Morgunblaðið - 17.10.2006, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
LEGSTEINAR
SteinsmiðjanMOSAIK
Hamarshöfða 4 – sími 587 1960
www.mosaik.is
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN J. JÓNSSON
útgerðarmaður
frá Patreksfirði,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, föstudaginn
6. október.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 18. október kl. 15.00.
Þórdís B. Kristinsdóttir, Auður Kristinsdóttir,
Samson Jóhannsson,
Kristinn Samsonarson,
Jóhann Samsonarson,
Magni Þór Samsonarson,
Hugi Hreiðarsson,
Bogi Leiknisson,
Auður Magndís Leiknisdóttir,
tengdabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
JÓN GUÐLAUGSSON
fyrrv. framkvæmdastjóri
Sælgætisgerðarinnar Opal,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn
14. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Magnús Heiðar Jónsson,
Guðlaugur Gauti Jónsson,
Birgir Rafn Jónsson,
Sturla Már Jónsson
og fjölskyldur.
PETÓLÍNA SIGMUNDSDÓTTIR
frá Hælavík,
lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði þriðjudaginn
10. október.
Jarðsungið verður frá Ísafjarðarkirkju miðviku-
daginn 18. október kl. 14:00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Tryggvi Guðmundsson, Þórunn Guðmundsdóttir,
Björgvin Guðmundsson, Elín Rögnvaldsdóttir,
Erna Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Björnsdóttir.
Elskuleg systir okkar og mágkona,
JÓNÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Akranesi,
til heimilis í Skálatúni,
Mosfellsbæ,
lést miðvikudaginn 11. október.
Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju þriðju-
daginn 24. október kl. 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Skálatúnsheimilið.
Þórður Þórðarson, Halla Þorsteinsdóttir,
Ingvar Þórðarson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT HANNESDÓTTIR,
Lalla
frá Keldunúpi,
lést á heimili sínu, Klausturhólum 3, sunnudaginn
8. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Velunnarasjóð Klausturhóla.
Þökkum auðsýnda samúð.
Hanna Þóra Bergsdóttir, Magnús Bjarnason,
Guðni Kristinn Bergsson, Elín Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Guðrún Páls-dóttir fæddist í
Hafnarfirði
21.8.1930. Hún and-
aðist á hjartadeild
LSH við Hringbraut
8. okt.sl. Foreldrar
hennar voru Páll
Theodór Sveinsson,
yfirkennari í Hafn-
arfirði,
f. 9.11.1901 á
Kirkjubóli í Önund-
arfirði, d. 11.2.1962,
og kvæntist hann
31.12.1929 Þórunni
Helgadóttur, f.17.9.1903, d.
3.8.1965, Guðmundssonar í Mels-
húsum við Hafnarfjörð. Bróðir
hennar var Guðmundur Bene-
diktsson, f.11.12.1924, d. 1.3.2000,
kvæntur Elínborgu Stefánsdóttur.
Guðrún giftist 16. september
1950 Sigurði Pálssyni, glerslípara
og speglagerðamanni og síðar
húsverði í Lækjarskóla, Hafn-
arfirði, f, 23.11.1926. Foreldrar
þeirra eru Hans Óttar, Davíð Þór,
Linda Rún. 4) Ásgeir, f. 12.
11.1959. Börn hans eru Sigurður
Rúnar, Erla Hrönn, Bjarki. 5)
Guðný, f. 23.12.1961, maki Halldór
Ágústsson Morthens. Börn: Elísa
Björk, Hjalti Geir, Hrefna. 6) Hild-
ur, f. 14. 6.1966. Barn hennar er
Guðný. Langömmubörn Guðrúnar
og Sigurðar eru orðin 11.
Guðrún var gagnfræðingur frá
Flensborg 1946. Hóf nám við
Landsímann 1947 og skipuð tal-
símakona þar við námslok 1948
þar sem hún starfaði til ársins
1950 og við sumarafleysingar frá
1951–1981. Einnig vann hún við
ræstingar í Lækjarskóla í Hafn-
arfirði í fjölmörg ár. Starfaði sem
símavörður í aðalbanka Lands-
banka Íslands frá 1982–1996.
Ýmis áhugamál hafði Guðrún
þar á meðal spilaði hún handbolta
með FH á yngri árum og starfaði í
St. Georgsgildinu í Hafnarfirði í
fjölda ára. Einnig starfaði hún
mikið fyrir kvenfélagið Hringinn í
Hafnarfirði.
