Morgunblaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006 29
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | „Ég hef verið
mikið í veiði. Ljósmyndunin er
mjög lík. Maður fer út í náttúruna,
reynir að veiða eitthvað og kemur
svo heim með aflann til að gera að
honum og vinna úr,“ segir Olgeir
Andrésson, félagi í Ljósopi, félagi
áhugaljósmyndara á Suðurnesjum.
Þótt félagið sé nýlega tekið til
starfa er það með öfluga starfsemi
og nú stendur þriðja sýning félags-
ins yfir.
Ljósop var stofnað í upphafi
þessa árs af nokkrum áhugamönn-
um. Félagsmenn eru nú orðnir yfir
fjörutíu og fer fjölgandi að sögn
Ljósopsfélaganna Olgeirs og Jó-
hanns Hannessonar. Félagsmenn
eru á ýmsum stigum ljósmyndun-
ar, byrjendur og lengra komnir.
Aðstaða í Félagsbíói
Félagið hefur aðstöðu til bráða-
birgða í Félagsbíói í Keflavík. Þar
hafa félagsmenn komið upp
myrkrakompu og myndveri til eig-
in nota, auk þess sem aðstaða er til
að halda fundi og sýningar. Spari-
sjóðurinn í Keflavík á húsið og til
stendur að gera á því miklar breyt-
ingar en félagið hefur aðstöðuna á
meðan.
Ljósop er aðili að Tómstunda-
bandalagi Reykjanesbæjar og hef-
ur gert samstarfssamning við
Reykjanesbæ. Félagið fær ákveð-
inn stuðning frá bænum gegn því
að kynna ljósmyndun í skólum og
víðar. Einnig er kveðið á um að fé-
lagið haldi opinberar sýningar
tvisvar á ári. Félagið hefur gert
gott betur því nú stendur yfir
þriðja sýning félagsins á þessu
fyrsta ári sem það starfar.
Sýningin í Félagsbíói nefnist
„Sjö bananar og þrjár sítrónur“ og
hún er opin frá 18 til 22 í dag en frá
13 til 22 um helgina. Sýningunni
lýkur á sunnudag. Níu félagsmenn
sýna og kemur greinilega fram
hvað félagsmenn fást við ólík við-
fangsefni.
Lengi með ljósmyndadellu
Olgeir og Jóhann hafa nokkuð
ólíkan bakgrunn í ljósmyndun og
eru að fást við ólíka hluti. Jóhann,
sem starfar í Fríhöfninni á Kefla-
víkurfluvelli, að sjálfsögðu við að
selja myndavélar, hefur myndað
frá fermingu en tók til við þetta
verkefni fyrir alvöru fyrir tólf ár-
um þegar að hann gekk í ljós-
myndaklúbb í Verkmenntaskólan-
um á Akureyri. Eftir það keypti
hann sér tæki til framköllunar á
filmum og stækkunar mynda og
eyddi miklum tíma þar. Hann
stundaði nám við Kvikmyndaskóla
Íslands og síðar fjarnám við ljós-
myndaskóla í New York (NYI) og
segist hafa lært mikið á báðum
stöðum.
Með elju og áhuga
Olgeir sem vinnur hjá Flugþjón-
ustunni á Keflavíkurflugvelli hefur
aðeins stundað ljósmyndun í fjór-
tán mánuði en hefur náð eftirtekt-
arverðum áhuga á þessum stutta
tíma. Hann hefur selt myndir víða
um heim í gegn um myndasíðu
sína og varð þriðji í veðurmynda-
keppni NFS. „Ég hef stundað
þetta með elju og áhuga, fyrst og
fremst landslagsmyndatökur. Ég
hef alltaf haft áhuga á kvikmynda-
gerð og ljósmyndunin er í raun
næsti bær við. Með stafrænu
tækninni er orðið miklu ódýrara og
aðgengilegra að fást við þetta,“
segir Olgeir.
„Það er ánægjan og útiveran og
svo það að geta sýnt öðrum mynd-
irnar,“ segir Olgeir þegar hann er
spurður að því hvað hann fái út úr
þessu áhugamáli sínu.
