Morgunblaðið - 17.10.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 43
menning
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í Fossvogi.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST -
STAÐGREIÐSLA
EINBÝLISHÚS SSVOGI ÓSKAST
- STAÐGREIÐSLA -
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir virðulegu einbýlishúsi í nágrenni
miðborgarinnar, t.d. í Þingholtunum. Rýming samkomulag.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
EINBÝLISHÚS Í NÁGRENNI MIÐBORGAR-
INNAR ÓSKAST, T.D. Í ÞINGHOLTUNUM
– STAÐGREIÐSLA –
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Sérhæð við Landakotstún
eða nágrenni óskast
Traustur kaupandi óskast eftir 140-160 fm sérhæð á
framangreindu svæði.
Staðgreiðsla í boði fyrir réttu eignina.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
MEÐ IÐNUSTU hljómleikasveit-
um síðustu ára er keflvíska pönk-
sveitin Æla. Einfalt og hrátt pön-
krokkið er eins og það kemur af
kúnni; ekkert pjatt né pjátur og
orkurík sviðsframkoma meðlima –
þar sem söngvarinn stendur gjarn-
an uppi á stól – hefur vakið athygli
og aflað sveitinni þó nokkurs
fylgis. Eðlilegt skref var því að
koma einhverju efni á plast en í
sumar kom fimmtán laga plata út,
Sýnið tillitssemi, ég er frávik.
Blaðamaður átti samtal við söngv-
arann Halla Valla, sem er nýbyrj-
aður í háskólanum, en hyggst þó
síður en svo slaka á í rokkinu.
Ástæðan er einföld.
„Það er bara svo gaman að
spila,“ segir hann, blátt áfram og
heiðarlega.
Æla verður til
„Það tók tvo daga að taka upp,
ekkert mál,“ rifjar Halli upp. „En
svo lágum við í ár yfir hljóðblönd-
uninni. Okkur var svo mikið í mun
að ná nógu hráum og lifandi hljóm
að við týndum okkur í því ferli. Við
vildum ná þessum tónleikakrafti á
plötunni og því fór mjög langur
tími í það að láta plötuna hljóma
eins og það hefði tekið mjög stutt-
an tíma að vinna hana (hlær).“
Halli segir að hljóðfæri hafi lekið
hvert inn á annað í hljóðrásunum
enda var allt tekið upp á sama
tíma og í sama herbergi.
Eins og getið er um hafa Ælu-
menn spilað eins og vitlausir und-
anfarin misseri. Öllu redda þeir
sjálfir, engir umboðsmenn eða rót-
arar eru inni í myndinni.
„Þetta tekur alltaf svolítinn tíma
en það er gaman að vesenast.
Spilagleðin drífur okkur áfram.“
Æla hefur viðað að sér mörgum
vinasveitum eins og gengur en
Halli vill ekki tiltaka neina sér-
staka.
„Þetta eru oft ólíkar hljómsveitir
hvað tónlistina varðar. En Ísland
er það lítið að þú hefur ekki færi á
því að mála þig út í horn með ein-
hverju liði sem hlustar allt á sömu
tónlistina. Þessi smæð og þessi
mikla samgangur á milli fólks er
líklega það sem gerir senuna hér á
Íslandi svona sérstaka.“ Það má
þakka einum kassa af bjór að Æla
varð að veruleika. Meðlimum var
boðinn slíkur fengur ef þeir gætu
fyllt upp í hlé á Sjómannaballi með
tónlistaratriði. Það sem átti að
vera fimmtán mínútna brandari
vatt svo heldur en ekki upp á sig,
fólk fékk Æluna upp í kok og var
bara býsna ánægt með það.
Platan hefur gengið vel, fyrsta
upplag, 500 eintök eru farin. Halli
vill ekki að of langt líði á milli
platna og vonast til að nýtt efni líti
dagsins ljós sem fyrst.
„Svo langar okkur auðvitað til
að kíkja út. Hugsanlega förum við
til Lundúna og höldum tónleika
þar. Við þekkjum fólk þar sem er
með litla plötuútgáfu og það er
möguleiki að það komi 7 tomma út
á þess vegum. En það er dýrt að
koma sér út og einhvern veginn
verðum við að leysa það.“
Airwaves
Framundan er svo spilamennska
á Airwaves, hátíð sem Halli lýsir
sem „árshátíð“ íslenska tónlist-
arbransans. „Böndin detta í það
saman, spjalla og tengslum er
komið á. Einnig er þetta frábært
tækifæri til að koma hinu og þessu
á framfæri. Þá sýna hljómsveitir
hver annarri siðferðilegan stuðning
með því að mæta á tónleika hver
hjá annarri.
Þetta er bara hrein snilld.“ Þá á
enn eftir að standsetja opinbera
útgáfutónleika vegna plötunnar, en
þau mál eru í vinnslu að sögn
Halla.
„Það er bara svo
gaman að spila“
Ljósmynd/Gúndi
Natnir „Það tók tvo daga að taka upp, ekkert mál, en svo lágum við í ár yfir
hljóðblönduninni,“ segir Halli Valli gítarleikari og söngvari Ælu.
