Morgunblaðið - 17.10.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 45
dægradvöl
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 Db6 6. Rb3 e6 7. De2 Bb4 8.
Bd2 O-O 9. e5 Rd5 10. Rxd5 exd5 11. O-
O-O d6 12. Be3 Dc7 13. a3 dxe5 14. axb4
d4 15. b5 Ra5 16. Rxd4 exd4 17. Bxd4
Rb3+ 18. Kb1
Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl-
félaga sem lauk fyrir skömmu í Fügen í
Austurríki. Stórmeistarinn Þröstur
Þórhallsson (2.469) hafði svart gegn
þýska alþjóðlega meistaranum Jan
Sprenger (2.525). 18. …Da5! 19. cxb3
Bf5+ 20. Hd3 Hfe8 21. Be3 hvítur hefði
einnig tapað eftir t.d. 21. Df3 He1+ 22.
Kc2 Hc8+ 23. Bc3 Hxc3+!. 21. …Dxb5
22. Dc2 Hac8 23. Dxc8 Hxc8 og hvítur
gafst upp. Þröstur leiddi sveit Taflfélags
Reykjavíkur sem stóð sig framar vonum
á mótinu og lenti í 5.–12. sæti. Stefán
Kristjánsson náði lokaáfanga sínum að
stórmeistaratitli á mótinu.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Evrópubikarinn.
Norður
♠D9842
♥--
♦ÁKG1075
♣G2
Vestur Austur
♠K53 ♠G1076
♥1072 ♥Á84
♦432 ♦D86
♣10976 ♣D84
Suður
♠Á
♥KDG9653
♦9
♣ÁK53
Suður spilar 6♥ og fær út spaða-
þrist.
Þótt slemman sé undirmáls var hún
víða sögð í riðlakeppni Evrópubikars-
ins í Róm. Ítalarnir Bocchi og Lauria
unnu eins úr spilinu. Þeir sóttu hjarta-
ásinn, trompuðu spaðann sem kom til
baka og rúlluðu niður öllum tromp-
unum. Í endastöðunni var blindur með
spaðadrottningu, ÁKG í tígli og eitt
lauf, en heima átti sagnhafi tígulein-
spilið og ÁKxx í laufi. Austur var þegar
kominn niður á Dx í laufi til að geta
valdað tígulinn, en vestur hélt enn á
fjórum laufum og spaðakóng. En ÁK í
tígli sáu um að þvinga vestur niður á
tvö lauf, þannig að úrslitaslagurinn
fékkst á laufhund. Svona spilar Ítalar –
upp á tvöfalda þvingun í áföngum frek-
ar en einfalda svíningu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 vandræðaleg, 8
starfs, 9 reiði, 10 tangi,
11 þjóta, 13 eldstó, 15
hungruð, 18 þvo gólf, 21
kusk, 22 rýmdi, 23
ódauðleg, 24 ferlegt.
Lóðrétt | 2 húsgögn, 3
gnýr, 4 þylja í belg og
biðu, 5 veiki, 6 digur, 7
fall, 12 ætt, 14 fjáð, 15
botnfall, 16 bárur, 17
hrekkjabragð, 18 dynk,
19 landræk, 20 grískur
bókstafur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kímin, 4 suddi, 7 pólar, 8 iðuðu, 9 puð, 11 afar,
13 einn, 14 ofboð, 15 hólk, 17 agns, 20 æða, 22 posar, 23
lofar, 24 runan, 25 annað.
Lóðrétt: 1 kipra, 2 molda, 3 norp, 4 svið, 5 dauði, 6 Ið-
unn, 10 umboð, 12 rok, 13 eða, 15 hopar, 16 lesin, 18 guf-
an, 19 sárið, 20 æran, 21 alda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Steingerðar leifar risastórraskriðdýra frá tímum risaeðl-
anna fundust nýlega. Hvar fundust
þær?
2 Íslenskur tennisspilari leikursem atvinnumaður í íþrótt
sinni. Hvað heitir hann?
3Mikið hneykslismál skekur Ísr-ael. Forseti landsins, Moshe
Katsav, er borinn þungum sökum.
Hverjar eru þær?
4 Grazyna Maria Okuniewska gef-ur kost á sér í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins. Hvaðan er hún
upprunnin.
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Hvaða leikrit sýnir Vesturport nú í Lond-
on? Hamskiptin eftir Kafka í leikgerð
Vesturports. 2. Við hvað starfar frið-
arverðlaunahafi Nóbels í ár? Muhammad
Yunus er „bankastjóri fátækra“. 3. Hver
er fyrsti óumdeildi heimsmeistarinn í
skák í þrettán ár? Rússinn Vladimír Kram-
nik. 4. Í hvaða íþrótt hefur Ragna Ingólfs-
dóttir náð góðum árangri? Badminton.
Spurt er…
dagbok@mbl.is
ÞAÐ segir ýmislegt um menningar-
landslagið að þessi plata hafi legið á
botni póstkassans hjá mér fyrir
nokkru. Ég er poppgagnrýnandi – ég
hef vit á popptónlist, sögu hennar og
listrænum viðmiðunum – og telst fyr-
ir vikið hæfur til að leggja á hana fag-
legt mat. Ég er hins vegar ekki klass-
ískur gagnrýnandi.
