Morgunblaðið - 17.10.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 19
SUÐURNES
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
K 6.80 M Plus
■ Vinnuþrýstingur: 20-135 bör
■ Vatnsmagn: 530 ltr/klst
■ Túrbóstútur + 50%
■ Lengd slöngu: 9 m
■ Sápuskammtari
■ Stillanlegur úði
K 7.80 M Plus
■ Vinnuþrýstingur
20-150 bör
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
K 7.85 M Plus
■ Vinnuþrýstingur:
20-150 bör
■ Vatnsmagn:
550 ltr/klst
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
■ 12 m slönguhjól
■ Vatnsmagn: 550 ltr/klst
■ Túrbóstútur + 50%
■ Lengd slöngu: 9 m
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
K 5.80 M Plus
■ Vinnuþrýstingur:
20-125 bör
■ Vatnsmagn:
450 ltr/klst
■ Lengd slöngu: 7,5 m
■ Stillanlegur úði
■ Túrbóstútur + 50%
■ Sápuskammtari
Ýmsir aukahlutir
Snúningsdiskur
MENNINGARDAGUR í kirkjum á
Suðurnesjum verður haldinn næst-
komandi sunnudag. Þetta er í fjórða
sinn sem Ferðamálasamtök Suður-
nesja, kirkjurnar, Reykjanesbær og
Sparisjóðurinn í Keflavík halda
menningardag með þessu sniði.
Sérstök dagskrá er í öllum átta
kirkjum Suðurnesja og tímanum stillt
þannig upp að auðvelt er að komast á
milli kirkna til að ná að sjá dagskrána
í hverri kirkju. Dagskráratriðin eru
að mestu sótt í menningu hverrar
kirkjusóknar fyrir sig.
Fjölbreytt dagskrá
Dagskráin hefst í Kálfatjarnar-
kirkju kl. 10 um morguninn með er-
indi sr. Gunnars Kristjánssonar um
sögu Kálfatjarnarkirkju. Ellen Krist-
jánsdóttir mun flytja lög í Njarðvík-
urkirkju við texta eftir Njarðvík-
ingana Sveinbjörn Egilsson og
Hallgrím Pétursson. Grindvíkingar
bjóða upp á dagskrá um Sigvalda
Kaldalóns og Stein Steinarr. Útskála-
kirkja býður upp á erindi frá Andra
Snæ Magnasyni, „Stund milli stríða –
Garður milli hers og álvers“. Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona verður í
Hvalsneskirkju með leikrit sitt um
ungdómsár Hallgríms Péturssonar.
Leiðsögumenn Reykjaness bjóða upp
á sagnaskemmtun í Kirkjuvogskirkju
og í Ytri-Njarðvíkurkirkju bjóða
Rúnar Júlíusson, Einar Júlíusson og
María Baldursdóttur upp á upprifjun
á stemningunni í Krossinum og Stap-
anum 1960–1975.
Menningardagurinn endar svo með
söngdagskrá í Keflavíkurkirkju þar
sem Davíð Ólafsson og Stefán Helgi
Stefánsson koma fram.
Menning-
ardagur
í kirkjum
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Grindavík | „Félagið hætti starfsemi
á árinu 1988 en skógræktarstarfið
hefur aldrei lognast alveg út af því að
grunnskólabörn hafa plantað hér á
hverju ári,“ segir Jóhannes Vil-
bergsson, formaður Skógræktar-
félags Grindavíkur sem endurvakið
var fyrr á þessu ári.
Stofnun Skógræktarfélags
Grindavíkur má rekja aftur til ársins
1939. Þá varð Ingibjörg Jónsdóttir
sextug og kvenfélagskonur stofnuðu
sjóð henni til heiðurs. Ingibjörg
ákvað að verja honum til þess að
koma upp skógrækt í Grindavík.
Fékk hún land í norðurhlíðum Þor-
björns og þegar hún plantaði fyrstu
hríslunum, vorið 1957, gaf hún svæð-
inu nafnið Selskógur. Skógræktar-
félag Grindavíkur var síðan stofnað
um haustið.
Mikið verk framundan
Ekki höfðu margir trú á skógrækt
á þessu svæði í upphafi en þar er nú
kominn ágætur skógur. „Það er
nauðsynlegt að halda þessu gang-
andi,“ segir Jóhannes um ástæður
þess að félagið var endurvakið í vor.
Hann segir að áhugi fólks á útivist
fari stöðugt vaxandi og gegni skóg-
rækt mikilvægu hlutverki í því. Hún
auki fjölbreytni í útivistarmöguleik-
um og veiti skjól.
Tæplega fjörutíu félagsmenn eru
nú í Skógræktarfélagi Grindavíkur
og þeirra bíður mikið verk. Jóhannes
segir að byrja þurfi á því að end-
urnýja samninga við landeigendur
um Selskóg. Í sumar var bætt við
1.200 trjáplöntum og því verður
haldið áfram á næstu árum. Einnig
er orðið nauðsynlegt að bæta að-
komu að Selskógi, gera göngustíga
og grisja, til þess að gera skóginn að
betra útivistarsvæði. Segir Jóhannes
að svæðið sé töluvert notað og telur
að það muni vaxa enn frekar ef að-
staðan verði bætt. Þá hefur Jóhann-
es áhuga á að fá stærra svæði, helst
þannig að hægt verði að planta trjám
í trefil í kringum Þorbjörn og gera
gönguleið hringinn í kringum fjallið.
Umræður hafa farið fram um sam-
starf við Grindavíkurbæ. Bærinn
hefur meðal annars boðið félaginu
land undir skógrækt á útivistarsvæði
austan við nýja hesthúsahverfið.
