Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 55

Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 55 UMRÆÐAN HVAÐ dettur manni fyrst í hug þegar maður heyrir orðin „orku- lindin Ísland“? Sennilega fer það eftir því hver á í hlut, til hvers er ætlast. Helstu forsvarsmenn íslenskrar atvinnustefnu nú um stundir ætlast til þess að fyrst komi upp í hugann orð eins og: virkjanir, stóriðja og orkufrekur iðnaður og eitthvað í þeim dúr. Þessir aðilar hamast nú sem aldrei fyrr á okkur almenningi til að innræta okkur ágæti virkjana- og stóriðjustefnunnar. Nú er lausnarorðið gufu- aflsvirkjanir, sem eru „náttúruvænni“. Mál- svarar stóriðjustefn- unnar renna hýru auga til háhitasvæð- anna vítt um land og iðnaðarráðherra tekur undir í þinginu með frumvarpi sem beinlínis er ætlað að tryggja orku- framleiðendum greiðari aðgang að virkjunarsvæðum án afskipta sveit- arfélaga og almennings. Þessi nýja áhersla á gufuaflsvirkjanir sem eiga að vera svo umhverfisvænar er sér- staklega óhugguleg í ljósi þess að litlar rannsóknir liggja fyrir um mengunarþáttinn og áhrif stór- felldrar nýtingar og niðurdælingar á háhitakerfin djúpt í jörðu. Kappið er svo gríðarlegt að ekki er ljáð máls á því að staldra við til að vinna tíma til nauðsynlegra rannsókna, svo unnt sé að svara spurningum um mengun og eyðileggingu nátt- úruauðlinda, og líka til að vinna tíma til að endurmeta hvort virkj- ana- og stóriðjustefnan sé það besta sem Íslendingar 21. aldar eiga kost á. Byrjun 20. aldar fól í sér vænt- ingar sem fátækur almenningur sá í stóraukinni iðnvæðingu. Hann óraði ekki fyrir því þá að 100 árum síðar ógnar þessi „draumur“ velsæld- arinnar öllu jarðlífi meira en nokk- uð annað. Í dag stöndum við að því leyti betur að vígi en foreldrar okk- ar, afar og ömmur að við höfum bæði tæki, þekkingu og tíma til að rannsaka áhrif gerða okkar á um- hverfið. Hvers vegna ekki að staldra við og gera það? Hvaða óða- got er þetta eiginlega? Ég er bara óbreyttur Íslendingur, sem hef unn- ið vinnuna mína frá degi til dags í gegnum tíðina, horft á samfélagið þróast og breytast og hlustað á raddir þess í meira en hálfa öld. Þegar ég heyri orðin „orkulindin Ís- land“ dettur mér allt annað í hug en virkjanir og stóriðja. Fyrst af öllu dettur mér í hug sá innri kraftur sem býr í fólkinu og kemur fram í margvíslegum birtingarmyndum. Mér dettur í hug þekking- arstarfsemi af ýmsu tagi: Actavis, Össur, Lyfja, Íslensk erfðagreining, svo eitthvað sé nefnt. Mér dettur í hug útrás íslenskra fyrirtækja, sem á engan sinn líka hjá jafn fámennri þjóð, skatttekjur íslensks samfélags af útrás bankanna nema svipaðri upphæð og ríkið legg- ur til félagsþjónust- unnar. Mér dettur í hug útrás á sviði lista; tónlistar, málaralistar, skáldskapar, kvik- myndalistar. Mér dett- ur í hug gróskan í há- skólunum og menningunni almennt. Íslenskt listafók ferðast um heiminn fyllir tónlistarsali og torg með tónlist- arflutningi, það er nefnt til verðlauna á sviði bókmennta, tónlistar, kvik- mynda- og málaralistar í mörgum löndum. Og mér dettur í hug stór- kostleg náttúran, sem fólk sækir í hvaðnæva til að hlaða sálarrafhlöð- urnar, eftir dimman, kaldan og erf- iðan vetur. Flugvélar, skip og bílar flytja fólkið að rótum íslenskra fjalla þaðan sem það dreifist um víðernin í leit að upplifun, sem það finnur hvergi annars staðar. Þetta er orkulindin Ísland! Ég hélt að ég hefði beinlínis tapað sjón þegar mér varð litið á dagskrá Sam- taka atvinnulífsins sem auglýsti ráðstefnuna Orkulindin Ísland, 27. janúar sl. Þar sá ég engan fulltrúa þeirra aðila sem standa fyrir upp- byggingu og útrás íslenskra aðila á fjölmörgum sviðum, eins og áður er talið. Hvað vitnar frekar um Orku- lindina Ísland, en sá mikli sköp- unarmáttur og kynngi, sem er afl- vaki athafna á svið þekkingar, lista og viðskipta. Sem betur fer er enn til öflugt fólk á Íslandi sem vill og kann að nýta sér kynngimögn ís- lenskrar náttúru til að efla sköp- unargáfuna og styrkja með því ræt- ur og undirstöður samfélagsins. Hvað vilja þeir menn í raun og veru, sem kalla ekki til fundar við sig frjóustu vaxtarsprota samfélags- ins, fólkið sem stendur undir raun- verulegri nýsköpun í krafti frum- leika og hugvits. Í Njálu hefðu þessir menn trúlega verið taldir „ógæfusamlegir“ vegna þess að þeir tala ekki heilli tungu við þjóð sína. Ég hélt að ég hefði beinlínis tapað sjón þegar mér varð litið á dagskrá Samtaka atvinnulífsins sem auglýsti ráðstefnuna Orkulindin Ísland, 27. janúar sl. Þar sá ég engan fulltrúa þeirra sem standa fyrir uppbygg- ingu og útrás íslenskra aðila á fjöl- mörgum sviðum, eins og áður er talið. Orkulindin Ísland Jón Hjartarson fjallar um orkulindina Ísland ’Í Njálu hefðu þessirmenn trúlega verið taldir „ógæfusamlegir“ vegna þess að þeir tala ekki heilli tungu við þjóð sína.‘ Jón Hjartarson Höfundur er fyrrverandi fræðslustjóri. Glæsilegt 150 fm endaraðhús sem skiptist í tvær hæðir og ris, auk 26 fm sérstæðs bílskúrs. Húsið er afar vel staðsett á frábærum útsýnisstað á móti suðri. Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, rúmgott hol, eldhús með vandaðri innréttingu úr birki, stórar og bjartar glæsilegar samliggjandi stofur með útgangi á suðursvalir, þrjú herbergi (öll með skápum), sjónvarpshol, flísalagt baðherbergi og þvottaherbergi auk opins rýmis/herbergis í risi með stórum þakglugga, nýtt í dag sem sjónvarpsstofa. Parket og flísar á gólfum. Bílskúr upphitaður og raflýstur. Lóð með skjólveggjum og verönd. Verð 44,9 millj. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Gnitaheiði - Suðurhlíðum Kópavogs Glæsilegt endaraðhús á frábærum útsýnisstað HB FASTEIGNIR Sími 534 4400 • Hús verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík Hrafnhildur Bridde löggiltur fasteignasali Pétur Kristinsson lögg.fasteignasali og lögg. verðb.s. 893 9048 Kristinn R. Kjartansson sölustjóri fyrirtækja- og atvinnuhúsnæðis 820 0762 - 534 4405 EIGNIR Á SÖLUSKRÁ: Austurströnd - Seltjarnarnesi - 2ja herb. - Verð 16,7 millj. Birkigrund - Selfossi - Einbýli - Verð 41,5 millj. Hæðargarður - Reykjavík - 2ja herb. - Verð 15,3 millj. Suðurgata - Reykjavík - Einbýli - Verð 60,0 millj. Hótel: Þekkt hótel í Reykjavík - Verð 700 millj. Þekkt hótel í Reykjavík - Verð 1500 millj. Flott hótel á Suðurlandi - Verð 750 millj. Gistiheimili í Reykjavík - Verð 125 millj. Fyrirtæki til sölu: Þekkt og traust fatahreinsun sem rekin er í eigin húsnæði - Verð 45 millj. Mjög góður austurlenskur veitingastaður - Verð 15 millj. Sólbaðstofa í úthverfi Reykjavíkur - Verð 12 millj. Byggingarlóðir: Lóðir til sölu í Reykjavík, Reykjanesi og Vesturlandi undir fjölbýli. Óska eftir til kaups: Góðri 3ja-4ra herb. íbúð í lyftuhúsi í vesturbæ Rvk fyrir eldri borgara Góðri ca. 4-500 fm skrifstofuhæð á svæði 101 eða 105 Góðu verslunar- og lagerhúsnæði ca. 1000-2000 fm í Reykjavík eða nágrenni Öllum tegundum af skrifstofuhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu Öllum tegundum af iðnaðarhúsnæðum á Reykjavíkursvæðinu SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ HB FASTEIGNA: Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Hulduland 46 - Raðhús í Fossvoginum Opið hús milli kl. 14 og 16 í dag Fallegt 167,4 fm raðhús ásamt 19,4 fm bílskúr á þessum vinsæla stað. Húsið er á pöllum og með 4-5 svefnherb., stórri stofu, snyrtingu, baðherb., eldhúsi, borð- stofu og góðu þvottahúsi. Stórar svalir eru í suður með fallegu útsýni yfir Foss- voginn. Gott leiksvæði er við húsið og stutt í skóla. Búið er að klæða húsið að utan að hluta. Hér er gott tækifæri til að flytja í Fossvoginn! Verð 45,0 millj. Sóley og Björn taka vel á móti gestum í dag milli kl. 14 og 16. Söluyfirlit á staðnum. OPIÐ HÚS LJÓSVALLAGATA 8 Til sýnis og sölu mjög falleg og mikið endurnýjuð 3ja til 4ra herbergja útsýn- isíbúð á efstu hæð í litlu fjölbýlishúsi við rólega einstefnugötu í vesturbænum. Fallegt nýlegt olíuborið eikarplanka- parket er á gólfum. Verð 23,9 milljónir. Inga María og Kristbjörn taka á móti gestum og sýna íbúðina í dag, sunnudag, milli kl. 13:00 og 16:00 Glæsileg 3ja til 4ra herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð Veitingastaður til leigu í miðbæ Reykjavíkur Til leigu Lækjargata 10, Reykjavík. Húsið er fullinnréttað sem veitingastaður. Um er að ræða eign á þremur hæðum. Neðsta hæðin er innréttuð sem „take away“-staður og efri hæðir sem veitingahús. Nánari uppl. gefur Hafsteinn í síma 690 3031 ókeypis smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.