Æla spilar fimmtudaginn 19. októ-
ber kl. 20.45 á NASA.
www.myspace.com/aelaspace
www.icelandairwaves.com
Miðasala á hátíðina er hafin. Miða
má nálgast í verslunum Skífunnar
á Laugavegi, í Kringlunni og
Smáralind og verslunum BT á Ak-
ureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
Miðaverð er 6.900 krónur auk
460 króna miðagjalds og fæst fyr-
ir það aðgangur að öllum við-
burðum hátíðarinnar.
Alls koma um 180 hljómsveitir,
tónlistarmenn og plötusnúðar
fram í ár á sjö tónleikastöðum.
Iceland Airwaves stendur yfir dag-
ana 18. til 22.október.
Tónlist | Hljómsveitin Æla leikur á Iceland Airwaves
ÚRSLIT í færeyskum armihinnar alþjóðlegu tónlist-arkeppni, Global Battle of
the Bands (skammstafað GBOB),
fóru fram á laugardaginn í Ment-
anar-húsinu í Fuglafirði. Sigurveg-
arar voru Deja Vu, dreymið popp-
rokksband sem hefur tekið
stórstígum framförum síðustu
misseri og er í dag ein fram-
bærilegasta hljómsveit eyjanna.
Hljómsveitakeppnir í Fær-eyjum hafa mun meiravægi en sambærilegar
keppnir á Íslandi. Smæð samfélags-
ins gerir það að verkum að augu
og eyru eyjaskeggja beinast í
fjöldavís að þessum viðburðum sem
reynast kannski eini möguleikinn
fyrir nýstofnaðar og óreyndar
sveitir að reyna sig á sviði. Umfjöll-
un er þá mikil í þarlendum blöðum
og í sjónvarpi. Sigur í GBOB veitir
aðgang að úrslitakeppni í London,
sem fram fer í desember og slíkt
tækifæri er sem gulls ígildi í eyj-
unum.
Keppnin í ár reyndist hin besta
og fjölbreytnin sem ég varð vitni
að kom mér í opna skjöldu. Nú hef
ég áður sótt tvær Prix Föroyar-
keppnir, sem eru einslags Músíktil-
raunir Færeyja, þó að GBOB virð-
ist ætla að leysa þá keppni af hólmi
í þeim fræðunum. Þá sótti ég og G!
hátíðina í Götu í ár sem er tvímæla-
laust athyglisverðasta tónlist-
arhátíð Færeyja. Í öll þessi skipti
merkti maður þónokkra einsleitni í
tónlistinni og vísaði GBOB-keppni
ársins því veginn fram á við, bar
með sér vinda breytinga. Vissulega
voru arfaslakar hljómsveitir inni á
milli, eins og gengur, en mest var
þó um virkilega vel spilandi bönd
og þétt; bönd sem buðu upp á hag-
lega samda og framsækna tónlist.
En það sem mest er um vert er að
nokkrar sveitanna voru að leika
sér með hráa, kæruleysislega og
skemmtilega tónlist sem veitti
ferskt mótvægi við það graf-
alvarlega dramarokk sem hefur
einkennt bestu sveitir eyjanna und-
anfarin ár. Og það er ekki að ég
hafi neitt á móti slíkri nálgun en
fleira ætti að geta rúmast í senunni
þarna.
Þannig hafnaði í öðru sætistórskemmtileg sveit semheitir því kléna og kæru-
lausa nafni Boys in a Band. Það
sem á vantaði í hljóðfæraleik var
vegið upp með gríðarlega fjörugri
sviðsframkomu og hin hreina unun
af því að spila og skemmta sér staf-
aði af hverjum og einum meðlim.
Tónlistin var Franz Ferdinand/The
Braver-skotin, kannski ekki ýkja
frumleg, en æðið, ástríðan og
skeytingarleysið gagnvart „vönd-
uðum“ hljóðfæraleik er eitthvað
sem hefur sárlega vantað í þanka-
gang færeyskra rokk- og popp-
tónlistarmanna.
Þriðja sætinu var svo landað af
Marius, geysiþéttri popp/rokksveit
sem hæglega gæti náð eyrum al-
þjóðasamfélagsins, nenni hún að
standa í uppkomandi harki.
Sigurvegararnir, Deja Vu, spila
andríkt, draumkennt og drama-
tískt rokk og voru tónleikar þeirra
á GBOB einfaldlega stórkostlegir.
Meðlimir geirnegldir í óaðfinn-
anlegt grúv, menn gersamlega
týndir í þeirri nautn að flytja og
skapa tónlist. Deja Vu á að baki
eina plötu, A Place to Stand On, en
hún kom út í fyrravor. Ef fer sem
horfir gæti næsta plata orðið
tímamótaplata í færeysku tónlist-
arlífi.
Á endanum minni ég á end-
urflutning á þætti Freys Eyjólfs-
sonar, Geymt en ekki gleymt, sem
fram fer nú á miðvikudagskvöldið
á Rás 2, klukkan 22.10. Í honum
spilar hann nýja sem gamla fær-
eyska tónlist auk þess að gera
grein fyrir sögu hennar.
arnart@mbl.is
Deja Vu sigraði
» „En það sem mest erum vert er að nokkr-
ar sveitanna voru að
leika sér með hráa,
kæruleysislega og
skemmtilega tón-
list … “
Ljósmynd/Kristfríð Tyril
„Vinnararnir“ Deja Vu á sviði á úrslitakvöldi GBOB.
AF LISTUM
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen