Morgunblaðið - 17.10.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Djúpivogur | „Við erum þokkalega
bjartsýn“ segir Björn Hafþór Guð-
mundsson, sveitarstjóri Djúpavogs-
hrepps, en nú er unnið að jarð-
hitarannsóknum á svæðinu,
fiskvinnslan og höfnin eru í upp-
sveiflu, tekið hefur fyrir íbúafækkun
og engin einasta kompa í öllu þorp-
inu er laus til leigu.
„Við erum hvað spenntust yfir því
núna hvort jákvæðar vísbendingar
um jarðhita ganga eftir. Þar er ekk-
ert fast í hendi enn þá, en lítur vel út
og þetta haustið unnið fyrir 10 millj-
ónir króna að rannsóknum og til-
raunaborunum.“
Björn Hafþór segir nú hafa fund-
ist nægjanlega heitt vatn til að nýta
fyrir sundlaugarmannvirkin á
Djúpavogi, en menn geri sér auðvit-
að vonir um meira. „Þetta dugir lík-
lega í sundlaugina og væri komið á
móttökustað ívið heitara heldur en
vatnið sem við erum að kynda með
rafmagni í laugina.“
Vísir, stærsta fiskvinnslufyr-
irtækið á Djúpavogi, hefur verið að
bæta við sig undanfarið. „Það hefur
fjölgað starfsfólki þar og þeir búnir
að bæta við framleiðslugetuna með
breytingum og fjárfestingum í hús-
inu sjálfu, en sérstaklega þó bún-
aði,“ segir Björn Hafþór.
Mikið að gera við höfnina
„Það eru mjög mikil umsvif hér
við höfnina, Vísisbátarnir landa hér
gífurlegu magni og höfnin er eig-
inlega sú undirstofnun sveitarfé-
lagsins sem gengur hvað best. Hún
malar ekki gull en stendur undir sér
á meðan umferðin er eins og hún er í
dag. Svo eru hér að koma á
ákveðnum tímum ársins það sem ég
vil kalla vertíðarbáta, þessi nýja teg-
und af 15 tonna bátum sem flytja sig
nánast á milli landshluta á einum
sólarhring. Hér leigja áhafnir sér
húsnæði, m.a. á vegum sveitarfé-
lagsins, fiskurinn fer þó ekki nema
að hluta til í vinnslu á Djúpavogi, en
þetta skapar líka tekjur og stuðlar
að því að engin íbúð er laus í þorp-
inu.“
Fyrir skemmstu var hafist handa
um byggingu nýs íbúðarhúss á
Djúpavogi, en þá hafði ekki verið
byggt þar íbúðarhúsnæði í nokkuð
mörg ár. „Núverandi meirihluti var
með ákveðin fyrirheit um fyr-
irgreiðslu til íbúðarbyggjenda, tíma-
bundna ráðstöfun sem ætti að hvetja
menn, en í dag er þetta eini aðilinn
sem er kominn í gang,“ heldur Björn
Hafþór áfram og segir rekstur sveit-
arfélagsins ganga frekar brösug-
lega. „Við erum í rauninni að þjón-
usta umfram fjárhagslega getu. Við
teljum hins vegar að fjárfestingar
síðustu ára, m.a. í sundlaug, leik-
skóla, ferðaþjónustu o.fl., séu
kannski eitthvað að skila sér og tek-
ið hefur fyrir fækkun íbúa. Bráða-
birgðatölur eftir fyrstu sex mánuði
ársins voru aðeins upp á við og Guð
láti gott á vita.“
Engin einasta kompa laus til
leigu í öllu Djúpavogsþorpinu
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Uppsveifla Undanfarið hefur verið lögð sérstök rækt við að efla ferðaþjónustu á Djúpavogi og höfnin iðar af lífi.
