Morgunblaðið - 17.10.2006, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BERNHARÐUR GUÐMUNDSSON
fyrrverandi þingvörður,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 18. október kl. 13.00.
Guðjón Hafsteinn Bernharðsson, Helga Jónsdóttir,
Guðmundur Bernharðsson, Svanhildur Jónsdóttir,
Eggert Þór Bernharðsson, Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓSAFAT SIGURÐSSON
frá Siglufirði,
Eyjabakka 6,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðviku-
daginn 4. október, verður jarðsunginn frá Grafar-
vogskirkju föstudaginn 20. október kl. 15.00.
Þóranna Sigríður Jósafatsdóttir, Jónsteinn Jónsson,
Sigurður Gunnar Jósafatsson, Ingigerður Baldursdóttir,
Elenóra Margrét Jósafatsdóttir, Sigurður H. Ingimarsson,
Þorfinna Lydia Jósafatsdóttir, Þorkell V. Þorsteinsson,
Örn Einarsson, Steinþóra Sumarliðadóttir,
Stella Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eign-
manns míns og föður okkar,
GUÐMUNDAR KRISTJÁNS GÍSLASONAR.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki hjúkrun-
arheimilisins Tjarnar á Þingeyri fyrir frábæra
umönnun og hlýju á liðnum árum.
Jóhanna Guðmundsdóttir,
börn og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, afa, langafa og bróður,
HREINS STEFÁNSSONAR
frá Svalbarði,
Miðstræti 16,
Neskaupstað.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Fjórðungssjúkra-
hússins í Neskaupstað fyrir hlýja og góða umönnun.
María Árnadóttir, Jóhann G. Stephensen,
Ómar Sævar Hreinsson, Sveinlaug O. Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn,
Sveinbjörg Stefánsdóttir,
Auðbjörg Stefánsdóttir, Hallgrímur Þórarinsson.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR,
Lækjasmára 6,
Kópavogi,
lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn
8. október.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
þriðjudaginn 17. október, kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Hjartaheill.
Sigurður Pálsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Sigurður Knútsson,
Páll Sigurðsson, Aldís Aðalbjarnardóttir,
Sigrún Sigurðardóttir, Tómas Erling Lindberg,
Ásgeir Sigurðsson, Jóhanna Guðný Guðjónsdóttir,
Guðný Sigurðardóttir, Halldór Morthens,
Hildur Sigurðardóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝ Sigríður KristínGuðmundsdóttir
fæddist í Ólafsfirði
22. júní 1918. Hún
lést á hjúkr-
unardeild Hrafnistu
í Hafnarfirði 5. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru: Guðmundur
Gíslason skipstjóri,
f. 1893, d. 1969, og
Jónína Jónsdóttir
húsfreyja, f. 1898, d.
1985. Systkini Krist-
ínar eru: Jón, f.
1925, d. 1930, Jóna Ingibjörg, f.
1934. Fóstursystkin þeirra eru:
Jónmundur Stefánsson, f. 1922,
Pálína Magnúsdóttir, f. 1913, d.
1940.
Sigríður giftist 1938 Jóni Pétri
Hallgrímssyni, þau skildu. Dóttir
þeirra er Ásdís Elfa Jónsdóttir, f.
1940, maki hennar er Smári Her-
mannsson, f. 1938. Börn þeirra eru
: Hermann,f. 1959, Pétur Haukur,
f. 1961, Kristín Hrund, f. 1964,
Guðmundur Jón, f. 1970. Barna-
börnin eru: Berg-
lind, f. 1982, Elías
Andri, f. 1983, Unn-
ur Margrét, f. 1994,
Smári, f. 1994,
Sandra, f. 1995,
Bjarki Reynir, f.
1997, Baldur Erik
Göran, f. 2005.
Árið 1948 giftist
Sigríður Þórði Ein-
ari Halldórssyni, f.
1917, d. 2004. Sonur
þeirra er Brynjar f.
1947, maki hans er
Unnur Jónasdóttir f.
1947. Börn þeirra eru: Halldór, f.
1965, Bjarni Þór, f. 1968, Kolbrún,
f. 1975, Baldur, f. 1977. Barna-
börnin eru: Jennifer, f. 1988, Var-
isa Brynja Rós, f. 1993, Tamara
Lísa Patria, f. 1997, Aníta Elfa, f.
1999, Jónas, f. 2002, Felix, f. 2005.
Sigríður lauk námi frá Kvenna-
skólanum í Reykjavík vorið 1938
og vann ýmis störf utan heimilis.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Elskulega mamma mín,
mjúk er alltaf höndin þín.
Tárin þorna sérhvert sinn,
sem þú strýkur vanga minn.
Þegar stór eg orðin er,
allt það launa skal eg þér.
(Höf. ók.)
Þetta er ein af mörgum vísum
sem mamma kenndi mér. Hún unni
ljóðum og voru ljóð Davíðs Stefáns-
sonar hennar uppáhald.
Þegar eg lít til baka finnst mér að
hún hafi alltaf verið að gefa mér
eitthvað. Hún naut þess að gefa og
gleðja aðra. Hennar fyrsta og
stærsta gjöf til mín var lífið sjálft og
ómældur kærleikur alla tíð og hann
vil eg þakka.
Það var mér ljúft að létta þér lífið,
þegar það var orðið þungt og þú orð-
in þreytt. Þú áttir það sannarlega
inni hjá mér.
Nú trúi eg að þú sért frjáls eins
og fuglinn, dansandi í ljósinu í fal-
legum kjól.