Útför hennar verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
hans voru Páll Böðv-
ar Stefánsson, tré-
smiður og kvæða-
maður, f. 15.10.1886
á Fossá, d. 24.3.1973,
og kvæntist hann 6.
8. 1911 Guðnýju
Magnúsdóttur
húsfr., f. 29.6. 1885,
d. 18.4.1965, bónda í
Dalkoti í
Vatnsnesi, Guð-
laugssonar. Guðrún
og Sigurður bjuggu í
Hafnarfirði til ársins
1999 er þau fluttu í
Kópavoginn. Þau eignuðust 6
börn: 1) Þórunn, f. 5.12.1950, maki
Sigurður Knútsson. Börn Þór-
unnar eru Guðrún, Björgvin, Guð-
mundur.
2) Páll, f. 29. 8.1952, maki Aldís
Aðalbjarnardóttir. Börn Páls eru
Sigurður, Hrefna, Gunnar, Val-
geir.
3) Sigrún, f. 21.12.1956, maki
Tómas Erling Lindberg. Börn
Elsku mamma mín. Tíminn kom
sem ég hugsaði oft til með kvíða síð-
ustu árin sem þú hefur verið veik, að
hringt væri í mig til Danmerkur, að
nú ætti ég að koma heim til Íslands,
því nú væri tíminn kominn, þú værir
að deyja. Ég varð eirðarlaus og grét,
hvenær kemst ég heim, ég varð að ná
heim til að kveðja þig, geta gefið þér
síðasta kossinn, síðasta faðmlagið.
Ég náði heim og er ég þakklát fyrir
það.
Nú ertu farin í þitt síðasta ferðalag
og kem ég aldrei til með að sjá þig
aftur, eða heyra rödd þína, en þú
verður alltaf í hjarta mínu. Það er
svo margt sem þú kenndir mér, „að
sjá eitthvað gott í öllu fólki“ að eng-
inn er ljótur en fólk er misfallegt, því
hef ég reynt að lifa eftir. Ég er svo
þakklát fyrir allt sem þú gafst mér af
lærdómi í gegnum lífið, og ég vona að
ég hafi gefið börnunum mínum eitt-
hvað af því.
Þótt ég hafi flutt til Danmerkur
fyrir 26 árum, töluðum við saman í
síma vikulega, og þú og pabbi komuð
oft í heimsókn til okkar, við spiluðum
spil, fórum í búðarráp, sátum úti í
garði og spjölluðum. Þú bakaðir
pönnukökur, jólakökur og kleinur,
börnunum okkar Ella fannst yndis-
legt að hafa ömmu og afa í heimsókn.
Síðasta ferðin þín til Danmerkur
var í júní í sumar og er ég þakklát
fyrir að þú náðir því. Þá sá ég að þér
hafði hrakað mikið á einu ári, Linda
mín sem hafði ekki séð þig í tvö ár
sagði að þú líktist ekki sjálfri þér.
Aldrei kvartaðir þú, þó svo að þú
hefðir mikla verki, þú hafðir alltaf í
huga hvernig aðrir hefðu það. Þessa
viku sem við systkinin og pabbi
bjuggum á Landspítalanum Hjarta-
deild 14G, og vöktum yfir þér var
dýrmætur fyrir okkur öll, þó erfitt
hafi verið að sjá hvað þú þjáðist mik-
ið. Við gátum sagt þér hversu mikið
við elskuðum þig, töluðum um barn-
æsku okkar, hlógum, grétum og
sungum fyrir þig.
Við vorum öll hjá þér þegar þú yf-
irgafst þennan heim, og við vitum að
nú ert þú komin á betri stað, þar sem
engar þjáningar eru. Elsku mamma
mín, við skulum passa pabba, sem á
erfiðan tíma framundan, hann er bú-
inn að missa elskuna sína og besta
vin sinn.
Ó, hve heitt ég unni þér
Allt hið bezta í hjarta mér
vaktir þú og vermdir þinni ást .
Æskubjart um öll mín spor
aftur glóði sól og vor,
og traust þitt var það athvarf, sem mér
aldrei brást.
(Tómas Guðmundsson)
Takk fyrir allt, mamma mín, og
takk fyrir að vera mamma mín, þú
munt alltaf lifa í hjarta mínu
Þín dóttir,
Sigrún.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvíl-
ast,
leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis
njóta.
Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta
vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast
ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum
mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga
mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
(23.Davíðssálmur)
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur. Já, það eru orð að sönnu,
en í mínu tilfelli vissi ég alltaf hvað ég
átti í henni mömmu. Hún var einstök
kona. Hún var falleg bæði að utan og
innan. Æðrulaus fram í andlátið.
Alltaf sátt við Guð og menn. Að
rifja upp æviáhlaup mömmu er efni í
meira en bók, svo ég ætla mér bara
að minnast hennar í fáum orðum.
Hún sat aldrei auðum höndum sama
hversu verkirnir herjuðu á hana.
Mamma að prjóna, baka, dansa,
brosa, prjóna, ferðast, elda, prjóna,
hugsa um mig og þig og alla í kring-
um sig. Ef ég spurði hvernig hefur
þú það mamma? þá var svarið alltaf
ágætt. Enda áttu svo margir miklu
miklu meira erfitt og voru meira
lasnir en hún, að hennar sögn. Ekki
að trufla hvorki okkur nánustu eða
blessað starfsfólkið á spítölunum
þegar hún lá þar, því það var nú nóg
að gera hjá þeim þótt hún færi ekki
að bætast við.
Hún mamma fór allt sem hún ætl-
aði sér og meira til. Ferðaðist til út-
landa þrátt fyrir alla verkina sína.
Hún ætlaði sér alltaf að lifa lífinu lif-
andi. Og það gerði hún.
Ég þakka þér, elsku mamma, fyrir
yndislegt uppeldi, og vináttu alla tíð.
Ekki var hægt að hugsa sér betra
fjölskyldulíf en það sem þið pabbi
gáfuð okkur. Alltaf öryggi, þolin-
mæði, reglusemi og óendanleg ást.
Takk fyrir allt það góða sem þú
kenndir mér og vona ég að ég geti
miðlað því áfram til minna barna.
Það þarf tvo í Tangó og þegar
fylgst var með mömmu og pabba var
ábyggilegt að þau fundu sinn tangó
saman og stigu hann í takt.
Elsku pabbi minn, missir okkar
allra er mikill, en þinn þó mestur. Þú
ert að missa ástina í lífi þínu til 60
ára, besta vininn þinn, já, stóran
hluta af sjálfum þér. Megi góður Guð
varðveita þig og styrkja í framtíð-
inni.
Elskulegu starfsfólki á 14g á
Landspítalanum og Rósu djákna
þakka ég alla elsku í garð mömmu og
umhyggju við okkur fjölskylduna.á
erfiðum stundum.
Þín dóttir,
Guðný.
Elsku fallega mamma mín, ekki
hvarflaði það að mér að þurfa að
kveðja þig strax. Þú sem fórst til
læknis rétt til að fá verkjartöflur en
komst svo ekkert heim aftur. Þú
kvartaðir aldrei en við sem þekktum
þið vissum hve mikið kvalin þú varst í
fætinum þínum. Þú varst alltaf viss
um að það væru aðrir sem væru veik-
ari en þú og þú værir aðeins að taka
plássið þeirra á spítalanum. Og ekki
mátti nú trufla læknafólkið, það hafði
svo mikið að gera að þú vildir nú ekki
vera að ónáða það. Þú hugsaðir alltaf
fyrst um aðra og veit ég að hún
Hrefna föðursystir mín mun alltaf
vera þakklát fyrir allt sem þú gerðir
fyrir hana. Þú hafðir meira að segja
áhyggjur af henni eftir að þú varst
sem veikust inn á spítalanum, það
þyrfti nú einhver að kíkja til hennar.
En svona varst þú, elsku mamma
mín, alltaf að hugsa um aðra.
Þú varst mín stoð og stytta í gegn-
um sorgir og gleði enda varstu ekki
bara mamma mín heldur líka mín
besta vinkona.
Við höfum farið margar góðar
ferðir til útlanda saman bæði þegar
ég var barn og einnig eftir að ég varð
fullorðin. Og allar góðu stundirnar
sem við áttum í sumarbústaðnum
ykkar pabba í Hvítársíðu í Borgar-
firði. Þar var nú iðulega spilað á
kvöldin og mikið hlegið. Prjónadótið
var aldrei langt undan enda féllust
Guðrún Pálsdóttir