Morgunblaðið - 17.10.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 15
ERLENT
Knarrarvogi 4, Reykjavík
Skilagjaldið er
10 krónur
Besti grunnskóli
í heimi
Hvernig getum við tryggt börnum okkar besta grunnskóla í heimi?
Illugi Gunnarsson og Margrét Pála Ólafsdóttir ræða um málefni
grunnskólans á morgun miðvikudaginn 18. október
klukkan 17:30 á Grand Hótel að Sigtúni 38.
Þórólfur Þórlindsson stýrir umræðum að framsögum loknum.
Allir velkomnir!
stuðningsmenn Illuga
Prófkjör okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík er 27. og 28. október 2006.
Ný verkefni • Nýjar áherslur • Illuga í 3. sæti
Hvernig getum við tryggt
börnum okkar besta
grunnskóla í heimi?
Fundur á Grand Hótel
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
CECILIA Stegö
Chilo sagði í
fyrradag af sér
sem menningar-
málaráðherra í
Svíþjóð og fór í
því að dæmi
Mariu Borelius
viðskiptaráð-
herra, sem sagði
af sér á laug-
ardag. Er Fredrik Reinfeldt for-
sætisráðherra gagnrýndur fyrir að
hafa ekki vandað sig nógu vel í ráð-
herravalinu enda ríkir enn nokkur
óvissa um framtíð tveggja annarra
ráðherra í ríkisstjórn hans. Anders
Borg fjármálaráðherra kynnti í
gær á þingi fjárlög nýju stjórn-
arinnar og lagði þá áherslu á, að
meginmarkmið þeirra væri að
draga úr atvinnuleysi í landinu.
Eftir að Chilo tók við ráðherra-
embætti var upplýst, að hún hefði á
sínum tíma greitt barnfóstrum sín-
um undir borðið en verra var þó, að
hún hafði ekki greitt afnotagjald af
sjónvarpi í 16 ár. Þótti það alls ekki
geta gengið með menningarmála-
ráðherra og þar með yfirmann
sjónvarpsins og annarra ríkisfjöl-
miðla. Reinfeldt vildi að vísu gefa
henni „annað tækifæri“ en kröfur
um afsögn Chilo jukust stöðugt,
jafnt meðal almennings sem
frammámanna í flokki þeirra
beggja, Hægriflokknum. Chilo var
því ekki sætt en óvíst er hvað verð-
ur um Andreas Carlgren umhverf-
isráðherra, sem er sakaður um
skattsvik, og Tobias Billström, sem
fer með málefni flóttamanna, en
hann hefur að mestu látið það ógert
að greiða afnotagjald af ríkisfjöl-
miðlunum. Kvað hann ástæðuna þá,
að sér hefði ekki líkað dagskráin.
Göran Persson, fyrrverandi for-
sætisráðherra í stjórn jafn-
aðarmanna, sagði í fyrradag, að af-
sögn Chilo hefði ekki komið á óvart
en Marita Ulvskog, fyrrverandi
menningarmálaráðherra jafn-
aðarmanna, gagnrýndi Reinfeldt
harðlega. Sagði hún, að hann hefði
valið Chilo í embættið og það, sem
komið hefði á daginn um ýmsa aðra
ráðherra, sýndi, að hann ætti mikið
ólært sem leiðtogi.
Atvinnuleysið
er mesta meinið
Þegar Anders Borg kynnti fjár-
lagafrumvarpið hóf hann ræðu sína
á því að hrósa Göran Persson fyrir
að hafa eflt sænskt efnahagslíf en
sagði, að það væri ekki bara falið í
góðum hagvexti, lítilli verðbólgu og
sterkri stöðu ríkissjóðs. Atvinnu-
leysið væri mikið og gegn því yrði
að ráðast. Boðaði hann skattalækk-
anir á næsta ári, um 410 milljarða
ísl. kr., en á móti verður gripið til
ýmissa sparnaðaraðgerða. Munu
þær meðal annars bitna á atvinnu-
leysistryggingum, sem verða ekki
greiddar nema í 300 daga fyrir ein-
staklinga og í 450 daga fyrir fólk
með barn á framfæri. Þá verða
hæstu bætur lækkaðar nokkuð.
