Morgunblaðið - 17.10.2006, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MAÐUR er manns gaman ekki síst þegar hinn sami
maður ber mann á háhesti dægrin löng. Margt
ávinnst með hásætinu því að ógleymdu ívið betra út-
sýni en allajafna má nefna hluti á borð við hvíld frá
götuþrammi – jafnvel þótt um sjálfan Laugaveginn
sé að ræða.
Morgunblaðið/Ómar
Skipað til hásætis
„ÉG skal ekki segja hvernig þjóð-
skjalavörður bregst við þessu og
bíð eftir viðbrögðum hans. En ég er
út af fyrir sig þakklátur fyrir það
að ráðherrann kemur með vissum
hætti til móts við mínar kröfur,“
segir Kjartan Ólafsson, fyrrverandi
þingmaður og ritstjóri Þjóðviljans,
um úrskurð Þorgerðar K. Gunn-
arsdóttur menntamálaráðherra
þess efnis að fella úr gildi ákvörðun
Ólafs Ásgeirssonar þjóðskjalavarð-
ar um að synja beiðni Kjartans um
aðgang að gögnum um símahler-
anir.
Kjartan bendir á að úrskurður
ráðherra heimili honum þó ekki taf-
arlausan aðgang að umbeðnum
gögnum, heldur megi líkja úrskurð-
inum við dóm æðri dómstóls sem
sendir mál heim í hérað á ný til
efnismeðferðar. Felur þetta í sér að
þjóðskjalavörður mun nú taka
beiðni Kjartans fyrir á ný og svara
honum. „Ef ég fæ ekki svar sem
felur það í sér að jafnræðisreglan
sé í gildi, þá get ég ekki annað gert
en að láta málið ganga lengra, til
dómstóla. Það er miklu meira á bak
við þetta en spurningin um mig
persónulega. Það þarf að upplýsa
málið í heild þ.e. að það komi fram
hjá hverjum var hlerað. Það liggur
örugglega allt fyrir í þessum gögn-
um.“
Reglugerðin ekki
gild málsástæða
Í úrskurði ráðherra segir að
þjóðskjalavörður hafi byggt ákvörð-
un sína á því að í lögum um Þjóð-
skjalasafn Íslands segi að um að-
gang að gögnum og skjölum sem
upplýsingalög taki ekki til, skuli
mælt fyrir um í reglugerð sem
menntamálaráðherra setji, að
fengnum tillögum þjóðskjalavarðar.
Sú reglugerð hafi ekki verið sett og
því geti þjóðskjalavörður ekki veitt
frjálsan aðgang að umbeðnum
gögnum.
Í úrskurði ráðherra segir þá að
ekki sé hægt að fallast á það með
þjóðskjalaverði að unnt sé að synja
umræddri beiðni Kjartans og þar
með að byggja ákvörðun þjóð-
skjalavarðar á því að umrædd
reglugerð hafi ekki verið sett. Er
þá höfð til hliðsjónar sú frumskylda
stjórnvalda samkvæmt íslenskum
stjórnlögum, að starfa á grundvelli
þeirra réttarheimilda, sem í gildi
eru á hverjum tíma og sjá um fram-
kvæmd þeirra, enda eru allir jafnir
fyrir lögum.
Í úrskurði segir að fyrir liggi að
reglugerð samkvæmt lögum um
Þjóðskjalasafn Íslands hafi ekki
verið sett og skiljanlegt sé að þjóð-
skjalaverði hafi verið vandi á hönd-
um vegna þess við afgreiðslu máls-
ins.
Bar að leggja mat á gögnin
Á hinn bóginn telur ráðherra að
þjóðskjalaverði hafi borið að leggja
mat á umbeðin gögn á grundvelli
gildandi laga og viðurkenndra laga-
sjónarmiða. Koma þar einkum til
skoðunar ákvæði laga um Þjóð-
skjalasafn Íslands, eftir því sem við
á, jafnræðisregla 65. gr. stjórn-
arskrár og jafnræðisregla 1. mgr.
11. gr. stjórnsýslulaga með hliðsjón
af þegar veittum aðgangi að um-
ræddum gögnum til handa Guðna
Th. Jóhannessyni, meginregla 9. gr.
upplýsingalaga með hliðsjón af
gögnum sem varða [Kjartan] per-
sónulega, auk ákvæða stjórn-
arskrár, einkum 71. gr. um friðhelgi
einkalífs gagnvart einkalífsupplýs-
ingum um aðra en Kjartan í við-
komandi gögnum svo og ákvæði
laga um þagnarskyldu.
Í ljósi þess að ekki hafi verið tek-
in efnisleg afstaða til beiðni Kjart-
ans á réttum lagagrundvelli, er í
úrskurði ráðherra ekki talið hjá því
komist að fella úr gildi ákvörðun
þjóðskjalavarðar og leggja fyrir
hann að taka beiðni Kjartans til
meðferðar og úrlausnar að nýju.
Menntamálaráðherra hnekkir ákvörðun þjóðskjalavarðar um aðgang að gögnum í símhlerunarmáli
Verður að svara Kjartani aftur
Kjartan
Ólafsson
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
SÉRSVEIT ríkislögreglustjóra og
sprengjusveit Landhelgisgæslu Ís-
lands æfðu árás á vígi hryðjuverka-
manna í Hvalfirði í gærmorgun.
Notast var við þyrlu Bandaríkja-
hers frá flugmóðurskipinu WASP í
æfingunni sem flutti sérsveitar-
menn á vettvang.
