Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 41

Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 41
Morgunblaðið/Kristinn Vefurinn undirstaða framþróunar og útrásar? Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér í þessum heimi, þar sem allt er á hverfanda hveli? „Ég hefði viljað sjá okkur gera svona landssamninga en vegna þess hve þetta er dýrt höfum við ekkert svigrúm til að auka áskrift- irnar. Við erum að greiða fyrir öll þessi rafræmu gögn um 100 millj- ón krónur á ári. Þetta eru miklir peningar og dálítið erfitt að afla þeirra, enda þótt menn séu alveg sammála um gagnsemi þessa. Ég spyr mig líka að því hvort þetta greiða aðgengi að vísindaheiminum sé ekki undirstaða framþróunar og útrásar, bæði innanlands og utan.“ gudrung@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 41 Grove Music & Opera. Þessi söfn eru notuð í sívaxandi mæli. Af almennu safni ber að nefna að landsaðgangur greiðir fyrir að- gang að greinum úr greinasafni Morgunblaðsins sem eru orðnar eldri en 3 ára hverju sinni. Þessi aðgangur að greinasafni Morgun- blaðsins er opinn fólki alls staðar í heiminum, öfugt við erlendu greinasöfnin, sem binda notkun við Ísland.“ Í bígerð að fá leitartæki sem leit- ar í öllum gagnasöfnum samtímis Hvað með önnur blöð og tíma- rit? „Gagnasafnið ProQuest veitir aðgang að tæplega 5000 tímaritum af öllu tagi. Þar eru almenn frétta- tímarit, vísindarit og afþreyingar- rit. Við erum líka með samninga við verkfræðistofur sem veita að- gang að þremur gagnasöfnum á sviði verkfræði.“ Hvað er í bígerð að fá inn á landsaðgang á næstunni? „Í bígerð er að reyna að auka þjónustuna með betra leitartæki sem getur leitað í öllum gagna- söfnunum samtímis og getur líka leitað í gagnasöfnum í opnum að- gangi um leið. Gagnasöfnum í opn- um aðgangi er sífellt að fjölga og landsaðgangur er að reyna að þjóna notendum þeirra safna einn- ig. Fjármögnun gengur þannig að hlutur hins opinbera hefur verið að aukast á þessu ári og nú er greiddur af fjárlögum tæplega þriðjungur af því sem þetta verk- efni kostar, það sem eftir stendur greiða bókasöfn landsmanna, ýms- ar stofnanir og örfá fyrirtæki.“ FRÉTTIR Erindið hefst kl. 3 e.h. og verður haldið í fundarsal LbhÍ á Keldnaholti, 3. hæð. Mánudaginn 13. febrúar flytur Jón Guðmunds- son, plöntulífeðlisfræðingur erindi: Af lífsbaráttu þriggja bakteríustofna og samskiptum þeirra við smára í tilraunareit. Allir velkomnir Fræðsluerindi Landbúnaðar- háskóla Íslands á Keldnaholti FASTEIGNIR mbl.is HÆSTIRÉTTUR hefur stað- festi með dómi sínum fjárnám, sem gert var í fasteign konu til tryggingar skattaskuldum sam- býlismanns hennar. Konan taldi að skuldir sambýlismannsins væru sér óviðkomandi þar sem þau hefðu ekki lýst því formlega yfir bæði, að þau óskuðu eftir samsköttun. Í dómi Hæstaréttar segir, að konan og sambýlismaður hennar hafi talið fram sameiginlega til skatts allt frá árinu 1994 og not- ið þess hagræðis sem samskött- un fylgdi. Því væru fyrir hendi þær aðstæður sem veittu emb- ætti tollstjórans rétt til að krefja konuna um skattaskuld sambýlismannsins. Málið dæmdu hæstaréttar- dómararnir Hrafn Bragason, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir. Steingrímur Þormóðsson hrl. flutti málið fyr- ir konuna og Guðfinna H. Þórs- dóttir fyrir Tollstjórann í Reykjavík. Fjárnám staðfest vegna skattskuldar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.