Morgunblaðið - 17.10.2006, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vááá, af hverju ertu með svona ofsalega stór eyru, amma mín ???
VEÐUR
Framsóknarmenn eiga í pólitísk-um erfiðleikum. Þótt flokk-
urinn hafi kosið sér nýja forystu í
ágúst, sem miklar vonir voru
bundnar við, sjást þess engin merki
enn í hvaða nýjan farveg Jón Sig-
urðsson ætlar að beina flokki sín-
um. Hafi hann nýjar hugmyndir um
stefnumótun Framsóknarflokksins
er ekki eftir neinu að bíða að kynna
þær.
En jafnframthlýtur það að
vera mikið íhug-
unarefni fyrir
framsóknarmenn
hvort þeir geti
leyft sér að
standa svo ræki-
lega í vegi fyrir
umbótum í land-
búnaðarmálum, sem þeir gera enn í
dag og hvort það sé eitthvert vit í
því.
Framsóknarmenn hljóta að sjá, aðóbreytt stefna á þessu sviði mun
leiða til þess að þeir verði utan rík-
isstjórnar á næsta kjörtímabili.
Ekki skal dregið í efa að þeir berihag landbúnaðarins fyrir
brjósti. En þá hlýtur það að vera
betra fyrir landbúnaðinn frá þeirra
sjónarmiði séð, að þeir sjálfir taki
þátt í óhjákvæmilegum umbótum í
atvinnugreininni í stað þess að
standa í vegi fyrir þeim umbótum
og láta öðrum eftir að koma þeim
fram að ári.
Í þessu samhengi fer ekki á millimála, að viðbrögð framsókn-
armanna vegna niðurstöðu Sam-
keppniseftirlits í Mjólku-málinu eru
óskynsamleg, svo að vægt sé til
orða tekið.
Þeir hefðu einmitt átt að grípaþað tækifæri, sem niðurstaða
Samkeppniseftirlits veitti þeim til
þess að marka nýja stefnu.
Nú er það orðið of seint. HefurFramsóknarflokkurinn ekkert
nýtt að segja í landbúnaðarmálum?
Hvað segja Jón og Guðni?
STAKSTEINAR
Jón Sigurðsson.
Íhugunarefni fyrir Jón
SIGMUND
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
'-
'.
'-
''
./
.0
1
.2
.3
.2
'0
4!
4!
5 4!
4!
)
%
4!
5 4!
)*4!
4!
4!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
.-
.-
.2
.'
.3
.3
.'
.'
/
/
-
4!
4!
4!
)*4!
)
%
)
%
5 4!
*6 5 4!
)*4!
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
7
.
.
'
3
+'
-
1
/
0
.'
5 4!
4!
!5*%
4!
! 4!
)
%
8 %
4!
4!
9! :
;
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
9:
=
#-
!!
*
; *
8 <
. 3
<6
=
*
*% ;
5!
<
)4
7
* >.-<.19
? <
!
) @%
5 4!
>
5
<
' 1
<
>
5
A; *4
*@
"3(4>
><4?"@A"
B./A<4?"@A"
,4C0B*.A"
.'( ->1
272
11/
013
-2'
/73
..73
.22(
37-
.111
.07/
./73
.2.7
('7
(21
(./
011
.(-.
.01/
.07'
.0'/
''./
./'3
2>-
.>1
.>.
.>1
.>7
->(
->3
->(
2>2
.>(
.>'
.>0
.>'
->/
NEYTENDASTOFA hefur síðastliðin ár látið
skoða raflagnir á fimmta hundrað verkstæða víðs
vegar um landið; bílaverkstæða, véla- og járn-
smíðaverkstæða, trésmíðaverkstæða og raf-
magnsverkstæða.
Úttekt Neytendastofu leiðir í ljós að raflögnum
og rafbúnaði á íslenskum verkstæðum er víða
ábótavant. Gerðar voru athugasemdir við merk-
ingu búnaðar í rafmagnstöflum í nær öllum verk-
stæðum sem skoðuð voru, eða í 91% tilvika. Þá var
gerð athugasemd við frágang töfluskápa í 75%
skoðana og tengla í 72% tilvika.
Gamall og bilaður rafbúnaður og aðgæsluleysi
forráðamanna eru meðal helstu orsaka rafmagns-
bruna og því er afar mikilvægt að rafbúnaður á
verkstæðum sé ávallt valinn með tilliti til staðsetn-
ingar og notkunar, segir í fréttatilkynningu. Úr
sumum ágöllum má bæta með betri umgengni en
flestar athugasemdirnar kalla á fagþekkingu. Eig-
endur og umráðamenn verkstæða bera ábyrgð á
ástandi þess rafbúnaður sem þar er notaður. Því
er brýnt að löggiltur rafverktaki yfirfari raflagnir
og rafbúnað á verkstæðum svo að öryggi fólks sé
tryggt.
Markmiðið með skoðununum var að fá sem
gleggsta mynd af ástandi raflagna og rafbúnaðar á
verkstæðum og koma ábendingum á framfæri við
eigendur og umráðamenn þeirra um það sem bet-
ur má fara.
Skýrslu Neytendastofu um ástand raflagna á
verkstæðum verður dreift til allra umráðamanna
verkstæða í landinu og til löggiltra rafverktaka en
hana má einnig nálgast á neytendastofa.is
Rafbúnaði er víða ábótavant
Athugasemdir við merkingu búnaðar í rafmagnstöflum á nær öllum verkstæðum
LÖGREGLAN í Hafn-
arfirði gerði húsleit í
iðnaðarhúsnæði í
bænum á sunnudags-
kvöld eftir að vaknað
hafði grunur um að
þar færi fram kanna-
bisræktun.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu reyndist sá grunur á rökum
reistur og var lagt hald á um 170
kannabisplöntur, þar sem stærsta
plantan var um 190 sm há. Einnig
voru tekin nokkur kíló af nið-
urskornu marijúana – jafnvel á
annan tug kílóa – en ekki er búið að
vigta fíkniefnin.
Tveir karlmenn voru handteknir
í húsnæðinu. Þeir voru yfirheyrðir
á sunnudagskvöld og í gær en hefur
verið sleppt úr haldi. Rannsókn
málsins er hins vegar ekki lokið.
Komu upp um
kannabisræktun
Brotist inn í íbúð-
arhús í Garðabæ
BROTIST var inn í tvö mannlaus
íbúðarhús í Garðabæ á sunnudags-
kvöld, annað við Bæjargil og hitt við
Haukanes, og þaðan m.a. stolið
tölvubúnaði.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Hafnarfirði eru málin í
rannsókn. Hafi íbúar í þessum hverf-
um orðið varir við óvenjulegar
mannaferðir, eru þeir vinsamlegast
beðnir um að hafa samband við lög-
regluna í síma 525 3300.
♦♦♦
Z-brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 l 108 Reykjavík l S.525 8200
Allt fyrir gluggann...