Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 73
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Myndlist
101 gallery | Ásmundur Ásmundsson. Til
25. feb.
Artótek Grófarhúsi | Valgerður Hauksdóttir
myndlistarmaður til 19. febrúar. Sjá
www.artotek.is.
Bananananas | Finnur Arnar Arnarson til
18. febrúar.
Energia | Erla M. Alexandersdóttir sýnir
akrýl- og olíumálverk. Út febrúar.
Gallerí Fold | Málverkasýning Huldu Vil-
hjálmsdóttur – Náttúrusköp – The Nature
Shape in Creation. Til 19. febrúar.
Gallerí Kolbrúnar Kjarval | Sigrid Østerby
sýnir myndverk tengd Sömum til 22. febr-
úar.
Grafíksafn Íslands | Ingiberg Magnússon –
Ljós og tími II. Sýningin er opin fim.–sun. kl.
14–18.
Hrafnista í Hafnarfirði | Sjö málarar frá Fé-
lagsmiðstöðinni Gerðubergi sýna í Menning-
arsal til 21. mars.
Jónas Viðar Gallerí | Stefán Jónsson sýnir
höggmyndir 11.–26. febrúar. Opið föstudaga
og laugardaga frá kl. 13–18, annars eftir
samkomulagi.
Kaapelin Galleria | Umhleypingar, Sari M.
Cedergren sýnir í Helsinki.
Kaffi Milanó | Erla Magna Alexandersdóttir
sýnir olíu- og akrýlmyndir út febrúar.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýninguna
Týnda fiðrildið til loka apríl.
Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Ingibjörg
Jónsdóttir – Fínofnar himnur og þulur um
tímann. Gryfja: Guðrún Marinósdóttir – Eins-
konar gróður. Arinstofa: Vigdís Kristjáns-
dóttir – Myndvefnaður. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 5.
mars.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum
Svavars Guðnasonar, Carl-Henning Ped-
ersen, Sigurjóns Ólafssonar og Else Alfelt.
Til 25. febrúar.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II –
Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13 ís-
lenskra samtímalistamanna. Til 12. febrúar.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kristín
Þorkelsdóttir (hönnun, vatnslitir). Guðrún
Vigfúsdóttir (vefnaður). Til 12. feb.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Guðrúnar Einarsdóttur á nýjum verkum
unnum með olíu á striga ásamt skúlptúrum
unnum úr frauðplasti og litarefni á tré. Til 5.
mars.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Gabr-
íela Friðriksdóttir, Feneyjaverkið. Kristín Ey-
fells. Til 26. feb.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Jó-
hannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá fæð-
ingu málarans. Til 19. mars. Annar sýning-
arstjóra hinnar viðamiklu sýningar á verkum
Kjarvals, Kristín G. Guðnadóttir, mun annast
leiðsögn um sýninguna kl. 15. Kristín er einn
helsti sérfræðingurinn á Íslandi um Kjarval
og einn höfunda bókarinnar Kjarval sem
fékk nýlega hin íslensku bókmenntaverð-
laun.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Skotið. Jóna
Þorvaldsdóttir. Til 22. feb.
Safn | SAFN sýnir nú verk einnar þekktustu
myndlistarkonu heims; Roni Horn, á þremur
hæðum. Verkin eru um 20 talsins frá 1985–
2004 og eru öll í eigu Safns. Sýningin ber
heitið „Some Photos“. Flest verka Roni
Horn eru ljósmyndir sem hún hefur tekið á
Íslandi en hún hefur dvalið hér reglulega síð-
an 1975.
Skúlatún 4 | Fyrsta sýning ársins. Ólíkir
listamenn úr ýmsum áttum sem reka vinnu-
stofur og sýningaraðstöðu á þriðju hæð. Til
12. feb.
Thorvaldsen | Bjarni Helgason sýnir á Thor-
valdsen Bar – Ostranenie – sjónræna tón-
ræna. Til 3. mars
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist í Bogasal til 28. maí. Ljós-
myndir Marco Paoluzzo í Myndasal og ljós-
myndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20.
febrúar.
