Morgunblaðið - 17.10.2006, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra mælti fyrir frumvarpi um Ríkisút-
varpið ohf. á Alþingi í gær. Á dagskrá þingsins
voru þrjú frumvörp menntamálaráðherra; frum-
varp um Ríkisútvarpið ohf., frumvarp um rekstr-
araðila Sinfóníuhljómsveitarinnar og frumvarp
um útvarpslög, prentrétt og samkeppnislög, svo-
kallað fjölmiðlafrumvarp. Þorgerður óskaði eftir
því að frumvarp um breytingu á rekstraraðilum
Sinfóníuhljómsveitarinnar yrði rætt samhliða
frumvarpi um Ríkisútvarpið, enda frumvörpin ná-
tengd að hennar mati. Mörður Árnason, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, gerði athugasemd við að
frumvörpin yrðu rædd saman og synjaði forseti
beiðni Þorgerðar.
Fjöldi þingmanna úr röðum stjórnarandstöð-
unnar kvaddi sér hljóðs og gerði athugasemdir við
fundarstjórn forseta áður en menntamálaráð-
herra komst að til að mæla fyrir frumvarpi sínu.
Athugasemdir þingmannanna beindust að í hvaða
röð frumvörpin þrjú væru rædd, en þeir töldu eðli-
legast að ræða fyrst hin almennu fjölmiðlalög og
ná samstöðu um þau áður en farið væri að ræða
lög um breytt rekstrarfyrirkomulag Ríkisútvarps-
ins, sem væru mun sértækari lög og minni sam-
staða ríkti um í þingheimi. Þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, Arnbjörg Sveindóttir, sagði að
meiriháttar málþóf stjórnarandstöðu væri í upp-
siglingu og undir með henni tók flokksbróðir
hennar, Sigurður Kári Kristjánsson, sem sagði af-
stöðu stjónarandstöðunnar til málsins bæði ófyr-
irleitna og ósanngjarna í garð þeirra sem væru að
flytja málið. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður
VG, sagði að með orðum sínum um málþóf stjórn-
arandstöðunnar hefði Arnbjörg Sveinsdóttir brot-
ið blað í þingsögunni. „Aldrei hef ég orðið fyrir því
að vera sakaður um málþóf í umræðu sem er ekki
hafin,“ sagði Steingrímur.
Eftir tæplega klukkustundar umræðu um fund-
arstjórn forseta steig menntamálaráðherra í
pontu og mælti fyrir frumvarpi um Ríkisútvarpið
ohf. Ráðherra sagði að ýmis tækifæri væru fólgin í
þeirri breytingu sem frumvarpið fæli í sér m.a.
fyrir innlenda dagskrárgerð, íslenska menningu
og Ríkisútvarpið sjálft sem myndi eiga auðveldara
með að fóta sig á síbreytilegum markaði fjölmiðla,
verði breytingarnar að veruleika. Í kjölfar ræðu
menntamálaráðherra hófst löng umræða sem stóð
langt fram eftir kvöldi.
Ráðherra mælir fyrir frum-
varpi um Ríkisútvarpið ohf.
Í HNOTSKURN
»Ríkisútvarpið er í dag sjálfstæð stofn-un í eigu íslenska ríkisins og er starf-
semi þess að mestu fjármögnuð með af-
notagjöldum og auglýsingatekjum
»Frumvarpið sem nú er til umræðu hjáAlþingi mælir fyrir um að Rík-
isútvarpið verði gert að opinberu hluta-
félagi, og reksturinn fjármagnaður með
sérstökum skatti, útvarpsgjaldi, í stað af-
notagjalda
Stjórnarandstaðan segir enga sátt ríkja um málið og meirihlutinn óttast málþóf
ÞEIR lífeyrissjóðir, sem tilkynnt
hafa örorkulífeyrisþegum, að
greiðslur til þeirra verði skertar frá
og með 1. nóvember nk., sættu
harðri gagnrýni í utandagskrár-
umræðu á Alþingi í gær. Helgi
Hjörvar, þingmaður Samfylking-
arinnar, hóf umræðuna og vakti at-
hygli á því, að í sumar hefðu 14 líf-
eyrissjóðir sett reglur eftir á sem
mæltu fyrir um skerðingu eða nið-
urfellingu lífeyris um 2.300 öryrkja.
Sagði Helgi, að með þessari fram-
göngu, sem fjármálaráðherra hefði
skrifað undir, hefðu eignarrétt-
arákvæði stjórnarskrárinnar verið
brotin og vegið að þeim þjóðfélags-
hópi sem hvað höllustum fæti stæði.
