Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Höfum fengið í einkasölu á þessum frábæra stað
glæsilega 97 fm íbúð ásamt bílskýli á efstu hæð í
þessu vandaða lyftuhúsi. Íbúðin er öll hinn glæsileg-
asta með mikilli lofthæð og vönduðum innréttingum
þar sem ekkert er til sparað. Íbúðin er til afhendingar
nú þegar algjörl. tilbúin með vönduðum gólfefnum.
Verð 32 millj.
Hafið samband við sölumenn
Hraunhamars sem sýna íbúðina.
Herjólfsgata - Hf. - 60 ára og eldri
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hátún - Einb. Reykjanesbæ
Höfum fengið í einkasölu sérlega fallegt
og vel staðsett einb. á tveimur hæðum
auk bílskúrs, samtals 201 fm. Húsið hef-
ur verið talsvert endurnýjað á vandaðan
máta, m.a. eldhús, baðherb. o.fl. Falleg-
ur ræktaður garður með verönd í bak-
garði. Toppeign, frábær staðsetning.
Verð 29,5 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Ásbúð - Raðh. - Garðabæ
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einka-
sölu mjög gott raðhús á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr, samtals um 166,3 fermetr-
ar, vel staðsett við Ásbúð í Garðabæ. Eignin er á
mjög góðum barnvænum stað þar sem er stutt í
skóla, leikskóla, framhaldsskóla, fallegur garður
í suður. Eignin skiptist í forstofu, hol, vinnuher-
bergi, baðherbergi, tvö góð herbergi, geymslu
og bílskúr. Á efri hæð er stofa, borðstofa, eld-
hús, hol, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherb.
ásamt sjónvarpsholi á millilofti. Góðar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar. Verð 41,9 millj.
Brekkubyggð - Garðab. - Sérinng.
Nýkomin í einkasölu sérlega falleg 3ja herb.
neðri sérhæð í þessu vinsæla hverfi. Íbúðin er
um 60 fm, fallega innréttuð og mjög vel skipu-
lögð, sérgarður, tvö svefnherb., rúmgóð stofa,
flísalagt baðherb., allt sér. Verð 16,8 millj.
98491
Hlíðarbyggð - Raðh. - Garðabæ
Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra stað
fallegt 200 fm raðhús með innbyggðum bíl-
skúr. Húsið er mjög vel staðsett í lítilli botn-
langagötu með fallegu útsýni.Lítil aukaíbúð á
jarðhæð, miklir möguleikar, húsið getur losn-
að fljótlega. Verð 39,8 millj. 113801
GARÐABÆR
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Höfum fengið í einkasölu rót-
gróna efnalaug/þvottahús
ásamt fasteigninni Hraunbrún
40 þ.e. ca 250 fm einb/tvíb
sem skiptist þannig, jarðhæð
og bílskúr (hluti af efnalaug)
þar sem efnalaug er til húsa,
efri hæð og ris. Aðalhæð sér-
inngangur, stofa , borðstofa,
eldhús, svefnherb., sjónvarps-
hol, o.fl. ris, 4 svefnherb. o.fl. góð staðsetning miklir möguleikar, góð hús-
eign, húseign og fyrirtæki selt saman. rótgróið fyrirtækiUpplýsingar gefur
Helgi Jón á skrifstofu.
Þvottahús/efnalaug
Hraunbrún Hafnarfjörður
TÓNLISTARSKÓLAR í Reykja-
vík eru sjálfstætt starfandi, yfirleitt
sjálfseignarstofnanir.
Lögheimilissveitarfélög nemenda
greiða beinan kennslukostnað, því
skv. núgildandi lögum
er launakostnaður
vegna tónlistarfræðslu
alfarið á hendi sveitar-
félaga.
Nemendur greiða
annan rekstrarkostnað
með skólagjöldum.
Reykjavíkurborg út-
hlutar tónlistarskólum í
Reykjavík „kvóta“, þ.e.
hversu margir þegnar
hennar njóta styrks frá
borginni. Kvótinn hef-
ur minnkað ár frá ári,
þar sem heildar-
fjármagn til mála-
flokksins hefur ekki
verið aukið, heldur
skorið af eldri skól-
unum eftir því sem nýir
tónlistarskólar bætast
við og íbúum fjölgar.
Menntaráð borg-
arinnar reiknar út
hversu há styrk-
upphæðin er fyrir
hvert námsstig í hinum
ýmsu skólum, eftir
kennslumagni og miðar
þar við launagreiðslur skv. kjara-
samningum Sambands sveitarfélaga
og tónlistarkennara.
Sveitarfélög á höfuðborgarsvæð-
inu greiða ekki raunstyrk með nem-
endum sem stunda nám í Reykjavík-
urskólunum, heldur ákveða
styrkupphæðina einhliða. Sú upphæð
er ekki í neinu samræmi við kostnað,
sem er þó byggður á kjarasamn-
ingum sem þau eiga aðild að. Sveit-
arfélögin lækka síðan fjárhæðina enn
frekar, þar sem þau telja að fyrir
liggi samkomulag við ríkissjóð um að
greiða hluta kostnaðar við fræðslu
nemenda sem fá tónlistarnám metið
til eininga í framhaldsskólum. Slíkt
samkomulag liggur ekki fyrir.
