Morgunblaðið - 17.10.2006, Page 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 290. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðaustanátt,
10–18 m/s. Slydda
norðan- og aust-
anlands en annars
skýjað með köflum. Víða
vægt næturfrost. » 8
Heitast Kaldast
5°C 0°C
Morgunblaðið/Júlíus
KARLMAÐUR á sjötugsaldri lést í
bílslysi í Kjósarskarði á móts við
Þórufoss skömmu fyrir hádegi í gær.
Ekki er hægt að greina frá nafni
hins látna að svo stöddu.
Maðurinn var á ferð ásamt far-
þega þegar bíll hans lenti út af veg-
inum og var hann látinn þegar að var
komið. Lenti hann að hluta undir
bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu slapp farþegi í bifreiðinni
með lítilsháttar meiðsl.
Ekki er vitað hvað olli slysinu en
unnið er að rannsókn málsins, bæði
hjá lögreglu og Rannsóknarnefnd
umferðarslysa. Að sögn Ágústs
Mogensen, formanns RNU, er hugs-
anlegt að hvöss vindhviða hafi feykt
bílnum út af veginum en upplýst er
að mjög hvasst var á staðnum þegar
slysið varð. Ágúst tekur fram að
rannsókn sé á byrjunarstigi en svo
virðist sem hinn látni hafi ekki verið
í bílbelti.
Banaslys orðin 22 á þessu ári
Þetta er 22. banaslysið í umferð-
inni hérlendis á þessu ári. Gríðarleg
slysahrina varð í sumar en í byrjun
ágústmánaðar höfðu níu manns lát-
ist í umferðarslysum það sem af var
árinu. Hrinan sem kom í kjölfarið á
vart sinn líka en í einni og sömu vik-
unni um miðbik ágústmánaðar létust
þrír einstaklingar í bílslysum.
Eitt versta slysaárið sem komið
hefur í seinni tíð var árið 2000 þegar
33 manns létust en árið 1977 létust
37 manns og hafa aldrei fleiri látist
hérlendis á einu ári í umferðinni.
Banaslys á Kjós-
arskarðsvegi
Slys Jeppabifreiðin hafnaði á þakinu og var ökumaður látinn er að var
komið. Grunur er um að hvöss vindhviða hafi feykt bílnum út fyrir veginn.
Ökumaðurinn lést en farþegi slapp
VEÐURFAR nú síðustu daga fyrir fyrsta vetrardag
virðist ætla að verða samkvæmt bókinni því varla
var októbermánuður hálfnaður er fór að kólna
rækilega. Esjan varð hrímhvít á einni nóttu, það
hemaði á pollum og gulnað lauf fauk um loftið.
Holtavörðuheiðin varð erfið og heiðavegir norðvest-
anlands ófærir sumir hverjir. Hetturnar dregur
mannfólkið niður í augu og ungir sem aldnir setja
upp húfurnar.
Áfram er spáð kulda og norðanáttum út vikuna.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vetur óðum að leggjast að
DÓTTURFÉLAG Eignarhaldsfél-
agsins Samvinnutrygginga, Lang-
flug, verður stærsti hluthafinn í Ice-
landair Group eftir sölu FL Group á
félaginu, en Langflug hefur keypt
32% hlut í Icelandair. Aðrir kaupend-
ur eru Naust ehf., dótturfélag BNT
hf., sem á Olíufélagið og Bílanaust, og
Blue-Sky Transport Holding.
Að sögn Axels Gíslasonar, fram-
kvæmdastjóra Eignarhaldsfélagsins
Samvinnutrygginga, eru kaupin í Ice-
landair þáttur í þeirri stefnu að dreifa
fjárfestingaráhættu félagsins. Segir
hann Langflug nú að langstærstum
hluta í eigu Samvinnutrygginga, en til
greina komi að fleiri aðilar gangi inn í
félagið þegar fram líða stundir.
Naust mun eiga 11,1% í Icelandair
og Blue-Sky mun eiga 7,4%. Aðaleig-
endur BNT eru Benedikt Sveinsson,
fyrrverandi stjórnarformaður Eim-
skipafélagsins, og bróðir hans, Einar
Sveinsson, stjórnarformaður Glitnis.
Aðaleigandi Blue-Sky er Ómar Bene-
diktsson. Eigendur Samvinnutrygg-
inga eru hins vegar ákveðinn hópur
fyrrverandi viðskiptavina trygginga-
félagsins Samvinnutrygginga og
sjálfseignarsjóðurinn
Samvinnutryggingasjóðurinn.
