Morgunblaðið - 12.02.2006, Síða 67

Morgunblaðið - 12.02.2006, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 67 MINNINGAR Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is 10-50% afsláttur TILBOÐ á legsteinum, fylgihlutum og uppsetningu Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður og tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR G. STEFÁNSDÓTTUR, Hringbraut 50, áður Álftamýri 42, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund fyrir frábæra umönnun. Sæmundur Einar Valgarðsson, Þórunn J. Hermannsdóttir, Flosi Sigurvin Valgarðsson, Eygló Aðalsteinsdóttir, Rafn Valgarðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, AGNARS JÓNSSONAR, Höfðagrund 14a, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar og lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akraness fyrir hlý samskipti og góða umönnun. Jónína Bryndís Jónsdóttir, Guðjón Smári Agnarsson, Sigríður Thoroddsen, Guðfinna B. Agnarsdóttir, Sigurður Sævar Sigurðsson, Ólöf Agnarsdóttir, Sigurjón Skúlason, Björg Agnarsdóttir, Þór Arnar Gunnarsson, Jón Agnarsson og afabörn. Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlý- hug og vináttu við andlát og útför elsku eiginkonu minnar, ERNU FRIÐBJARGAR EINARSDÓTTUR, Vallargötu 34, Sandgerði. Hannes Friðrik Oddsson, Guðný Rósa Hannesdóttir, Erna Líf Gunnarsdóttir, móðir og systkini hinnar látnu. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, bróð- ur og mágs, INGVA GUÐJÓNSSONAR, Álfalandi 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E á Landspítalanum við Hringbraut og starfsfólks líknardeildar Landakots- spítala fyrir ómetanlega aðstoð og umönnun. Þóra Magnúsdóttir, Kristín Ingvadóttir, Hilmar Karlsson, Magnús Ingvason, Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir, Katrín Lovísa Ingvadóttir, Páll Baldvin Baldvinsson og afabörn, Hólmfríður K. Guðjónsdóttir og Böðvar Valtýsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁGÚSTU ENGILBERTSDÓTTUR. Ólafur Ægisson, Sigríður Einarsdóttir, Íris Ægisdóttir, Haraldur Kornelíusson, Bára Ægisdóttir, Snorri Gissurarson, Alda Ægisdóttir, Hans Helgi Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við fráfall elskulegr- ar móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, ÞÓRUNNAR ÞORVARÐARDÓTTUR, áður til heimilis á Kleppsvegi 120, Reykjavík. Starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Skjóli eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða umönnun, hlýju og ástúð. Guð blessi ykkur öll. Unnar Jónsson, Auðbjörg Jónsdóttir, Kristín Schmidhauser Jónsdóttir, Ulrich Schmidhauser, Áslaug Jónsdóttir, barnabörn, stjúpbörn, langömmubörn og fjölskyldur þeirra. Mínar fyrstu minningar af Huldu frænku tengjast fjörunni í innbæn- um, þar sem yndislegt heimili þeirra hjónanna Huldu og Pjeturs stóð við Aðalstræti. Hulda var fyrirmyndar- húsmóðir, en einnig mjög margt ann- að til lista lagt. Dugnaðarforkur er lét aldrei deigan síga. Fagurkeri og listakona á allt handverk sem elskaði garðinn sinn og sjóinn. Ófáar voru þær stundir er við sátum í garðinum þínum sem þú nostraðir svo mikið við, eða hrifning okkar við gluggana er við horfðum yfir sjóinn og fjöl- skrúðugt fuglalífið allt í kring. Ekki er hægt að minnast Huldu einnar. Ég hef ætíð nefnt þau saman hjónin Huldu og Pjetur sem einnig hefur kvatt. Þau voru sérstaklega samrýnd, gjörólík en afar hamingju- söm saman og næm hvort á annað. Minnisstæð eru mér orð hans er Hulda sagði mér að hann hefði sagt við sig á dánarbeði: „Hulda mín, vert þú svo ekkert alltaf að fara upp í kirkjugarð þegar ég verð farinn, ég verð ekki þar. Ég verð í London.“ Umhyggja hans fyrir henni var óend- anleg, því auðvitað vissi hann hve slæm hún var í fótunum. Pétur var eins og sólin, var til staðar eins og hún og hafði stjórn á hlutunum án þess að hafa fyrir því. Einstakt prúð- menni sem mér þótti einnig afar vænt um. Við Hulda unnum oft saman á sjón- um og voru þær ófáar siglingarnar á Drang sem við fórum saman til Nor- egs og Danmerkur. Minnisstæðar voru þessar ferðir. Ein fegursta minning í huga okkar frá þessum ferðum var innsiglingin til Bergen eitt árið. Blankalogn og blíðskapar- veður. Hólmarnir, smábátarnir, sum- arhúsin, gróðurinn og litafegurðin. Við gleymdum okkur. Einnig ferðir okkar á rómaða útsýnisstaði uppi í hlíðum Bergen. Síðan allar siglingar okkar til Grímseyjar í miðnætursól- ina með fólk frá öllum heimsálfum. Systkinahópurinn var samheldinn og ógleymanlegar voru allar veisl- urnar og gamlárskvöldin sem þið glödduð okkur með heimsóknum. Þar sem angan og ský stórra hátíð- arvindla skipstjórans bróður þíns svifu yfir allt Barðstúnið og lá við Sól- heimahúsið líka. Enda búið að kalla til alla nágrannana í götunni. Við þetta blandaðist hressilegt undirspil yndislegs nágranna, Kristjáns Rögn- valdssonar, sem ykkur fannst mikið til koma, og söngurinn var flottur. Einnig streyma fram í minning- unni góðu stundirnar ykkar mömmu. HULDA JÓNSDÓTTIR ✝ Hulda Jónsdótt-ir fæddist á Ak- ureyri 4. janúar 1923. