt,
sker á kaðalinn, svo að þrýstingurinn á lið
hinna minnkar heldur, enda er það ekki
meiningin að sundleggja þá hvítu eða stofna
lífi manna í hættu, heldur hitt að koma í
veg fyrir kauplækkun. Nokkrir hrekjast þó
í smábáta á undanhaldinu og flýja út á Poll-
inn. — Áhlaupi verkfallsbrjóta og hvítliða
hefur verið hrundið."
Verkamannafélagsmenn hafa borið sigur
úr býtum og bera það og gegn verkfalls-
brjótum, þegar fleiri tilraunir eru gerðar til
að brjóta verkfallið. Mikill verkfallsvörður
er í Verklýðshúsinu dag og nótt næstu sól-
arhinga.
17. marz. Nova fer frá Akureyri án af-
greiðslu. — Bæjarfógetinn á Akureyri skipar
allmarga aðstoðarlögreglumenn.
92