Morgunblaðið - 17.10.2006, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!"#$%
!!"
#!"$%" $&
$# ' ("(
"()"'#&
"()"'#' '
"()"'# (
*"
$+, '(((
*(
-
*(. (
$ "
*(
-
*(.
$ "
()
*(
-
*(.
$ "
) *
*(
-
*(.
$ "
!"!
!# $
"()"'
' "+ ,%
#!"$ " & $# ' ("(
/ ! ! ) #"()"' $
' ! ) & ' (
0 !
1!
/"
2
3""4# 556 '
$!"% '!"
#$ " & "(
!
!
!# % &
!
"
!
ALÞJÓÐA hafrannsóknaráðið,
ICES, leggur til auknar veiðar á
norsk-íslenzku síldinni á næsta ári.
Ráðir telur hæfilegt að veiða
1.280.000 tonn af síld, en á þessu ári
er gert ráð fyrir að heildaraflinn
verði 967.000 tonn. Ekki hefur náðst
samkomulag um veiðar á norsk-ís-
lenzku síldinni undanfarin ár og hef-
ur það strandað á kröfu Norðmanna
um verulega aukna hlutdeild.
Stofn norsk-íslenzku síldarinnar
er nú einhver stærsti fiskistofn í
heimi, en hrygningarstofninn er tal-
inn ríflega 10 milljónir tonna. Með
ríflega milljón tonna veiði árlega er
það mat ICES að hrygningarstofn-
inn haldist um eða yfir 10 milljónir
tonna. Það er árgangurinn frá 2002,
sem ber hrygningarstofninn uppi
núna ásamt árgöngunum frá 1998 og
1999, en árgangurinn frá 2004 er
einnig sterkur.
Ekkert samkomulag
Það eru Noregur, Ísland, Rúss-
land, Færeyjar og Evrópusamband-
ið, sem nýta norsk-íslenzku síldina. Á
síðasta áratug tókst með þessum
þjóðum samkomulag um skiptingu
leyfilegs heildarafla, en síðustu árin
hefur ekkert samkomulag verið í
gildi að þessir aðilar selt sér sjálf-
dæmi. Norðmenn gerðu fyrir þessa
vertíð samkomulag við ESB um veið-
arnar. Samkvæmt samkomulaginu
myndu Norðmenn veiða 564.200 tonn
af norsk-íslenskri síld 2006 og skip
aðildarríkja ESB 62.000 tonn. Þá
fengu ESB-skip að veiða síld í
norskri lögsögu og einnig var banni
við löndun þeirra á síld í Noregi af-
létt.
Með samkomulaginu var ljóst að
veiði úr norsk-íslenzka síldarstofnin-
um yrði langt umfram veiðiráðgjöf
Alþjóða hafrannsóknaráðsins sem
var 732.000 miðað við samkomulag
strandríkjanna, Íslands, Noregs,
Færeyja, Rússlands og ríkja ESB
um langtímanýtingu stofnsins.
Samkvæmt fyrri samningi aðildar-
ríkjanna 1996 gerðu strandríkin
samning um skiptingu veiða úr stofn-
inum þannig að í hlut Noregs komu
57%, Íslands 15,54%, Rússlands
13,62%, ESB 8,38% og Færeyja
5,46%. Vegna krafna Normanna um
aukna hlutdeild þeim til handa hefur
samkomulagið verið í uppnámi frá
árinu 2003. Þetta hefur leitt til þess
að meira hefur verið veitt úr stofn-
inum en markmið um langtímanýt-
ingu hans gerir ráð fyrir. Á þessu ári
settu Norðmenn sér einhliða kvóta
úr stofninum sem var mun hærri en
hlutur þeirra samkvæmt samningn-
um frá 1996 kvað á um. Það leiddi til
þess að hin strandríkin hækkuðu
einnig kvóta sína. Hlutdeild Íslands
úr veiðunum nú er 154.000 tonn og er
langt komið með að veiða upp í það.
Aflinn er orðinn 148.600 tonn eða um
97% af leyfilegum afla. Miðað við að
Ísland taki sér kvóta í samræmi við
gamla samkomulagið, ættu að koma
tæplega 200.000 tonn í hlut okkar,
sem er aukning um tæp 46.000 tonn
miðað við kvótann í ár.
Leggur til aukna veiði á
norsk-íslenzku síldinni
Morgunblaðið/Alfons
Síldveiðar Nú leggur Alþjóða hafrannsóknaráðið til aukningu á leyfilegum
afla af norsk-íslenzku síldinni. Gera má ráð fyrir að hlutur Íslands aukist.
Samkvæmt tillögum
Alþjóða hafrann-
sóknaráðsins gæti
hlutur Íslands aukizt
um 46.000 tonn
ÚR VERINU
STAÐA kolmunnastofnsins er ekki
góð að mati Alþjóða hafrannsókna-
ráðsins, enda hefur afli verið langt
umfram tillögur þess að und-
anförnu, eða um tvær milljónir
tonna á ári.
Ísland Noregur, Færeyjar og
ESB hafa gert með sér sam-
komulag um skiptingu aflans og
heildarafla. ICES telur þau mörk of
há og leggur til að aflinn á næsta
ári verði innan við eina milljón
tonna.Verði það niðurstaðan mun
hlutur allra minnka um helming og
í hlut Íslands kæmu þá um 176.000
tonn í stað 352.000 tonna núna.
Noregur hafur veitt mest undan-
farin ár en Ísland næstmest.
Minni kolmunnaveiði?
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
0,07% í Kauphöll Íslands í gær og
var 6.509,84 stig við lok viðskipta.
Atlantic Petroleum hækkaði um
11,58%, Glitnir um 1,4%, en Kaup-
þing lækkaði um 1,01%.
Gengi íslensku krónunnar styrkt-
ist um 0,21% í gær. Gengisvísitala
krónunnar var 117,86 stig er mark-
aðurinn var opnaður en var 117,6
stig þegar honum var lokað. Gengi
Bandaríkjadollara er nú 68 krónur
og gengi evrunnar er 85,17 krónur.
Krónan styrkist
● HLUTHAFAFUNDUR Kaupþings
samþykkti í gær að bankinn greiði
hluthöfum sínum í arð 830.691.316
hluti í Exista hf, sem svarar til 7,7%
af heildarhlutafé Exista, en hluthafar
í Kaupþingi munu fá 1,25 hluti í Ex-
ista fyrir hvern hlut í Kaupþingi
Banka.
Markaðsvirðið er ríflega 19 millj-
arðar króna. Líklegt má telja að aldr-
ei áður hafi almenningshlutafélag á
Íslandi greitt jafnháa fjárhæð í arð til
hluthafa sinna.
Lokagengi Kaupþings í Kauphöll
Íslands í gær var 881 króna á hlut en
Exista 22,60.
Arðsréttindadagur á Íslandi var í
gærmorgun, en arðgreiðslan mun
fara fram 26. október 2006.
Stærsta arðgreiðslan
SENA hefur keypt ráðandi hlut í
tónleika- og umboðsfyrirtæki Einars
Bárðarsonar, Consert ehf., sem
hann stofnaði árið 2000. Kaupverðið
er ekki uppgefið en kaupin eru með
fyrirvara um samþykki samkeppnis-
yfirvalda.
Í tilkynningu er haft eftir Einari
að hann hafi frá því í byrjun þessa
árs verið að leita að ákjósanlegum
samstarfsaðila í rekstri Consert, en
mikið af tíma hans fari nú í rekstur
útgáfufélagsins Believer í London.
