Morgunblaðið - 07.01.2007, Side 11

Morgunblaðið - 07.01.2007, Side 11
Í dag, sunnudag: Sýningin verður opin frá kl. 13.00-17.00 Kl. 15.00 – leiksýningin „Brot úr sögu banka” Farandleikhús Landsbankans sýnir Brot úr sögu banka, leikdagskrá í léttum dúr þar sem rakin er saga Landsbankans, árin 1886-2006, í tónum og tali. Handritshöfundur er Felix Bergsson, leikstjóri er Valur Freyr Einarsson og leikendur eru Björgvin Franz Gíslason, Jakob Þór Einarsson og Kristjana Skúladóttir. Valdimar Kristjónsson stjórnar lifandi tónlist. Sýningin fór á milli útibúa Landsbankans í haust við miklar vinsældir. Á Sögusýningu Landsbankans er margt markvert að sjá og skoða, ekki aðeins úr bankasögunni heldur eru dregnar upp myndir úr þjóðlífi fyrri tíðar enda saga bankans og þjóðarinnar sam- tvinnuð á ýmsan hátt. Gestum er boðið upp á sögulegan fróðleik í máli og myndum. Leikmyndir og munir frá mis- munandi tímum vitna um ólíkan tíðaranda auk þess sem hljóðsetning, myndbönd, líkön o.fl. setja svip sinn á sýninguna. Á sýningunni má m.a. sjá skrifstofuherbergi frá árinu 1886, nýtt módel sem sýnir miðbæinn eftir brunann mikla 1915, tækniþróunina allt frá pennastöng til samskiptatækja nútímans og líkan af framtíðarskipulagi miðborgarinnar. Sögusýningin er til húsa í Aðalstræti 6 og spannar 120 ára sögu bankans og þjóðarinnar. Skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna. Sögusýning Landsbankans Aðalstræti 6 (húsnæði TM). Sími: 410 4300 Opið virka daga kl. 11.00-17.00 og helgar kl. 13.00-17.00 ÍS L E N S K A S IA .I S L B I 35 53 4 01 /0 7 Landsbankinn 120 ára SÖGUSÝNING Opið í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.