Morgunblaðið - 17.10.2006, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2006 49
/ KEFLAVÍK
JACKASS 2 kl. 8 - 10:10 B.i. 12
BEERFEST kl. 8 B.i. 12
HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16
ATH! ENGIR ÞJÓÐVERJAR VORU
SKAÐAÐIR EÐA MEIDDIR Á MEÐAN
TÖKUM MYNDARINNAR STÓÐ.
eee
EMPIRE
/ ÁLFABAKKI
JACKASS NUMBER TWO kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 12.ára.
JACKASS NUMBER TWO VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
THE THIEF LORD kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ
WORLD TRADE CENTER kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12.ára.
BEERFEST kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12.ára
NACHO LIBRE kl. 10:10 B.i. 7.ára.
BÖRN kl. 8 B.i.12.ára.
STEP UP kl. 5:50 - 10:10 B.i. 7.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
/ AKUREYRI
JACKASS 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12
THE THIEF LORD kl. 6 - 8 LEYFÐ
WORLD TRADE... kl. 10 B.i. 12
Frábær ævintýra-
mynd fyrir alla
fjölskylduna
Biluð
skemmtun!
NELGDI FYRSTA
SÆTIÐ ÞEGAR HÚN
VAR SÝND Í USA
FYRIR NOKKRU.
Jackass gaurarnir
JOHNNY KNOXVILLE
og STEVE-O
eru KOMNIR aftur,
bilaðri en
nokkru sinni fyrr!
Þú átt eftir
að skemmta
þér sjúklega
vel.
kvikmyndir.is
FRÁ HÖFUNDI „TRAINING DAY“ OG
„THE FAST AND THE FURIOUS“
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ
TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ
TAKA FYRSTA SPORIÐ. eeeE.B.G. Topp5.is
E.T. kvikmyndir.is
FRAMLEIDD AF TOM HANKS.
„the ant bully“
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
eee
LIB, Topp5.is
Munið afsláttinn
sinni af því að starfa í herbúðum
þessa leiðandi tískutímarits. Andy
þiggur eingöngu starfið í von um að
greiða sér í kjölfarið leið inn í það sem
hún álítur vera alvöru blaðamennsku
en hún hefur engan áhuga eða tilfinn-
ingu fyrir tísku líðandi stundar. Andy
sem sagt slysast inn í starfið og rekur
sig fljótlega á útlitstengda fyrirlitn-
ingu og ómennskar starfskröfur of-
urtískulöggunnar Miröndu. Meryl
Streep er frábær í hlutverki Miröndu
og fljúga margar óborganlegar línur
á milli hennar og starfsfólksins sem
hefur lagað sig að eiturbeittri tísku-
harðstjórn Miröndu. Fyrir Andy er
það annaðhvort að duga eða drepast
og með hjálp indæls aðstoðarritstjóra
sem er leikinn af þeim ágæta leikara
Stanley Tucci fær hún yfirhalningu
hvað föt, stíl og útlit varðar og verður
þar með gjaldgengur leikmaður í
glæstum heimi tískunnar. Þannig
tekst Andy ekki aðeins að þjóna Mi-
röndu og vinna hana á sitt band, held-
ur tekst henni líka að fara úr hinni
óviðsættanlegu fatastærð sex niður í
stærð fjögur. En með innvígslu Andy
í tískuheiminn lýkur átökunum milli
viðtekinna tísku- og útlitskrafna fyr-
irtækisins og annars konar lífsgilda
aðalsöguhetjunnar og eftir situr lítið
eftir en Öskubuskusagan góða, þar
sem sjálfsstyrking söguhetjunnar
felst í því að fá að eiga – ekki prinsinn
– heldur töfrakjólinn sem hvarf þegar
klukkan sló tólf.
Heiða Jóhannsdóttir
DRAUGAHÚSIÐ (Monster House)
er nýjasta viðbótin við þá bylgju há-
gæða þrívíddarteiknimyndagerðar
sem fyrirtækið Pixar lagði grunn-
inn að á tíunda áratugnum, og bar
höfuð og herðar yfir keppinauta
sína með lengi vel. Nú eru Pixar-
liðar þó ekki lengur einir um hituna
og eru þeir til sem gefa þeim ekkert
eftir í gæðum tölvuvinnslunnar.
Draugahúsið, sem leikstýrt er af Gil
Kennan, er dæmi um þetta, en þar
er sköpuð tilkomumikil sjónræn
veröld sem fer hreinlega á flug þeg-
ar draugahúsið, sem er miðja sög-
unnar, „lifnar við“. Í myndinni segir
frá hópi krakka sem hafa uppi stór
áform fyrir kvöldið, þar sem
hrekkjavökunóttin er við það að
bresta á, en hefðinni samkvæmt er
hrekkjavakan tilefni fyrir börn til
að ganga hús úr húsi og sníkja sæl-
gæti. Börnin óttast þó eitt ákveðið
hús í hverfinu en af íbúa þess, öldr-
uðum og geðvondum manni, fara
hryllilegar sögur. Barnahópinn tek-
ur þó að gruna að eitthvað jafnvel
enn skelfilegra kunni að leynast í
húsinu, þ.e. að húsið sjálft sé hættu-
legt, og reynist sá grunur á rökum
reistur. Þegar bæði fólk og hundar í
hverfinu taka að hverfa verður
börnunum ljóst að einhver þarf að
grípa í taumana. Þetta er snjöll
hugmynd og aðstandendur mynd-
arinnar gera sér far um að skapa
óhugnanlega stemningu í kringum
húsið, svo mjög að á stundum er
myndin nær því að vera hryllings-
mynd fyrir fullorðna en dæmigerð
barnamynd. Þetta er fyrsta mynd
leikstjórans Gils Kennans en fram-
leiðendurnir Robert Zemeckis og
Steven Spielberg, eru reyndir á
sviðinu enda hefur myndin einkar
faglegt yfirbragð. Tölvuvinnslan er
einkar lifandi og vel heppnuð, en
þar er beitt aðferð þar sem unnið er
með hreyfingar og svipbrigði raun-
verulegra leikara, en á stundum
finnst manni þó að meira púður fari
í tæknilega þáttinn en hugmynda-
vinnuna. Fyrir vikið skortir herslu-
muninn hvað ferskleika og frum-
leika sögunnar varðar.
