Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 35
2001 hjá VR og hafnaði í öðru sæti í
fyrra. „Þessar viðurkenningar segja
til um hug starfsmanna til Danól,
enda hefur starfsmannavelta fyrir-
tækisins ávallt verið sáralítil,“ segir
Einar.
Ólöf staldrar við þetta enda hefur
starfsfólkið verið einn helsti styrkur
fyrirtækisins gegnum tíðina. „Hér
vinnur alveg ótrúlega gott fólk og án
þess væri fyrirtækið ekki það sem
það er í dag.“
Árið 1964 voru starfsmenn þrír en í
dag starfa um sextíu manns hjá
Danól auk sumarstarfsfólks, sem er
yfirleitt í kringum fimmtán manns.
„Með mikilli hagræðingu í rekstri
undanfarin ár, endurbótum á inn-
kaupa-, sölu- og afgreiðsluferli og
ekki síður með samþjöppun á við-
skiptavinahópi okkar hefur velta á
hvern starfsmann aukist frá 1982 úr 6
milljónum króna í um 40 milljónir
króna á sl. ári,“ segir Einar.
Fyrir nokkrum árum var rekstr-
inum skipt í sex markaðsdeildir til
þess að fá betri yfirsýn yfir hvert
afkomusvið. Þó að mat- og nýlendu-
vara sé veltumest innan fyrirtækisins
eru önnur rekstrarsvið með ríflega
þriðjung af heildarsölu.
Uppkaupastefnan mikilvæg
Danól hefur vaxið mikið í gegnum
tíðina, með innri vexti og fjölgun er-
lendra viðskiptasambanda.
Einnig og ekki síður hefur fyrir-
tækið vaxið með svokallaðri upp-
kaupastefnu. Októ segir þetta mjög
mikilvægt enda liggi miklir vaxtar-
möguleikar fyrir fyrirtæki á borð við
Danól í því að kaupa önnur fyrirtæki
sem séu með þekkt vörumerki á
markaðnum. „Það er staðreynd að
fyrirtækjum á eftir að fækka á þess-
um markaði. Þannig hefur þróunin
verið á undanförnum árum. Það þýðir
að stóru fyrirtækin eiga eftir að verða
enn stærri og öflugri.“
Frá árinu 1987 hafa verið keypt
rúmlega tuttugu fyrirtæki, stór og
smá, og þau sameinast Danól. Má þar
nefna Matkaup (1991), Íslensk-er-
lenda (1991), Sundco (1993), Lind
(1996), VB-umboðið (1998), Fannir
(1998), Gunnar Kvaran (2000), Ís-
lensk-austurlenska (2002) og XCO
(2004).
Í dag tengist Danól stærstu fram-
leiðslufyrirtækjum í heiminum, eins
og Nestlé, Sara Lee, Cerelia, Merr-
ild, Haribo og Oroblu, og í gegnum
Ölgerð Egils Skallagrímssonar fyrir-
tækjum eins og PepsiCo, Anhauser
Bush, Diageo og fleirum.
„Til margra ára hefur það verið
stefna Danól að vera alltaf með vöru-
merki númer 1 eða 2 í hverjum vöru-
flokki eða þá vöru sem á möguleika á
því að verða slík innan skamms tíma.
Við verðum að hugsa svona ef við ætl-
um að lifa af. Það er ekkert pláss fyrir
vörumerki númer 3, 4 eða 5 á mark-
aðnum,“ segir Októ og bætir við að
fáheyrt sé að vörumerki sem Danól
markaðssetji tapi hlutdeild.
Og Danól kemur óbeint við sögu á
öllum heimilum í landinu flesta daga.
„Ég fullyrði að vöru frá Danól er
neytt á hverju heimili á landinu flesta
daga. Sem dæmi má taka að rúmlega
einn kaffibolli af Merrild fer ofan í
hvern landsmann á dag. Og á hverju
ári neyta Íslendingar a.m.k. tveggja
pakka af Homeblest-kexi, 50 Mack-
intosh-mola, 30 glasa af Nesquick og
4 stykkja af Chupa-sleikjóum og Kit
Kat-súkkulaði. Svona mætti lengi
telja,“ segir Einar.
