Morgunblaðið - 07.01.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.01.2007, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN 564 6464 Síðumúla 24 • 108 Reykjavík hof@hofid.is • www.hofid.is Guðm. Björn Steinþórsson lögg. fasteignasali Jón Guðmundsson sölustjórifasteignasala Skipasund 45 - Opið hús Glæsilega endurnýjað einbýlishús ásamt góðum bílskúr. Aðalhæðin skiptist í flísa- lagða forstofu, hol og þrennar stofur með massífu eikarparketi, fallegt eldhús með hvítri sprautulakkaðri innréttingu, innaf holi er flísalögð snyrting. Í risi eru þrjú rúmgóð parketlögð svefnherbergi og fallegt baðherbergi með baðkari. Kjallarinn er skráður sem sér 2ja-3ja herbergja íbúð en er í dag nýttur með aðalíbúðinni sem þrjú stór svefnherbergi, hol/vinnuherbergi, snyrting og sturtuaðstaða svo og þvottahús. Verð 69 millj. Opið hús í dag á milli kl. 14 og 15. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Fallegt og vel við haldið 160 fm einbýlishús, tvær hæðir og kjall- ari, á þessum eftirsótta stað í austurborginni. Á aðalhæð eru m.a. samliggjandi skiptanlegar stofur og eldhús, uppi eru 4 her- bergi og flísalagt baðherbergi og í kjallara eru nýlega endurnýjað baðherbergi, rúmgóð stofa, lítið eldhús og 1 herbergi. Möguleiki er að nýta kjallara hússins sem sér 2ja herb. íbúð. Austursvalir út af efri hæð. Húsið er klætt marmarasalla að utan. Falleg ræktuð lóð með hlöðnum veggjum. Sökklar að bílskúr komnir. Verð 44,9 millj. Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin. LITLAGERÐI 9 Opið hús í dag frá kl. 14-16 Barónsstígur 47 - Heilsuverndarstöðin Til sölu eða leigu fasteignin Barónsstíg 47, sem hefur fram að þessu hýst Heilsuverndarstöðina í Reykjavík. Fasteignin er samtals að gólffleti 4.625 fm og er byggð á árunum 1949 til 1955, höfundarverk arkitektanna Einars Sveinssonar og Gunnars H. Ólafssonar og er eitt þekktasta kennileiti í borginni. Eignin skiptist vegna byggingarlags í þrjár álmur: Aðalbygging hússins liggur meðfram Egilsgötu og er fjórar hæðir, kjallari og ris, álma við Barónsstíg sem er tvær hæðir og álma að Egilsgötu, tvær hæðir og kjallari. Húsið er sniðið að þörfum heilsugæslu en getur hentað undir hvers konar skrifstofu - og þjónustustarfsemi. Eignin er laus til afhendingar í desember nk. Nánari upplýsingar veitir Jón Guðmundsson. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. TIL SÖLU EÐA LEIGU Bridsfélag Kópavogs Fyrsta spilakvöld ársins var eins kvölds tvímenningur með þátttöku 16 para. Efstu pör í NS: Arngunnur Jónsd. – Guðrún Jóhannesd. 206 Eiður M. Júlíusson – Júlíus Snorras. 198 Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 182 AV: Guðni Ingvarss. – Halldór Einarsson 213 Baldur Bjartmarss. – Halldór Þorvaldss. 194 Eðvarð Hallgr. – Guðlaugur Bessas. 188 Næsta fimmtudag hefst svo fjög- urra kvölda barómetertvímenning- ur og er ein aðalkeppni vetrarins. Skráning hjá Lofti í s. 897-0881. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni var spiluð í Ásgarði, Stangarhyl, fimmtud. 