Sveitarfélagið í jarð-
hitarannsóknum og til-
raunaborunum
Vopnafjörður | Á fimmtudag bjóða
menningarmálanefnd Vopnafjarðar-
hrepps og Gunnarsstofnun til leik-
lesturs á nýrri leikgerð Jóns Hjart-
arsonar á Fjallkirkju Gunnars
Gunnarssonar. Er leikgerðin unnin
upp úr þriðju bókinni í ritröðinni og
ber heitið Nótt og draumur. Hefst
dagskráin, sem fram fer í Mikla-
garði, kl. 20.00.
Tilefni leikgerðarinnar er að í ár
eru 100 ár frá útgáfu fyrstu tveggja
bóka Gunnars, Vorljóða og Móður-
minningar. Agnar Már Magnússon
tónlistarmaður samdi tónlist við
fimm ljóðanna og er hún felld inn í
leiklesturinn.
Auk heimamanna munu þrír at-
vinnuleikarar taka þátt í leikgerð-
inni, Jón Hjartarson, Þráinn Karls-
son og Halldóra Malín Pétursdóttir.
Veigamestu hlutverkin eru í hönd-
um þeirra Bjarts Aðalbjörnssonar
og Finns Guðmundssonar.
Ný leikgerð
Fjallkirkju
Gunnars
Egilsstaðir | Nemendur Egilsstaða-
skóla efna í dag til víðavangshlaups
í minningu Péturs Þorvarðarsonar,
17 ára pilts úr bænum sem lést á
Hauksstaðaheiði við Vopnafjörð sl.
vor eftir hrakninga frá Gríms-
stöðum á Fjöllum.
Hlaupið hefst kl. 11.15 og verður
byrjað og endað í Tjarnargarðinum
við Tjarnarbraut. Það er m.a.
skipulagt af íþróttakennurum skól-
ans. Þeir sem vilja hlaupa með
skólafólkinu eru velkomnir, að
sögn aðstandenda hlaupsins.
Tileinkað Pétri
Þorvarðarsyni
♦♦♦
FRÉTTIR
MIKILL áhugi hefur verið á áskriftarkortum
hjá Leikfélagi Akureyrar í haust, að sögn
Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra, og
enn verið sett met í sölu slíkra korta.
Haustið 2004 sjöfaldaðist sala áskriftarkorta
frá árinu á undan og höfðu aldrei fleiri kort
selst. Þá seldust tæplega eitt þúsund kort. Í
fyrra jókst salan enn og nú hefur það met verið
slegið.
Sem kunnugt er var síðasta leikár algert
metár hjá LA og uppselt á nær allar sýningar
vetrarins. Oft þurftu áhugasamir frá að hverfa,
að sögn leikhússtjórans.
Áskriftarkortið hjá LA kostar 7.900 kr og
innifalinn er aðgangur að fjórum sýningum,
þ.e. þremur nýjum uppsetningum LA; Herra
Kolbert, Svartur köttur og Lífið – notkunar-
reglur og svo velur korthafi sér fjórðu sýn-
inguna úr öllum öðrum sýningum sem verða á
fjölunum í vetur. Að auki bjóðast korthöfum
ýmis kostakjör að leiksýningum, leikhúsmat-
seðlum hjá veitingahúsunum svo dæmi séu
nefnd. Korthafar LA fengu t.d. 5.000 króna af-
slátt af leikhúsferð LA til London í haust.
Í samstarfi við Landsbankann bjóðast
áskriftarkort á niðursettu verði fyrir ungt fólk
og námsmenn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Namm! Karíus og Baktus með feðgunum
Skúla og Teiti sem báðir tala í sýningunni.
Enn slær LA
kortasölumet
PÁLMI Stefánsson hélt um síð-
ustu helgi upp á 40 ára afmæli
Tónabúðarinnar sem hóf starf-
semi á Akureyri 15. október 1966.
Verslunin er nú til húsa í versl-
unarmiðstöðinni Sunnuhlíð við
samnefnda götu og útibú er í
Reykjavík, á horni Skipholts og
Nóatúns; Pálmi opnaði verslun í
Reykjavík 1994 og flutti hana á
núverandi stað í fyrra.