Danól hefur í mörg undanfarin ár
verið einn af tíu fyrirferðarmestu
auglýsendum á íslenskum markaði.
Margir kannast t.d. við slagorð eins
og „Gott báðum megin“, „Daloon-
dagur í dag“ og „Nýbakað úr frystin-
um“. Að sögn Októs fjárfestir enginn
innflytjandi eins mikið í auglýsingum
og kynningum og Danól.
Vörusala Danól 2005 nam 2.304
milljónum króna sem er það besta í
sögu fyrirtækisins. Áætluð velta á
þessu ári er 2.500 milljónir króna.
„Fjárhagsstaða fyrirtækisins er
mjög sterk og hefur það ávallt skilað
hagnaði ásamt því að skara framúr
öðrum samkeppnisaðilum bæði hvað
varðar vöxt og afkomu,“ segir Einar.
Markvisst náð að lækka vöruverð
Hann segir að Danól hafi náð góð-
um árangri með farsælli samvinnu
við sína innlendu viðskiptavini og
ekki síður við erlendu birgjana sem
fyrirtækið skiptir við. „Það má einnig
geta þess að Danól hefur markvisst
náð að lækka vöruverð. Þar hafa inn-
lendu vöruhúsin haldið okkur vel við
efnið. Því ef við getum ekki boðið
okkar vörur á lægsta verðinu kaupa
þau einfaldlega vöruna þar sem
kaupin gerast best. Alþjóðlegar
vörur eins og Neskaffi er til dæmis
hægt að kaupa í um 150 löndum um
allan heim. Við höfum ávallt litið á
það sem tækifæri þegar við missum
þessi viðskipti yfir til erlendra vöru-
húsa, þá höfum við áþreifanlega
ástæðu til að fara í viðræður við okk-
ar birgja um verð,“ segir Einar.
Októ segir að Danól hafi oftast náð
skilningi hjá sínum birgjum og þar af
leiðandi árangri í þessari baráttu.
„Þetta er í raun lykillinn að vel-
gengni fyrirtækisins. Ef við getum
ekki boðið samkeppnishæf verð við
þessi erlendu vöruhús þá erum við
ekki lengur í viðskiptum. Það er
ósköp einfalt. Það eru dæmi um það
að menn hafi ekki sýnt þessu skilning
en þá er viðskiptum okkar við þá líka
lokið. Sem betur fer gerist það þó
sjaldan.“
Feðgarnir segjast oft vera spurðir
að því hvort stóru verslanakeðjurnar
hér á landi séu ekki að kyrkja fyr-
irtækið en það sé af og frá. Þeir hafi
aldrei staðið þessa aðila að öðru enn
sanngirni í viðskiptum. „Þetta eru
auðvitað „hörkunaglar“ en ef við er-
um að bjóða sömu verð, að ekki sé
talað um betri verð, skipta þeir frek-
ar við okkur en erlendu birgjana. Það
er ósköp eðlilegt,“ segir Októ.
Stóru verslanakeðjurnar standa
sjálfar í innflutningi og einhver gæti
haldið að þær vildu helst losna við
fyrirtæki eins og Danól af markaðn-
um. Októ segir það misskilning.
„Hvað ættu þær að gera þá? Kaupa
vöruna af erlendum birgjum. Og það
er yfirleitt bara dýrara og meira ves-
en. Við erum einfaldlega hagkvæm-
ari kostur.“
Faglegt markaðsstarf
Októ segir að sumum vörum sé
samt sem áður ekki hægt að koma
inn á innlendan markað vegna gjalda
af ýmsu tagi. Það hafi þeir rekið sig
á. Nefnir hann ís sem dæmi. „Á tíma-
bili vorum við með Nestlé-ís en þar
lentum við í því að gjöldin voru u.þ.b.