4.1. Þetta var fyrsti spiladagur ársins. Spilað var á 12 borðum. Árangur N–S Jón Bjarnar – Jón Jóhannsson 237 Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 235 Ægir Ferdinandsson – Auðunn Guðmss. 234 Árangur A–V Viggó Nordqvist – Gunnar Andréss. 264 Þröstur Sveinsson – Jón Lárusson 239 Björn E. Péturss. – Gísli Hafliðason 237 Meðalskorin var 216 stig. Nýárstvímenningur BA Þriðjudaginn 2. janúar fór fram eins kvölds tvímenningur hjá Brids- félagi Akureyrar, með þátttöku 16 para, til að koma spilurum í gang eftir hátíðarnar. Nýársmeistarar 2007 urðu Sveinn og Haukur eftir góða lokasetu gegn Helga og Gylfa: Sveinn Aðalgeirss. – Haukur Harðars. 50 Gylfi Pálsson – Helgi Steinsson 36 Páll Þórsson – Frímann Stefánsson 31 Björn Þorláksson – Jón Björnsson 25 Pétur Guðjónsson – Jónas Róbertss. 15 Næsta þriðjudag hefst Akureyr- armótið í sveitakeppni og er það fimm kvöld. Pör, sveitir eða stakir spilarar skulu hafa samband sem fyrst við Víði í síma 8977628 og þá verður þessu púslað saman. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Fréttir á SMS ÉG VIL nú byrja á því að óska Kristjáni og öðru starfsfólki Krabba- meinsfélags Íslands (KÍ) gleðilegs árs og þakka fyrir liðið. Grein Kristjáns kom mér á óvart rétt fyrir hátíðirnar og þar sem ég var kominn í jólaskapið, en hann ekki að því er virðist, ákvað ég að svara Kristjáni á nýju ári. Að sjálfsögðu er það rétt hjá Kristjáni að ég sem óbreyttur fé- lagsmaður í einu af stuðningsfélögum KÍ veit ekki mikið hvað er að gerast, ef nokkuð, í forvarnarmálum krabbameinsgreindra. Upplýsingar sem ég hef aðgang að eru ein- ungis fengnar af heimasíðu KÍ. Aðal- fundur KÍ er lokaður nema völdum ein- staklingum frá 30 að- ildar- og stuðnings- félögum KÍ. Og yfirleitt eru þetta sömu fulltrúarnir ár eftir ár. Hvar er söfn- unarféð? Það er ekki rétt að skrif mín um KÍ hafi byrjað vegna gjaldtöku LSH af krabbameinsgreindum, heldur vegna fjársöfnunar KÍ 2001 og hvar peningarnir væru nú fimm árum seinna. Margir krabbameinsgreindir lögðu til sjálfboðavinnu vegna þess- arar söfnunar, ekki síst vegna þess að þeim var lofað að peningarnir yrðu nýttir til endurhæfingar og bættrar félagslegrar aðstöðu fyrir krabbameinsgreinda. Sú varð ekki raunin og nú í dag virðist enginn geta svarað því hjá KÍ hvar pening- arnir eru. Þar sem ég hef ekki skrifað mikið um leitarstarf KÍ get ég ekki tekið undir það sem Kristján skrifar að vanþekking mín leiði til fleiri greina. Og svo er það músin! Síðan kemur besti parturinn í svari Kristjáns og það er þetta með músina. Undanfarin 25 ár hef ég margar utanlandsferðirnar farið bæði í einkaerindum og vegna við- skipta. Í viðskiptaferðum er algengt að greiddir séu dagpeningar eins og mun hafa verið í þessari ferð Krist- jáns til New York. Þá sparar maður svo maður græði sem mest af dag- peningunum sem eru um og yfir 20 þús. á sólarhring. En aldrei hef ég sparað svo að mýs eða rottur séu hlaupandi um gólfið á meðan ég snæddi. Og segja svo frá því finnst mér kyndugt. Að líkja mér við mús segir miklu meira um Kristján en mig. Allir sem þekkja mig vita að ég er tveir metrar að hæð og yfir 100 