Réttur


Réttur - 01.04.1973, Qupperneq 61

Réttur - 01.04.1973, Qupperneq 61
vegar og rikjandi ástands i efnahags- og stjórn- málum þjóðanna hinsvegar. Að því kom að alveg eins og dollarinn varð of- metinn urðu ýmsir aðrir gjaldmiðlar vanmetnir, eink- um þó japanska yenið og vestur-þýzka markið. Hið skráða gengi þeirra var lægra en það i raun og veru var. Hin fastákveðnu hlutföll milli gjaldmiðla, sem ákveðin voru í Bretton Woods, röskuðust i reynd þó reynt væri lengi vel að viðhalda þeim. Sú einkennilega staða var sem sé komin upp að allir aðilar töidu sér hag í að viðhalda kerfinu um sinn þrátt fyrir ósamræmið milli þess og ríkj- andi ástands. Kom þar margt til. Bandaríkin sáu sér hag í því, að dollari þeirra var ofmetinn. Umsvif þeirra í öðr- um löndum urðu þeim ódýrari fyrir þragðið. Þau gátu komizt yfir eignir erlendis fyrir minni peninga en þær i raun og veru kostuðu. Þau gátu haldið áfram pólitiskum og hernaðarlegum afskiptum og greitt með dollurum, sem voru i raun minna virði en skrásetning þeirra sagði til um. Þess vegna voru Bandaríkin andvíg því að lækka gengi dollarans. Vestur-Þýzkaland og Japan vildu þar á móti ekki hækka gengi sinna gjaldmiðla vegna þess að sam- keppnisaðstaða þeirra á heimsmarkaðnum myndi versna, útflutningsvörur þeirra yrðu dýrari. Af þessum ástæðum var margvislegum ráðum beitt til að halda við gjaldeyriskerfinu, styrkja doll- arann. M.a. mynduðu 8 iðnaðarríki árið 1961 sérstakan gullsjóð, „gullpúlliu". Gullinu úr þessari „púlliu" var varið til að innleysa dollara utan Bandaríkjanna. En allan timann hafði verið að ganga á gullbirgðir Bandaríkjanna sjálfra, þar sem eigendur dollara i öðrum löndum notfærðu sér innlausnarskylduna. Á árinu 1962 mynduðu 10 auðugustu iðnaðarriki heims með sér samfylkingu (Group of Ten) til stuðnings dollaranum. Þá var ákveðið að Aþjóðagjaldeyrissjóðurinn skyldi veita meðlima-rikjum sérstök yfirdráttarrétt- indi, s.k. pappírsgull. Til margra annarra ráða var gripið með það fyrir augum að styrkja stöðu dollarans þannig að ekki þyrfti að umbreyta sjálfu gjaldeyriskerfinu. En allt kom fyrir ekki. Bandaríkin héldu uppi upp- teknum hætti, gáfu út dollara og fluttu þá út. Minnir þetta einna helzt á þegar gefnir eru út inn- stæðulausir tékkar. Vestur-þýzka rikisstjórnin tók þá ákvörðun aÖ leysa gjaldmiðil sinn úr tengslum frá dollaranum, láta markið fljóta, eins og það er kallað, en það þýðir að verð marksins fer eftir framboði og eftir- spurn. Þetta gerðist i ársbyrjun 1971. Nokkru siðar, í ágúst tilkynnti Nixon forseti að Bandarikin myndu endanlega hætta við að skipta dollurum í gull, gullbirgðir þeirra höfðu minnkað úr u.þ.b. 30 miljörðum í 10 miljarða dollara Jafnframt var tilkynnt, að sérstakur tollur yrði lagður á því sem næst allan innflutning. I desemþer komu fulltrúar frá Group of Ten saman til fundar i Washington. Þar var gert hið s.k. Smithsonian-samkomulag. Bandaríkin féllust á að lækka gengi dollarans með því að hækka hið oplnbera gullverð úr 35 dollarar á únsu í 38 doll- ara. Jafnframt voru ýmsir aðrir gjaldmiðlar hækk- aðir í gengi, sérstaklega yenið og vestur-þýzka markið. Bandarikin féllu frá þeim innflutningstolli, sem þau höfðu sett á um sumarið, en aðalkeppinautar þeirra hétu að draga úr hömlum sem verið höfðu á innflutningi til þeirra. Þegar gengið hafði verið frá Smithsonian-sam- komulaginu sagði Nixon í ræðu á fundinum, að með því hefði gerzt einn merkasti atburðurinn í allri sögu peningamálanna. Það urðu ekki orð að sönnu. Áhrifin af geng- islækkun dollarans urðu litil sem engin. Dollara- innstreymið til hinna ýmsu landa hélt sleitulaust áfram, einkum til Vestur-Þýzkalands og Japan. Þannig urðu seðlabankar þesara rikja og nokkurra annarra að kaupa upp 9 miljarða dollara á skömm- um tíma. Enn varð uppi fótur og fit hjá þeim, sem réðu gjaldmiðilsmálum þjóðanna. Málalyktir urðu þær, að gengi dollarans var lækkað í febrúar s.l., hið opinbera gullverð var hækkað í 42 dollara á hverja únsu, en fjöldi þjóða tók þá ákvörðun að láta gengi sinna gjaldmiðla fljóta gagnvart dollarnum, ýmist sameiginlega (Vestur-Þýzkaland, Frakkland, Belgía, Holland, Luxemburg, Danmörk, Sviþjóð og Noregur) eða hvert fyrir sig (Bretland, Irland, Italia, Sviss og Japan). Af þessari þróun mála sést að þegar sagt var í upphafi, að kerfið frá Bretton Woods standi nú höllum fæti, þá er ekki tekið nógu djúpt í árinnl. Hið rétta myndi heldur vera að segja, að gjaldeyr- iskerfið sé með öllu gengið sér til húðar. • 125
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.