Söfn
Aurum | Þorgeir Frímann Óðinsson fjöl-
listamaður sýnir verk úr myndaröðinni Vig-
dís til 17. febrúar.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýningin
Býarmenningin Tórshavn 1856–2005 fjallar
um þróun og uppbyggingu byggðar í Þórs-
höfn í Færeyjum. Hún samanstendur af
skjölum, ljósmyndum, skipulagskortum og
teikningum. Hún er opin daglega kl. 12–19 og
um helgar kl. 13–17. Aðgangur er ókeypis.
Síðasti sýningardagur.
Duushús | Sýning Poppminjasafnsins í
Duushúsum. Sagt er frá tímabilinu 1969 til
1979 í máli og myndum. Tískan og tíðarand-
inn rifjuð upp. Opið daglega kl. 13–18.30 til 1.
apríl.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Myndirnar á
sýningunni Móðir Jörð gefa óhefðbundna og
nýstárlega sýn á íslenskt landslag þar sem
markmiðið er að fanga ákveðna stemningu
fremur en ákveðna staði. Skotið er nýr sýn-
ingarkostur hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur
og er myndum varpað á vegg úr myndvarpa.
Minjasafn Austurlands | Endurnýjun á sýn-
ingum stendur yfir. Ný grunnsýning opnar 1.
maí nk.
Þjóðmenningarhúsið | Fræðist um fjöl-
breytt efni á sýningunum Handritin, Þjóð-
minjasafnið – svona var það, Fyrirheitna
landið og Mozart-óperan á Íslandi. Njótið
myndlistar og ljúfra veitinga í veitingastof-
unni. Leiðsögn í boði fyrir hópa.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni Ís-
lands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu og
þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstárlegar
og vandaðar sýningar auk safnbúðar og
kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og
miðla þekkingu á menningararfi Íslendinga
frá landnámi til nútíma. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11–17.
Leiklist
Iðnó | Nú fer hver að verða síðastur að sjá
hina frábæru gamanóperettu „Gestur – Síð-
asta máltíðin“ eftir Gaut G. Gunnlaugsson
og Gunnar Kristmannsson. Aðeins þrjár
sýningar eftir.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14 kl. 14. Annar dagur í
fjögurra daga keppni.
Fyrirlestrar og fundir
Styrkur | Styrkur er með opið hús 14. feb. kl.
20 í Skógarhlíð 8, 4. hæð. Magnea S. Ingi-
mundardóttir, þekkingarstjóri hjá Nýherja,
talar um líf og viðhorf þeirra sem greinast
með krabbamein. Hólmfríður Friðriksdóttir
sýnir myndir úr starfi Styrks. Kaffi og allir
velkomnir.
DA samtökin | Fundir á sunnudögum kl. 11 í
Alanó-húsinu, Héðinshúsinu. 12 spora sam-
tök hömlulausra skuldara.
Fréttir og tilkynningar
GA-fundir | Ef spilafíkn er vandamál hjá þér
eða þínum geturðu hringt í síma GA-
samtakana (Gamblers Anonymous):
698 3888.
Skuld á Rósenberg | Dyslexíufélagið Skuld
heldur stofnfund um verðandi háskólafélag.
Fundurinn verður haldinn 16. feb. kl. 20 á
Kaffi Rósenberg og hefst með kvöldverði
þar sem gefst tækifæri til að ræða sýn fé-
lagsins og almenn stofnfundarstörf.
Frístundir og námskeið
Púlsinn ævintýrahús | Námskeið í orku-
dansi verður á föstudagskvöldum kl. 19.30.
