Morgunblaðið - 17.10.2006, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
NICOLAS
CAGE
SÝNIR
STÓRLEIK Í
MYNDINNI.
eee
BBC
eee
ROLLING STONE
eeee
EMPIRE
eeee
TOPP5.IS
eeee
SV, MBL
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM
eee
EGB, TOPP5.IS
LOKASÝNINGARTILBOÐ 400 KR.
BJÓLFSKVIÐA
eee
H.J. - MBL
eeee
blaðið
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali !
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
SIGURVEGARI
kvikmyndahátíðin í Berlín
BESTI LEIKSTJÓRINN
ÖRFÁAR SÝNINGAR!
EINN AF BESTU
KNATTSPYRNU-
MÖNNUM
SÖGUNNAR
/ KRINGLAN
BEERFEST kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i. 12.ára.
THE THIEF LORD kl. 6 - 8 LEYFÐ
HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 8 - 10:10 B.i.12.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919
eeeee
H.J. MBL
eeee
TOMMI/KVIKMYNDIR.IS
WORLD TRADE CENTER kl. 6 - 8:30 - 10:10 B.i. 12.ára.
THE QUEEN kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12.ára.
ZIDANE kl. 6 - 8
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 LEYFÐ
THE ROAD TO GUANTANAMO kl. 10:10 Án texta B.i. 16.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BJÓLFSKVIÐA kl. 6 B.i.16 .ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8:15 Tilboð 400kr. B.i. 12.ára.
SÖNN SAGA UM HUGPRÝÐI OG ÓTRÚLEGA MANNBJÖRG
eee
BBC
eeee
EMPIRE
eee
ROLLING STONE
eee
LIB, TOPP5.IS
NICOLAS CAGE SÝNIR
STÓRLEIK Í MYNDINNI
NÝJASTA STÓRVIRKIÐ FRÁ OLIVER STONE.
STÓRMYND SEM LÆTUR ENGAN ÓNSNORTIN.
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eee
Ó.H.T. RÁS2
eeee
HEIÐA MBL
HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN.
VEGNA FJÖLDA
ÁSKORANA HEFUR
MYNDIN AFTUR
VERIÐ TEKIN TIL
SÝNINGA. eeeeV.J.V. TOPP5.IS
Munið afsláttinn
Árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Skilaboð til dýravinar
MIG langaði að benda „dýravini“,
sem skrifaði í Velvakanda 12. október
sl., á að það eru ekki allir sem eru í
ræktun til þess að græða á henni. Ef
hún væri svona arðbær væru senni-
lega miklu fleiri í þessum bransa.
Þó svo að dýrið sé selt fyrir vissa
fjárhæð þá má ekki gleyma fyrir hvað
er verið að borga, þar má nefna
sprautur, bólusetningar, ættbók, mat
og alla umhirðuna í kringum þetta, ef
hún er talin með þá er maður með
u.þ.b. eina krónu á tímann.
Ég er lítill kisuræktandi, ég elska
kisurnar mínar og ég er sármóðguð
að þú skulir alhæfa að ræktendur séu
allir fégráðugir og þeir sem kaupi dýr
ætli sjálfir að stórgræða á þessu.
Kaupandi hreinræktaðra dýra er að
leita að sérstökum einkennum, bæði í
útliti og hegðun hjá dýrinu, sem
passa inn í þeirra heimilislíf. Einnig
vil ég benda þér á að innflutningur á
dýrum hingað til lands er mjög dýr,
meðalgreiðsla fyrir einangrun og
skatta, sem þarf að borga, er 150.000
kr., þá er eftir að borga flug og dýrið
sjálft.
Þórunn Hjaltadóttir,
www.kisur.tk
Um strætó
ÉG er ein þeirra sem ákváðu að prófa
að taka strætó í vinnuna og spara þar
með rándýran rekstur einkabílsins.
Ég tek nú strætó á morgnana frá
Hamraborg og niður í miðbæ, sem er
fljótlegt og ódýrt.
