Morgunblaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 31
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006 31
O
kkur finnst svo frábært að geta
orðið að einhverju liði með þessu,
næg er víst þörfin. Það er góð til-
finning að vita af flíkunum sem
við prjónum koma að notum og
verma lítil börn sem búa við erfiðar aðstæður
víða um heim. Svo er félagsskapurinn
skemmtilegur, það er gaman að koma svona
saman, prjóna, spjalla, drekka kaffi og gæða
okkur á einhverju góðu meðlæti,“ segja kon-
urnar sem eru í sjálfboðaliðastarfi hjá Reykja-
víkurdeild Rauða krossins og tilheyra prjóna-
hópi sem hittist einu sinni í viku í húsnæði RKÍ
og prjóna þar flíkur úr afgöngum.
„Við komum hingað til að skila af okkur og
ná okkur í meira garn, því við prjónum lang-
mest af þessu heima hjá okkur.“
Sú elsta í hópnum er komin yfir nírætt en sú
yngsta er á fertugsaldri en allar eiga þær það
sameiginlegt að hafa gaman að því að prjóna
og hekla og sumar hafa líka unnið við það og
hafa áratuga reynslu. „Jú, ég er búin að vera
með prjónana í höndunum frá því ég var sjö
ára gömul, svo þetta eru orðnar ansi margar
flíkur yfir ævina,“ segir ein þeirra sem er held-
ur betur vinnuglöð, rétt eins og allar hinar.
Garnafgangar vel þegnir
Prjónahópurinn byrjaði sem tilraunaverk-
efni fyrir sex árum hjá RKÍ og hefur starfað
óslitið síðan þá. Allt sem þær búa til er gert úr
afgöngum sem þær fá frá heimilum úti í bæ, til
dæmis þegar fólk tekur til í geymslunni hjá sér
eða þegar búferlaflutningar bresta á. Eins fá
þær oft garn úr dánarbúum og stundum fá
þær líka hálfprjónaðar flíkur. „Þá er gaman að
klára þær og stundum verður til pils úr því
sem átti að verða peysa. Við höfum stundum
haldið að hópurinn þurfi að hætta, því við verð-
um oft nánast uppiskroppa með garn, en það
er svo merkilegt að þá berst okkur alltaf
óvænt ný sending.“
Þessar konur verða sífellt færari í því að búa
til flíkur úr nánast engu. Hver flík er því oft úr
mörgum tegundum og litum garns, sem gerir
þær óvenju litríkar og skemmtilegar. Prjóna-
konurnar þurfa ekki lengur uppskriftir heldur
spinna af fingrum fram og leyfa sköpunargáf-
unni að njóta sín.
Þær hvetja alla sem vettlingi geta valdið,
bæði konur og karla, til að ganga til liðs við
sjálfboðahópinn og leggja sitt af mörkum. Eins
hvetja þær alla sem eiga garnafganga til að
koma þeim í Rauða krossinn, svo þær geti
haldið áfram að prjóna til góðs.
Sumt af því sem konurnar prjóna er selt í
Rauðakrossbúðinni á Laugavegi 12 en annað
er sent til bágstaddra í útlöndum, sérstaklega
barna og þá helst munaðarlausra barna og
gjarnan til landa þar sem kuldinn herjar á
mannfólkið.
Fingrafimar konur prjóna til góðs
Morgunblaðið/Kristinn
Þær telja ekki eftir sér ótal
handtök til að framleiða hlýjar
flíkur fyrir þá sem minna mega
sín. Kristín Heiða Kristinsdóttir
heimsótti konurnar sem eru í
prjónahópi RKÍ.
Teppi Þær eru ekki síður liðtækar konurnar
með heklunálinu en prjónana.
Handbragð Þau eru örugg handtökin þegar
prjónarnir leika í höndum þeirra.
Litríkir Vettlingar og húfur í öllum regnbog-
ans litum eru meðal afraksturins.
Sjálfboðaliðar Þær njóta þess að koma saman konurnar í prjónahópnum og spjalla og prjóna.