Morgunblaðið - 07.01.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.01.2007, Blaðsíða 25
er sem kemur á óvart er að hann er hvorki með net né sjónvarp á heimili sínu. Perez stendur þó þrisvar til fjórum sinnum í viku upp frá tölvunni til að koma fram í sjónvarpi. „Ég fer oft í viðtöl og er fenginn til að koma með athugasemdir varðandi atburði líð- andi stundar í skemmtanaheiminum. Eftir það kem ég aftur hingað á kaffi- húsið og vinn fram á kvöld.“ En lífið er líka partí hjá Perez. „Ég mæti yfirleitt á einn, tvo eða þrjá við- burði á kvöldi. Eftir það kem ég aftur á Coffee Bean og fer svo í rúmið milli klukkan hálfeitt og eitt á kvöldin. Fæ svona að meðaltali fjögurra til fimm tíma svefn á nóttu.“ Og það dugar þér? „Þetta er vissulega þreytandi en ég elska það sem ég geri og ég vinn líka fyrir sjálfan mig. Ég hef allt að vinna. Það er frábært að vinna fyrir sjálfan sig og hafa engan hangandi yfir sér með fyrirskipanir. Núna er mik- ilvægt fyrir mig að leggja hart að mér. Ég vil hafa sterkan grunn til að byggja á og gera fleira,“ segir Perez. Dæmi um það er væntanlegur veru- leikaþáttur hans, sem verður ein- hvers konar blanda af The Real World, The Simple Life, The Surreal Life og Punk’d. „Mikil vinna fer í þáttinn rétt eins og bloggið. Ég er líka framleiðandi, get ekki bara mætt á staðinn og bros- að. En vinnan er gefandi og ég held að þegar þátturinn birtist loks á skjánum verði fólk mjög ánægt. Ég get ekki beðið.“ Af öllum þessum viðburðum sem þú sóttir, hverjir voru þeir skemmti- legustu á síðastliðnu ári? „Jafntefli á milli Toronto og Sun- dance, það var frábært á báðum þess- um kvikmyndahátíðum. Toronto er frábær borg og Kanadabúar hafa tekið svo vel á móti mér. Sundance var líka algjört ævintýri.“ Mikill vöxtur Hann segir árangurinn sem náðist á síðasta ári mjög hvetjandi en fyrir rúmu ári var hann gjaldþrota. Les- endahópurinn hefur stöðugt stækk- að, skrifað hefur verið um hann í þekktum dagblöðum og tímaritum og hann lauk árinu með því að vera einn af kynnum í áramótaþætti MTV í New York. Perez er af kúbönskum ættum og ólst upp í Miami, hann er lærður leik- ari frá New York University og reyndi fyrir sér á ýmsum sviðum áð- ur en hann byrjaði að blogga í fullu starfi með þessum frábæra árangri. „Lesendahópurinn heldur enn áfram að vaxa. Ég hef ekki náð stöð- ugleika og sem betur fer er lesturinn ekki enn farinn að minnka.“ Finnurðu fyrir meiri pressu nú þegar lesendum hefur fjölgað svona mikið? „Pressan kemur aðallega frá sjálf- um mér. Ég hef miklar vonir og væntingar. Ég vil halda uppi miklum gæðum. Ein ástæða þess að vefsíðan er svo vinsæl er að ég legg mjög hart að mér. Aldrei að vita nema á kom- andi ári ráði ég einhvern til að vinna fyrir mig og hún verði enn stærri, betri og geggjaðri. Ég vona það besta.“ Hvað myndirðu gera ef Rupert Murdoch byði milljónir dala í Perez- Hilton.com? „Ég myndi selja með ákveðnum skilyrðum. Til dæmis þyrfti ég að halda skapandi valdi yfir vefnum og geta tekið fullan þátt. Ef það að selja gerði vöruna betri er það þegar allt kemur til alls betra fyrir lesendur.“ Margir traustir heimildarmenn Stór þáttur af því hversu margar fréttir Perez bloggar á dag má rekja til þess að hann á marga trausta heimildarmenn. Hvað er mikilvægast við það að byggja upp og viðhalda góðu samskiptaneti? „Vera heiðarlegur og brenna engar brýr að baki sér,“ segir hann ákveðið. En hvaða áhrif hefur það að vera orðinn þekktur sjálfur? Forðast fólk þig eða leitar það frekar til þín? „Það hjálpar frekar en hitt. Þegar ég fer út heilsar fólk frekar upp á mig. Þannig aflar maður sér smám saman nýrra sambanda. Á endanum snýst þetta um hversu marga ég er með í adressubókinni minni og get hringt í þegar ég heyri eitthvað frétt- næmt.“ Reynir fólk að ljúga að þér? „Það gerist sem betur fer ekki oft og ég þekki lygi á löngu færi.“ Sérðu eftir einhverju sem þú hefur skrifað á vefinn? „Nei, ég sé ekki eftir neinu,“ svar- ar hann hratt. „Sem betur fer ekki. Það þýðir ekki að vera of tilfinn- inganæmur í þessum bransa.