Morgunblaðið - 07.01.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 6. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
EITT HÖFUÐ
TVÍHÖFÐA SNILLD SNÝR AFTUR MEÐ
SMÁSÁLIR OG GAMLA GESTI >> 57
STEINUNNI ÓLÍNU
ER ORÐU VANT
ORÐULEIKUR
UMORÐAÐ ÁR >> 34
Bagdad. AP. | Íraskar hersveitir hófu
um helgina árásir á skæruliða úr
röðum súnníta og á vígamenn úr
dauðasveitum sjíta í Bagdad, að því
er ráðgjafar Nuri al-Maliki forsætis-
ráðherra fullyrtu í gær. Aðgerðirnar
njóta stuðnings Bandaríkjahers en
þær eru fyrsta skrefið í nýrri áætlun
bandarískra stjórnvalda um að binda
enda á linnulaust ofbeldið í landinu.
Sveitirnar munu fara hverfi úr
hverfi og elta uppi grunaða liðsmenn
þessara hópa en reiknað er með að
George W. Bush Bandaríkjaforseti
muni kynna nýja stefnu stjórnar
sinnar í Írak á næstu dögum.
Að sögn talsmanna Malikis, sem
hótaði í gær að endurskoða tengsl
við ríki sem gagnrýndu aftökuna á
Saddam Hussein, er hann ekki viss
um ágæti þess að fjölga í liði Banda-
ríkjahers í Írak en fyrir helgi mót-
mæltu leiðtogar demókrata á Banda-
ríkjaþingi slíkum hugmyndum.
Þá hefur blaðið Los Angeles Tim-
es eftir heimildarmönnum sínum, að
ráðgjafar Bush telji að nauðsynlegt
sé að uppbygging heraflans vari
lengur en í 18 mánuði, annars sé hún
dæmd til að mistakast.
Árásir á
vígamenn
í Bagdad
Íraksstjórn boðar
öfluga gagnsókn
PEREZ Hilton er oft fyrstur með
fréttirnar á slúðurbloggsíðu sinni.
3,5 milljónir manna lesa á hverjum
degi það sem hann hefur að segja
um Lindsay Lohan, Nicole Richie,
Brad Pitt, átrúnaðargoðið Paris
Hilton og alla hina. Hann skrifar
einn á PerezHilton.com en til þess
að afla frétta mætir hann í allt að
þrjú samkvæmi á kvöldi, eins og
fram kemur í viðtali hans við Morg-
unblaðið í dag. Lífið hjá honum er
þó ekki bara partí því hann sefur
einungis fjóra til fimm tíma á nóttu
og er byrjaður að vinna fyrir klukk-
an sex á morgnana. Fyrir rúmu ári
var hann gjaldþrota en nú þénar
hann milljónir á því að skrifa fyrir
milljónir slúðurþyrsts fólks. | 24
Slúðursamloka Perez á milli systr-
anna Nicky og Parisar Hilton.
Milljóna-
bloggari í
Hollywood
ÞESSIR hraustu Búlgarar létu ekki kuldann á
sig fá þegar þeir héldu hver um annan í hring og
dönsuðu í ísköldu vatninu í tilefni þess að haldið
var upp á þrettándann þar í landi í gær.
Trommuleikari hafði ofan af fyrir þeim fjöl-
mörgu gestum sem fylgdust með af bakka árinn-
ar, sem er í bænum Kalofer, um 150 kílómetra
austur af höfuðborginni Sofíu.
Þótt Vetur konungur ráði nú ríkjum í Búlg-
aríu eru flestir íbúa landsins í sólskinsskapi enda
er almenn ánægja meðal Búlgara vegna inn-
göngu landsins í Evrópusambandið á nýársdag.
Það sama er upp á teningnum í Rúmeníu sem
einnig gekk í sambandið þegar klukkan sló á
miðnætti á gamlársdag en ekki fylgdi sögunni
hvort Rúmenar voru jafnduglegir og frændur
þeirra við að halda upp á þrettándann með því að
storka veðurguðunum á þennan óvenjulega hátt.