Samvinnutryggingar
ráða 32% í Icelandair
Þrjú félög | 14
FULLYRÐA má að 7. júlí næstkomandi
verði vægast sagt dagur brúðkaupanna ef
marka má ásókn para í að giftast þennan
dag. Svo skemmtilega vill til að 7. júlí ber
upp á laugardag sem er langvinsælasti dag-
urinn fyrir íslensk brúðkaup og rúsínan í
pylsuendanum er að sjálfsögðu ártalið og
mánuðurinn. Að öllu þessu virtu má sjá að
hér er komin dagsetningin 07.07.07. Prestar
hafa vart undan við að bóka brúðkaup þenn-
an dag og nú þegar er sr. Vigfús Þór Árna-
son, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, pant-
aður í sjö hjónavígslur og getur vart tekið
fleiri að sér, nema þá að kvöldi til eða um
morguninn.
Í fyrra þegar dagur, mánuður og ár mynd-
uðu talnamynstrið 06.06.06 fór varla fyrir
annarri eins giftingahrinu enda bar 6. júní
upp á þriðjudag og fátt um giftingar á virk-
um dögum.
Fara þarf aftur til ársins 2003 til að fá
talnamynstrið 03.03.03 til að bera upp á laug-
ardag og þá var talsvert um hjónavígslur hjá
Vigfúsi Þór. Og ljóst er að hinn 07.07.07 mun
hann leyfa óvenju mörgum brúðgumanum að
kyssa brúðina. „Þetta er náttúrlega skemmti-
leg tala en ég áttaði mig ekki á því þegar sá
fyrsti hringdi,“ segir hann og bætir við að sú
bókun hafi komið síðla árs 2005.
Sr. Vigfús mun gefa saman hjón hér og
þar á höfuðborgarsvæðinu þar á meðal í
sóknarkirkju sinni, Grafarvogskirkju.
Vilja endilega þennan dag
„Hjónaefni eru ekkert að leyna því að þau
vilja endilega gifta sig á þessum degi,“ segir
sr. Vigfús Þór og bendir á að starfsbræður
sínir í prestastétt séu komnir með mörg
brúðkaup á þeim skemmtilega degi 07.07.07.
En hann neitar því ekki það sé býsna löng
lota fyrir einn prest að annast 6–7 hjóna-
vígslur á einum og sama deginum. Pör hafa
verið að panta brúðkaup hjá sr. Vigfúsi jafnt
og þétt í sumar og hann telur ekki ólíklegt að
fleiri muni taka við sér í framhaldinu.
„Auk þess sem 7. júlí ber upp á laugardag
er talan 7 heilög tala þannig að þetta er dálít-
ið skemmtilegt.“
Þetta verður í annað sinn á þessari öld sem
samstætt talnamynstur lendir á laugardegi,
en fyrsta skiptið var árið 2003 eins og að
framan gat. Samstæð talnamynstur næstu
árin koma ekki á laugardegi og því verða
þeir sem vilja gifta sig 08.08.08 að láta pússa
sig saman á föstudegi. Fyrir 09.09.09 yrði
það miðvikudagur og 10.10.10 sunnudagur.
Þeir sem vilja síðan láta gifta sig 11.11.11
verða að velja föstudag og loks kemur
12.12.12 á miðvikudegi. Þrettándi mánuður-
inn er enn ekki kominn fram á sjónarsviðið
og það bíður því næstu kynslóða að velja
laugardag á samstæðu mynstri á næstu öld.
07.07.07 langvinsælasti giftingardagurinn
Morgunblaðið/ÞÖK
Annir Sr. Vigfús Þór Árnason mun hafa nóg
að gera 7. júlí á því herrans ári 2007.
Í HNOTSKURN
»Verðandi brúðhjón hafa sum hverpantað hina skemmtilegu dagsetn-
ingu 07.07.07 með meira en árs fyr-
irvara. Prestar sjá fram á langa lotu af
hjónavígslum þennan dag.
»Talan sjö er heilög tala og má þvíætla að pörum þyki það afar eft-
irsóknarvert að láta gefa sig saman 7.
júlí næstkomandi.
»Síðasti sambærilegi hefðbundnigiftingardagurinn var í mars 2003.
Séra Vigfús Þór Árnason sóknarprestur annar vart bókunum fyrir pör laugardaginn 7. júlí 2007
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is