Nýtt námskeið hefst 3. mars. Skráning á
heimasíðunni www.pulsinn.is og í síma
848 5366.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. f3 Rbd7 7. g4 g6 8. Be3 Bg7
9. h4 h5 10. g5 Rh7 11. Dd2 b5 12. f4
Bb7 13. f5 Re5 14. O-O-O O-O 15. Rd5
Bc8 16. Rf4 Bb7 17. fxg6 fxg6 18. Rde6
Dc8 19. Rxf8 Rxf8 20. Rd5 Dd8 21. Bb6
Dd7 22. Dg2 Hc8 23. Bd4 Dd8 24. Kb1
Re6 25. Bxe5 Bxe5 26. Df2 Bxd5 27.
exd5 Rc5 28. Bh3 Hc7 29. Hhf1 Bg7 30.
Be6+ Kh7 31. Bf7 Dd7
Stórmeistarinn Alexander Motylev
(2.638) frá Rússlandi var sá eini sem
náði að leggja hinn 15 ára Magnus
Carlsen (2.625) að velli í B-flokki
Corus-skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Rússinn stýrði hvítu mönnunum og lék
Norðmanninn grátt þegar hann lék.
32. Bxg6+! Kxg6 33. Df7+ Kh7 34.
Dxh5+ og knúði svartan til uppgjafar
þar sem eftir 34... Kg8 35. g6 er svartur
óverjandi mát.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Útsölulok
Útsöluvörur kr. 1.000 - 2.000 - 3.000
Meyjarnar, Austurveri,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
Snyrtiskólinn í Kópavogi er einkaskóli á framhaldsskólastigi
sem útskrifar snyrtifræðinema.
Að loknu eins árs námi í snyrtiskólanum þurfa nemendur
að ljúka 10 mánaða starfsþjálfun á snyrtistofu og hafa lokið
tveimur önnum við annan framhaldsskóla, eða samtals 45
einingum, til að geta farið í sveinspróf.
Að loknu sveinsprófi geta snyrtifræðingarnir rekið eigin
snyrtistofu eða unnið hjá öðrum og farið síðan í meistara-
skólann og fengið meistarabréf.
Innifalið í skólagjöldum er öll kennsla sem og námsbækur,
efnisgjöld, skólabúningar, áhöld til hand- og fótsnyrtinga
ásamt förðunartösku.
Nám við Snyrtiskólann er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna og veitir Lánasjóðurinn lán fyrir skólagjöldum
svo og framfærslu á meðan á námi stendur.
Ný önn byrjar í mars.
Skólinn er afar vel tækjum búinn og stenst allar kröfur sem gerðar eru til
alþjóðlegra snyrtiskóla. Snyrtiskólinn er í aðlögun sem CIDESCO skóli.
Viltu VER‹A
snyrtifræ›iNGUR?
Nánari upplýsingar og skráning í viðtal við skólastjóra
í síma 553-7900. www.snyrtiskolinn.is
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar
SEGJA má að Samúel Jón hafi
komið, séð og sigrað er hann
stjórnaði Stórsveit Reykjavíkur í
tíu verkum sínum, nær öllum nýj-
um af nálinni, en hann var á lista-
mannalaunum um skeið við að
skrifa verkin og má segja að þjóðin
sé ekki svikin af þeirri úthlutun og
vonandi verður tónlistin gefin út á
geislaplötu.
Samúel Jón er að sjálfsögðu best
þekktur fyrir verk sín með Jagúar
og hann er sá fyrsti og eini hingað
til, sem flutt hefur verk sín með
stórsveit á útskriftartónleikum frá
tónlistarskóla FÍH. Hann hefur
nokkrum sinnum stjórnað stór-
sveitinni, síðast á jólatónleikum
hennar, sem voru afbragðs-
skemmtun. Hér var kafað dýpra og
þótt fönkbragurinn svifi yfir vötn-
unum var það allt undir merkjum
djassins og minnti um margt á hina
þekktu þýsku stórsveit Rúmenans
Peters Herbolzheimer sem hefur
skartað stórstjörnum á borð við
Art Farmer, Stan Getz, Johnny
Griffin, Gerry Mulligan og Niels-
Henning. Sammi kann svo sann-
arlega að skrifa fyrir brass.
Fyrsta verkið á efnisskránni bar
heitið Eins hratt og hægt er, kraft-
mikið fönk með Eyþóri á orgel og
sólóum frá Ólafi á tenór, Stefáni á
altó og Eðvarði á gítar, og síðan
tók við Mr. Funky goes straigt
með Mantecafílingu. Jóel blés þar í
kontrabassaklarinett og Stefán
söng í flautuna a la Roland Kirk.
Síðan gamalt lag, Leti, þar sem
Gunnar Hrafnsson leiddi hrynsveit-
ina með dúndrandi sveiflu og
Kjartan blés fínan flýgilhornsóló.
Grjótharður var fönkópus með ívafi
af ekta stórsveitarsveiflu og í Funk
mood sauð á keipum og Edvard
Frederiksen blés þar óvenjusterk-
an básúnusóló, hvattur af bandinu.
Í Funky flesh var Eyþór kominn á
Hammondið en að nýju á Rhodes-
inn í Lítið skrítið. Síðasta lag fyrir
uppklapp var fínt latínfönk Boba,
en Sammi hefur æfingu í þeim
geira eftir plötuna með tónlist
Tómasar R. og Jóel blés fautagóð-
an tenórsóló. Vonandi fær maður
að heyra meira í honum í ár en í
fyrra. Hér er ekki getið um marga
góða sólista eins og Eirík Orra sem
er á mikilli framfarabraut. Ég vildi
gjarnan heyra þessa tónleika aftur
– kannski einhverjir milljarðamær-
ingarnir bjóði þjóðinni upp á þá? –
Ég veit ekki til þess að þeir hafi
styrkt Stórsveitina mikið.
Stórsveitarfönk
af bestu sort
DJASS
Nasa
Einar Jónsson, Snorri Sigurðarson, Kjart-
an Hákonarson og Eiríkur Orri Ólafsson
trompeta og flýgilhorn; Edward Frederik-
sen, Oddur Björnsson og Stefán Ómar
Jakobsson básúnur; David Bobroff bassa-
básúnu; Sigurður Flosason, Stefán S.
Stefánsson, Ólafur Jónsson, Jóel Pálsson
og Kristinn Svavarsson saxófóna, klarin-
ettur og flautur; Eyþór Gunnarsson orgel
og hljómborð, Eðvarð Lárusson gítar,
Gunnar Hrafnsson bassa, Pétur Grét-
arsson slagverk, Jóhann Hjörleifsson
trommur. Stjórnandi var Samúel Jón Sam-
úelsson.
Stórsveit Reykjavíkur
Vernharður Linnet
Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna heldur
tónleika í Seltjarnar-
neskirkju í kvöld,
sunnudagskvöld. Ein-
leikari er Kristján
Orri Sigurleifsson og
stjórnandi Oliver
Kentish en á efnis-
skrá eru Egmont-
forleikurinn eftir
Ludwig van Beethov-
en, konsert fyrir
kontrabassa eftir
Serge Koussevitzky
og sinfónía nr. 88 í
G-dúr eftir Frans
Joseph Haydn. Tón-
leikarnir hefjast
klukkan 17.
Kristján Orri lýkur í vor fram-
haldsnámi í kontrabassaleik frá
Konunglega konservatoríinu í
Kaupmannahöfn þar sem hann
hefur lært undir
leiðsögn Michal
Stadnicki. Kristján
hefur leikið með
helstu sinfóníu-
hljómsveitum Kaup-
mannahafnar, Sinfón-
íuhljómsveit Íslands
og er stofnmeðlimur
kammersveitarinnar
Ísafoldar auk þess að
vera annar helmingur
„The slide show
secret“-dúósins.
Serge Kousse-
vitsky (1875–1951)
fæddist í Rússlandi
og þótti einn mesti
kontrabassavirtúós
síns tíma, en varð síðar frægari
sem stjórnandi. Þykir kontrabassa-
konsert hans, sem fluttur er á tón-
leikunum, ein helsta perla tón-
bókmennta kontrabassans.
Beethoven, Kousse-
vitzky og Haydn
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna í Seltjarnarneskirkju
Kristján Orri
Sigurleifsson