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 24. janúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón Björnsson skipstjóri og Kristín Guðjóns- dóttir húsfreyja. Hulda var yngst átta systkina og er Sigurlaug ein systk- inanna á lífi. Hulda giftist Pétri Hallgríms- syni. Dóttir þeirra er Kristín, f. 31. október 1942, gift Brodda Björns- syni frá Syðra-Laugalandi. Þau eiga fjögur börn, þrettán barna- börn og eitt barnabarnabarn. Útför Huldu fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þá komst þú gangandi upp Spítalaveginn upp úr hádegi og þið áttuð daginn. Margt var spjallað og í minning- unni var alltaf sólskin þegar þú komst. Áhugamálin voru margs konar. Ferða- lögin, Kanaríeyjaferð- ir sem þið Pjetur fóruð árlega um margra ára skeið og Mývatnssveit- in var ykkur hugleikin og einnig gróður Ís- lands eins og hann lagði sig. Bæjarmálin voru oft reifuð og eitt og annað lagt til málanna. Ef Gréta systir þín var líka þá man ég vel hvað umræðurnar gátu tekið hressilegan kipp þegar Ingólfur mágur þinn mætti á svæðið. Aldrei lognmolla yfir bæjarmálunum hjá honum, þið skemmtuð ykkur kon- unglega – ný yfirsýn á málin. Þá vil ég nefna Hrönn og Marinó sem voru þér afar hjartfólgin og hugsuðu alltaf vel til ykkar og um ykkur og þið vöktuð yfir velferð þeirra ekki síður en dóttur ykkar Kittýjar og barnabarnanna sem þú vildir alltaf vera að gleðja. Ekki má gleyma tengdasyninum Brodda sem þú talaðir alltaf svo hlýlega um og leitaðir oft til, hann var þér svo bón- góður. Systur þínar Sigurlaugu og Gyðu heimsóttir þú oft suður og ógleymanlegar voru heimsóknir ykk- ar til mín þegar ekið var norður í land. Þið komuð í Barðstúnið og stíf dagskrá var mótuð frá fyrsta degi og alltaf var mikil gleði og glens, og góð- látleg stríðni látin fjúka á báða bóga. Létta lundin hennar Sigurlaugar var oft búin að stytta þér stundirnar er þú lást á sjúkrahúsinu og hún hringdi nánast daglega í þig. Veikindi þín tóku frekar snögga breytingu og kvöld eitt er ég kom til þín sagðist þú vera komin með flensu. Þó þú værir við dauðans dyr kallaðir þú það flensu og heim ætlaðir þú, ja allavega ekki lengra en á hjúkrunar- heimilið Sel. Þú hafðir heyrt svo vel látið af því. Þá horfði ég á þig og fannst þú vera að leggja í hann. Bát- urinn þinn klár og einhver að kalla í fjarska „sleppa“. Landfestunum sveiflað fram af bryggjukantinum og pushljóðið og skvampið er endinn skall á sjónum. Fleyið að fjarlægjast – þannig kvaddi ég þig í huganum. Ég hefði helst viljað sigla með þig nokkra hringi á Pollinum í virðing- arskyni að síðustu, það hefði verið vel við hæfi og flauta vel. Þegar ég rifja upp þessar minning- ar, sem eru mér ómetanlega dýrmæt- ar, er efst í huga mínum þakklæti fyr- ir allar skemmtilegu stundirnar og hvað við náðum vel saman. Ég sendi Kittý, Brodda, barnabörnunum og tengdabörnunum sem öll voru þér af- ar dýrmæt innilegustu samúðar- kveðjur og bið góðan Guð að vaka yfir þeim við það tómarúm sem nú mynd- ast. Í dag munum við tendra ljós á kerti Guðs náðar í Englandi og ég treysti því að á því verði aldrei slökkt. (Hugh Latimer.) Góða ferð, elsku Hulda. Kristín Steindórsdóttir. Elsku frænka mín, þá ertu búin að fá hvíldina, eins og þú varst búin að þrá svo lengi. Mikill söknuður er að þér. Þú varst móðursystir mín en oft fannst mér eins og við gætum verið systur. Þú hefur alltaf verið stór þátt- ur í lífi mínu og margar eru minning- arnar sem ég á um þig. Eftir að ég giftist og fór að eignast mín börn fylgdist þú alltaf með þeim og þurftir alltaf að fá að vita hvernig gengi hjá þeim. Þær voru ófáar ferðirnar sem farnar voru til Akureyrar þar sem ég var uppalin og alltaf var komið við hjá þér og mikið varstu alltaf glöð að sjá okkur. Ég vissi að þér þótti ég ekki koma nógu oft, en það er nú svona, þegar börnin eru orðin fimm þá er alltaf erfiðara að koma með stóran hóp með sér en það fannst þér nú ekki, hafðir bara gaman af því. Ekki stóð á matarboðunum hjá þér, allt svo fallegt og fínt hjá þér eins og þú varst alltaf sjálf og aldrei mátti rykkorn sjást á neinu. Það voru ófá samtölin sem við áttum og alltaf þegar ég hringdi sagðir þú: „Nei, sæl elskan, ert þetta þú?“ Það er skrítið að geta ekki hringt til þín, en ég er þakklát að hafa getað átt gott samtal við þig þegar þú varst á sjúkrahúsinu og var það okkar síðasta samtal. Elsku frænka, megi góður guð gefa þér góða heimkomu. Ég kveð þig með sárum söknuði, elsku frænka mín. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Ég sendi dóttur hennar og fjöl- skyldu samúaðarkveðjur, Hildur Jónína (Daisy).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.