Morgunblaðið - 17.10.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 29
SJÁVARÚTVEGSRÁÐ-
HERRA ráðstjórnarinnar ís-
lenzku flutti í ársbyrjun ræðu á
ráðstefnu í Lilleström í Noregi
,,… og lagði m.a. áherzlu á það
hvernig íslenzka fiskveiðistjórn-
unarkerfið hefur lagt grunninn að
traustum, góðum og arðvæn-
legum atvinnuvegi auk þess að
stuðla að eflingu byggðar í sjáv-
arþorpum“.
Með þessum orðum hlýtur póli-
tíkusinn að vera fyrst og fremst
að segja frá eflingu byggða á
Vestfjörðum, þar sem hann er
kunnugastur. Honum mun sjálf-
sagt ekki verða skotaskuld úr því
að koma íbúum sjávarþorpanna á
Vestfjörðum í skilning um sann-
leiksgildi orða sinna í kosning-
unum að vori.
Frambjóðendur spyrðubands-
ins, Framsóknar- og Sjálfstæð-
isflokks, hljóta að fara fram á það
við manninn, að hann fari víðar
með þennan fagnaðarboðskap. Til
dæmis gæti hann byrjað með al-
mennum fræðslufundi á Húsavík.
Þeir þar hafa ekki frétt nýlega af
eflingu sinnar byggðar vegna
sjávarútvegskerfisins. Og úr því
sem hann verður mættur á norð-
austurkanti landsins ætti hann að
koma við á Kópaskeri og Rauf-
arhöfn og opna þar augu manna
fyrir guðsblessun kerfisins. Hrís-
eyingum veitti heldur ekki af
slíkri hressingu en á Akureyri
getur hann fengið oddvita spyrðu-
bandsins og verðandi þingmenn,
Kristján Júlíusson og Jakob
Björnsson, til að upplýsa almenn-
ing um blessun þess að losna við
Útgerðarfélag Akureyrar – að
Grímsey ógleymdri. Og þannig
áfram hringinn í kringum landið.
En fyrir sjónum óruglaðra er
augljós sú staðreynd að landauðn
blasir víða við og undirrót hennar
hið íslenzka fiskveiðistjórn-
unarkerfi. Hús, sem selst fyrir
eitt hundrað milljónir í Reykjavík,
kostar eina milljón á Raufarhöfn,
ef það þá selst á annað borð.
Nýjustu fréttir eru af kaupum
útgerðar Halldórs nokkurs Ás-
grímssonar á Höfn í Hornafirði á
veiðiheimildum Húsvíkinga.
Þjófakerfi fiskveiðanna er und-
irrót ófara vítt og breitt um
byggðir landsins.
Forsætisráðherra sagði í
stefnuræðu sinni að meiri friður
ríkti nú um fiskveiðistjórnarmálin
en oft áður. Ef honum sýnist
kyrrð yfir þeim vötnum, má hann
vita, að það mun reynast svika-
logn honum og hans nótum. Grip-
deildarmenn kerfisins munu inn-
an tíðar verða neyddir á
hrokbullandi lens að ná landvari.
Sverrir Hermannsson
Undirrótin
Höfundur er fv. form.
Frjálslynda flokksins.
Í HÆSTARÉTTI var á dögunum
staðfestur dómur Héraðsdóms
Reykjavíkur, að ætluðum verkstjóra
bæri ekki bætur fyrir vinnuslys,
sem hann varð fyrir vegna ógæti-
legrar notkunar rétt-
indalauss manns á
skotbómulyftara. Sá
sem fyrir slysinu varð,
er alóvinnufær, með
þrefallt samfallshrygg-
brot og aðrar skemmd-
ir á stoðkerfi líkamas.
Varð á milli tveggja
stálbita, annars sem
var verið að færa og
hins sem var á ,,gólfi“.
Dóminn í héraði
kvað upp kona, sem að
líkum hefur svosem
ekki mikið verið á
vinnustöðum hvar slík tæki eru not-
uð. Samt kaus dómarinn að láta vera
að kveða til aðila með reynslu af
slíkum tækjum og lét lögmanns-
stofan, sem tók að sér málið, það
gott heita, góð hagsmunagæsla það
eða hitt þó heldur.