Reuters
Dansað á þrettándanum í ísköldu vatninu
HUNDAR í Bandaríkjunum sem
eiga í sálarstríði sökum offitu hafa
ástæðu til að gleðjast, sérhönnuð
megrunarpilla fyrir fjórfætlingana
er væntanleg innan tíðar. Undralyf-
ið, sem ber heitið Slentrol, var sam-
þykkt af bandaríska lyfja- og mat-
vælaeftirlitinu, FDA, en lyfjarisinn
Pfizer annast markaðssetningu.
Meginvirkni Slentrol er að draga
úr matarlyst og fituupptöku hunda,
sem eru sagðir eiga við offitu að
stríða þegar líkamsþyngdin er 20
prósent yfir kjörþyngd.
Hundaræktunarstjarnan David
Reinecker, sem m.a. þjálfar tvo
hunda Arnolds Schwarzeneggers,
ríkisstjóra Kaliforníu, segir lyfið út
í hött, betra sé að þjálfa dýrin.
Allt að 30 prósent 62 milljóna
hunda vestra eru talin of þung en
fimm prósent þjást af offitu.
Megrunarpilla
fyrir hunda
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
ÁHUGI er í Færeyjum á að kanna
hagkvæmni þess að leggja raf-
streng frá Íslandi. Verið er að
leggja lokahönd á forathugunar-
skýrslu og reiknar Þorkell Helga-
son orkumálastjóri með að í henni
verði mælt með því að lagðir verði
fjármunir í að kanna þetta verkefni
frekar.
Færeyska útvarpið hefur fjallað
um þetta verkefni og kom þar fram
að tæknilega væri ekkert því til fyr-
irstöðu að leggja rafstreng milli Ís-
lands og Færeyja og það væri einn-
ig hægt að leysa það fjárhagslega.
Færeyingar nota árlega 250–300
GWst af rafmagni, en til saman-
burðar er notkunin á Íslandi 8.500
GWst. Um 70–100 GWst eru fram-
leiddar með vatnsorku, en afgang-
urinn er framleiddur með dísilraf-
stöðvum og vindmyllum. Mikil
hækkun á olíuverði hefur leitt til
aukins áhuga Færeyinga á öðrum
lausnum í orkumálum. Þorkell
Helgason sagði að í kjölfar heim-
sóknar Halldórs Ásgrímssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra, til
Færeyja í fyrra hefði verið ákveðið
að setja af stað könnun á hag-
kvæmni þess að leggja rafstreng
milli Íslands og Færeyja. Verið er
að leggja lokahönd á forathugunar-
skýrslu um málið. Þorkell sagði að
næsta skref í málinu væri að taka
ákvörðun um hvort leggja ætti fjár-
muni í ítarlegri faglega könnun á
þessu verkefni.
Stærri raforkumarkaður
í Færeyjum mögulegur
„Ég reikna fastlega með því, þó
að það eigi eftir að ganga formlega
frá því, að það verði lagt til að
halda þessu áfram,“ sagði Þorkell.
Þó að raforkumarkaðurinn í
Færeyjum sé ekki stór væri hægt
að stækka hann frekar með því að
hita upp vatn sem notað yrði til
húshitunar. Þar myndu um 100
MW bætast við þau 40–50 MW sem
nú eru framleidd með olíu. Þorkell
sagði að athugun benti hins vegar
til þess að það væri ekki hagkvæmt
að nota rafmagn frá Íslandi til hús-
hitunar, nema verð á olíu hækkaði
enn meira.
Áhugi í Færeyjum á raf-
orkukaupum frá Íslandi
Könnunarskýrsla um lagningu sæstrengs að verða tilbúin
Í HNOTSKURN
» Rafstrengur milli Færeyjaog Íslands, sem yrði lagð-
ur frá Austurlandi, yrði um
450 km langur.
» Kostnaður við lagningurafstrengs til Færeyja er
líklega um 30 milljarðar
króna.
» Frumkvæði að málinukom frá Færeyjum en
Orkustofnun hefur unnið að
málinu fyrir hönd Íslands.