kg að þyngd. Ekki beint músarlegur! Skoðanafrelsið Aftur á móti er það rétt hjá Krist- jáni að við búum í frjálsu landi þar sem skoðanafrelsi ríkir. Það virðist samt fara í taugar Kristjáns þar sem skoðun hans virðist vera að allir eigi að vera á sömu skoðun. Hann meira að segja lýsir því yfir að hann ætli ekki að svara fleiri greinum frá mér. Þetta minnir mig mikið á greinaskrif hans á móti alþing- ismanninum Sigurði Kára Kristjánssyni þar sem Sigurður kom með ábendingu um að við smíði frumvarps um bann við reykingum á veitingastöðum skyldi fara með varúð. Um- ræðan mætti ekki vera með öfgum. Kristján var nú ekki sammála Sigurði og greinaskrifin urðu eins og hver önnur framhaldssaga á síðum Morgunblaðsins. Aðgát skal höfð í nærveru sálar Grein Kristjáns er að mínu mati skrifuð í miklu fljótræði og hefði betur verið geymd en send til Morgunblaðs- ins. Samt verður að virða skoðanafrelsið og skoð- anafrelsið getur stundum farið með fólk í ógöngur. Það sem ég var að setja fram í grein minni 18. des. síðastliðinn var að ég væri sammála framkvæmda- stjórn LSH um að færa brjósta- krabbameinsleit úr Skógarhlíð 8, KÍ-húsinu, og upp á LSH. Mér nefnilega hefur verið tjáð af konum sem þurft hafa að fara í hús úti í bæ í brjóstakrabbameinsleit og síðan ver- ið sendar upp á LSH í meðferð ef þær greinast, að þeim finnist vinnu- brögð höstug og ómannúðleg hjá leitarstöðinni. Eins er athyglisvert að LSH skuli ekki sjá um brjósta- krabbamein og aðrar skoðanir leit- arstöðvarinnar þar sem bæði KÍ og LSH eru á fjárlögum frá ríkissjóði. Allur launakostnaður KÍ er greiddur af ríkissjóði. Betri þjónustu og umönnun færðu ekki en hjá starfs- fólki LSH þar sem allir fagaðilar sem leita þarf til sýna hverjum og einum einstaklingi einstaka nær- gætni. Vísindastofnun? KÍ er vísindastofnun og sam- kvæmt lögum þess kemur það skýrt fram. Þar segir í 2. grein laga: 1. Stuðla að þekkingu um krabba- mein og krabbameinsrannsóknir. 2. Efla krabbameinsrannsóknir m.a. með söfnun og vísindalegri úr- vinnslu upplýsinga. 3. Beita sér fyrir leit að krabba- meinum á byrjunarstigi. 4. Styðja framfarir í meðferð krabbameina og umönnun krabba- meinssjúklinga. Þarna kemur það hreint og klárt fram að KÍ er vísindamiðstöð en ekki hagsmunaaðili fyrir krabbameins- greinda og baráttu okkar fyrir t.d. afnám gjaldtöku af göngudeild LSH. Að lokum langar mig að segja að því fylgir ábyrgð að vera doktor í krabbameinslækningum og einn af forsvarsmönnum Lýðheilsustöðvar. Hvað menn segja og láta frá sér á opinberum vettvangi er vert að hugsa um ef menn vilja halda reisn og virðingu annarra. Að tala/skrifa niður til fólks með hroka og nið- urlægingu setur viðkomandi ekki á hærri stall. Hroki t.d. kemur af litlu sjálfsöryggi. Vegna greinar Kristjáns Sigurðssonar Haukur Þorvaldsson svarar grein Kristjáns Sigurðssonar Haukur Þorvaldsson » Grein Krist-jáns er að mínu mati skrif- uð í miklu fljót- ræði og hefði betur verið geymd en send til Morgun- blaðsins. Höfundur er krabbameinsgreindur öryrki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.