Hins vegar er stór galli á aðbúnaði
farþega. Vagninn er iðulega þétt set-
inn og þurfa margir að standa á leið-
inni og það er ekki verið að spara
bensíngjöfina á þessari leið. Ég hefði
haldið að þetta væri ólöglegt. Það
vekur líka furðu mína að stundum
kemur stærri vagn á biðstöðina í
Hamraborg, og farþegar búnir að
setja sig í stellingar til að komast um
borð, þá segir vagnstjórinn að allir
verði að fara í næsta vagn á eftir, sem
er helmingi minni! Ekki veit ég hvað
veldur þessum „sparnaði“ en þetta
gerir ferð mína í strætó óþægilega.
Farþegi.
Gsm-sími í óskilum
GSM-sími fannst á Hlöllabátum, Ing-
ólfstorgi. Upplýsingar í síma
511 3500.
Flókahúfa týndist við Iðnó
FLÓKAHÚFA, grá með dumbrauðri
mynd og munstri, týndist fyrir fram-
an innganginn á Iðnó sl. fimmtudag.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
565 2449.
Barnahúfa týndist í Kringlunni
Köflótt, marglit, bleik barnahúfa með
ásaumuðum bangsa týndist í Kringl-
unni sl. föstudag. Húfan hefur mikið
tilfinningalegt gildi. Fundarlaun í
boði í síma 866 4528.
Canon myndavél í óskilum
CANON stafræn myndavél fannst
fyrir 3 vikum í miðbænum. Í vélinni
voru myndir frá útskrift. Upplýs-
ingar í síma 844 1272.
Taco er týndur
TACO er smáhundur sem týndist í
Heiðmörk (nálægt Furulundi) 8.
október sl.
Hann er
hvítur og
svartur Chi-
huahua-
hundur og
er hans sárt
saknað. Þeir
sem hafa
séð hann,
eða vita um
hann,eru
vinsamlega
beðnir að hafa samband í síma
695 1228 eða 567 3376.
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90ára afmæli. Ídag, þriðju-
daginn 17. október, er
níræður Sveinbjörn
Ólafsson rennismíða-
meistari, Boðahlein 1,
Garðabæ (áður Álfa-
skeiði 30, Hafn-
arfirði). Af því tilefni
býður hann, eiginkona hans og börn til
veislu að Garðaholti, Garðabæ, frá kl.
16.30 á afmælisdaginn. Þætti þeim
vænt um að ættingjar og vinir gætu
komið og samfagnað þeim.
70ára afmæli. Ídag, 17. októ-
ber, er sjötugur Jónas
Ragnar Franzson, po-
olSSari nr. 3615 og
fyrrv. skipstjóri og
starfsmaður íþrótta-
mannvirkja Reykja-
nesbæjar. Jónas er
staddur á Harriott Hotel í Liverpool á
afmælisdaginn.
60ára afmæli. Ídag, 17. októ-
ber, er sextugur
Steinar Magnússon,
skipstjóri hjá Eim-
skip. Hann verður á
sjónum á afmælisdag-
inn.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569 1100 eða sent á
netfangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Fréttir um að um-ferðarteppa hafi
myndazt í Garðabæ
vegna opnunar nýrrar
verzlunar Ikea koma
Víkverja ekki á óvart.
Straumur bíla, fullra
af fólki sem vildi
skoða nýju búðina, lá
auðvitað suður eftir
Reykjanesbrautinni
alla helgina. Og eins
og allir vita hættir
Reykjanesbrautin að
vera tvöföld við
Smáralind og breytist
í venjulegan þjóðveg.
