Réttur


Réttur - 01.04.1973, Page 67

Réttur - 01.04.1973, Page 67
Árið 1970 voru olíutekjur Persíu og sjö annarra olíuríkja (þ. á m. Irak, Kuweit, Libya og Saudiarabía) tæpir 6 miljarðar dollara. 1973 er þessi upphæð orðin 12 miljarðar og fram til 1980 munu þessi lönd fá um 250 miljarða dollara fyrir olíu sína. Eftirspurnin eftir olíu vex gífurlega. Banda- ríkin munu síðar á þessum áratug þurfa að flytja inn olíu fyrir 20 miljarða dollara á ári (1970 voru það „aðeins” 2 miljarðar). Arabaríki eyðimarkanna búa yfir 60% allra þeirra olíubirgða, sem nú er vitað um í heim- inum. Einvaldsfursti Saudi-Arabíu ræður yfir 30% allra birgðanna. Tekjur þessa aftur- haldsríkis af olíu, sem nú eru 3 miljarðar dollara, munu í lok áratugsins vera orðnar ferfaldar. Hubert Humphrey, fyrrv. varafor- seti Bandaríkjanna, sagði í viðvörunarskyni: „Furstarnir í Arabíu munu ráða dollarnum”. Háttsettur embættismaður Alþjóðabankans segir: „Án samstarfs við Araba eru allar gjaldeyrisumbætur tóm vitleysa frá stjórn- málalegu og efnahagslegu sjónarmiði." Olíuþörf heimsins, utan sósíalistísku ríkj- anna, var 1950 10 miljónir föt (hvert fat 159 lítrar) á dag, 1970 39 miljónir og verð- ur 1980 líklega 67 miljónir á dag. Olíufram- leiðsla Bandaríkjanna er 15 miljónir fata á dag — og er nú sú mesta í heiminum. En olíulindir Bandaríkjanna veröa að Ukind- um tcemdar eftir 10 ár. En olíulindir í Norður-Afríku og Austurlöndum nær, þær sem nú eru þekktar, munu endast 60—70 ár. Um 1985 munu Bandaríkin líklega verða að fá 34 allrar olíuneyslu sinnar frá þessum Arabalöndum, nú aðeins 10%. Stjórnendum Arabaríkjanna er orðið þetta ljóst og beita aðstöðu sinni nú þegar. Þeir eru þegar farnir að fyrirskipa hvað olíuverð- ið skuli vera og hvern hluta þeir skuli fá. Og þeir, sem sjá lengra, beita harðvítugri ráðstöfunum: í febrúar 1971 þjóðnýtti ríkisstjórn Algier 51% af olíufyrirtækjum Frakka. Franska stjórnin varð að gefast upp í júní sama ár. I desember 1971 tók Libyustjórn allar eignir BP í Libyu eignarnámi. I júní 1972 tók Baathstjórnin í Irak eign- ir IPC (Iraq Petroleum Company) eignar- námi, en það risafyrirtæki áttu BP, Shell og franskir og bandarískir olíuhringar. 23. marz tók persneska olíufélagið við allri olíufrámleiðslu landsins. Sú þróun, sem er að gerast í olíuviðskipt- um heims, getur haft margskonar afleiðing- ar, sem ei verða raktar hér nú. En hitt er ljóst að Island verður að kunna fótum sínum forráð um varðveizlu orkulinda þeirra, sem við eigum í fossum og jarðhita — og láta ekki útlendinga gleypa þær á nýlenduvísu eins og viðreisnarstjórnin var byrjuð á. KÝPUR AKEL — Framfaraflokkur alþýðu — er áhrifamesti stjórnmálaflokkur á Kýpur, en þar eiga sér stað mikil átök við fasista undir forustu Grivasar ofursta, svo sem fréttir hermá. AKEL var stofnaður 14. apríl 1941 og tók við af Kommúnistaflokki Kýpur, er starfaði 1926 til 1941. Flokkurinn telur 12000 flokksmenn, 65% af þeim eru verkamenn, 17% bændur, 5% menntamenn. 30% með- limanna eru undir 30 ára aldri. Flokkurinn gefur út eitt dagblað og eitt tímarit. Á þingi sitja 9 fulltrúar AKEL, en við kosningarnár 1970 fékk flokkurinn 40,7% atkvæða. Flokkur ríkisstjórnarinnar fékk 26% og Framfaraflokkurinn 24%, en flokkur sá, 131

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.