Morgunblaðið - 17.10.2006, Page 25
Eftir Katrínu Brynju Hermannsdóttur
„Bleikur er stelpulitur,“ segja
strákar langt fram eftir öllum
aldri og vilja helst ekki láta tengja
sig við litinn. Í mesta lagi sam-
þykkja þeir að hafa einhvern tím-
ann svifið um á bleiku skýi. Sumir
eru þó hugaðir, klæðast bleikum
bolum eða peysum og hljóta að
launum aðdáun kvenna og leyni-
legt lófaklapp. Kvenfólk er hins
vegar oft hrifið af þeim bleika.
Ungar stúlkur sjást gjarnan bleik-
klæddar frá toppi til táar og eru
þá á „bleika tímabilinu“. Stráka-
mömmur dæsa og bera harm sinn í hljóði. Fyrir fólk sem líkar bleikt er
hægðarleikur að finna muni til að prýða heimilið. Ef ekki hrærivél þá
tuskur, útvarp eða hvaðeina sem hægt er að láta sér detta í hug. Verum
bleiksýn í vetur!
Litagleði Margir vilja lífga upp á umhverfi
sitt með litum. Tívolí útvarp 19.900 kr. og ílát
1.790-2.020 kr., Mirale, Grensásvegi.
Tuskur Það er miklu skemmtilegra að tuskast í
eldhúsinu með bleikri. Seldar stakar en hægt er
að kaupa 5 á 1.500 kr. Kokka, Laugavegi.
Hrærivél Í október renna 3.000 krónur af
hverri seldri bleikri hrærirvél til Krabba-
meinsfélagsins. 42.900 kr., Einar Farestveit.
Pollaföt Þessi stígvél sóma
sér vel á litlum skottum. Þau
kosta 2.990 kr. og fá má
regnkápu í stíl sem kost-
ar 4.690 kr. Bæði kápa
og stígvél eru skreytt
myndum úr bók Mad-
onnu, Ensku rósirnar.
Einu sinni var, Fáka-
feni.
Skálar Gullfallegar
skálar undir hvaðeina.
Seldar stakar og kosta
frá 920-2.400 kr. Mi-
rale, Grensásvegi.
Morgunblaðið/Ásdís
Blóm Þessar dýrindis ger-
berur lífga upp á heimilið.
Kosta 490 kr. stk. og fást í
Dalíu, Fákafeni.
Bleikur er
bráðnauðsynlegur
Morgunblaðið/Ásdís
Glas Barbapabbi er skemmtilegur,
líka á glösum. Kostar 1.000 kr. og
fæst í Sipu, Laugavegi.
Kökuform Búum til hjartalaga
möffins með bleiku kremi! Kosta
1.900 kr., Kokka, Laugavegi.
hönnun
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 25
Hótel Hvolsvöllur
Villibráðarhlaðborð
Jólahlaðborð
Gisting
Fundir / ráðstefnur
Einstaklingar, hópar og fyrirtæki
leitið tilboða
Sími 487-8050. Símabréf 487-8058. hotelhvolsvollur@simnet.is
www.hotelhvolsvollur.is
Hótel Hvolsvöllur
Betra val
FÉLAGSVÍSINDADEILD
HÁSKÓLA ÍSLANDS
H
O
R
N
/
H
a
u
k
u
r
2
5
0
8
Dr. Mark Savickas prófessor flytur fyrirlesturinn „Starfsferill og
samfélag“ (Career and society) í dag þriðjudaginn 17. október
kl. 16:00, í Hátíðarsal Háskóla Íslands í aðalbyggingu skólans.
Dr. Mark Savickas er áhrifamikill fræðimaður á sviði starfsþróunar-
fræða og sálarfræði starfs, en fræðin fjalla um síbreytilegan vinnu-
markað og það hvernig starfsferill fólks þróast og tekur breyting-
um. Dr. Savickas er í hópi fremstu fræðimanna á þessu sviði í
heiminum í dag og hefur verið leiðandi í nýsköpun á fræðasviðinu.
Dr. Mark Savickas kemur hingað í tilefni af 30 ára afmæli
Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands.
Félagsvísindadeild
Háskóla Íslands
Í DAG ÞRIÐJUDAG KL. 16:00
:
Músarmotta Hægt er að fá músarmottur í
öllum útgáfum! Kostar 1.900 kr. og fæst í
Sipu, Laugavegi.