Á langri ævi eignaðist þú marga
vini og kunningja.
Þú fæddist og ólst upp í Ólafsfirði
og þér þótti mjög vænt um fjörðinn
þinn og fólkið þar.
Þitt fyrsta heimili var á Akureyri,
síðan í Reykjavík, Keflavík, Kefla-
víkurflugvelli, Noregi, Afríku og
Lúxemborg en við starfslok pabba
fluttuð þið aftur til „landsins bláa“.
Svo skrýtið sem það er, bjugguð þið
síðustu árin í Sólheimum 23, ör-
skammt frá ykkar fyrsta heimili,
„Litla Hvammi“, sem þá, árið 1945,
var í sveit.
Ferðalög ykkar pabba voru mörg
og veittu ykkur mikla gleði, innan-
lands sem utan.
Árin þín á Hrafnistu reyndi eg að
létta þér stundirnar með heimsókn-
um og stuttum bíltúrum og launa
þér alla þína ást og umhyggju gegn-
um lífið.
Síðasta ferðalagið þitt var í Bisk-
upstungurnar, dagsferð í sumarbú-
staðinn í undurfögru veðri. Það var
góður dagur.
Nú getur þú ferðast að vild og
ráðið ferðinni sjálf.
Allir dagar verða þér aftur góðir
og glaðir sem áður fyrr.
Starfsfólki Hrafnistu sem sýndi
þér mikla vinsemd og veitti þér að-
stoð flyt eg alúðarþakkir.
Nú verða heimsóknirnar ekki
fleiri.
Með hönd í hönd og kinn við kinn
kvöddumst við. Haustið var kom-
ið. Lífi þínu í þessum heimi var lok-
ið.
Nú frjáls og glöð þú ferð til nýrra heima.
Þinn fyrri styrkur aftur eins og forðum.
Minning þína mun eg ætíð geyma.
Móðir kær, eg kveð með þessum orðum.
(Á. E. J.)
Ásdís Elfa Jónsdóttir.
Sigríður Kristín
Guðmundsdóttir
Amma mín er dáin.
Ég ætla að reyna að
vera ekki sorgmædd
og skoða í huga mér allar fallegu
minningarnar sem ég á um og með
ömmu minni. Ég lærði margt af
henni ömmu minni. Hún sýndi mér
hvernig maður gerir ótal margt og
var alltaf tilbúin að hlusta. Það er
lítilli stelpu mikilvægt þegar ein-
hver gefur sér tíma til að hlusta.
Ég var fjöldamörg sumur í sveit
hjá afa og ömmu þegar ég var barn
og unglingur. Ég sóttist mikið eftir
Hanna Jónsdóttir
✝ Hanna Jóns-dóttir fæddist í
Stóradal í Svína-
vatnshreppi 26.
mars 1921. Hún lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
að kvöldi 30. sept-
ember síðastliðins
og var útför hennar
gerð frá Blönduós-
kirkju 7. október.
að komast norður.
Amma mín var
listamaður í höndun-
um, hún saumaði,
prjónaði, skar úr í
tré, málaði og óf svo
eitthvað sé nefnt og
mér þótti þetta allt
undravert.
Ég á skýra mynd
af ömmu í eldhúsinu
að elda hádegismat-
inn, steikja kleinur,
prjóna, tala í símann,
reykja, drekka kaffi
og svara mér.
Amma kenndi mér að bera virð-
ingu fyrir gróðri, hún var mikill
ræktandi og eftir hana stendur stór
skógur á landareigninni. Það voru
ófáar ferðirnar sem við amma fór-
um út í skóg til að planta og til að
huga að gróðrinum. „ Stígðu ekki á
trén, stelpa“ og amma var að tala
um 25 cm háa plöntu. „Ég er að
passa mig,“ sagði ég og reyndi eins
og ég gat að sjá þessa litlu plöntur.
Í dag er ekki nokkur vandi að sjá
þessar plöntur margar þeirra löngu
komnar mér yfir höfuð.
Ég man að einu sinni var amma
með fullt af hráum kartöflum við
eldhúsborðið, ég settist og að vanda
fór munnurinn á mér af stað.
Amma svaraði mér af þolinmæði og
skar á meðan út mynstur í kartöfl-
urnar og dýfði þeim í lit og þrykkti
svo á efni. Þarna bjó hún til dúka
og ég á einn svona dúk í dag og
þykir vænt um. Ég á reyndar miklu
fleiri hluti sem amma bjó til og nýt
þess að rifja upp minningar sem
fylgja þeim.
Amma mín hafði ekki bílpróf og
mikil var gleði mín þegar ég var
sjálf komin með bílpróf og gat
keyrt hana um.
Ég átti virkilega góða ömmu og
ég var heppin að ég gerði mér
grein fyrir því snemma.
Ég sagði henni oft hversu miklu
máli hún skipti mig og hversu mikið
ég elskaði hana.
Ömmu minni gat ég alltaf sagt
allt og ég held ábyggilega áfram að
gera það. Ég er þakklát fyrir að
hafa fengið tækifæri til að kveðja
ömmu mína, við vorum saman vik-
una áður en hún dó og ræddum
margt og mikið. Það var mér ómet-
anlegt.
Ég kveð ömmu með söknuði og
þakklæti. Leggðu þig, amma mín,
og takk fyrir allt.
Þín
Elín Hanna.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birtist
valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur birt-
ing dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU,
5-15 línur, og votta þeim sem
kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein.
Ekki er unnt að tengja viðhengi
við síðuna.
Minningargreinar