Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 45

Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 45 Maður sem ég þekkier áttræður í dag.Það er nú kannskiekki fréttnæmt ísjálfu sér að ein- hver nái áttræðisaldri, né að ég skuli þekkja hann. En það fær mann samt til að hugsa aðeins um mannsævina, tímann og arfleifðina. Sá sem er áttræður á þessu ári fæddist sem sé árið 1926, þeg- ar Eimskipafélagið var tólf ára, blað allra landsmanna þrettán og fjögur ár í að Ríkisútvarpið hæfi útsendingar. Þetta er sem sé löngu fyrir daga sí- byljunnar. Fólk fékk upplýsingar hvert frá öðru, úr blöðum og tíma- ritum og úr munni gesta sem leið áttu um. Í litlu sjávarþorpi eins og því sem umræddur maður ólst upp í var fátt sjálfgefið varðandi framtíðina. Það var meira að segja óvíst að fyr- irvinnan, fiskimaður á smábáti, skil- aði sér heim að kvöldi eftir dag á sjó. Það var ekki hægt að hringja heim af miðunum og láta vita ef eitthvað tafði för. Börn og eiginkonur stóðu á sjáv- arkambinum á hverjum degi sem róið var og biðu þess sem verða vildi. Skyggndust um, létu augun hvarfla um ystu sjónarrönd í leit að díl á hafinu. Þeir sem fránasta höfðu sjónina gátu greint úr ótrú- legri fjarlægð hvaða díll var hvaða bátur. Sá sem var lítill og þar á ofan sjóndapur og með gleraugu lærði hins vegar að þekkja vélarhljóðið. Það kom að góðum notum þegar þoka eða él hömluðu sýn. Þá sneru menn sér í eftirvæntingu að litla gleraugnagláminum og biðu þess að hann greindi og túlkaði skellina í vélunum. Það var ekki sjálfgefið að sonur fiskimanns í svona plássi lærði meira en það sem skyldan bauð. Lengri skólavist en svo var ætluð fáeinum útvöldum, sem höfðu tengsl við veröldina utan veglauss fjarð- arins í krafti peninga eða embættis. Sonur prestsins, sonur kaupmanns- ins, sonur sýslumannsins. Búið. Þegar maður eignaðist litla syst- ur á þessum árum var ekkert eðli- legra en að pabbi klifraði yfir hreggbarin fjöllin í aftakaveðri til að sækja lækninn ef eitthvað bjátaði á. Viðbragðstími kerfisins var mældur í öðrum einingum en núna. Strákurinn með gleraugun var duglegur í skólanum og mamma systkinanna lagði ríka áherslu á skólanámið og lagði sig líka í líma við að þau bæru heimilinu fagurt og myndarlegt vitni í háttum og klæðn- aði. Það var ekki alltaf auðvelt. Bæði kostaði það hana mikla vinnu, því ekki var svo auðveldlega skotist út í Kringlu, fyrir nú utan það að engum datt í hug að upp úr tómri aurakrukku væri unnt að töfra lítið spjald sem gerði manni fært að kaupa það sem vantaði upp á krít. Eins gat það verið erfitt fyrir segjum tíu ára pilt að halda vand- fengnum fataplöggunum hreinum þegar kom að því að gera nauðsyn- legar rannsóknir á umhverfinu í frí- mínútum eða eftir skóla. Hvernig heldur maður skínandi gulri skyrtu hreinni á meðan maður skríður inn í vél úr skipi á hlaðinu framan við vélsmiðjuna? Það fór svo að fiskimannssonurinn með gler- augun fór menntaveginn, fyrstur al- múgabarna þorpsins. Undarlegt þótti það þegar hann hélt út fjörð- inn á táningsaldri til að setjast að á heimavist í bæ í næsta firði, margra klukkustunda siglingu í burtu og ekki von á honum í stutta heimsókn fyrr en um jól. Fiskimaðurinn og konan hans með litlu systur á hafn- arbakkanum. Eftir þetta kom hann aldrei heim í þorpið sitt nema sem gestur. Á mínu heimili er fjórtán ára pilt- ur. Ég skil ekki hvernig ég, hann eða móðir hans ættum að umbera svo snemmbæran og eindreginn að- skilnað. En maðurinn sem á stórafmælið var lánsamur og varð mikið úr hæfi- leikum sínum. Lærði lögfræði, rak tvö fyrirtæki, sem bæði uxu marg- falt undir hans forsjá, en láðist reyndar að verða það sem er alfa og ómega í samtímanum, þ.e.a.s. veru- lega ríkur í efnahagslegum skiln- ingi, þótt honum vegnaði reyndar ágætlega. Við sem þekkjum hann og höfum notið forsjár hans í gegnum þessi ár sem við höfum safnað að baki okkar sendum honum nú kveðju með þökk fyrir þær fórnir sem hann færði til að byggja sér og sínum framtíð. Við erum öll afrakstur þess sem kynslóðirnar á undan okkur byggðu og fórnuðu. Við skulum leitast við að valda þeim ekki vansæmd eða vonbrigðum. Táningur fer út í heim HUGSAÐ UPPHÁTT Sveinbjörn I. Baldvinsson Óli og Kata eru systkin. Stóri bróðirinn Óli er núna fjórum sinnum það sem Kata er í dag, en eftir fjögur ár verður hann bara tvisvar sinnum það sem Kata verður þá. Hver er aldursmunur systkinanna? Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er mánudaginn 20. febrúar nk., klukkan 12. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranes- skoli.kopavogur.is en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi 13. febrúar. Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl. 16 þann sama dag ásamt lausn síðustu þrautar og nöfnum vinningshafanna. Stærðfræðiþraut Digranesskóla og Morgunblaðsins Pera vikunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.