Þarna er umferð-
arteppa flesta daga,
jafnvel þótt ekkert standi til. Vík-
verja kemur talsvert á óvart að
ekki skuli hafa verið lögð meiri
áherzla á að ljúka tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar frá Fífu-
hvammsvegi og suður í Kaplakrika
áður en Ikea-búðin var opnuð. En
eitthvað rámar hann líka í að sama
fólkið og gaf leyfi fyrir Ikea-
höllinni hafi frestað því að gefa út
framkvæmdaleyfi vegna breikkunar
vegarins. Þar á Víkverji við bæj-
arstjórn Garðabæjar.
x x x
Þegar Reykjanesbrautin verðurorðin tvíbreið suður í Kapla-
krika og líka búið að klára tvöföld-
unina frá suðurbæ
Hafnarfjarðar og suð-
ur á Keflavík-
urflugvöll, verður
gaman að lifa. Leiðin
alla leið úr miðborg
Reykjavíkur og suður
á flugvöll, um Sæ-
braut og Reykjanes-
braut, verður þá orðin
tiltölulega greið.
Helztu farartálmarnir
verða þá líklega
hringtorgin í Hafn-
arfirðinum. Þegar
þessi samgöngubót
verður komin í gagnið
finnst Víkverja lítið
mál að færa innan-
landsflugið af Reykjavíkurflugvelli
og suður í Keflavík.
x x x
Hafa menn tekið eftir því hvaðBenedikt XVI páfi er miklu
glysgjarnari en forveri hans, Jó-
hannes Páll II? Páfinn hefur
greinilega gaman af skrautlegum
kápum og höklum, en rauðu skórn-
ir, sem sjást á mynd af hans heil-
agleika í Morgunblaðinu í gær, slá
allt annað út.
Það hlýtur að vera gaman að
vera páfinn og mega fara í allar
þessar flottu múnderingar án þess
að hafa áhyggjur af því hvað fólki
finnst.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er þriðjudagur
17. október, 290. dagur
ársins 2006.
Orð dagsins: „Á þeim degi munuð þér skilja, að ég
er í föður mínum og þér í mér og ég í yður.“
(Jóh. 14, 20.)
DJÖFULLINN gengur í Prada er
ein af fjölmörgum Hollywood-
gamanmyndum sem lofa einstaklega
góðu í upphafi en verða síðan bensín-
lausar og/eða fara á sjálfstýringu það
sem eftir er og þar með bróðurpart
ferðarinnar. Vandamálið er þá gjarn-
an það að umræddar myndir leggja
upp með ögrandi og frumlega hug-
mynd, sem síðan er afvopnuð spiluð
út samkvæmt einni af hinum fjöl-
mörgu fyrirfram mótuðu forskriftum
vinsældamiðaðra Hollywood-
kvikmyndagreina. Í Djöfullinn geng-
ur í Prada liggur leiðin beint inn í
formgerð hins sígilda Öskubusk-
uminnis, nema að hér er prinsinum
sleppt og ballkjóllinn og glerskórnir
verða meginmarkmiðið. Myndin er
reyndar svo lánsöm að hafa leikkon-
una Meryl Streep innanborðs, sem er
endalaus uppspretta snilldartakta í
túlkun persónu sinnar, en án Streeps
væri takmarkað varið í restina.
Í myndinni, sem byggð er á sam-
nefndri metsölubók eftir Lauren
Weisberger, segir af ungri og metn-
aðarfullri blaðakonu, Andy Sachs
(Anne Hathaway), sem þiggur starf
sem aðstoðarkona Miröndu Priestly
(Meryl Streep) frægs ritstjóra tísku-
tímaritsins Runway. Persóna Mi-
röndu mun fela í sér skírskotun til
tískudrottingarinnar Anna Wintour
sem ritstýrir tímaritinu Vogue, en
bókina byggði höfundur á reynslu
Öskubuska í Prada
KVIKMYNDIR
Borgarbíó, Laugarásbíó, Regn-
boginn og Smárabíó
Leikstjórn: David Frankel. Aðalhlutverk:
Meryl Streep, Anne Hathaway, Stanley
Tucci, Emily Blunt og Adrian Grenier.
Bandaríkin, 109 mín.
Djöfullinn gengur í Prada
(The Devil Wears Prada)
The Devil Wears Prada „Myndin er svo lánsöm að hafa Streep innanborðs,
sem er endalaus uppspretta snilldartakta í túlkun persónu sinnar.“