Morgunblaðið - 17.10.2006, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HROLLVEKJAN The Grudge 2,
sem frumsýnd var um síðustu helgi í
Bandaríkjunum, fór beint á toppinn
yfir vinsælustu kvikmyndirnar í þar-
lendum kvikmyndahúsum nú þegar
hrekkjavakan nálgast. Alls halaði hún
inn 22 milljónir og ýtti þar með kvik-
mynd Martins Scorseses, Departed,
úr toppsætinu. Hún skákaði einnig
mynd Robins Williams, Man of the
Year, sem varð í þriðja sæti með 12,5
milljóna dollara innkomu, Open Sea-
son með ellefu milljónir og The Texas
Chainsaw Massacre: The Beginning
sem halaði inn tæpar átta milljónir.
Rétt eins og í hinni upprunalegu
The Grudge er það japanski leikstjór-
inn Takashi Shimizu sem er við
stjórnvölinn í framhaldsmyndinni
The Grudge Two. Sarah Michelle
Gellar snýr einnig aftur í hlutverki
Karen Davis. Hér segir frá því þegar
systir Karen verður fyrir sömu bölv-
uninni og þjakaði Karen í fyrri mynd-
inni og baráttu sundurleits hóps fyrir
því að bjarga lífi sínu.
Kvikmyndir | Vinsælastar vestanhafs
Hárin rísa
Fatahönnuðurinn Paulo MelimAndersson hefur verið ráðinn
yfirhönnuður tískuveldisins Chloe.
Fyrstu fatalínunnar frá honum er að
vænta í mars á næsta ári.
Melim Andersson, sem er frá Sví-
þjóð, fetar með starfinu í fótspor ekki
ómerkari hönnuða en Karl Lagerfeld
og Stellu McCartney, sem bæði hafa
gegnt sömu stöðu hjá Chloe.
Melim Andersson tekur við starf-
inu af hinni bresku Phoebe Philo,
sem sagði starfi sínu lausu fyrr á
árinu til að eyða meiri tíma með fjöl-
skyldu sinni.
Fólk folk@mbl.is
EFTIRFARANDI ályktun frá stjórn
Framleiðendafélagsins SÍK, barst
Morgunblaðinu í gær:
Stjórn Framleiðendafélagsins
SÍK fagnar nýjum þjónustusamn-
ingi milli Ríkisútvarpsins og
menntamálaráðuneytisins þar sem
m.a. er kveðið á
um verulega
aukinn hlut ís-
lensks dag-
skrárefnis í
Sjónvarpinu á
næstu fimm ár-
um.
Í samn-
ingnum er til-
greint hvaða
fjármagni RÚV
skuli verja árlega að lágmarki til
kaupa eða meðframleiðslu á leiknu
sjónvarpsefni, kvikmyndum, heim-
ildarmyndum eða öðru sjónvarps-
efni.
Til þess að glöggva sig betur á
því hvað við er átt í samningnum
kallar Framleiðendafélagið SÍK
eftir skilgreiningu stofnunarinnar
(RÚV) á eftirtöldu:
1. Hver er skilgreining stofn-
unarinnar (RÚV) á innlendu efni?
2. Hver er skilgreining stofn-
unarinnar (RÚV) á leiknu efni?
3. Hvernig skilgreinir stofnunin
(RÚV) annars vegar fréttir og hins
vegar íþróttir.
4. Er greinarmunur gerður á
hugtökunum „íslenskt dagskrár-
efni“ og „íslenskt sjónvarpsefni“
innan stofnunarinnar (RÚV)?
5. Hver er skilgreining stofn-
unarinnar á heitinu „sjálfstæður
framleiðandi“?
6. Hverjar eru skilgreiningar og
reglur þær sem stofnunin fer eftir
þegar um er að ræða „meðfram-
leiðslu“.
Þar sem skilningur manna á
ofangreindu hefur verið með ýmsu
móti er nú rétt að kalla eftir skýr-
um svörum til að eyða öllum vafa
um hvert stefnir í reynd með hinum
nýja samningi.
Þá hvetur stjórn Framleiðenda-
félagsins SÍK Alþingi til þess að
flýta afgreiðslu nýrra laga um
breytt rekstrarform RÚV.
F.h. Framleiðendafélagsins SÍK
13. október 2006.
Baltasar Kormákur formaður,
Skúli Malmquist ritari, Kristín
Atladóttir gjaldkeri, Friðrik Þór
Friðriksson, Hjálmtýr Heiðdal, Ást-
hildur Kjartansdóttir varamaður
og Elísabet Ronaldsdóttir varamað-
ur.