Hættur að vera spéhræddur
Jóhann hefur mestan áhuga á að
taka ljósmyndir af fólki en hefur
fiktað við margt annað eins og
hann segir sjálfur og raunar má
sjá á sýningunni í Félagsbíói. „Ég
tók bara myndir fyrir sjálfan mig
og vildi aldrei sýna neinum. Ég var
svo spéhræddur. Ég sýndi í fyrsta
skipti öðru fólki myndir í vor, á
fyrstu ljósmyndasýningu Ljósops,
og nú er ég kominn með síðu á net-
inu þar sem ég set allskonar
myndir inn,“ segir Jóhann.
Ljósopsfélagar halda þriðju ljósmyndasýninguna á fyrsta starfsári sínu
Ljósmyndun er eins og veiði
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
„Tveir bananar“ Olgeir Andrésson og Jóhann Hannesson hafa báðir
brennandi áhuga á ljósmyndun en myndir þeirra eru afar ólíkar.
Í HNOTSKURN
»Ljósop hefur byggt upp öfl-ugt starf á sínu fyrsta
starfsári. Félagið hefur góða
félagsaðstöðu í Félagsbíói í
Keflavík.
»Fjörutíu áhugaljósmynd-arar á Suðurnesjum eru í
félaginu og félagsmönnum fer
fjölgandi. Félagið er opið og
eru félagsmenn á mismunandi
stigum í ljósmyndun.
»„Sex bananar og þrjár sítr-ónur“ sýna á þriðju ljós-
myndasýningu Ljósops sem
lýkur um helgina.
ÞRJÚ minnstu sveitarfélögin á Suð-
urnesjum undirbúa stofnun sameig-
inlegrar félagsþjónustu fyrir Sandgerð-
isbæ, Sveitarfélagið Garð og
Sveitarfélagið Voga.
Sveitarfélögin þrjú hafa í tvö ár verið
með sameiginlega barnaverndarnefnd og
hefur Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar
annast þjónustu við barnavernd á öllu
svæðinu. Á síðasta ári varð samstarfið víð-
tækara með því að Félagsþjónusta Sand-
gerðis annaðist félagsþjónustu í hinum
sveitarfélögunum, gegn greiðslu.
Gyða Hjartardóttir, félagsmálastjóri í
Sandgerði, segir að samvinna sveitarfé-
laganna að barnaverndarmálum hafi
gengið vel og það sé grunnurinn að því
nýja skrefi sem nú sé stigið. Sveitarfélögin
þrjú muni í sameiningu reka félagsþjón-
ustu fyrir öll sveitarfélögin. Til að byrja
með verði þó áfram þrjú félagsmálaráð.
Tveir félagsráðgjafar munu annast
þjónustuna. Þeir hafa aðstöðu í ráðhúsinu
í Sandgerði og einnig fasta viðtalstíma í
Vogum.
Sameiginleg fé-
lagsþjónusta fyrir
þrjú bæjarfélög
Reykjanesbær | Auglýstar hafa verið til
umsóknar sjávarlóðir við Brekadal í Dals-
hverfi í Reykjanesbæ. Annars vegar er um
að ræða sjö stórar einbýlishúsalóðir við
sjávarsíðuna þar sem einstaklingar hafa
forgang við úthlutun. Hins vegar er um að
ræða þrjár lóðir þar sem gert er ráð fyrir
fjórum húsum á hverri lóð. Þeim verður
úthlutað til lögaðila. Fram kemur á vef
Reykjanesbæjar að einstaklingur og lög-
aðili geti aðeins sótt um eina lóð. Umsókn-
arfrestur er til 3. janúar næstkomandi.
Hver einbýlishúsalóð kostar 7 milljónir
og lóð undir hvert hús á verktakareit-
unum kostar 4,5 milljónir. Allar lóðirnar
eru byggingarhæfar.
Auglýsa úthlutun
á sjávarlóðum
Vegur um Hólmaháls | Vegagerð-
in fyrirhugar að endurbyggja Norð-
fjarðarveg, um Hólmaháls á milli
Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Nú-
verandi vegur þykir heldur mjór og
hlykkjóttur með bröttum brekkum.
Endurgera á 5,1 km langan kafla.