Heiða Jóhannsdóttir
Óvenjuleg
hrekkjavökunótt
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Laug-
arásbíó og Borgarbíó
Leikstjóri: Gil Kennan. Upprunal. leik-
raddir: Mitchel Musso, Maggie Gyllen-
hal, Sam Lerner, Steve Buscemi o.fl.
Bandaríkin, 91 mín.
Draugahúsið (Monster House)
Draugahúsið Monsters House er þriggja stjörnu teiknimynd, að mati
Heiðu Jóhannsdóttur.
14.10.2006
2 8 16 22 34
4 2 1 3 4
8 5 8 5 5
23
11.10.2006
19 24 25 37 40 48
3641 43
Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni
Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík
Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn
K
R
A
FT
A
V
ER
K
MULTÍ VÍT inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni. Dagleg neysla byggir upp
og stuðlar að hreysti og góðri heilsu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Mættu snemma á stefnumót sem þú
átt í vændum, svo þú náir að átta þig á
aðstæðum í salnum sem þú ætlar að
leggja að fótum þér. Þetta á við hvort
sem um er að ræða fund, erindi eða
hanastél.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagur eins og þessi væri innantómur
ef ekki kæmi til náins samneytis við
fjölskylduna. En ef þínir nánustu eru í
jafnsmámunasömu skapi og þú ert
núna, er kannski best að tómleikinn
verði allsráðandi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn verður einstaklega árang-
ursríkur í vinnunni, ef þú hefur eitt í
huga: allir eiga rétt á því að hafa rangt
fyrir sér, en flestir myndu gera sig
ánægða ef þú stilltir þig um að benda
þeim á það.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er að reyna að ná færni í til-
teknu verkefni og kann svo sannarlega
að meta þá sem hafa náð fullkomnum
tökum á því. Bara það að þú skulir
bera kennsl á mikilleika gefur til
kynna að þú getir sjálfur náð þeim
hæðum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið hittir áhrifamikið fólk sem gæti
slegið það út af laginu í samræðum um
stund. Opin spurning sem byrjar á
hvað? gæti hjálpað boltanum að rúlla
af stað aftur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Auðveld afstaða himintunglanna kem-
ur meyjunni að góðum notum. Hún er
til í að sætta sig við hvað sem er og
byggja á þannig grunni. Það sem ger-
ist er meðtalið, í úrvalsflokki, minn-
isstætt og fyndið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin hefði hugsanlega látið koma
sér á óvart, en þar sem hún er að lesa
stjörnuspána sína veit hún að óvænta
gesti gæti borið að garði. Þú vilt sýn-
ast kæruleysislega fáguð þegar við-
komandi manneskja birtist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hvílík hamhleypa sem þú ert. Í þín-
um sólarhring eru 24 tímar eins og
hjá öllum öðrum en munurinn er sá,
að það sem þú gerir við þá lætur aðra
halda að þeir séu að minnsta kosti 36.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn þarf á ævintýri að
halda alveg eins og mat og vatni –
þau eru mikilvægur hluti af lífi þínu.
Þess vegna er líklega hættulegra að
forðast hættuna en að leggja allt í söl-
urnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fólk vill þekkja þig, vita hvað þú ert
að gera og hvernig það getur fengið
að taka þátt. Þessi vöntun virðist
ógna þörf þinni fyrir einveru og
huggun. Í stað þess að segja nei,
skaltu bíða og sjá hvernig þér líður á
morgun.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Að vera opinn er partur af þínum
yndislega persónuleika, en stundum
þarf maður að taka afgerandi afstöðu
og núna er sá tími. Gríptu utan um
hugrekki sannfæringar þinnar og
gættu þess að sleppa ekki.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn tengir fólk sem á eftir að
hafa gagn af kunningsskap hvað við
annað. Og hefur ánægju af því. Í
næstu viku gerir einhver þér sams
konar greiða.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Hið iðna tungl í meyju
hvetur mann til þess að
hætta ekki fyrr en búið er
að gá undir hverjum ein-
asta steini – en það er lík-
ing sem sögð er vera komin
frá véfréttinni í Delfí. Miklum hershöfð-
ingja sem leitaði að földum fjársjóði var
sagt að gera einmitt það, hann fór að ráð-
leggingum véfréttarinnar og fann fjár-
sjóðinn. Í dag getum við farið eins að.
Fréttir
á SMS