Áhugi á útivist og ræktun
„Ég hef alltaf haft brennandi
áhuga á útivist og ræktun,“ segir Jó-
hannes spurður um áhuga sinn á
skógrækt. Bætir hann því við að
hann hafi alist upp við þetta, foreldr-
ar hans hafi alltaf verið með stóran
garð.
Skógræktin eykur
fjölbreytni í útivist
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Haust í skóginum Jóhannes Vilbergsson vinnur að skógræktarmálum
vegna áhuga síns á útivist og ræktun. Hann kemur oft í Selskóg.
Í HNOTSKURN
»Kvenfélagskonur stofnuðuskógræktarsjóð 1939 til
heiðurs Ingibjörgu Jóns-
dóttur.
»Byrjað að planta trjám ínorðurhlíðum Þorbjörns
vorið 1957 og svæðið nefnt
Selskógur.
Örlygshöfn | Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti í Örlygshöfn fékk nýlega
afhent að gjöf veglegt steinasafn hjónanna Kristínar Hrundar Kristjáns-
dóttur og Guðmundar Bjarnasonar á Akureyri. Fram kemur á vefnum
bb.is að stór hluti safnsins, eða um 300 steinar, er kominn vestur í sýning-
arskápum. Steinarnir eru merktir og vel frágengnir.
Stórt steinasafn gefið að Hnjóti
LANDIÐ
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Mikið var um dýrðir á Blönduósi síðastliðinn
laugardag þegar þremur fyrirtækjum var formlega af-
hent nýtt atvinnuhúsnæði til afnota. Þungu fargi er létt
af sýslusálinni að sjá að á grunni þeim sem áður voru þrjú
fyrirtæki, sem urðu eldi að bráð haustið 2004, er aftur
komið líf.
Fasteignafélagið Ámundakinn ehf., sem keypti hús-
grunninn að Efstubraut 2, Blönduósi sem var í eigu
Húnakaupa og Blönduósbæjar, afhenti á laugardag fyr-
irtækjunum Léttitækni ehf., Vélsmiðju Alla ehf. og
Lagnaverki ehf. formlega atvinnuhúsnæði til afnota.
Færði stjórninni ullarsokka
Á jólaföstu hófust framkvæmdir við byggingu á þessu
1.320 fermetra verksmiðju- og verkstæðishúsnæði og á
Jónsmessu lauk framkvæmdum að mestu og fluttu fyrstu
fyrirtækin inn. Jóhannes Torfason, framkvæmdastjóri
Ámundakinnar, afhenti forsvarsmönnum fyrirtækjanna
lykla að húsnæðinu að viðstöddu fjölmenni. Jóhannes gat
þess að verkið hefði gengið afar vel og allt eftir áætlun,
bæði fjárhags- og framkvæmdarlega.
Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæjarstjóri Blönduós-
bæjar, færði Jóhannesi Torfasyni á Tofalæk forláta ull-
arsokka að gjöf við þetta tækifæri en þegar Ullarþvotta-
stöð Ístex flutti inn í norðurenda þessa húss á sínum tíma
afhenti Jóna Fanney Jóhannesi ullarvettlinga og gat hún
þess í ræðu sinni að hún vonaðist eftir því að Jóhannes og
þeir félagarnir í Ámundakinn yrðu fullklæddir áður en
langt um liði og hafði hún trú á því miðað við uppbygging-
argleði Ámundarkinnarmanna á atvinnuhúsnæði á
Blönduósi
Uppbygging léttir þungu
fargi af sýslusálinni
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Fjölmenni Margt var um manninn við opnun nýs atvinnuhúsnæðis á Blönduósi og áfanganum vel fagnað.
Atvinna Húsnæði Ámundakinnar er komið í notkun.
STJÓRN Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum hefur tilnefnt Árna
Sigfússon, bæjarstjóra í Reykja-
nesbæ, í stjórn hlutafélags um
framtíðarþróun og umbreytingu
fyrrverandi varnarsvæða á Kefla-
víkurflugvelli. Sigurður Valur Ás-
bjarnarson, bæjarstjóri í Sand-
gerði, verður varamaður.
Umrætt hlutafélag verður í eigu
ríkisins. Forsætisráðuneytið óskaði
eftir því að SSS tilnefndi mann í
þriggja manna stjórn félagsins.
Stjórnin samþykkti bókun þar sem
félaginu var fagnað en um leið
minnt á fyrri samþykkt þar sem
lögð var áhersla á að sveitarfélögin
á svæðinu yrðu áhrifavaldar um þá
framtíð sem mótuð yrði.
Bæjarstjóri í
stjórn vallarfélags
Garður | Gerðaskóli hefur gengið til
liðs við verkefnið „Skólar á grænni
grein“ sem er alþjóðlegt verkefni
til að auka umhverfismennt og
styrkja umhverfisstefnu í skólum.
Þeir skólar sem vilja komast á
græna grein í umhverfismálum leit-
ast við að stíga skrefin sjö. Þegar
því marki er náð fá skólarnir leyfi
til að flagga Grænfánanum næstu
tvö ár til að byrja með.
Gerðaskóli á
grænni grein
Garður | Unglingaráð Víðis í Garði
heldur félagsvist í Samkomuhúsinu
annað kvöld, miðvikudag, klukkan
20. Samkoman er til fjáröflunar
fyrir unglingastarf félagsins, segir
í fréttatilkynningu. Unglingaráðið
er með öflugt starf, meðal annars í
fjáröflunarskyni fyrir börnin.
Þekktasta samkoman er skötuhlað-
borðið sem haldið er í desember.
Afla fjár fyrir
unglingastarfið