„Æfingin gekk ljómandi vel, mið-
að við hvað veðrið var slæmt,“ sagði
Sigurður Ásgrímsson, sprengjusér-
fræðingur hjá gæslunni, en mikið
hvassviðri var í Hvalfirði í gær-
morgun og segir Sigurður flughöfn-
ina hafa staðið sig með prýði þrátt
fyrir erfiðar aðstæður. Að áhöfninni
undanskilinni tóku sjö sérsveitar-
menn og þrír sprengjusérfræðingar
þátt í æfingunni. „Þetta var fyrst og
fremst æfing í að flytja menn frá A
til B. Æfingin tók ekki langan tíma
en oft er það þannig að það er und-
irbúningurinn sem tekur lengri
tíma en æfingin sjálf,“ segir Sig-
urður.
Æfingin gekk út á að uppræta
ímyndaða hryðjuverkamenn sem
höfðu komið sér upp vígi í Hvalfirð-
inum, en þar áttu þeir að standa að
framleiðslu á sprengiefni. Fyrir ut-
an vígi mannanna var búið að koma
fyrir sprengjum sem þurfti að gera
óvirkar áður en sérsveitin gat látið
til skarar skríða.
Æfðu árás
á hryðju-
verkamenn
EINHVER dæmi
eru um að fyrir-
tæki eða auð-
menn séu að
leigja góð rjúpna-
og gæsalönd en
ekki meira en
hefur verið að
undanförnu, segir
Sigmar B.
Hauksson, for-
maður Skotvís.
Hann segir hins vegar gríðarlega
aukningu hafa verið í jarðnæði er
keypt sé af þéttbýlisfólki til eigin af-
nota. „Jarðir hafa verið ódýrar lengi
vel þannig að það er orðið gríðarlega
mikið af jarðnæði sem er í eigu þétt-
býlisbúa. Það er því frekar þannig að
menn kaupi sér jarðir í stað þess að
leigja þær.“
Leyfi til að veiða rjúpu á jörðum í
einkaeigu kosta allt frá 20 þúsund
krónum upp í 400 þúsund fyrir veiði-
tímabilið og segir Snorri H. Jóhann-
esson, bóndi á Augastöðum í Borg-
arfirði, mjög algengt að veiðiklúbbar
leigi jarðir til að tryggja sér aðgang
og einkarétt á svæðum.
Kaupa í
stað þess
að leigja
Sigmar
Hauksson
Veiðimenn úr þétt-
býli eiga fjölda jarða
HVALUR 9 heldur úr höfn í dag og
verða vélar skipsins prófaðar á mið-
unum vestur af landinu að sögn
Kristjáns Loftssonar, forstjóra
Hvals.
Kristján sagði að ekki hefði verið
hægt að keyra vélarnar almennilega
þar sem skipið lægi í Reykjavíkur-
höfn og því væri ætlunin að halda úr
höfn í dag og sjá hvað gerðist þegar
almennilega reyndi á vélarnar.
Kristján sagði að áhöfnin væri
klár, enda sigldi maður ekki skipi
nema hafa áhöfn. Hún væri um tíu
manns sem væri heldur færra en
verið hefði á hvalbátunum í gamla
daga. Áhöfnin væri öll skipuð göml-
um hvalveiðimönnum, sem verið
hefðu í áhöfnum hvalveiðiskipanna
fyrir sautján árum þegar hvalveiðum
hefði verið hætt.
Aðspurður hvað liði leyfi til hval-
veiða frá stjórnvöldum sagði Krist-
ján að það yrði allt að vinna í sátt og
samlyndi og það myndi örugglega
koma og þeir vildu vera með allt
klárt þegar þar að kæmi.
Hvalur 9 úr
höfn í dag
♦♦♦
Húsavík | Húsvískir veiðimenn
fóru margir hverjir til veiða á
sunnudag, á fyrsta degi veiði-
tímabilsins og Elías Frímann Elv-
arsson var einn þeirra.
Elías fór við annan mann á
Þeistareykjasvæðið og höfðu þeir
þrettán rjúpur upp úr krafsinu.
Hann sagði veðrið hafa verið hlið-
hollara rjúpunni en veiðimönn-
unum þar efra því að skyggnið var
ekki nema fjörutíu til fimmtíu
metrar vegna þoku sem var á
svæðinu og gerði það veiðimönn-
um erfiðara fyrir.
Aðspurður sagðist Elías hafa
fengið þær fréttir, að aðrir veiði-
menn þarna á efra svæðinu hefðu
fengið svipað en þeir, sem voru
neðar, minna.
Á myndinni er Elías með tíkina
Lady en eins og sjá má bar vel í
veiði og fengurinn góður.
Þrettán
rjúpur á
fyrsta degi
Morgunblaðið/ Hafþór Hreiðarsson
ÓLAFUR Hauksson, sýslumaður á
Akranesi, sagði í gær að ríkissak-
sóknari myndi fela honum að fram-
kvæma þær rannsóknir sem væru
ákveðnar vegna þessara ætluðu hler-
ana hjá fyrrverandi utanríkisráð-
herra og starfsmanni varnarmála-
skrifstofu, þ.e.a.s. leggja til
mannskap í skýrslutökur og fleira.
Hann sagði einnig að málið væri
svo nýtilkomið að ekki lægi fyrir ná-
kvæmlega hvernig staðið yrði að
rannsókninni, en það yrði það fyrsta
sem yrði ákveðið og skilgreint í sam-
ráði við ríkissaksóknaraembættið.
„Að sjálfsögðu verður fylgt þeim
reglum sem lög um meðferð opin-
berra mála setja í sambandi við
þessa rannsókn sem og aðrar.“
Ólafur sagði að tilgreint laga-
ákvæði um rannsóknina væri ekki
mjög gamalt en það heimilaði að
kanna mætti mál þó sakir væru
fyrndar ef almannahagsmunir eða
ríkir einkahagsmunir væru til þess.
Rannsakar
hleranirnar
♦♦♦