Öllum
vafa eytt
Baltasar
Kormákur
Sjónvarp | Fram-
leiðendafélagið SÍK
Sun 22/10 kl. 14 Lau 28/10 kl. 14
Sun 29/10 kl. 14 Sun 5/11 kl. 14
Fös 20/10 kl. 20 Sun 29/10 kl. 20
Fös 3/11 kl. 20 Fim 9/11 kl. 20
Sun 22/10 kl. 20 Fös 27/10 kl. 20
Lau 28/10 kl. 20 Sun 5/11 kl. 20
BRILLJANT SKILNAÐUR
MANNTAFL
ÁSKRIFTARKORT
5 sýningar á 9.900
SÍÐASTA SÖLUVIKA!
Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is
Lau 21/10 kl. 20 Fös 27/10 kl. 20
Lau 28/10 kl. 20
TÓNLISTARSKÓLI AKRANESS
Þjóðlagasveit tónlistarskólans á
Akranesi
Mið 25/10 kl. 20:30 Miðaverð 1.500
Fim 19/10 kl. 20
Fös 20/10 kl. 20
Sun 22/10 kl. 20
Aðeins þessar sýningar
Kortasala enn í fullum gangi!
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Lau 21. okt kl. 14 Aukasýning - í sölu núna
Sun 22. okt kl. 13 Aukasýning - í sölu núna
Sun 22. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 22. okt kl. 15 UPPSELT
Sun 22. okt kl. 16 UPPSELT
Sun 29. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 29. okt kl. 15
Næstu sýn: 5/11, 12/11
Mike Attack - Gestasýning sýnd í Rýminu
Fös 20. okt kl. 20 Síðasta sýning!
Herra Kolbert – sala hafin!
Lau 28. okt kl. 20 Frumsýning UPPSELT
Næstu sýn.: 29/10, 2/11, 3/11, 4/11, 5/11, 9/11, 10/11, 12/11, 16/11
www.leikfelag.is
4 600 200
EINHVERRA hluta vegna virkar það asnalega að
fara að gagnrýna kvikmynd eins og Asnakjálkar
númer tvö (Jackass Number Two) eins og að um
venjulega mynd væri að ræða. Varla er hægt að
taka fyrir leik, leikstjórn, sérstaka lýsingu eða hljóð
og hvað klippingu varðar sýnist manni að allt sem
var tekið upp, sé meira eða minna notað.
Þeir Asnakjálkar hafa notið mikilla vinsælda
undanfarin ár og getið af sér óteljandi hermikrákur
um allan heim. Hér á landi var þær til dæmis að
finna á sjónvarpsstöðinni Splash TV þar sem af-
krýndur Herra Ísland gerði lítið úr sjálfum sér og
öðrum – með góðum árangri að mér skilst – og svo
er líklega hægt að finna óskilgetin afkvæmi þeirra
Asnakjálka í hverju einasta krummaskuði hins vest-
ræna heims.
Það sem þeim Asnakjálkum hefur tekist, og fyrir
það eiga þeir kannski ekki hrós skilið, er að gera
heimsku, fífldirfsku, viðbjóð og annað volæði að vin-
sælli söluvöru. Án þess að fara of djúpt í sál-
fræðilegar ástæður sem þar liggja að baki, er ein-
faldlega verið að hreyfa við þeim hvötum okkar sem
alla jafna liggja í dvala – svo sem kvalalosta. Og
þegar það er gert í gegnum kvikmyndamiðilinn
losnar sú spenna sem alla jafna fylgir hinum „lægri
hvötum“ út á friðsaman og ánægjulegan hátt. Mun-
urinn á Asnakjálkum og venjulegri siðblindni er að í
Jackass er hlutunum haldið innan ákveðins ramma
– alltaf að því í vernduðu umhverfi – og tilgangurinn
sem helgar meðalið er að umræddur hrekkur eða
tiltekið kjánaprik sé umfram allt fyndið og það tekst
þeim félögum nær alltaf. Asnakjálkar númer tvö er
mjög fyndin mynd – ef mynd skal kalla. Manni get-
ur auðveldlega fundist það sem þeir gera sóðalegt,
óforskammað og siðferðilega rangt en það virðist
ekki skipta neinu máli vegna þess að maður hlær,
jafnvel gegn eigin vilja.
Ómótstæðilega fyndið
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Laugarásbíó
Leikstjórn: Jeff Tremaine. Aðalhlutverk: Johnny Knox-
ville, Bam Margera, Steve-O, Chris Pontius, Preston
Lacy, Ryan Dunn, Ehren McGhehey, Jason Acuña og
Dave England. 95 mín. Bandaríkin, 2006.
Asnakjálkar númer tvö (Jackass Number Two)
Höskuldur Ólafsson
Asnakjálkar Jackass hafa notið mikilla vinsælda og getið af sér hermikrákur um allan heim.