Morgunblaðið - 17.10.2006, Síða 5
Miðbær Selfoss
Bæjarstjórn Árborgar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efnir til samkeppni um miðbæ Selfoss. Stefnt er að því að á
Selfossi verði miðbær með íbúðabyggð, öflugri verslun og þjónustu á sem flestum sviðum sem geti þjónað öllu Suðurlandi.
Form samkeppninnar er framkvæmdasamkeppni. Útbjóðandi er fyrst og fremst að lýsa eftir höfundi og tillögu að deili-
skipulagi miðbæjar á Selfossi til nánari útfærslu. Tilhögun samkeppninnar er almenn keppni samkvæmt skilgreiningu
samkeppnisreglna AÍ.
Rétt til þátttöku hafa:
● Félagar í Arkitektafélagi Íslands
● Nemendur í arkitektúr
● Þeir sem rétt hafa til að gera aðaluppdrætti fyrir byggingarnefnd
● Aðrir þeir sem rétt hafa til skipulagsgerðar samkv. gr. 2.7 í skipulagsreglugerð nr. 400/1998.
Keppnislýsing verður látin í té endurgjaldslaust á bæjarskrifstofu Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfossi, á milli kl. 9.00 og
16.00 virka daga og á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, 2. hæð, 105 Reykjavík, á milli kl. 9.00 og 13.00 virka
daga. Einnig er hægt að nálgast hana á heimasíðu Árborgar www.arborg.is.
Önnur samkeppnisgögn verða afhent gegn skilatryggingu að upphæð 10.000 kr. á skrifstofu Arkitektafélags Íslands á milli
kl. 9.00 og 13.00 virka daga. Einnig verður hægt að nálgast samkeppnisgögn hjá trúnaðarmanni.
Tillögum skal skila til trúnaðarmanns, á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, 2. hæð, 105 Reykjavík, eigi síðar en
1. desember 2006. Áætlað er að dómnefnd ljúki störfum í janúar 2007. Höfundur fyrstu verðlauna verður ráðinn
skipulagsráðgjafi verkefnisins, ef viðunandi samkomulag næst milli hans og útbjóðanda.
Samkeppni um deiliskipulag