Réttur - 01.04.1973, Síða 55
kvæmdastjóri þessarar samfylkingar er Betty
Sinclair, ritari verkamannaráðsins í Belfast og
framámaður i Kommúnistaflokki Irlands.
CRA samtökin krefjast almennra leynilegra kosn-
inga og afnáms á skilyrði um eign til kosningarétt-
ar, sem hingað til hefur tryggt unionistum stjórn-
artaumana, jafnan rétt til atvinnu, húsnæðis o. s.
frv., afnám undantekningarlaganna (Special Power
Act), ,,B Special" lögreglu og annarra kúgunar-
tækja.
Undirtektir undir þessar kröfur voru langt um-
fram það sem forgöngumenn CRA höfðu gert
sér vonir um. Kúgaðir kaþólikar voru reiðubúnir
til átaka, breyttu byggðasvæðum og bæjarhverfum
í ,,eyjar“ og varnarvirki, neituðu að greiða leigu-
afgjöld og vexti og fylktu liði til fjöldagöngu á
götum úti. Fólkið vopnaðist til andstöðu gegn kúg-
un og ofbeldi unionista og hægrisinnaðra ofbeldis-
manna, svo sem William Craig og lan Paisley.
Báðir armar IRA hófu aðgerðir.
Koma fjölmenns brezks herliðs varð til þess að
skerpa andstæðurnar og fjölga hermdarverkum,
svo sem við mátti búast. Nýlenduþjóðir Breta í
Afríku þekkja af raun alltof vel komu slíkra herja
sem að nafninu til eru sendir til að „koma á röð
og reglu", en auka aðeins andstæðurnar, leiða af
sér blóðböð, ólgu og óeirðir. Brezkur her hóf skot-
hríð á göngu andunionista í Derry 30. janúar
1972 og margir óvopnaðir létu lífið — einn átak-
anlegasti en ekki eini atburðurinn. Sprengingar,
götubardagar og ofbeldi hefur verið daglegt brauð
fólksins I Belfast og viðar á Norðurírlandi siðan
brezkar hersveitir komu þangað.
Stormont þingið hefur verið leyst upp og Bretar
hafa komið á „beinum yfirráðum" með William
Whitelew sem stjórnanda til að fást við ástandið.
En blóðugt ofbeldi heldur áfram og andspyrnan
hættir ekki meðan demokratar eru fangelsaðir og
ógnarstjórn Breta er í fullum gangi. öfgasinnaðir
hægrimenn vopnast opinskátt og hóta stjórnarbylt-
ingu í anda lan Smith. Alda gremju og fordæm-
ingar fer vaxandi sunnan landamæranna. (rland er
á hraðri leið til borgarastyrjaldar.
Kommúnistafl. Irlands (sem er eini stjórnmála-
flokkurinn bæði sunnan og norðan landamæranna),
Irski lýðveldisherinn (IRA) og önnur demókratisk
samtök krefjast þess að hætt verði fangelsunum
og aðgerðum brezka hersins; að minnihlutanum
á Norðurírlandi verði tryggt jafnrétti; einingar írsku
verkalýðshreyfingarinnar. Án efa mundi þetta duga
langleiðina til að draga úr núverandi kreppuástandi,
en það er augljóst að enga langframa lausn er að
finna innan þess ramma sem þvingað var upp á
þjóðina fyrir fimmtíu árum. Það getur ekki orðið
varanlegur friður og framfarir i litlu landi sem
hlutað hefur verið í tvennt og annar parturinn
hersetinn og stjórnað af erlendu ríkisvaldi.
Eins og stendur er ekki raunhæft að tala um að
sameina þessi sex greifadæmi Irska lýðveldinu
undir núverandi stjórn þess. Ekkert er fjarlægara
vilja lýðveldisstjórnarinnar undir forustu Jack Lynch
og Finn Fail flokksins en árekstrar við Brezka
konungsrikið, þeir liggja flatir fyrir brezku íhalds-
stjórninni.
I kjölfar handtöku lýðveldisleiðtogans Sean Mac-
Steofain kom ómannúðleg og ólýðræðisleg löggjöf
sem einn leiðtogi andstöðunnar lýsti ágætlega
með þeim orðum, að hún væri af þeirri gerð sem
aðeins hefði mátt vænta i Suður-Afriku. (Áður
hafði hann skýrt frá því, hvernig hann og flokkur
hans hafði lúffað og snúið við blaðinu til fylgis
við tillöguna!)
Það er þvi ekki hægt að leita til núverandi leið-
toga á Dail (þinginu) í Dublin um stuðning við
baráttuandann frá 1916. Þeir vilja allt til vinna að
tryggja yfirráð auðvaldsins og velja þann kost að
gleyma og grafa þá minningu.
En framfarasinnuð og þjóðleg öfl um allt Irland
skynja æ betur að viðfangsefnið er samirskt og
hugsjón Connollys verður að bera það uppi. I
hetjulegri baráttu langhrjáðrar þjóðar eiga Irar að
leita samúðar og stuðnings allra andheimsvalda-
sinnaðra afla um allar jarðir, og þeir eru vissuliega
stuðningsins verðir.
Heimildir:
Réttur 1967. Grein um Connolly á bls 197—98
og talin upp rit hans.
Marx Engels: Ireland and the Lrish Question.
Lawrence and Wishard. 1971. 518. bls.
Desmond Greaves: The life and time of James
Connolly. Lawrence and Wishard 1972 (222 siður).
Beresford Ellis: A history of the Irish Working
Class. V. Gollencz. 1972. 352 siður.
I. A. Jackson: Ireland her own. Lawrence and
Wishard. 1971. 513. siður. (Saga irsku frelsisbar-
áttunnar frá upphafi).
119