Í upphafi seldi Pálmi hljóm-
plötur og hljóðfæri, um tíma bauð
hann líka upp á hljómflutnings-
tæki og sjónvörp og þess háttar.
Því hætti hann aftur fyrir nokkr-
um árum, var þó lengi vel með
geisladiska í búðinni en selur nú
einvörðungu hljóðfæri og fylgi-
hluti með þeim.
Pálmi segir að það hafi verið
dálítið strembið að byrja með
hljómplötuverslun á Akureyri fyr-
ir 40 árum. „Í þá daga var hér í
bænum ein önnur plötubúð og hún
var með samning við helstu inn-
flytjendur og útgefendur tónlistar
um að þeir seldu ekki öðrum á Ak-
ureyri.“ Þannig var fyrirkomulag-
ið fyrstu árin. Hann hóf því inn-
flutning sjálfur á plötum, t.d. frá
New York og einnig frá Norð-
urlöndunum. „Það var verra með
íslensku plöturnar; Svavar Gests
var langstærsti útgefandinn og
svo gaf Fálkinn út tónlist og hvor-
ugur gat selt mér. Það hefur lík-
lega verið að hluta til ástæðan fyr-
ir því að ég fór sjálfur að gefa út
hljómplötur.“
Tónaútgáfan hóf starfsemi
1967. „Ég og félagi minn Jón Ár-
mannsson sem var með versl-
unarrekstur í Reykjavík, en er nú
vínræktarbóndi í Frakklandi, vor-
um með útgáfuna saman og gáf-
um alls út á milli 50 og 60 titla.“
Þeir félagar gáfu til að mynda
út fyrstu hljómplötu Björgvins
Halldórssonar, Þó líði ár og öld,
Tónaútgáfan gaf einnig út Lifun
með Trúbrot og plötur með Flo-
wers, Ingimari Eydal og Örvari
Kristjánssyni að ógleymdri Póló,
hljómsveit Pálma sjálfs. Póló var
vinsæl hljómsveit á sínum tíma,
var stofnuð í júní 1964 en hætti í
október 1969. „Þorsteinn Kjart-
ansson, löggiltur endurskoðandi,
fór þá í nám til Reykjavíkur svo
við ákváðum að leggja hljómsveit-
ina niður; að hætta á toppnum,
sem ég held við höfum gert.
Hljómsveitin var mjög vinsæl og
gekk virkilega vel.“
Tónabúðin var fyrst til húsa í
Gránufélagsgötu 4. „Við vorum
tvö við þetta í byrjun, ég og Svan-
dís systir mín,“ sagði Pálmi við
Morgunblaðið. Verslunin flutti
síðar í Hafnarstræti 106 þar sem
hann leigði rými í Markaðnum af
Fríðu Sæmundsdóttur, síðan lá
leiðin aftur í Gránufélagsgötuna –
á sama stað og fyrst – og loks út í
Sunnuhlíð. „Ég hef verið hér síð-
an 1982 að verslunarmiðstöðin var
opnuð. Ég er víst sá eini sem hef-
ur þraukað svona lengi hér.“
Tónabúðin hans Pálma 40 ára
Fékk ekki að kaupa plötur til að selja og fór því að gefa út tónlist sjálfur!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Pálmi í Tónabúðinni Gaf ásamt félaga sínum út fyrstu plötu Björgvins Halldórssonar og þá frægu Lifun .
Í HNOTSKURN
» Pálmi lék á hljómborðog harmonikku í eigin
hljómsveit á sínum tíma.
» „Ég hef verið mjögheppinn með starfs-
menn,“ segir Pálmi. Einn
þeirra hefur unnið hjá
honum í tæpa þrjá ára-
tugi.
» „Gítarar hafa veriðrosalega vinsælir í
nokkur ár. Við höfum selt
ótrúlegt magn af þeim.“