Framlag til sjúkratrygginga verður
einnig lækkað, nokkrar opinberar
stofnanir lagðar niður og svokallað
„friår“ lagt niður. Það fól í sér árs-
leyfi frá störfum, oft til endur-
menntunar, og þá á 60% launum
frá atvinnuveitanda, sem einnig var
gert að ráða í staðinn einhvern úr
hópi atvinnulausra. Þá verður einn-
ig hætt við þá „atvinnubótavinnu“
að fjölga starfsfólki hjá ýmsum op-
inberum stofnunum, hjá ríki og bæ,
þótt ekki sé þörf fyrir það.
Óvissa um áhrifin
Pär Nuder, fyrrverandi fjár-
málaráðherra jafnaðarmanna,
gagnrýndi fjárlagafrumvarpið og
sagði það boða niðurskurð í velferð-
arkerfinu. „Þeir ríku verða ríkari,
þeir fátæku fátækari,“ sagði Nuder
og hélt því fram, að stjórnina vant-
aði um 230 milljarða ísl. kr. til að
fjármagna skattalækkanirnar á
næsta ári og 2008.
Aðrir stjórnarandstæðingar tóku
í líkan streng og Christer Nyland-
er, einn þingmanna sænska Þjóð-
arflokksins, viðurkenndi, að á þess-
ari stundu væri óljóst hvaða áhrif
fjárlagafrumvarpið hefði á atvinnu-
sköpun í landinu.
Eins og við er að búast gera
sænsku fjölmiðlarnir fyrstu fjár-
lögum borgaraflokkastjórnarinnar
mikil skil og leita þeir álits margra
hagfræðinga á frumvarpinu. Er
dómur þeirra flestra sá, að frum-
varpið sé gott fyrir þá, sem hafa
vinnu.
„Þeir, sem hafa vinnu, hagnast,
þeir, sem hafa ekki vinnu, tapa,“
segir Annika Creutzer, hagfræð-
ingur hjá Skandiabanken. „Það eru
námsmenn, þeir, sem eru atvinnu-
lausir og hafa litla von um vinnu,
og sumir lífeyrisþegar, sem tapa.
Það er raunar ekkert fyrir náms-
mennina í þessu fjárlagafrumvarpi
nýju stjórnarinnar,“ sagði Annika
Creutzer.
Chilo neyddist til að segja af sér
Chilo
Ekki hlátur í hug Fredrik Reinfeldt var heldur þungur á brún þegar hann
svaraði í gær spurningum blaðamanna um afsögn Ceciliu Stegö Chilo.
Í HNOTSKURN
» Bandalag borgaraflokk-anna sigraði í þingkosn-
ingunum í Svíþjóð 18. sept-
ember síðastliðinn. Þar með
lauk samfelldri stjórnarsetu
jafnaðarmanna í 16 ár.
» Fredrik Reinfeldt, leiðtogiHægriflokksins og for-
sætisráðherraefni borg-
araflokkanna, þótti standa sig
mjög vel í kosningabaráttunni.
»Reinfedt kynnti stjórn sína6. þessa mánaðar en ekki
var liðin vika áður en búið var
að saka fjóra ráðherra um lög-
brot. Nú hafa tveir þeirra sagt
af sér og Reinfeldt sjálfur er
harðlega gagnrýndur fyrir að
hafa brugðist bogalistin sem
leiðtogi.
Skattalækkanir boð-
aðar í fjárlagafrum-
varpi stjórnarinnar
Chilo
LIÐSMAÐUR indverskrar sér-
sveitar, Þjóðaröryggisvarðanna,
sýnir færni sína í sjálfsvarnarlist
með því að brjóta leirpott á eldi
með berum hnefum á sýningu í
bænum Manesar í gær. Sérsveit-
inni er beitt til að ráða nið-
urlögum hryðjuverkamanna,
gíslatökumanna og mannræn-
ingja.
AP
Sérsveit sýnir
sjálfsvarnarlist