Morgunblaðið - 12.02.2006, Qupperneq 70
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
Svínið mitt
© DARGAUD
VEISTU HVAÐAN
BÖRNIN KOMA?
NEI
HVERNIG ÆTLI
MAÐUR KOMIST
AÐ ÞVÍ?
LEYFÐU MÉR AÐ SJÁ HVAÐ
STENDUR Á MIÐANUM Á
BOLNUM ÞÍNUM
ÞÚ KEMUR
FRÁ TÆVAN
VIKTORÍA ER KOMIN
AFTUR FRÁ KONGÓ. HÚN BAUÐ
FRÆNDUM SÍNUM MEÐ ÞAU VILJA HITTA
HVÍTT FÓLK
VIKTORÍA
HEFUR TALAÐ
MIKIÐ UM
OKKUR VIÐ
ÞAU...
ÉG SKAL
TALA VIÐ
HANA
JÁ VIKTORÍA... ÞAÐ ER
MJÖG GÓÐ
HUGMYND.
KOMIÐ EFTIR
HÁDEGI OG
FÁIÐ YKKUR
TE MEÐ
OKKUR
OG KÖKUR
LÍKA
ÉG SKAL GERA
PÖNNUKÖKUR
HEILAN HELLING AF
PÖNNUKÖKUM!!
ADDA, KÖMDU AÐ HJÁLPA
MÉR AÐ BAKA
FÖRUM AÐ
BAKA!
ÆÐI!
HVAÐ... LEIGÐI
HÚN SÉR
FLUGVÉL?
HÚN MINNTIST
BARA Á FRÆNDUR
SÍNA
ÉG GAT
EKKI VITAÐ
AÐ...
PABBI!
ÞAÐ VANTAR FLEIRI
PÖNNUKÖKUR!
Dagbók
Í dag er sunnudagur 12. febrúar, 43. dagur ársins 2006
Á stundum hefurVíkverji heyrt að
ekki sé nein sérstök
ástæða til þess að vera
með vegabréf þegar
farið er til landa í
Vestur-Evrópu.
Landamæraeftirlit sé
meira og minna dottið
upp fyrir. Á dögunum
fór Víkverji til Sviss
og í upphafi ferðar í
afgreiðslu flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar var
vegabréfi otað að af-
greiðslukonu ásamt
blaði með staðfestingu
á flugi. Afgreiðslukon-
an vildi ekkert með vegabréfið hafa.
„Þú ert innan Schengen,“ sagði hún
með bros á vör og fannst Víkverji
vera gamall í hettunni. Kannski var
það bara myndin sem kveikti brosið
enda Víkverji eilítið hárprúðari fyrir
níu árum. Skömmustulega lét Vík-
verji vegabréfið í vasann. Ekki leið á
löngu þar til það kom í góðar þarfir
þegar að tollhliði vallarins kom því
þá var Víkverji krafinn um vegabréf
ásamt brottfararspjaldi. Auk þess
var hressilega leitað á honum og í
handfarangri. Ekki skal kvartað yfir
því enda hafði Víkverji ekkert að
fela. Áfram var haldið til Hafnar og
þaðan til Zürich. Á þessari leið var
reglulega óskað eftir
að Víkverji sýndi
vegabréf, m.a. í tví-
gang áður en gengið
var um borð í flugvél
SAS frá Kaupmanna-
höfn áleiðis til Zürich.
Í síðara skiptið bað
ungur danskur starfs-
maður SAS um að fá
að líta í vegabréf Vík-
verja ásamt brottfar-
arspjaldi. Þakkaði
hann fyrir sig á ís-
lensku að skoðun lok-
inni. Virtist hann hafa
lært þakkarorðin hjá
Vilhjálmi „Erni“, all-
tént bar framburðurinn það með sér.
Frá Sviss var farið sömu leið til baka
nokkrum dögum síðar. Þegar heim
var komið prísaði Víkverji sig sælan
yfir að hafa haft vegabréfið með í
för. Þegar rennt var í huganum yfir
hversu oft hann hafði verið krafinn
um það á þessum fáu dögum kom í
ljós að það var ekki í færri tilfellum
en níu, síðast þegar gengið var um
borð í flugvél Icelandair í Kaup-
mannahöfn. Víkverji mun því næst
glotta á móti þegar hann framvísar
sínu lúna vegabréfi við afgreiðslu
Icelandair í flugstöðinni sem kennd
er við Leif blessaðan Eiríksson, hvað
sem öllu hjali um Schengen líður.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Madríd | Áhorfandi skoðar sig um á Alþjóðlegu listastefnunni á Spáni,
ARCO, sem hófst í Madríd á fimmtudaginn var. Hátíðin stendur fram á
mánudag og eru þátttakendur í henni yfir 200. ARCO-listastefnan er nú
haldin í 25. sinn.
AP
ARCO á Spáni hafin
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Þú skalt ekki framar hafa sólina til að lýsa þér um daga,
og tunglið skal ekki skína til að gefa þér birtu, heldur skal Drottinn vera
þér eilíft ljós og Guð þinn vera þér geislandi röðull. (Jes. 60, 19.)