150 krónur á lítra. Þá er ég bara að
tala um gjöldin áður en við borguðum
framleiðandanum flutning og fyrir
okkar álagningu. Það er hins vegar
verið að selja íslenskan ís á þessu
verði út úr búð hér. Það er ekki hægt
að keppa við svona lagað,“ segir Októ
en áréttar að þetta sé „dæmigert
landbúnaðarmál“ sem væri vísast
efni í annað viðtal. „En þetta er
ágætt dæmi um þá hluti sem við
stöndum frammi fyrir í okkar
rekstri. Það verða gríðarlega mörg
tækifæri fyrir okkur í framtíðinni
þegar haftastefnu landbúnaðarins
linnir en við gætum hæglega bætt við
okkur fjölmörgum vöruflokkum sem
ekki er leyft að flytja inn í dag.“
Danól er með öðrum orðum alltaf
opið fyrir nýjungum og fylgist vel
með neyslubreytingum. Við hlið
blaðamanns í fundarherberginu get-
ur að líta kynstrin öll af barnamat frá
Nestlé en markaðssetning á þeirri
vöru er einmitt að hefjast undir for-
ystu Einars Arnar. „Nestlé gerir
miklar kröfur til barnamatar og þetta
hefur verið í tvö ár í undirbúningi. Við
þurftum að skila allskonar skýrslum
áður en þetta var leyft, ráða hjúkr-
unarfræðing, koma okkur upp heima-
síðu og neyðarlínu, svo eitthvað sé
nefnt. Þetta breytir ekki miklu um
okkar veltu á þessu ári en er ágætt
dæmi um það hvað við erum tilbúin
að leggja mikið á okkur. Danól vand-
ar alltaf til verks,“ segir Októ.
Þeir Einar Örn segja sóknarfæri í
barnamat enda sé Ísland þar mjög
aftarlega á merinni. „Ef við berum
okkur saman við Noreg, sem er alls
ekki stærsta landið í þessu samhengi,
er veltan í barnamat á hvert barn
90% meiri þar en hér,“ segir Einar
Örn.
Kaupin á Lind og Ölgerð
Egils Skallagrímssonar
Árið 1996 keypti Danól Lind ehf.
Lindin var innflutningsfyrirtæki sem
flutti inn létt og sterk vín. „Þarna
sáum við tækifæri skapast þegar rík-
ið hætti sölu og dreifingu á áfengi til
veitingahúsa. Lindin var rekin í hús-
næði Danól og á nokkrum árum varð
fyrirtækið stærsta innflutningsfyrir-
tækið á léttum og sterkum vínum
ásamt bjór. Veltan var orðin um 1.500
milljónir árið 2001. Þegar Ölgerð Eg-
ils Skallagrímssonar fór í söluferli
2002 kom upp sú staða að hentugt var
að sameina Lind og Ölgerðina í eitt
öflugt drykkjarvörufyrirtæki. Niður-
staðan varð sú að Lindin keypti Öl-
gerðina árið 2002 og fyrirtækin sam-
einuðust undir nafni Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar. Reksturinn hefur
gengið mjög vel og skilaði t.a.m. á
liðnu ári tæplega 50% aukningu í
EBITA-framlegð frá 2001 ásamt því
að veltan hefur farið upp um 56% frá
sama ári en hún var um 5.500 millj-
ónir 2005,“ segir Einar.
Októ segir að þegar þeir hafi keypt
Lindina fyrir tíu árum hafi þeir gert
ráð fyrir að létt vín og bjór yrðu kom-
in inn í stórmarkaði innan fimm ára.
Það hefur ekki gerst enn. Hann þorir
ekki að spá fyrir um hvenær það
verði en fullyrðir að þá standi þeir
frammi fyrir spennandi tækifæri.