Fyrir lá framburður eiganda fyr-
irtækisins um, að ætlaður verkstjóri
hefði ekki verið verkstjóri í huga
vinnuveitandans, samt dæmir dóm-
ari tjónþola verkstjóra og skammar
hann í dómsorði fyrir áhættu-
hegðan.
Hæstiréttur, skipaður þremur
dómurum, tveimur konum og einum
karli, staðfesti dóminn að bragði og
kaus ekki að heldur að kalla til sín
vana stjórnendur slíkra tækja. Fyr-
irtakan var stutt og snaggaraleg en
lítið spurst fyrir um, hvernig svona
tæki vinna, né hvernig aðstæður eru
á vinnustað, með skotbómulyftara
með bómuna í framstöðu og fram-
lengda nokkuð út. Dómendur virð-
ast lítið hafa skoðað rúmmálsfræð-
ina um radíus, skriðþunga og
svoleiðis nokkuð, enda líklega ekki
úr stærðfræðideild MR.
Hroki dómenda í svona málum
tekur ekki nokkru tali. Þeir álíta sig
allt vita og kunna og ekki þurfa að
leita eftir upplýsingum, enda ,,bara“
venjulegur járniðnaðarmaður, sem í
hlut á og ekkert á bak við svoleiðis
dóna og ekki við miklu fjölmiðlafári
að búast þó þeir þurfi að lúta í gras.
Ef um hefði verið að ræða sjóslys
eða flugslys hefðu verið kallaðir til
sérfróðir aðilar til ráðgjafar og upp-
lýsinga um þau efni,
sem dómarar geta, eðli
mála samkvæmt, ekki
þekkt né kunnað.
Tryggingafélögin eiga
miklu meira undir sér
og frá þeim er að búast
við allmörgum málum
til meðferðar og skoð-
unar, því er rétt að
hlusta gerr eftir þeirra
skýringum og láta þar
við sitja.
Tryggingafélögin
virðast neita bótum í
alflestum málum, sem
einhver glæta er um að þeim verði
dæmt í hag. Þetta er skiljanlegt,
þegar á það er litið, að þarna eru
miklir fjármunir á ferðinni og því
eftir nokkru að slægjast.
Hvað ætli þurfi að vinna stóran
hundraðshluta slíkra mála til að það
borgi sig að halda úti her lögmanna
til að klípa af þeim starfmönnum,
sem verða fyrir örkumlum við vinnu
sína? Þetta er líka oftast einhverjir
verka- eða iðnaðarmenn, sem lítið
eiga undir sér og geta svosem lítið
barist, orðnir öreigar vegna tekju-
missis og báginda.
Hæstiréttur er alveg dásamlegur.
Um svipað leyti og tengdasyni mín-
um var bent á, að hann þyrfti að bíta
á jaxlinn og una örkumlum sínum og
bara þakka fyrir að þurfa ekki að
bera lögfræðikostnað heilags trygg-
ingafélags, sem einu sinni var Gagn-
kvæmt og auglýsir sig þannig að þar
fjalli allt um fólk, – gleymdist bara
að taka fram hvernig það fjallaði um
fólkið –, var kveðinn upp dómur um
bátskrifli, sem varð brennumatur
vestur á fjörðum. Þar var fjallað um
eign og hugsanlega gripdeild
brennukóngs, bónda vel við aldur.
Skipun dómsins var að héraðs-
dómari tæki efnislega afstöðu til,
hvort dæma ætti bóndann gripdeild-
armann, eða eignaspilli. Sá frómi og
dagfarsprúði bóndi, sem virðist
vera, – að mati hinna kuflklæddu –,
hafði tekið fúaskrifli, sem hafði verið
öllum til ama og fyrir, bæði í höfn-
inni og svo á geymslusvæði hafn-
arinnar.
Skipunin er, að bóndann skuli
dæma fyrir annaðhvort brotið.
Bóndinn leyfði sér að handleggja
eign og eign er heilög.
Dómurinn um tryggingarbætur
járniðnaðarmannsins er hinsvegar á
þá leið, að þar er bara um heilsu,
starfsgetu og framtíð hans að ræða
og ekki um eign, því beri ekki að
bæta það að neinu leyti.
Niðurstaða Hæstaréttar er því sú,
að verkstjórar, – ætlaðir eða raun-
verulegir –, skulu bara halda sig
fjarri öllum hættum á vinnustað,
þeir verða nefnilega að liggja bóta-
lausir hjá garði ef þeir slasast.