„Hvaða máli skiptir það?“ liggur
beint við að spyrja – „ertu kannski
erindreki íhaldssamra menningarafla
sem dregur listina í dilka og deilir
henni milli stétta?“ En málið er alls
ekki svo einfalt. Klassísk tónlist lýtur
öðrum lögmálum en popptónlist. Þar
skipta endurtekningar, taktur, og
texti minna máli. Grunneiningarnar
eru aðrar, og viðmiðin sömuleiðis.
Þess vegna er áhugavert að hand-
leika Speaks Volumes, nýútkomna
plötu New York-búans Nico Muhly,
og fjalla um hana með gagnrýnum
hætti. Hljóðvinnsla plötunnar var í
höndum Valgeirs Sigurðssonar sem
er þekktastur sem samstarfsmaður
Bjarkar Guðmundsdóttur og nú síð-
ast Bonnie „Prince“ Billy. Í kynning-
arefni og umslagi plötunnar er mikið
gert úr þætti Valgeirs við vinnslu
plötunnar og hann sagður eiga engu
minni heiður af heildaryfirbragðinu
en tónskáldið sjálft. Platan er enn
fremur fyrsta útgáfa nýs plötufyr-
irtækis hér í bæ, Bedroom Comm-
unity, en téður Valgeir stendur á bak
við það.
Rætur Valgeirs liggja í listrænni
popptónlist, og plötunni er því beint
til hlustenda sem þekkja til fyrri
verka hans. En þetta er ekki poppp-
lata fyrir fimmaur, ekki frekar en
plötur Jóhanns Jóhannssonar eða
Max Richter. Samt njóta verk þess-
ara listamanna fylgis hjá fólki sem
eyðir tíma sínum annars í Arcade
Fire eða Clap Your Hands Say Yeah!
Þetta er á endanum spurning um
markhópa og markaðssetningu, og
eins og staðan er í dag er Nico Muhly
gjaldgengur við hliðina á Chelsea
Girls og Pink Moon í iPoddum ind-
íkrakkanna.
Það hlýtur að teljast afskaplega
póstmódernískt, hér er ráðist af alefli
á múrana sem aðskilja há- og lág-
menningu, og atlagan virðist aldrei
þessu vant ætla að ganga upp. Plötu
Nicos fylgir einskonar stefnuyfirlýs-
ing þar sem fram kemur að platan sé
ætluð til heimahlustunar. Hún reynir
m.ö.o. að slíta klassíska tónlist úr 19.
aldar samhengi, þar sem tónlist er
ætluð til lifandi flutnings og plötur
þ.a.l. einungis tilraun til þess að end-
urskapa þann flutning. Hér er óhefð-
bundnum upptökuaðferðum beitt,
klippt og skorið og ekki hikað við að
bæta ýmsu flúri við eftir á. Það nægir
ekki Nico að semja verk sem eru flutt
einu sinni eða tvisvar við annan tug
manna í Grafarvogskirkju, hann vill
skilja eftir sig verk sem lifir með okk-
ur hinum, verk sem lifnar við í hvert
skipti sem ýtt er á play í stað þess að
minna á dauða sinn. Verk sem er
hægt að njóta á náttfötunum.
Og það tekst fullkomlega. Speaks
Volumes er besta plata ársins hingað
til. „Honest music“ og „Keep in to-
uch“ eru bæði þess megnug að fá
hlustandann til þess að gráta úr sér
augun og rita heimspekiritgerð í kjöl-
farið. Söngur Antonys, sem heillar
undirritaðan ekki stórkostlega á plöt-
um hans sjálfs, er ótrúlegur í því síð-
arnefnda. „It goes without saying“ er
meistaraleg æfing í því hvernig enda-
laust má mála ofan í þegar þéttan
hljóðvegg, og einleikur sellósins í
upphafslaginu „Clear music“ er vel
úthugsaður, og ekki síður vel spil-
aður. Strax í upphafi gefur óhefð-
bundinn hljómur Valgeirs tónlistinni
nánd sem kirkjuómur annarra klass-
ískra platna nær ekki.
Ofangreint er einungis samtín-
ingur – sannleikurinn er sá að eina
leiðin til þess að skilja fegurðina (og
snilldarlega útfærðan hugmynda-
fræðilegan grunninn) á Speaks Vol-
umes er með því að hlusta – og skilja.
Sigur póstmódernismans
TÓNLIST
Geisladiskur
Öll lög eru eftir Nico Muhly. Hann leikur á
píanó og selestu. Clarice Jensen og Hild-
ur Ingveldardóttir Guðnadóttir leika á
selló, Monika Abendroth á hörpu, Carol
McGonnell á klarínett, Lisa Liu á fiðlu,
Samuel Z. Solomon á slagverk, Nadia Si-
rota á víólu, Kyle Covington á básúnur og
Antony syngur. Upptökur og forritun önn-
uðust Nico og Valgeir Sigurðsson. Hljóð-
blöndun var í höndum Valgeirs. Lindsay
Ballant hannar umslag. Bedroom Comm-
unity gefur út. 7 lög, 53:31.
Nico Muhly - Speaks Volumes
Póstmódernískt „Hér er ráðist af alefli á múrana sem aðskilja há- og lág-
menningu, og atlagan virðist aldrei þessu vant ætla að ganga upp.“
Atli Bollason