Húsnæðismálin í deiglunni
Vöxtur hjá Ölgerðinni hefur verið
gríðarlegur sem og hjá Danól. „Allri
lagerstarfsemi Ölgerðarinnar hefur
verið úthýst og hún færð til Vöruhót-
els Eimskips sem gengið hefur vel.
Nú standa þessi tvö fyrirtæki, Danól
og Ölgerðin, frammi fyrir stórum
ákvörðunum varðandi það hvort
mæta eigi framtíðarvexti félaganna
með því að efla frekar samstarf
þeirra við Vöruhótelin eða hvort ráð-
ast eigi í byggingu sem gæti hýst
starfsemi þessara tveggja fyrir-
tækja,“ segir Einar.
Októ upplýsir að þegar hafi verið
sótt um lóðir í Reykjavík og ná-
grannasveitarfélögum til að undirbúa
áframhaldandi vöxt. Það eru því
spennandi tímar framundan hjá
Danól og Ölgerðinni.
Beint í bekkpressuna
Það kemur því ekki á óvart að Ein-
ar Friðrik Kristinsson ljúki sínu ævi-
starfi með bros á för og rétti næstu
kynslóð kyndilinn. En hvað tekur
við? Hann er jú ekki nema 65 ára.
„Það er alveg óráðið,“ svarar hann.
„Það hefur verið lítill tími í annað en
þetta og ég veit svo sem ekki á þessu
augnabliki hvert hugurinn stefnir.“
Októ stingur upp á golfinu og Einar
tekur ágætlega í það. „Svo stefni ég
að því að fara oftar á skíði og veiða
meira. Það verður líka gaman að eiga
meiri frítíma með konunni,“ heldur
hann áfram og brosir til Ólafar. Síðan
er það líkamsræktin. „Við Einar Örn
höfum undanfarið eitt og hálft ár ver-
ið saman í líkamsrækt og hann þykist
geta bakað karlinn. Ég læt það nú al-
veg vera.“ „Tekurðu jafnmikið og
hann í bekknum?“ spyr Októ bróður
sinn forvitinn. „Nei, ég tek meira!“
Föður hans gefst senn tími til að
kippa því í liðinn.
orri@mbl.is
Rimini
frá 43.895 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, vikuferð í maí eða 21. júní.
Riviera íbúðahótelið.
Vinsælasta sólarströnd
Ítalíu - Ath. tilboð á fyrstu
300 sætunum
Króatía
frá 45.895 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjónmeð 2 börn,
2-11 ára, vikuferð í maí eða sept.
Diamant íbúðahótelið.
Heitasti staðurinn í fyrra.
Brottfarir í júní og ágúst
að seljast upp
Costa del Sol
frá 39.696 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 3 börn, 2-11
ára, vikuferð 25. maí eða 22. júní.
Castle Beach íbúðahótelið.
Margar brottfarir
í júní og ágúst
að seljast upp
Mallorca
frá 35.495 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, vikuferð 25. maí eða 22. júní.
Brasilia íbúðahótelið.
Frábærir gististaðir
Margar brottfarir
að seljast upp
Fuerteventura
frá 34.695 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, vikuferð í maí eða júní.
Oasis Royal íbúðahótelið.
Glæsilegasta
nýjungin
sumarið 2006
Benidorm
frá 17.188 kr.
Flugsæti til Alicante með sköttum.
Gildir í valdar brottfarir.
Netverð á mann.
Sala hafin!
- Ath. tilboð á fyrstu 300
sætunum
Barcelona
frá 23.990 kr.
Flugsæti með sköttum. Fargjald A.
Netverð á mann.
Sala hafin!
Barcelona – alltaf vinsæl
Lloret de Mar
frá 36.495 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, 5 nætur í maí eða júní (nema 29.
júní). Bolero íbúðahótelið.
Sala hafin!
Lloret de Mar
– frábærir gistivalkostir
Bókaðu núna ogtryggðu þér10.000 kr.afslátt á mann!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
Bókaðu beint á www.heimsferdir.is
Sumar
2006
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
20
3
40
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 35