Morgunblaðið - 17.10.2006, Síða 21
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 21
Jarðgöng milli þéttbýlisstaðanna Bolung-
arvíkur og Ísafjarðar eru mál málanna hér í
Bolungarvík um þessar mundir enda er til-
lagna um gerð þeirra að vænta í þessum mán-
uði eins og samgönguráðherra boðaði fyrir
nokkru. Í skýrslu sem einkahlutafélagið Leið
ehf. lét gera um arðsemi og samfélagsleg áhrif
jarðgangna til Bolungarvíkur eru bornir sam-
an þeir þrír kostir sem Vegagerðin hefur verið
að láta kanna undanfarna mánuði. Þessir kost-
ir eru göng undir Óshyrnu, göng úr Syðridal
við Bolungarvík og í Skutulsfjörð og göng úr
Syðridal í Hnífsdal. Skýrslan dregur fram
mörg rök sem hníga að því að göng milli Syðri-
dals og Hnífsdals sé vænlegur kostur. Það eru
svo sannarlega miklar væntingar meðal íbúa
Bolungarvíkur að hratt og ákveðið verði unnið
í þessu brýnasta hagsmunamáli byggðarlags-
ins og raunar fyrir allt þéttbýlissvæðið hér ut-
anvert við Ísafjarðardjúpið.
Gerð snjóflóðagarðs ofan við byggðina í Bol-
ungarvík hefur verið í undirbúningi hátt í ára-
tug. Í hönnunarferlinu hafa ýmis vandamál
komið upp bæði hvað varðar legu og umfang
mannvirkisins. Það sem mest tafði verkið síð-
ustu ár var ágreiningur vegna uppkaupa fimm
húsa við Dísarland þar sem varnargarðinum
var valinn staður þar sem húsin standa. Hús-
eigendurnir vildu ekki una því matsverði sem
Ofanflóðasjóður var tilbúinn til að greiða fyrir
húseignirnar og þar sem ekki náðist sam-
komulag aðila á milli var eigendum húsanna
nauðugur sá kostur að fara dómstólaleiðina.
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi húseig-
endum í hag sl. haust og kusu bæjaryfirvöld að
áfrýja þeim dómi ekki.
Nú fer að líða að því að hægt verði að bjóða
út framkvæmdina, og stefnt er að því að hefja
framkvæmdir næsta sumar, en þar sem ein-
hverjar breytingar hafa verið gerðar á garð-
inum og einnig sökum þess hversu mál hafa
dregist á langinn þykir nauðsynlegt að efna til
kynningar um framkvæmdina.
Bæjaryfirvöld í samvinnu við Fram-
kvæmdasýslu ríkisins stefna að kynningu á
framkvæmdinni í byrjun næsta mánaðar.
Lítil sem engin viðbrögð hafa verið við ályktun
þeirri sem bæjaryfirvöld sendu frá sér í kjölfar
flýtimeðferðar á uppsögnum starfsmanna rat-
sjárstöðvarinnar á Bolafjalli.
Störfin sem tapast úr byggðarlaginu við
þessar hræringar í eftirlitskerfi flugumferðar
vega þungt í atvinnuflóru bæjarins auk þess
sem bæjarkassinn verður fyrir höggi.
Íbúar Bolungarvíkur gera kröfu um stuðn-
ing ríkisvaldsins vegna þessara breytinga hér
vestra sem rekja má til þess að varnarliðið hef-
ur yfirgefið landið og ríkið tekið yfir þann
rekstur.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Framkvæmdir Jarðgöng eru mál málanna á
Bolungarvík þessa dagana.
BOLUNGARVÍK
Gunnar Hallsson
Hreiðar Karlsson segir mennhafa lagt margt á sig á árum
atvinnuleysis, jafnvel að hlera síma
náungans:
Okkur furðar á því hvað var gert,
ennþá leynast glöp í sögu Fróns.
Eitt sinn þótti eftirsóknarvert
ævistarf – að hlera síma Jóns.
Davíð Oddsson sagði það
hugsanlega „eftir á minningu“ hjá
Jóni Baldvini að síminn hafi verið
hleraður. Hreiðar yrkir af því
tilefni:
Þegar ógnar ellin grá
okkar flestra minni skerðist.
Nonni man þó eftir á
öllu fleira en það sem gerðist.
Hjálmar Freysteinsson veltir
einnig orðalaginu fyrir sér:
Sumir muna eftir á
ýmislegt með símann.
Meira er að marka þá
sem muna fram í tímann.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af hlerunum
KONUM, sem huga á barneignir, er
ráðlagt að forðast ketti kjósi þær
dætur fram yfir syni því barnshaf-
andi konur, smitaðar af kattarsníkli,
sem nefnist bogfrymill, eru líklegri
til að fæða syni en dætur, sam-
kvæmt nýjustu vísindum og greint
var frá í netútgáfu The Guardian.
Þetta hljómar auðvitað eins og
hver önnur kerlingabók, en stað-
reyndin er sú að um 15% Breta
sýkjast af þessum ófögnuði. Sníkill
þessi er sagður breiðast út með
kattarsaur auk þess sem hans mun
hafa gætt í ósoðnu svína- og nauta-
kjöti.
Vísindamenn í Tékklandi söfnuðu
saman fæðingaskýrslum 1803 ný-
bura, sem fædd voru á árunum 1996
til 2004, með það að markmiði að
kanna hvort þessi vísindi gætu átt
við rök að styðjast. Í ljós kom að allt
að 72% líkur voru á því að konur,
sem báru sníkilinn, fæddu syni á
meðan fæðingartala drengja miðast
í flestum löndum við 51%. Sníkillinn
veldur meðfæddum fæðingargöllum
og getur leitt til fósturláts, en aldrei
áður hefur verið sýnt fram á sam-
band milli sníkilsins og kynferðis
nýbura.
Jaroslav Flegr og rannsókna-
hópur hans við Charles-háskólann í
Prag telja að sníkillinn kunni að
trufla ónæmiskerfi ófrískra kvenna
og að karlkyns fóstur séu líklegri til
að lifa af. Sníkillinn er venjulega
skaðlaus í mönnum þótt það sé enn
á huldu hvaða áhrif sníkillinn hefur
til langframa.
Sníkill hef-
ur áhrif
á kynið
börn
Gjafahandbók
Flugstöðvarinnar er komin út
Dagana 12. október – 21. nóvember geta farþegar
nálgast Gjafahandbók Flugstöðvarinnar í öllum verslunum
Flugstöðvarinnar og á heimasíðunni www.airport.is.
Gjafahandbókin er jafnframt happadrættismiði og geta
heppnir farþegar unnið til glæsilegra vinninga. Dregið er út
vikulega og eru vinningsnúmer auglýst á heimasíðu Flug-
stöðvarinnar www.airport.is
Góðir farþegar
Vegna framkvæmda í flugstöðinni og aukinna öryggisráðstafanna
hvetjum við fólk til þess að gefa sér góðan tíma fyrir flug.
Mætið tímanlega og njótið ferðarinnar. Innritun hefst kl. 5.00 eða
2 tímum fyrir brottför. FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR