Morgunblaðið - 17.10.2006, Blaðsíða 23
tómstundir barna
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 23
Í Laugardal svífa litlar skauta-
drottningar í túrkísbláum flís-
peysum um á skautasvellinu og einn
kóngur í gulri, snúa sér og sveifla
eftir kúnstarinnar reglum. Þau æfa
öll listhlaup á skautum með Skauta-
félagi Reykjavíkur.
Gabríela Gunnarsdóttir er níu ára
og er búin að æfa listhlaup á skaut-
um í sex ár.
– Vá, þú hefur nú bara næstum
verið nýbyrjuð að ganga þegar þú
fórst að æfa?
„Ég byrjaði reyndar þegar ég var
3½ árs og var nú farin að ganga 1½
árs,“ svarar hún kotroskin enda
spurningin hálfasnaleg. ,,Mér finnst
rosalega skemmtilegt á skautum.
Systir mín æfir líka og er búin að
æfa jafnlengi og ég.
– Verður manni ekkert kalt á
skautum?
„Nei,“ segir hún og þau Svanhild-
ur Erla Traustadóttir, að verða 11
ára og Guðmundur Páll Sig-
urþórsson, 8 ára, taka undir það, öll
rjóð í kinnum af hreyfingunni. ,,Við
skautum svo hratt og mikið og lær-
um fullt af flottum stökkum eins og
flokk, lúps, axel og tvöfaldan axel,“
segir þetta reynda skautafólk.
– En getur maður ekki meitt sig á
því að svona hoppum?
,,Jú, auðvitað en maður verður að
detta til þess að læra af því,“ svarar
Gabríela og það er ljóst að hér eru
krakkar sem kalla ekki allt ömmu
sína.
Eini strákurinn í hópnum
Svanhildur er búin að æfa í fimm
ár en hún var sex ára þegar hún
byrjaði. ,,Ég er búin að eignast
margar vinkonur í listhlaupinu,“
segir hún og þær stöllurnar útskýra
að á æfingarnar komi ekki allir úr
sama skóla. Þannig gangi Gabríela í
Víkurskóla, Svanhildur í Smára-
skóla og Guðmundur í Austurbæj-
arskóla.
Hann er reyndar eini strákurinn í
nokkurra tuga hópi stelpna á æfing-
unni og kippir sér ekkert upp við
það. ,,Nei, ég á ekkert margar vin-
konur hérna, bara nokkrar. Mér
finnst gaman að skauta. Það eru
ekki margir strákar á skautum.
– Af hverju byrjaðir þú að æfa á
skautum?
„Af því að ég vildi það,“ segir
hann og brosir og sýnir nokkur
spor.
– Þarf maður ekki að æfa sig
rosalega mikið til þess að verða eins
góð á skautum og þið?
„Jú, svolítið,“ segja þau hrein-
skilnislega.
Gabríela og Ragnhildur keppa oft
við önnur íþróttafélag í greininni,
Skautafélag Akureyrar og Björninn.
,,Það er mjög gaman. Það er oft
mikil keppni,“ segja þær en eru
samt ekki í vafa um hvert sé besta
skautafélagið. „Auðvitað Skauta-
félag Reykjavíkur.“
Vilja meiri umfjöllun
Öll fylgjast þau vel með listhlaupi
á skautum í sjónvarpinu þegar það
er þar. „Það er bara eiginlega aldrei
í sjónvarpinu, bara á Ólympíu-
leikunum. Það er alltaf fótbolti,“
segja þau með þungri áherslu, „líka
í blöðunum“.
– En eigið þið uppáhalds-
skautadansara?
,,Já, þjálfarana okkar, Jennifer
[Molin]og Guillaume [Kermen],“
segja þau einum rómi. „Þau er mjög
flink.“ Jennifer er sænsk og Guil-
laume franskur og bæði eiga langan
skautaferil að baki sem keppendur
og þjálfarar víða um veröld. „Nei,
nei, við eigum ekkert erfitt með að
skilja þau og svo sýna þau okkur
bara hvernig við eigum að gera,“
segja stelpurnar og að þeim orðum
sögðum skauta þrímenningarnir aft-
ur út á svellið, samferða, rjóð í
vöngum og með bros á vör.
Skærar litlar stjörnur á ísnum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Listhlauparar Gabríela, Guðmundur og Svanhildur eru öll listagóð á skautum og mjög kátir krakkar.
Í HNOTSKURN
»Skautafélag Reykjavíkurvar fyrst stofnað árið 1873
af menntaskólanemum sem
stundum skautahlaup á Tjörn-
inni í Reykjavík. List-
hlaupadeild félagsins var
stofnuð árið 1992 og eru iðk-
endur nú um 200–240 talsins.
»Skautafélög á landinu eruauk SR, Skautafélag Ak-
ureyrar og Björninn. Aðstaða
til iðkunar listhlaups á skaut-
um og íshokkís hefur batnað
mjög á síðustu árum.
»Félögin eru öll með öflugtbarna- og unglingastarf og
er stöðugur stígandi í vinsæld-
um skautaíþróttanna.
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is