Morgunblaðið - 17.10.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 282. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SMÁKLIKKUN
SETTI SÉR AÐ HLAUPA MARAÞON FYRIR
FIMMTUGT OG HEFUR NÚ LOKIÐ 100 KM » 24
SKRÝTIPOPP
DÚETTINN MATES OF
STATE Á AIRWAVES
TÓNLIST >> 39
fagmennska í tísku
- lausnir fyriralla
Tískuteymi Samtaka iðnaðarins taka þátt í sýningunni
KONAN í Laugardalshöll 20. til 22. okt. nk.
Kynntu þér málið á
www.meistarinn.is
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
BOGI Nilsson ríkissaksóknari hefur ákveðið að
mæla fyrir um rannsókn á ætluðum hlerunum á
símum í utanríkisráðuneytinu hjá Jóni Baldvini
Hannibalssyni, þáverandi utanríkisráðherra, og
Árna Páli Árnasyni, starfsmanni varnarmála-
skrifstofu ráðuneytisins. Jón Baldvin segir
ákvörðunina löngu tímabæra, en efast um að lög-
reglan eigi að rannsaka sjálfa sig. Hann segir að
starfsmaður Pósts og síma, sem varð vitni að hler-
un á síma Jóns Baldvins, hafi lagt fram vottfesta
staðfestingu á framburði sínum hjá lögmanni og
muni við rannsókn málsins vitna þar um.
Í tilkynningu frá ríkissaksóknara kemur fram
að ákvörðunin sé tekin í tilefni af ummælum og
upplýsingum Jóns Baldvins og Árna Páls í fjöl-
miðlum um hleranir á símum þeirra og muni Ólaf-
ur Hauksson, sýslumaður á Akranesi, annast
rannsóknina í samráði við ríkissaksóknara.
„Þótt fyrr hefði verið,“ sagði Jón Baldvin, að-
spurður hvernig honum litist á ákvörðun ríkissak-
sóknara. „Það er í mínum huga ljóst að það verður
auðvitað að leggja öll gögn á borðið og rannsaka
hvort eitthvað er hæft í því að hér hafi verið hald-
ið uppi hlerunum á símum stjórnmálamanna, ekki
bara á kaldastríðstíma heldur fram á seinustu ár.“
Hann sagði að hins vegar væri spurning hver
ætti að sjá um rannsóknina. „Hver hefur traust til
þess að vera sjálfstæður rannsóknaraðili og ekki
háður neinum þeim sem eru viðriðnir málið? Með
öðrum orðum, er rétt að lögreglan rannsaki lög-
regluna? Ég hefði haldið, og er nú bara hagfræð-
ingur, að það væri grundvallarregla að menn
rannsökuðu ekki sjálfa sig.“
Jón Baldvin sagðist telja a.m.k. hvað sig varð-
aði að Alþingi ætti að hafa þann metnað fyrir
hönd löggjafarvaldsins að það rannsakaði hvort
framkvæmdavaldið, hvort heldur dómsmálaráðu-
neyti, einhverjir aðilar innan löggæslunnar eða
innan ríkisfyrirtækis Pósts og síma, hefðu mis-
notað vald sitt á þann hátt að hlusta á síma ís-
lensks alþingismanns og ráðherra. Það væri betur
fallið til þess að skapa traust. Ekki náðist í Boga
Nilsson ríkissaksóknara í gærkvöldi.
Ríkissaksóknari ákveður
rannsókn á hlerunum
Í HNOTSKURN
»Ríkisaksóknara er heimilt samkvæmtlögum um meðferð opinberra mála að
mæla fyrir um rannsókn ef ríkir almanna-
og einkahagsmunir mæla með því þótt sök
sé fyrnd.
»Starfsmaður P&S, sem kveðst hafa orð-ið vitni að hlerun á síma Jóns Baldvins,
hefur lagt fram vottfesta staðfestingu á
framburðinum hjá lögmanni og er tilbúinn
að bera vitni við rannsóknina.
Starfsmaður Pósts og síma hefur lagt fram vottfesta staðfestingu á framburði
sínum hjá hæstaréttarlögmanni og mun bera vitni við rannsókn málsins
Rannsakar/4
SÉRSTÖK nefnd, sem nýtur stuðn-
ings George W. Bush Bandaríkjafor-
seta, hyggst leggja til veigamiklar
breytingar á stefnu bandarískra
stjórnvalda í málefnum Íraks ekki
síðar en í byrjun næsta árs.
