Morgunblaðið - 17.10.2006, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
SÁSTU HVAÐ ÉG VAR SVALUR
OG AFSLAPPAÐUR Á MEÐAN
ÞÚ GELTIR EINS OGVITLEYSINGUR
Í TVO KLUKKUTÍMA?
ÉG SÁ AÐ ÞÚ
SOFNAÐIR MEIRA AÐ
SEGJA Í SMÁ STUND
OFUR
SVALUR!
ÉG MUNDI
EKKI GIFTAST
ÞÉR NEMA ÞÚ
VÆRIR SÍÐASTA
STELPA Í HEIMI
HVORT SAGÐIRÐU
„EF“ EÐA „NEMA“?
ÉG VIÐURKENNI AÐ ÉG
SAGÐI „NEMA“... ÞAÐ ER
ENN VON!!
ÉG ER
KOMINN HEIM!
ÉG SAGÐIST
ALDREI VERA BÚINN
AÐ OPNA HURÐINA
ÉG VEIT AÐ
VIÐ ERUM
TÝNDIR...
EN VIÐ ERUM
EKKI HRÆDDIR
OG HÖLDUM
ÓTRAUÐIR ÁFRAM
ÉG
VEIT...
EN Í
HVAÐA
ÁTT?
HANN
SEGIR
EKKERT
NEMA,
„SÉRÐU MIG
NÚNA?
SÉRÐU MIG
NÚNA?“
ÞETTA ER ALLT
SVO SKRÍTIÐ
HVAÐ? NÚNA ERUM VIÐ BÚIN AÐ
VERA MEÐ HERMENN Í ÍRAK
SVO LENGI...
AÐ MAÐUR
ER ORÐINN
VANUR ÞVÍ
JÁ, EN MIG
VANTAR FLEIRI
PYLSUR
VENJULEGUR HOLLYWOOD FUNDUR...
ÉG ÆTLA
EKKI AÐ
ÞYKJAST GETA
FLOGIÐ...
EN ÉG GET
GENGIÐ Á
VEGGJUM OG
SKOTIÐ VEF
OG ÉG ER EKKI
MESTI AUMINGINN
Í BÆNUM
VIÐ
SKILJUM
HVAÐ ÞÚ ERT
AÐ FARA
Næstkomandi fimmtudag,19. október, kl. 15 býðurRannsóknarstofa íkvenna- og kynjafræð-
um til fyrirlestrar í stofu 132 í
Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla
Íslands.
Þar mun Guðbjörg Hildur Kol-
beins kynna norræna rannsókn um
ungt fólk og klám á Norðurlönd-
unum.
Erindi Guðbjargar ber yfirskrift-
ina: Klámnotkun og kynlífshegðun
unglinga: Eru allir krakkar á kafi í
klámi?: „Rannsóknin fór fram á síð-
asta ári og var styrkt af Norrænu
ráðherranefndinni og unnin undir
stjórn Norrænu stofnunarinnar um
kvenna- og kynjafræðirannsóknir, “
útskýrir Guðbjörg. „Rannsóknin
náði til allra norðurlandanna og var
unnin ýmist með megindlegum eða
eigindlegum aðferðum og með inni-
haldsgreiningu fjölmiðla.“
Guðbjörg annaðist framkvæmd
rannsóknarinnar á Íslandi og lagði
hún spurningalista fyrir hóp ung-
menna á aldrinum 14 til 18 ára sem
valinn var af handahófi úr þjóðskrá:
„Samskonar spurningalisti var lagð-
ur fyrir ungmenni í öðrum löndum
og voru niðurstöður mjög keimlíkar
milli landa,“ útskýrir Guðbjörg.
„Meðal þess sem kom í ljós var að
96% drengja og 88,7% stúlkna
höfðu séð klám og af þeim hópi
höfðu um 60% stundum eða oft séð
klám án þess að vilja sjá það, en
svarendur voru að meðaltali milli 11
til 12 ára þegar þeir sáu klám í
fyrsta skipti. Flestir höfðu séð klám
í sjónvarpi, á netinu, í sprettiglugg-
um á netinu og klámblöðum en
sömuleiðis var athyglisvert að
margir töldu sig hafa séð klám í
dagblöðum og almennum tímarit-
um.“
Niðurstöður rannsóknarinnar
benda meðal annars til þess að börn
og ungmenni séu í meira tæri við
klám í umhverfi sínu en þau kæra
sig um: „Auglýsingar í dagblöðum
frá kynlífssímaþjónustum og kyn-
lífsverslunum eru dæmi um klám-
fengið efni sem ber fyrir augu
barna og ungmenna, án þess að þau
fái sjálf ráðið um. Svarendur vildu
almennt geta valið og hafnað, og
vildu ekki láta troða klámi upp á
sig, en 70% töldu að klám ætti að
vera löglegt, en þó með takmörk-
unum.“
Guðbjörg segir ekki ástæðu til að
hafa áhyggjur af nema litlum hópi
svarenda þegar kemur að klám-
notkun og kynlífshegðun: „Þeir sem
nota klám í meiri mæli eru líklegri
til að hefja kynlíf fyrr og eru jafn-
framt líklegri til að hafa haft kyn-
mök við fleiri en einn rekkjunaut í
einu. Einnig mátti finna tengsl á
milli þess að nota klám mikið og að
halda að strákum og stelpum finnist
kynlíf vera meira spennandi ef hinn
aðilinn veitir mótspyrnu.“
Um 60% svarenda höfðu haft
samfarir og var meðalaldur 15 ár
við fyrstu mök. Þar af höfðu 11,5%
reynt endaþarmsmök og 7,7% haft
samfarir við fleiri en einn í einu:
„Meðal annarra niðurstaðna könn-
unarinnar má nefna að á meðan
stúlkum þótti klám yfirleitt ógeðs-
legt og töldu það leiða til nauðgana
og voru strákar alla jafna á þeirri
skoðun að klám væri skemmtilegt
og veitti upplýsingar um kynlíf.“
Heilsa | Niðurstöður norrænnar rannsóknar
á klámi og kynlífshegðun unglinga kynntar
Eru krakkar á
kafi í klámi?
Guðbjörg
Hildur Kolbeins
fæddist í Reykja-
vík árið 1967.
Hún lauk stúd-
entsprófi frá VÍ,
B.S. gráðu í
blaðamennsku
frá Moorhead
State University,
meistaragráðu í fjölmiðlafræði frá
University of Minnesota og dokt-
orsprófi í fjölmiðlafræði frá Uni-
versity of Wisconsin í Madison.
Guðbjörg hefur unnið við blaða-
mennsku og síðustu ár kennt fjöl-
miðlafræði við HÍ. Eiginmaður
Guðbjargar er Hilmar Thor Bjarna-
son fjölmiðlafræðingur og eiga þau
eina dóttur.
!" #
$
%
!"
#
$
#
#
!%&&
'
!(&&
(
)
*
+
%
! "
#$%
&'()*"
+,,-
.
/0(/"
12
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111