Morgunblaðið - 17.10.2006, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
þriðjudagur 17. 10. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Mikil pressa á leikmönnum Real Madrid >> 4
MIKLAR BREYTINGAR
MARGIR NÝIR LEIKMENN VERÐA Í SVIÐSLJÓSINU
ÞEGAR ÍSLANDSMÓTIÐ Í KÖRFUKNATTLEIK HEFST >> 2
Eftir þrjá leiki í úrvalsdeildinni er
Stjarnan án stiga og er fallin úr leik í
Evrópukeppni bikarhafa. Sigurður
Bjarnason sagði við Morgunblaðið að
ástæða uppsagnarinnar tengdist
ekki gengi liðsins heldur hefði hann
einfaldlega ekki tíma til að sinna því
með þeim hætti sem leikmenn kröfð-
ust.
„Þetta er engin uppgjöf. Það var
auðveldara að sinna þjálfuninni þeg-
ar maður var í skóla en nú tekur vinn-
an sinn toll. Við erum ekki að hætta í
neinum leiðindum,“ sagði Sigurður
Bjarnason í samtali við Morgunblað-
ið í gær þegar hann inntur eftir
ástæðu uppsagnarinnar. „Við Magn-
ús lögðum upp með að við værum
tveir sem skiptum með okkur verk-
um og gætum því leyst hvor annan af
hólmi. Við vildum fá aðeins meira
svigrúm en það mætti andstöðu hjá
leikmönnum. Ég fann að það var
komin mikil óánægja og ég sá fram á
að þetta gat ekki gengið upp. Mér
fannst því engum greiði gerður með
að halda áfram og betra væri að gefa
nýjum manni tækifæri,“ sagði Sig-
urður, sem starfar hjá Tölvumiðlun.
Uppsögnin kom okkur á óvart
„Þetta var algjörlega að þeirra
frumkvæði og uppsögnin kom okkur
mjög á óvart en við verðum bara að
virða það,“ sagði Þorsteinn Johnsen
formaður handknattleiksdeildar
Stjörnunnar við Morgunblaðið. „Það
hafa verið mikil meiðslavandræði á
liðinu og það er ekki þjálfurunum að
kenna að það hefur ekki unnið leik í
deildinni. Sigurður og Magnús hafa
gert góða hluti með liðið og ég vil
nota tækifærið til að þakka þeim fyr-
ir samstarfið,“ sagði Þorsteinn.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Aðalsteinn Eyjólfsson,
þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, af-
þakkað boð um að breyta til og taka
við karlaliðinu – og einnig að þeir
Ólafur B. Lárusson, fyrrverandi
þjálfari Gróttu/KR og Aftureldingar,
og Guðmundur Karlsson, fyrrver-
andi þjálfari FH og Hauka, hafi af-
þakkað þjálfaraboð.
Sigurður og
Magnús
hættir hjá
Stjörnunni
SIGURÐUR Bjarnason og Magnús
Teitsson hafa sagt upp störfum sem
þjálfarar úrvalsdeildarliðs Stjörn-
unnar í handknattleik. Undir þeirra
stjórn varð Garðabæjarliðið bik-
armeistari á síðustu leiktíð og vann
Fram í árlegum leik meistara
meistararanna í haust.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
JÓHANN Gunnar Einarsson,
leikmaður Íslandsmeistara
Fram, fékk þungt högg á höf-
uðið í viðureign Sandefjord og
Fram í Meistaradeildinni í
handknattleik síðasta laugar-
dag. Við höggið brotnað tönn
auk þess sem hann hlaut
heilahristing og kom því ekk-
ert meira við sögu en atvikið
átti sér stað á áttundu mínútu
leiksins. Þá hafði Jóhann
skorað þrjú mörk. Fram tap-
aði leiknum, sem fram fór í
Sandef-
jord, 35:26.
Þá var Sig-
fús Sigfús-
son, leik-
stjórnandi
Fram, tek-
inn afar
föstum
tökum og
brotnuðu
m.a. hlífð-
argleraugu hans.
Guðmundur Þ. Guðmunds-
son, þjálfari Fram, sagði í gær
vonast til að Jóhann yrði
tilbúinn í næsta leik Fram
sem verður við Celje í Meist-
aradeildinni á laugardag.
„Þetta var svakalegt og við
vorum hreint orðlausir yfir
því hvaða stefnu þessi leikur
tók. Við vorum ekki tilbúnir í
þennan slag,“ segir Guð-
mundur sem var afar óhress
með frammistöðu dómara
leiksins en þeir voru frá
Svartfjallalandi.
Jóhann Gunnar
Einarsson.
Brotin tönn og heilahrist-
ingur í Sandefjord
SIF Pálsdóttir varð í 50. sæti
á heimsmeistaramótinu í
áhaldafimleikum sem stendur
yfir í Árósum í Danmörku.
Hún hlaut samtals 53,000 stig
fyrir æfingar sínar og var að-
eins ein stúlka frá Norður-
löndunum fyrir ofan hana,
sænska stúlkan Veronica
Wagner varð í 43. sæti með
54,075 stig. Þær hafa mæst
áður í keppni og er skemmst
að minnast sigurs Sifjar á NM
í vor þar sem hún hafði betur
en Wagner. Árangur Sifjar nú
er ef til vill ekki síst athygli
verður vegna þess að hún fót-
brotnaði í vor.
Þrjár aðrar íslenskar stúlk-
ur kepptu í gær. Margrét
Hulda Karlsdóttir varð í 81.
sæti með 48,900 stig, Hera Jó-
hannesdóttir í 90. sæti með
47,900 stig og Inga Rós Gunn-
arsdóttir varð í 147. og neðsta
sæti með 23,100 stig en hún
keppti aðeins á tveimur áhöld-
um, tvíslá og jafnvægisslá.
Sif stóð sig vel á
HM í Danmörku
ATLI Jóhannsson, knatt-
spyrnumaður úr Vest-
mannaeyjum, hefur fram-
lengt samning sinn við ÍBV
um eitt ár og verður því
áfram í herbúðum Eyja-
manna en mörg lið í efstu
deild höfðu sýnt Atla áhuga
og búist hafði verið við að
hann flytti sig um set til að
leika í efstu deild. Samn-
ingur Atla við Eyjamenn
verður endurskoðaður um
mitt næsta tímabil.
Atli í
Eyjum
Reuters
Átök Michael Brown og Jimmy Floyd Hassselbank slá ekkert af í leik liðanna í gær. Heiðar Helguson og félagar í
Fulham lögðu þá Hermann Hreiðarsson og félaga í Charlton 2:1. Hermann lék allan leikinn en Heiðari var skipt
útaf á 57. mínútu. Skömmu síðar skoraði Fulham tvívegis og Charlton lagaði stöðuna tíu mínútum síðar.
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Menning 17;39/44
Veður 8 Umræðan 28/31
Staksteinar 8 Forystugrein 26
Úr verinu 12 Viðhorf 28
Viðskipti 14 Bréf 31
Erlent 15/16 Minningar 32/36
Akureyri 18 Dagbók 44/49
Höfuðborgin 18 Víkverji 48
Suðurnes 19 Velvakandi 41
Landið 19 Staður og stund
46/47
Daglegt líf 20/25 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Bogi Nilsson ríkissaksóknari hef-
ur ákveðið að mæla fyrir um rann-
sókn á ætluðum hlerunum á símum í
utanríkisráðuneytinu hjá Jóni Bald-
vini Hannibalssyni, þáverandi utan-
ríkisráðherra, og Árna Páli Árna-
syni, starfsmanni varnarmálaskrif-
stofu ráðuneytisins. Jón Baldvin
segir ákvörðunina löngu tímabæra
en efast um að lögreglan eigi að
rannsaka sjálfa sig. » 1
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra hefur hnekkt
ákvörðun þjóðskjalavarðar um að
meina Kjartani Ólafssyni, sagnfræð-
ingi og fyrrverandi ritstjóra Þjóð-
viljans, aðgang að gögnum um sím-
hleranir. Segist Kjartan út af fyrir
sig þakklátur fyrir að ráðherrann
hafi komið með vissum hætti til móts
við kröfur hans. » 4
Erlent
Yfir hundrað manns létu lífið og
150 særðust í sjálfsmorðsárás á bíla-
lest hersins á Sri Lanka í gær. Er
þetta mannskæðasta sjálfsmorðs-
árás í sögu landsins. Stjórnvöld sök-
uðu uppreisnarmenn úr röðum tam-
íla um árásina. » 16
Cecilia Stegö Chilo hefur sagt af
sér sem menningarmálaráðherra í
Svíþjóð eftir að hafa sætt harðri
gagnrýni fyrir að hafa ekki greitt af-
notagjald af sjónvarpi í sextán ár.
Áður hafði viðskiptaráðherra lands-
ins sagt af sér og óvissa er um fram-
tíð tveggja annarra ráðherra. »15
Bandarísk nefnd, sem nýtur
stuðnings George W. Bush forseta,
hyggst leggja til veigamiklar breyt-
ingar á stefnu Bandaríkjastjórnar í
málefnum Íraks, að því er haft var
eftir nefndarmönnum í gær. » 1
Viðskipti
FL Group hefur tryggt sölu á öllu
hlutafé sínu í Icelandair Group, en
meðal kaupenda eru dótturfélag
Eignarhaldsfélagsins Samvinnu-
trygginga með um 32% hlut og dótt-
urfélag BNT hf., félags bræðranna
Benedikts og Einars Sveinssona
með um 11,1% hlut. Áætlaður sölu-
hagnaður FL Group nemur um 26
milljörðum króna, en handbært fé
FL Group mun aukast um 35 millj-
arða. » 14
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ÓREIÐUSKIP skapa vaxandi
vanda í höfnum landsins, að sögn
Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxa-
flóahafna og nýkjörins formanns
Hafnasambands Íslands.
„Þetta hefur verið misjafnt eftir
höfnum en í dag má segja að verk-
efnalaus skip í óreiðu séu í ansi
mörgum höfnum,“ sagði Gísli. Vandi
þessi jókst til muna fyrir 4–6 árum.
Um er að ræða fiskiskip af öllum
stærðum, allt frá smábátum upp í
stóra togara. Í gömlu Reykjavíkur-
höfn er togarinn Atlas t.d. mjög
áberandi og líklegast stærsta skipið
sem svona er ástatt um.
Gísli segir að þessum hreyfing-
arlausu skipum og bátum megi
skipta í tvo flokka. Annars vegar
þau sem greidd eru af hafnargjöld
og önnur gjöld. Hins vegar þau sem
safna vanskilaskuldum og eignar-
hald er óljóst á. Skuldir sem safnast
upp hjá höfn vegna óreiðuskips
verða hlutfallslega litlar miðað við
þann kostnað sem fylgir því að eign-
ast skipið og farga því, að sögn
Gísla. Hafnirnar geta því illa fylgt
eftir innheimtu- og uppboðsmálum
með því að eignast skipin á uppboði
því þá er förgunarskyldan komin á
þær.
Förgun gamalla skipa fylgir veru-
legur kostnaður miðað við þær regl-
ur sem gilda hér á landi. Gísli segir
að nú sé bannað að draga skip á sjó
út og sökkva þeim. Þokkalegur
markaður hefur verið fyrir skip sem
seld eru í brotajárn en erfiðara er
að losna við gömul tréskip. Verkefn-
islaus skip taka dýrmætt viðleg-
upláss í höfnunum og segir Gísli að
hafnaryfirvöld vilji gjarnan nota
dýra viðlegukanta fyrir annað. En
hvað sér hann til ráða?
Rétt að hafnirnar
fái meiri heimildir
„Ráðin eru kannski þau að hafn-
irnar fái víðtækari heimildir til að
komast yfir þessi skip. Einnig að
það náist einhvers konar samstarf
við ríkið um hvernig megi farga
þeim. Þetta er töluvert umhverfis-
mál, ekki aðeins í höfnunum heldur
einnig að tryggja að af þessu hljótist
ekki mengun í framtíðinni,“ sagði
Gísli. Hann telur að Umhverfis-
stofnun og umhverfisráðuneyti séu
ákjósanlegir samstarfsaðilar til að
finna flöt á því hvernig farga megi
skipum með skynsamlegum hætti.
Fjárhagur hafnanna leyfi ekki að
menn fari í kostnaðarsöm verkefni í
því skyni og það er heldur ekki í
verkahring hafnanna, að sögn Gísla.
Hann sagði að málið hefði verið rætt
við umhverfisráðuneytið í tengslum
við lögin um verndun hafs og
strandar, án þess að lausn fyndist.
Förgun skipa fylgir
verulegur kostnaður
Óreiðuskipum hefur fjölgað mjög á síðustu árum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Í Reykjavíkurhöfn Togarinn Atlas er trúlega stærsta óreiðuskipið.
TÍMAMÓTASAMNINGUR var und-
irritaður í gær á milli Bubba Mort-
hens og útgáfufyrirtækisins SENU.
Samningurinn gengur út á að
Bubbi mun gefa út allt sitt efni hjá
SENU í framtíðinni eða þangað til
hann hættir að gefa út tónlist. Um
leið var kynnt til sögunnar plötu-
merkið Blindsker en öll tónlist
Bubba mun koma út undir því hjá
SENU. Í gær kom líka út DVD-
diskur og geislaplata frá afmæl-
istónleikum Bubba Morthens hinn
06.06.06. Á myndinni má sjá Bubba
handsala samninginn við Björn Sig-
urðsson, framkvæmdastjóra SENU,
Eiður Arnarsson, útgáfustjóri
SENU, situr glaður hjá enda stærsti
samningur sem gerður hefur verið
við íslenskan listamann hér á landi
þarna í höfn.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
SENA með Bubba til framtíðar
Morgunblaðinu fylgir
kynningarblaðið Mat-
ur er mannsins megin.
DR. HÁKON Hákonarson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunar Íslenskrar erfða-
greiningar, sem ÍE hefur stefnt fyrir
bandarískum dómstólum ásamt fjór-
um öðrum fyrrverandi starfsmönn-
um fyrirtækisins, kom fyrir dóm í
Fíladelfíuborg á föstudag og gaf
skýrslu frammi fyrir dómara. Eins
og greint hefur verið frá sæta
stefndu ásökunum um að hafa á ólög-
mætan hátt afritað og sent frá ÍE
upplýsingar um viðskiptaleyndar-
mál, viðskiptasamninga, hugbúnað
og gögn í eigu ÍE.
Samkvæmt frásögn á vefútgáfu
tímaritsins The Scientist, sagði Há-
kon fyrir dómi að ÍE hefði verið
áfram um að efna til samstarfs við
önnur lyfjaþróunarfyrirtæki en þau
áform hefðu ekki gengið eftir vegna
tregðu Kára Stefánssonar, forstjóra
ÍE, við að deila fyrirtækjaupplýsing-
um með hugsanlegum samstarfsaðil-
um. Þar hefði íhaldssemi og á vissan
hátt óöryggi af hálfu Kára átt sinn
þátt í hvernig fór.
Sagði Kára óviljugan
að deila upplýsingum