Byggður verður nýr vegur utan veg-
svæðis núverandi vegar, nema til
endanna þar sem vegurinn tengist
aftur inn á núverandi Norðfjarð-
arveg og þar sem vegurinn þverar
núverandi veg í Hólmahálsi Reyð-
arfjarðarmegin. Áætlað er að vega-
framkvæmdirnar hefjist árið 2008
og ljúki innan árs.
Djúpivogur | Það sem af er desem-
ber hefur oft verið einkar fallegt
veður á Djúpavogi og stjörnum prýtt
himinhvolfið leikið við sjáöldur íbú-
anna. Norðurljós hafa logað skært,
dansað innan um skýin og myndað
skemmtileg og litrík ljósbrot.
Fréttaritari Morgunblaðsins kom
sér í kvöldrökkrinu fyrir í gamalli,
upphlaðinni fjárrétt við Miðmorg-
unsþúfu á Djúpavogi og fylgdist með
tifandi slæðum og ljósbogum brjót-
ast úr skýjum. Búlandstindurinn
fylgdist sótsvartur með himinflögr-
inu og auðvitað án þess að haggast.
Djúpavogsbúar eru búnir að
tendra ljós á sínu jólatré eins og aðr-
ir þéttbýlisbúar og stendur það
venju samkvæmt á túni ofan við vog-
inn og blasir þar við þorpsbúum.
Litslæður og ljósbogar dansa við skýin
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Unnið án slysa | Bechtel, sem
byggir álver Alcoa Fjarðaáls, held-
ur jafnan upp á þegar áfangar nást
í slysalausum dögum.
Í byrjun mánaðarins náðist það
takmark í Fjarðaálsverkefninu að
vinna þrjár milljónir vinnustunda
án slysa sem leiða til vinnutaps,
þ.e. án þess að slys hafi hlotist af
þar sem starfsmaður gat ekki mætt
til vinnu á næstu vakt.
Segir Björn S. Lárusson, fram-
kvæmdastjóri samfélagssamskipta
hjá Bechtel, þennan góða árangur
slá öll met og vera langt umfram
það í slysalausum dögum við sam-
bærileg verkefni á Íslandi.
Markmið verkefnisins hafi ætíð
verið að engin slys verði. Það
markmið krefjist góðs skipulags,
þróunar öryggisregla, þjálfunar,
góðrar verkkunnáttu og réttra við-
horfa en síðast en ekki síst frábærs
starfsfólks.
Bechtel fagnar áfanganum í
Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðar-
firði á morgun, laugardag, kl. 14–-
16.
Reyðarfjörður | Á dögunum voru
formlega teknar í notkun nýbygg-
ingar við Grunnskóla Reyð-
arfjarðar og Leikskólann Lyngholt.
Nýbygging grunnskólans er 2164
m2 að stærð en eldri byggingar
voru 1100 m2 og hafa allar verið
endurnýjaðar. Í nýbyggingunni er
m.a. fjölnota salur sem nýtist sem
mötuneyti, leikhús, tónleikasalur
og einnig til dansleikja og ráð-
stefnuhalds. Sérgreinar hafa fengið
sitt rými; skólaeldhús, mynd- og
handmenntastofur, raungreina-
stofa, tölvuver, listasmiðja, skóla-
sel, sjóvinnustofa, vélsmiðja þar
sem samstarf hefur verið við verk-
stæði G. Skúlason og smíðuðu 10.
bekkingar eftir eigin hönnun for-
láta jólatré með blikkljósi.
Tónlistarskóli Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar fær 160 m2 húsnæði
sérhannað til tónlistarkennslu og
einnig hefur tónlistarskólinn afnot
af fjölnota salnum og öðru rými í
húsinu eftir þörfum. Bókasafn
Reyðarfjarðar fær aðsetur á jarð-
hæð hússins á 275 m2 þar sem góð
aðstaða er til lestrar og náms. Leik-
skólinn Lyngholt tók í notkun 400
m2 nýbyggingu en fyrir var 270 m2
bygging sem hefur verið endurnýj-
uð. Nú eru 4 deildir fyrir 92 börn í
leikskólanum og bættist við lista-
smiðja og starfsmannaaðstaða.
Aðstöðubylting
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Nýtt Glæsileg skólamannvirki hafa
verið vígð á Reyðarfirði. Grunn-
skólinn er í forgrunni.
AUSTURLAND