Krafðist Helgi þess að Árni M. Mat-
hiesen fjármálaráðherra tæki
ákvörðunina til baka en hann sagði
málið ekki í sínum höndum. Árni
sagðist skilja mjög vel, að öryrkjar
og talsmenn þeirra vildu fá skerð-
ingunni hnekkt, enda augljóslega
um mikla kjararýrnun fyrir þennan
hóp að ræða. „Það er hins vegar
ekki þannig að leiðin til þess að
hnekkja þessum ákvörðunum sé í
gegnum fjármálaráðherra eða fjár-
málaráðuneytið,“ sagði Árni og
sagði, að bera þyrfti ákvörðun líf-
eyrissjóðanna undir gerðardóm ef
ætlunin væri að fá henni hnekkt.
Fleiri þingmenn tóku til máls, þar
á meðal Pétur H. Blöndal, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar.
Hann sagði að óraunhæft væri að
miða útreikninga á greiðslum við
neysluvísitölu og taldi eðlilegra að
miða við launavísitölu, auk þess sem
hann taldi afgreiðslu lífeyrissjóð-
anna í þessu máli vélræna og ómann-
eskjulega. Pétur sagði að koma
mætti í veg fyrir slíka framkvæmd
með því að auka lýðræði í lífeyr-
issjóðum. Ögmundur Jónasson,
þingmaður VG, og Magnús Þór Haf-
steinsson, þingmaður Frjálslynda
flokksins, tóku í sama streng og Pét-
ur, sögðu óviðunandi að lífeyrissjóð-
irnir horfðu eingöngu til neyslu-
vísitölu við ákvörðun greiðslna en
virtu launavísitöluna, sem hefði
hækkað mikið umfram neyslu-
vísitölu undanfarin ár, að vettugi.
Lífeyrissjóðir harðlega gagnrýndir
Morgunblaðið/Eyþór
Skilur öryrkja Árni M. Mathiesen sagði breytingar lífeyrissjóðanna ekki heyra undir ráðuneyti hans.
ÁGÚST Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, gerði að umtalsefni á Alþingi tilmæli
Samkeppniseftirlitsins til landbúnaðarráðherra
um að mjólkuriðnaðurinn skyldi lúta samkeppn-
islögum og viðbrögð ráðherra við þeim. Ágúst
sagði, að í kjölfar tilmæla Samkeppniseftirlitsins
hefði ráðherra ráðist á eftirlitsstofnun með fá-
heyrðum hætti og sagt hana pólitíska í áliti sínu,
þegar hún hefði einungis verið að sinna lög-
bundnu hlutverki sínu. Ágúst tók einnig fram, að
með framferði sínu hefði ráðherra tekið sérhags-
munagæslu fram fyrir almannahagsmuni . „Fólk
sem vill hasla sér völl í landbúnaði er barið niður
af einokunarfyrirtækjum sem starfa í skjóli
Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins,“
sagði Ágúst. Í máli hans kom fram að Samfylk-
ingin hefði verið eini flokkurinn á þingi sem
greiddi atkvæði gegn því að mjólkuriðnaðurinn
yrði undanþeginn samkeppnislögum með sér-
stökum hætti eins og gert var árið 2004 og sagði
að flokkurinn hefði í hyggju að leggja fram þing-
mál þar sem gert verður ráð fyrir því að land-
búnaðurinn lúti samkeppnislögum, líkt og hver
annar atvinnurekstur.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði
að árið 2004 hefði Alþingi ákveðið að mjólkuriðn-
aðurinn yrði áfram undir búvörulögum og undir
þeirri löggjöf hefðu bændur unnið að hagræð-
ingu og mátt hafa samráð og samræmingu um
þessi atriði. „Ég ætla ekki að halda því fram að
þetta fyrirkomulag sé gallalaust, en ég teldi mig
vera að koma aftan að bændum og mjólkuriðn-
aðinum ef ég eða Alþingi breytti þessu nú,“ sagði
Guðni. Hann kvað hins vegar nauðsynlegt að
landbúnaðurinn fengi tíma til að geta staðið við
róttæka alþjóðasamninga líkt og við heims-
viðskiptastofnunina,WTO, og sagði þá sérstöðu,
sem iðngreinin nyti nú, undirbúning þess aðlög-
unarferlis.
Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki, sagði að
full ástæða væri til að skoða tilmæli eftirlits-
stofnunarinnar og athuga hvort þau gæfu tilefni
til endurskoðunar, enda hefðu undanþágurnar
verið samþykktar með þeim formerkjum að um
tímabundnar ráðstafanir væri að ræða.
Þingmenn allra flokka tóku til máls og að um-
ræðum loknum þakkaði landbúnaðarráðherra
þann góða stuðning sem honum fannst sú stefna
sem mörkuð var árið 2004 eiga hjá þorra þing-
manna.
Ráðherra taldi sig vera að koma aftan að bændum ef lögum yrði breytt
Tekist á um mjólkuriðnað
Morgunblaðið/Ómar
Umdeilt Nokkur styr hefur staðið um undanþág-
ur mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum
JENNÝ Þórkatla
Magnúsdóttir gef-
ur kost á sér í
3.–5. sæti í próf-
kjöri Samfylking-
arinnar í Suður-
kjördæmi sem
fram fer 4. nóvem-
ber nk.
Málefni fatl-
aðra og geð-
sjúkra, málefni
fjölskyldunnar, launamismunur, fá-
tækt, ör þróun eiturlyfja hér á landi
og atvinnumál eru nokkur þau mála
sem Jenný telur mjög brýn og þurfi
að takast á við eins fljótt og auðið er,
að því er segir í fréttatilkynningu.
Jenný hefur tekið þátt í pólitísku
starfi í 17 ár, var formaður ungra
jafnaðarmanna í Njarðvík og setið í
mörgum nefndum í Njarðvík og síðar
í Reykjanesbæ.
Hún er þroskaþjálfi frá Kenn-
araháskólanum, en einnig hefur hún
30 tonna réttindi frá siglingaskólan-
um. Jenný hefur frá unga aldri unnið
við fjölbreytt störf. Þar ber að nefna í
leikskólum, við málefni fatlaðra hér á
landi og í Noregi, í fiskvinnslu og ým-
is verslunarstörf. Einnig hefur hún
verið virk í starfi hjá félagasamtökum
og setið í stjórnum íþróttafélaga.
Gefur kost á
sér í 3.–5. sæti
Jenný Þórkatla
Magnúsdóttir
STEINUNN
Guðnadóttir,
fyrrverandi bæj-
arfulltrúi í Hafn-
arfirði, gefur kost
á sér í 6. sæti á
framboðslista
Sjálfstæðis-
flokksins í Suð-
vesturkjördæmi í
prófkjöri flokks-
ins 11. nóvember.
Steinunn var bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á árunum 1998–2006
og sat í mörgum nefndum á vegum
Hafnarfjarðarbæjar, var m.a. for-
maður skólanefndar Hafnarfjarðar,
sat í bæjarráði og skipulagsnefnd.
Steinunn starfar nú sem íþrótta-
kennari við endurhæfingardeild
Hrafnistu í Hafnarfirði ásamt því að
vera í meistaranámi í mennta- og
menningarstjórnun við Viðskiptahá-
skólann að Bifröst í Borgarfirði.
Steinunn, sem er fjögurra barna
móðir, telur að auka þurfi rannsókn-
ir á Íslandi er varða hina ýmsu fé-
lagslega þætti. Rannsóknir og nið-
urstöður þeirra þurfa stjórnmála-
menn svo að nýta sér til stefnu-
mótunar. Steinunn kemur til með að
kynna stefnumál sín á heimasíðu
sinni steinunn.is
Gefur kost á
sér í 6. sætið
Steinunn
Guðnadóttir
ELLERT B.
Schram hefur
ákveðið að gefa
kost á sér í próf-
kjöri Samfylking-
arinnar í Reykja-
vík 11. nóvember.
„Það geri ég til
að leggja hugsjón
jafnaðarstefnunn-
ar lið. Ég vil veg
hennar sem mest-
an í næstu þingkosningum. Hófsama
og heiðarlega jafnaðarstefnu. Frjáls-
lynda, öfgalausa og manneskjulega.
Þjóðin þarf á því að halda. Auk þess
held ég að það skaði ekki að rödd
reynslunnar og eldri kynslóðarinnar
heyrist og hafi hlutverki að gegna.
Ég býð mig fram án þess að tiltaka
eitthvert sérstakt númer í röðinni.
Ég læt kjósendum eftir að kjósa mig
í hvaða sæti sem er. Eða kjósa mig
alls ekki. Það er hvort eð er á þeirra
valdi,“ segir í fréttatilkynningu frá
Ellert.
Gefur kost á
sér í prófkjör
Ellert B. Schram