„Sena er sterkasta félagið á sviði af-
þreyingar á Íslandi og ég tel mig
geta lært mikið af því reynslumikla
fólki sem þar er,“ segir Einar. „Ég
horfi með bjartsýni á það sem er
framundan hjá Concert. Ég er stolt-
ur af þeim árangri sem félagið hefur
náð á síðustu 6 árum og ég er sann-
færður um að þetta eigi eftir að efla
félagið gríðarlega.“
Haft er eftir Birni Sigurðssyni,
framkvæmdastjóra Senu, í tilkynn-
ingunni að það séu gríðarlega mikil
verðmæti í Concert, bæði vörumerk-
inu og starfsfólkinu. Segir hann að
Sena hafi um nokkurt skeið ætlað
sér inn á tónleikamarkaðinn. Með
ráðningu Ísleifs Þórhallssonar, en
hann var ráðinn til starfa hjá fyr-
irtækinu í sumar til að styrkja vett-
vang fyrir lifandi tónlist og aðra við-
burði, og með kaupunum á Consert
sé Sena að leggja grunn að metn-
aðarfullri uppbyggingu á deild sem
muni ráðast í stórverkefni í lifandi
tónlist.
Fram kemur í tilkynningunni að
Ísleifur Þórhallsson muni stjórna
tónleikahaldi Consert en Helga Lilja
Gunnarsdóttir verði áfram fram-
kvæmdastjóri félagsins. Þá muni
Einar Bárðarson áfram starfa við
Consert auk þess sem hann muni
sitja í stjórn félagsins. Samhliða því
muni Einar sinna ráðgjafastarfi í út-
flutningi á íslenskri tónlist, fyrir
stjórn og framkvæmdastjóra Senu.
Morgunblaðið/ÞÖK
Góður árangur Nylon-flokkurinn hefur verið að ná góðum árangri í Bret-
landi, en Einar Bárðarson á einmitt heiðurinn af stofnun hans.
Sena kaupir
Consert ehf.
AVION Group hefur fyrir hönd dótt-
urfélags sín, Eimskip Atlas Canada,
náð samkomulagi við kanadíska
frystigámafélagið Atlas Cold Stor-
age um yfirtökutilboð í allt hlutafé
félagsins. Samkomulagið felur í sér
að Avion hækkar tilboð sitt, sem
upphaflega var lagt fram í ágúst-
mánuði síðastliðnum, úr 7,0 kanad-
ískum dollurum á hlut í 7,50 dollara.
Heildarvirði Atlas er um 583 millj-
ónir kanadískir dollarar eða um 35
milljarðar íslenskra króna.
Magnús Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Avion, segir í tilkynningu
að yfirtaka Atlas skipti miklu máli
fyrir framtíðarsýn Eimskips. „Með
Atlas kemur Eimskip til með að ráða
yfir meira en 90 hitastýrðum
geymslum um allan heim. Þessi kaup
koma til með að tryggja betri þjón-
ustu til viðskiptavina beggja fyrir-
tækjanna og tryggja mjög sam-
keppnishæfa flutningsþjónustu,“
segir Magnús.
Atlas Cold Storage er annað
stærsta kæligeymslufyrirtæki Norð-
ur-Ameríku og er með 53 frysti- og
kæligeymslur í Bandaríkjunum og
Kanada. Starfsmenn félagsins eru
um 4.500 talsins.
Mælt með yfir-
töku Avion
' (# !
& !) (%*)+
%, - . -./ 0 1, ,0/
7 85+!(
! 7 +!(
" 85+!(
85+!(
9 "" %85+!(
: '4; +!(
*85+!(
8 4 "+!(
0 5& '4 "+!(
4 ". +!(
+!(
7* + +!(
<)* 7< $
$9 #*-#!(4(+!(
=+!(
2 #.) 3 45
3> +!(
* ' 85+!(
?7 785+!(
@6+ -+!(
AB'' ' $ % +!(
C % +!(
6#5" 5 7
#!, '
!(
8+ 9*5
?D3E
:5 ,5
#
#
F
"5
'
A4 " 'G
0 5
(( (( (( (
( (
(
( (
(( (
( ( ( ( ((
( ((
(( ((
( ( (
( ( (
(
( (
((
((
C "5" $
AF(H+' *-%
"5
"(
@ I
J< $#
$#
K
K
*A
3
:L
$#
$#
K
K
DD M L
""+(
$#
$#
K
K
M L0+%!
@""
$#
$#
K
K
?D3L :NO
$#
$#
K
K