Morgunblaðið - 17.10.2006, Side 39
|þriðjudagur|17. 10. 2006| mbl.is
Staðurstund
Meryl Streep þykir frábær í
hlutverki sínu sem harðsvír-
aður tískublaðaritstjóri í The
Devil Wears Prada. » 49
kvikmynd
Hljómsveitin Æla sendi í sumar
frá sér plötuna Sýnið tillits-
semi, ég er frávik og ætlar að
spila á Airwaves í vikunni. » 43
tónlist
Atli Bollason segir plötu Nico
Muhly, Speaks Volumes, bestu
plötu ársins hingað til og gefur
henni fimm stjörnur. » 45
tónlist
Bragi Ásgeirsson fjallar um
myndlist og sjónlist, varðveislu
listar og andúð Roberts Hughes
á framúrstefnu. » 40
sjónspegill
Framhald á umfjöllun Arnars
Eggerts Thoroddsen um Fær-
eyjaheimsókn og Global Battle
of the Bands. » 43
af listum
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
MATES of State er dúett þeirra hjóna Kori Gar-
dner og Jason Hammel.
Kori leikur á orgel og syngur en Jason sér um
trommur og syngur sömuleiðis. Að baki eru nú
fjórar plötur, allar sem ein lofaðar en þó sér í
lagi þær tvær síðustu, Team Boo (2003) og sú
nýjasta, Bring it Back, sem út kom í mars á
þessu ári. Aðstandendur Airwaves hafa verið
nokk glúrnir í því að fiska út sveitir sem hafa
gott tónleikaorðspor (sjá Go! Team) og Mates of
State fellur eins og flís við rass hvað þá viðleitni
varðar. Á tónleikum er bandið á heimavelli og
síðustu ár hefur dúettinn verið á vörum allra
indí-hipstera með vott af sjálfsvirðingu. Tón-
leikar Mates of State eru upplifun; heiðarleikinn
og ástríðan alger og hafa þau hjón hitað upp fyr-
ir sveitir á borð við Strokes, Death Cab For Cu-
tie, Spoon, Of Montreal, Ida, Midlake og Destro-
yer. Mates of State, en sveitin var stofnuð árið
1997, hefur reyndar verið á stanslausum túr
nánast frá stofnun, enda snýst mottó sveit-
arinnar um það að „spila alls staðar, hvenær sem
er“.
Sjálfri tónlistinni verður hins vegar trauðla
lýst. Stuðvænt skrýtipopp, og einkennandi er
kröftugur, hrífandi samsöngur þeirra Gardner
og Hammel. Lögin eru knöpp, stútfull af mel-
ódískum sveigjum og beygjum með heilnæmum
slatta af indí-kryddi. Já, þetta hljómar of gott til
að vera satt, svei mér þá!
Háskólinn
Það er kannski þreytandi að vera alltaf að
spyrja fólk um hvernig því lítist nú á að vera að
koma til Íslands, en þetta er engu að síður ís-
brjótur sem klikkar aldrei. Og Jason Hammel
leist vel á að vera að koma til landsins, sagðist
spenntur og upplýsti blaðamann um það að þau
hjónin hygðust taka sér heilan dag í frí, til að
skoða sig um, eitthvað sem er orðið algengt
munstur er hljómsveitir sækja okkur heim.
Hammel segir að þau ferðist mjög mikið og
spili eins og brjálæðingar.
„Það þarf að koma með þetta til fólksins, svo
einfalt er það. Það er heimspekin okkar.“ Ham-
mel segir að hann og kona hans hafi kynnst í
Lawrence, Kansas, þar sem þau voru saman í
háskóla. Lawrence er músíkmekka Kansasfylkis
og voru Hammel og Gardner að dufla í hinum og
þessum böndum áður en þau náðu loks saman –
bæði á sviði tónlistar og ásta.
„Við fórum að fikta í trommum og orgeli í æf-
ingarhúsnæðinu okkar, meira upp á flippið, en
einhvern veginn endaði þetta svona. Við vorum
meira í gíturum áður. Við fluttum okkur síðan til
San Francisco, sem er algerlega uppáhalds-
borgin mín. Þar er mjög gott fyrir tónlistarmenn
að vera.“ Síðasta plata Mates of State kom út á
vegum Moshi Moshi í Evrópu, en útgáfan verður
með sérstakt kvöld á hátíðinni. Hammel er vel
með á nótunum og kannast við Íslandstengingu
fyrirtækisins, en plata með Unsound (Kristinn
Gunnar Blöndal) hefur komið út á þess vegum.
Þanþol
Spurður hvort að þau ætli ekki að fara að færa
sig yfir á stóra útgáfu segir Hammel að tilboðin
hafi ekki látið á sér standa.
„Við eigum svo mikið af vinum sem hafa verið
svívirtir af ljótu köllunum í stóru fyrirtækjunum
að við förum mjög varlega í þetta ferli. Ég er al-
veg opinn fyrir þessu, en forsendur verða að
vera eins góðar og hægt er. En vittu til, það mun
koma að því fyrr en síðar.“ Hammel lítur að lok-
um yfir farinn veg, en fyrsta platan, sjö tommu
deiliplata með Fighter D, kom út árið 1999.
Breiðskífurnar eru þá orðnar fjórar eins og áður
er getið. „Ég vona að við höfum þróast eitthvað á
þessum árum, og orðið betri ef ég má orða það
svo,“ segir hann. „Ég gæti ekki staðið í þessu ef
ég fyndi fyrir stöðnun. Við reynum að fara fram
á hengiflugið með hverri plötu, reynum á þan-
þolið og leggjum allt í þetta í hvert og eitt ein-
asta sinn.“ Mates of State hafa nú bækistöð í
Connecticut. Þau hjón eignuðust dóttur, Magn-
oliu, fyrir tveimur árum og var flutningurinn til
að vera nærri fjölskyldu og vinum. En það er þó
varla að þau drepi niður fæti þar, svo þétt eru
þau bókuð árið um kring.
Hjónabandssæla
Stuðsveit Tónleikar Mates of State þykja mikil upplifun.
www.icelandairwaves.com Miðasala á hátíðina er hafin. Miða má nálgast í verslunum Skífunnar á
Laugavegi, í Kringlunni og Smáralind og verslunum BT á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Miða-
verð er 6.900 krónur auk 460 króna miðagjalds og fæst fyrir það aðgangur að öllum viðburðum há-
tíðarinnar.
Alls koma um 180 hljómsveitir, tónlistarmenn og plötusnúðar fram í ár á sjö tónleikastöðum. Iceland
Airwaves stendur yfir dagana 18. til 22.október.
FÍFLALÆTI og gapaháttur virðast
falla vel í kramið hjá íslenskum kvik-
myndahúsagestum. Rúmlega fjögur
þúsund manns skelltu sér í bíó um
síðustu helgi til að sjá meistara
kjánalátanna, sjálfa Asnakjálkana
eða Jackass-gengið, nota misfrum-
legar aðferðir við að skaða sig og
niðurlægja, eins og þeim piltum ein-
um er lagið. Fyrir vikið skaust
myndin Jackass Number Two beint
á topp bíólistans.
Á hæla Jackass Number Two, og
sömuleiðis ný inn á listann, kemur
myndin The Devil Wears Prada sem
skartar leikkonunum Anne Hat-
haway og Meryl Streep í aðal-
hlutverkum. Alls sáu rúmlega 2.350
manns hinn tískuklædda fjára um
helgina en í myndinni segir frá hinni
ungu og óhörðnuðu Andy Sachs sem
fær vinnu sem annar aðstoðarmaður
Miröndu Priestley, sem er harð-
skeyttur ritstjóri tískutímaritsins
Runway. Í þriðja sæti kemur svo
toppmynd síðustu viku, Monster
House. Þar er á ferðinni tölvugerð
teiknimynd sem gestum gefst kostur
á að sjá annaðhvort á íslensku eða
ensku. Tæplega 2.500 kvikmynda-
húsagestir sáu þessa vinsælu mynd
um helgina og því er heildar-
aðsóknin komin í 5.900 áhorfendur.
Fjórða sætið skipar svo stórmynd-
in World Trade Center, í leikstjórn
Olivers Stones, sem fjallar um
hryðjuverkin 11. september 2001.
The Queen fer upp um eitt sæti frá
því í síðustu viku, úr því sjötta í það
fimmta, en á eftir henni koma del-
lugrínmyndirnar Beerfest og Talla-
dega Nights. Það er svo hin íslenska
Börn sem vermir tíunda sætið.
Kvikmyndir | Vinsælustu myndirnar á Íslandi
Jackass á
toppinn
! " #
$%
&%
'%
(%
)%
*%
+%
,%
-%
$.%
?
Kjánar Jackass-gengið finnur frumlegar aðferðir til að slasa sig.