Sveitarfélög á landsbyggðinni
neita flest að styrkja tónlistarnem-
endur til náms í Reykjavík. Ef þau
hins vegar samþykkja kennslustyrk,
er hann rétt metinn, þ.e. byggður á
útreikningum Menntaráðs Reykja-
víkurborgar.
Átthagafjötrar og aldursmörk
Búseta: Svo virðist sem tónlist-
arnám sé eina námið
sem bindur umsækj-
endur í fjötra búsetu og
aldurs. Ekki er amast
við því þó ungmenni í
Reykjanesbæ eða
Kópavogi vilji frekar
stunda nám við
Menntaskólann í
Reykjavík eða Verzl-
unarskólann en Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja
eða Menntaskólann í
Kópavogi. Grunn-
skólanemar geta líka
stundað lögboðið
grunnskólanám í næsta
bæjarfélagi á höf-
uðborgarsvæðinu, ef
foreldrar kjósa og það
hentar fjölskyldunni
betur. Tónlistarnemar
neyðast hinsvegar til að
skipta um lögheimili og
freista þess að komast
inn í „Reykjavíkurkvót-
ann“. Unglingum innan
18 ára aldurs þarf þá að
skipa lögráðamann í
Reykjavík!
Aldur: Sveitarfélög hafa sett 25
ára aldurshámark á tónlistarnem-
endur (undantekning er 27 ár fyrir
söngnema í Reykjavík). Þarna er
nemendum afar þröngur stakkur
skorinn, í þjóðfélagi sem hvetur til
endurmenntunar, símenntunar og
nýrra atvinnutækifæra.
Dæmi þess hversu mikið ranglæti
þetta er hrópa á okkur: Kristinn Sig-
mundson, Viðar Gunnarsson, Guðjón
Óskarsson, Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson eru dæmi um „heimssöngv-
ara“ sem hófu söngnámið eftir 27 ára
aldur. Algengt er að nemendur sem
stundað hafa tónlistarnám á barns-
aldri taki sér hlé til að einbeita sér að
almennu framhaldsnámi, stúlkur
eignast barn eða börn og taka barns-
burðarleyfi og vilja svo taka upp
þráðinn en þá er það, skv. „reglu-
gerð“ sveitarfélaga, of seint!
Tónlistariðkun – menntun
eða tómstundaiðja
Nám við viðurkenndan tónlistar-
skóla er tónlistarnám – alvöru nám.
Tónlistarskólar eru með inntöku-
próf og velja hæfustu umsækjend-
urna. Tónlistarnemar stunda nám við
tónlistarskóla, til þeirra eru gerðar
kröfur um ástundun og árangur, eins
og í öðru námi. Til að geta á orðið
hljóðfæraleikari eða söngvari, leið-
beinandi eða tónlistarkennari, þarf
einstaklingur að hafa stundað krefj-
andi tónlistarnám í mörg ár.
Menningarlíf á Íslandi ber vitni
um öflugt starf tónlistarskóla og tón-
listarmenntun:
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ís-
lenska óperan, Listahátíð í Reykja-
vík, ýmsar listahátíðir um allt land,
djasshljómsveitir, rokkhljómsveitir,
kirkjutónlist, kórastarf, lúðrasveitir,
allt vex þetta upp úr tónlistar-
menntun í tónlistarskólum.
Það hefur tekið mörg ár að byggja
upp starfsemi tónlistarskólanna, það
þarf hinsvegar ekki mörg ár til að
brjóta niður. Ef tónlistarskólar
mennta ekki nemendur sem halda
síðan til framhaldsnáms, verða innan
fárra ára ekki til neinir tónlist-
armenn á Íslandi og – það verða
heldur ekki til neinir leiðbeinendur í
það fjölbreytta tómstundastarf sem
byggist á tónlist, a.m.k. ekki íslensk-
ir. Það er því miður þróunin, að ekki
fást nema innfluttir tónlistarkenn-
arar til starfa á landsbyggðinni, með
allri virðingu fyrir erlendum vinnu-
krafti. Þróunin er sú að örfáir ís-
lenskir tónlistarkennarar koma til
starfa.
Sveitarfélögin segja: Við eigum
ekki að standa undir menntun kenn-
ara, ríkinu ber að sjá um það. En –
það getur enginn orðið tónlistar-
kennari, sem ekki hefur stundað tón-
listarnám í fjölda ára – grunnnám –
miðnám – framhaldsnám – áður en
hann hefur möguleika á að hefja tón-
listarkennaranám „á kostnað rík-
isins“.
Vandamál tónlistar-
menntunar í Reykjavík
Ásrún Davíðsdóttir
fjallar um tónlistarnám
’Það hefur tekiðmörg ár að
byggja upp
starfsemi tónlist-
arskólanna, það
þarf hinsvegar
ekki mörg ár til
að brjóta niður.‘
Ásrún Davíðsdóttir
Höfundur er aðstoðarskólastjóri
Söngskólans í Reykjavík.
ókeypis
smáauglýsingar mbl.is