“ Helst það í hendur við að Perez tekur athugasemdir blogglesendanna engan veginn til sín. Margar þeirra eru illkvittnar og beinast gegn hon- um persónulega. „Ég hef bara gaman af þessu. Mér er alveg sama hvað fólki finnst á meðan það les vefsíðuna mína.“ Lögsókn eins og höfuðverkur Aukinn lestur bloggsins þýðir að fleiri fylgjast með henni og ekki eru allir vinveittir. Öllu gamni fylgir al- vara en Perez hefur verið lögsóttur af X17 Inc. fyrir ólöglega notkun á myndum fyrirtækisins og krefst fyr- irtækið tugmilljóna króna í skaða- bætur. „Þetta er höfuðverkur en þegar maður fær höfuðverk tekur maður eitthvað við honum og vonast eftir því að hann hverfi. Ég tek lyf, er búinn að fá hóp lögfræðinga til að hjálpa mér. Vonandi hverfur þetta. Ef ekki, þá tekst ég á við það eins og maður. Viltu eitthvað spá í spilin fyrir komandi ár? „Ég held að Perez Hilton verði stór 2007,“ segir hann og hlær. „Annars veit ég ekki, það er alltaf eitthvað óvænt í þessu.“ Samloka Perez í systrasamloku með söngfuglunum Ashlee og Jessicu Simpson. Stuð Perez hittir marga í veisl- unum sem hann sækir á hverju kvöldi en hér er hann með Mary- Kate Olsen. Hann skrifar mikið um báðar tvíburasysturnar. » Það mikilvægasta við að byggja upp og við- halda góðu samskipta- neti er að vera heiðar- legur og brenna engar brýr að baki sér. ingarun@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 25 ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2007 Þjóðhátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361 frá 30. september 1977 með áorðnum breytingum, var stofnaður í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974. Tilgangur sjóðsins er: ● að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verk- efni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. Á næstu fimm árum, frá og með árinu 2007, mun sjóðurinn hafa um 20 m.kr. á ári til úthlutunar styrkja. Úthlutunum úr sjóðnum lýkur að þeim tíma liðnum, þ.e. árið 2011 og er þá reiknað með að sjóðurinn hafi þegar úthlutað öllu fé sínu í samræmi við tilgang hans. Umsóknir Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. For- gang hafa verkefni sem undirbúin hafa verið svo að vinna við þau geti hafist innan árs frá úthlutun. Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu Seðlabanka Íslands www.sedlabanki.is (sjá Seðlabanki Íslands - Þjóðhátíðarsjóður). Ennfremur má nálgast eyðu- blöð í afgreiðslu Seðlabankans, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2007 og verður úthlutað úr sjóðnum í ofanverðum maí 2007. Umsóknir skal senda Þjóðhátíðar- sjóði, Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir ritari sjóðsins í síma 569 9622 eða á netfanginu: thjodhatidarsjodur@sedlabanki.is. Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2007 Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til úthlutunar á síðari hluta árs 2007. Verðlaun að upphæð 600 þúsund krónur verða veitt fyrir eitt handrit. Þriggja manna dómnefnd metur verkin; Kolbrún Bergþórsdóttir, formaður tilnefnd af borgarráði, Þorsteinn Davíðsson tilnefndur af menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Sveinn Yngvi Egilsson tilnefndur af Rithöfundasambandi Íslands. Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður. Sé dóm- nefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár. Handritum sem keppa til verð- launanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi. Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2007. Utanáskrift: Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra menningarmála, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 2.hæð, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu menningarmála s. 5901520 og 5901521. MENNNINGAR- OG FERÐAMÁLASVIÐ Umrædd Bloggarinn mikli ásamt tveimur um- töluðustu konum heims á síðasta ári, Nicole Richie og Lindsay Lohan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.