Þá sem nenna að lesa þetta bið ég
afsökunar á því hve mjúkmáll ég er
um þetta mál. Kemur þar til ótti
minn við að verða dæmdur fyrir fjöl-
mæli. Skrifaður upp og steiktur á
teini, eins og Megas kvað hér í eina
tíð.
Verkstjórar án skaðabóta
við vinnuslys?
Bjarni Kjartansson skrifar um
dóm Hæstaréttar um vinnuslys » Tryggingafélöginvirðast neita bótum í
allflestum málum, sem
einhver glæta er um að
þeim verði dæmt í hag.
Bjarni Kjartansson
Höfundur er tengdafaðir tjónþola.
FORMAÐUR AFA,
aðstandendafélags
aldraðra, skrifar í
Morgunblaðið 9. okt.
og segir frá að hann
hafi verið í göngu Óm-
ars Ragnarssonar til
að taka undir kröfu
hans um að hætt verði
við Kárahnjúkavirkjun
og henni breytt í
minnisvarða. Greinin
heitir „Er Ómar orð-
inn ruglaður?“
Krafa Ómars og 15
þúsundanna, sem eltu
hann, er krafa um að
ríkissjóður greiði 350–
400 milljarða í bætur.
Að auki þýðir krafan
að lánshæfismat þjóð-
arinnar mun falla og
vextir hækka og verð-
bólgan sem því fylgir auka mjög
greiðslubyrði íslenskra heimila.
Ríkissjóður yrði næstu 10 til 15 ár
að taka þetta fé frá öðrum brýnum
verkefnum. T.d. auknum fjárveit-
ingum til málefna aldr-
aðra og margra, margra
annarra aðkallandi
mála.
Það sem skilur milli
mannkindar og sauð-
kindar er hæfileikinn að
skapa. Ekkert örvar
þann dýrmæta hæfi-
leika jafn mikið og list-
sköpun og listneysla
sem því miður er skil-
greind sem afþreying-
ariðnaður en ekki lífs-
nauðsyn. Þegar
þrengist um fé er
stuðningur við meinta
afþreyingu það fyrsta
sem fellur. Þegar hug-
sjónamaður, sem berst
fyrir auknum fjárstuðn-
ingi við málefni aldr-
aðra, og listafólk og
menningarvitar ganga
Laugaveginn til að taka
undir kröfu um að
henda 350–400 millj-
örðum út úr ríkissjóði þá spyr ég:
Hver er orðinn ruglaður?
Hver er ruglaður?
Birgir Dýrfjörð
svarar grein Reynis
Ingibjartssonar
Birgir Dýrfjörð
»Krafa Ómarsog 15 þús-
undanna, sem
eltu hann, er
krafa um að rík-
issjóður greiði
350–400 millj-
arða í bætur.
Höf. er í flokksstjórn
Samfylkingarinnar.
Sagt var: Hann kemur heldur ekki á morgun.
BETRA ÞÆTTI: … ekki heldur á morgun.
Gætum tungunnar
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Suðurlandsbraut 20 – 108 Reykjavík – Sími 588 0200 – www.eirvik.is
-hágæðaheimilistæki
Ef þú kaupir Miele þvottavél færðu kaupverðið
endurgreitt með betri meðferð á þvottinum þínum
Miele þvottavélar eru með nýrri tromlu með
vaxkökumynstri sem fer betur með þvottinn.
Einkaleyfi Miele.
Miele þvottavélar eru byggðar á stálgrind
og eru með ytri þvottabelg úr ryðfríu stáli
ólíkt flestum öðrum þvottavélum.
Miele þvottavélar endast lengur en aðrar
þvottavélar.
Íslenskt stjórnborð
AFSLÁTTUR
30%
ALLT AÐ
1. VERÐLAUN
í Þýskalandi
W2241WPS
Gerð Listaverð TILBOÐ
Þvottavél W2241 kr. 160.000 kr. 114.800
1400sn/mín/5 kg.
Þurrkari T223 kr. 112.200 kr. 78.540
útblástur/5 kg.
Þurrkari T233C kr. 131.000 kr. 91.700
rakaþéttir/5 kg.
MIELE ÞVOTTAVÉL
- fjárfesting sem borgar sig
Hreinn sparnaður