Bandaríska dagblaðið Los Angel-
es Times hefur þetta eftir nokkrum
nefndarmannanna.
Þeir segja að nefndin íhugi meðal
annars að leggja til að bandarísku
hersveitirnar í Írak verði kallaðar
heim í áföngum.
Einnig verði leit-
að eftir liðsinni
stjórnvalda í
grannríkjunum
Íran og Sýrlandi
við að binda enda
á blóðsúthelling-
arnar í Írak.
„Mergur máls-
ins er að núverandi stefna [Banda-
ríkjastjórnar] gengur ekki,“ sagði
James A. Baker III., formaður
nefndarinnar og fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna. „Það
hlýtur að vera til önnur leið.“
Nefndin var skipuð í mars og
helstu ráðgjafar Bush vonuðust þá
til þess að hún myndi styðja núver-
andi stefnu hans. Linnulausar blóðs-
úthellingar í Írak hafa hins vegar
orðið til þess að fleiri repúblikanar á
þinginu og í stjórninni hafa léð máls
á breytingum á stefnunni.
Nefnd um Íraksmálin vill
breytingar á stefnu Bush
James A. Baker III
Ashgabat. AFP. |
Forseti Túrk-
menistans, Sap-
armurat Niyazov,
hefur ort róman-
tísk ljóð sem gefin
verða út 27. októ-
ber, á þjóðhátíð-
ardegi landsins.
Ljóð í bókinni
voru lesin upp á
kynningu fyrir
þingmenn, ráðherra og háskólamenn.
„Fólkið í salnum tók andköf við
hvert orð í bókinni, fagnaði hverju er-
indi með dynjandi og langvinnu lófa-
taki,“ sagði í frétt ríkisdagblaðs í
Túrkmenistan.
Bókin heitir „Túrkmenistan – gleði
mín“ og blaðið sagði að meginhluti
hennar væri „helgaður ástinni í víð-
ustu merkingu orðsins“.
Niyazov, öðru nafni Túrkmenbasi
eða „faðir allra Túrkmena“, er ein-
ráður og rit hans eru skyldulesning í
barnaskólum landsins.
Fögnuðu
hverju versi
Saparmurat
Niyazov
Túrkmenbasi
gefur út ljóðabók
ÍSLENSKIR unglingar lesa minna
en gengur og gerist meðal jafnaldra
þeirra annars staðar. Þetta kemur
fram í skýrslu um lesskilning og ís-
lenskukunnáttu 15 ára ungmenna á
Íslandi sem kynnt verður á Hótel
Sögu í dag.
Höfundur skýrslunnar er Almar
Halldórsson sem starfar hjá Náms-
matsstofnun. „Það er klárt að íslensk-
ir 15 ára unglingar lesa mjög lítið mið-
að við unglinga þeirra landa sem við
skoðuðum í rannsókninni. Hlutfall
nemenda sem verja einni klukku-
stund eða lengur í lestur á dag sér til
gamans er 10% á Íslandi en 22% í
Finnlandi,“ segir Almar. | 22
Lesa minna
en erlendir
jafnaldrar
♦♦♦
LIÐSMAÐUR stjórnarhersins á Sri
Lanka er hér fluttur á sjúkrahús í
Colombo eftir að hafa særst í sjálfs-
morðsárás sem kostaði yfir hundrað
manns lífið. Um 150 manns til við-
bótar særðust í sprengingunni.
Er þetta mannskæðasta sjálfs-
morðsárás í sögu Sri Lanka.
Árásin var gerð á bílalest sjóhers-
ins. Engin hreyfing lýsti tilræðinu á
hendur sér en stjórn landsins kenndi
uppreisnarmönnum úr röðum tamíla
um blóðsúthellingarnar. Hún sagði
að árásin sýndi að uppreisnarmenn-
irnir hefðu engan áhuga á frið-
arviðræðum sem ráðgerðar eru í
Sviss í næstu viku.
Stjórnarherinn svaraði sprengju-
tilræðinu með loftárásum á yf-
irráðasvæði uppreisnarmanna. | 16
Urðu yfir
100 að bana
Reuters