Morgunblaðið - 07.01.2007, Page 2
2 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BRIDSSKÓLINN
Innritun á vorönn
Byrjendur: Hefst 22. janúar og stendur
yfir í 10 mánudagskvöld frá kl. 20-23.
Framhald: Hefst 24. janúar og stendur
yfir í 10 miðvikudagskvöld frá kl. 20-23.
• Viltu læra brids? Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er
ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu. Þú getur komið ein eða
einn, með öðrum eða í hóp og það er sama hvort þú ert
18 ára eða 90. Eða einhvers staðar þar á milli!
• Viltu verða betri spilari? Á framhaldsnámskeiði Bridsskólans
gefst þér tækifæri til að bæta við kunnáttuna. Þú lærir nútíma
sagnir, hvassa spilatækni og samvinnu við makker í vörninni.
Ekki er nauðsynlegt að koma með makker.
• Námskeiðin eru haldin í Síðumúla 37 í Reykjavík, í húsa-
kynnum Bridssambands Íslands.
• Kennari á báðum námskeiðum er Guðm. Páll Arnarson.
---------------------------------------------------------------------
Upplýsingar og innritun í síma 564-4247
á milli kl. 13 og 18 daglega.
(Sjá nánar á Netinu undir Bridge.is / fræðsla.)
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
sunnudagur 7. 1. 2007
atvinna mbl.isatvinna
Gestir í vikunni 8.635» Innlit 13.807» Flettingar 79.030» Heimild: Samræmd vefmæling
OKKUR VANTAR STARFSFÓLK
HJARTANLEGA VELKOMIN Á MJÖG GÓÐAN VINNUSTAÐ,
SEGIR LUCIA LUND, STARFSMANNASTJÓRI HRAFNISTU >> 16
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Menning 57
Staksteinar 8 Leikhús 60
Veður 8 Myndasögur 62/63
Vikuspegill 20 Krossgáta 64
Daglegt líf 24/39 Dægradvöl 65
Forystugrein 36 StaðurStund 66/67
Reykjavíkurbréf 36 Dagbók 68/69
Umræðan 40/47 Víkverji 68
Bréf 40 Bíó 66/69
Minningar 48/53 Ljósvakamiðlar 70
* * *
Innlent
Unnið er að endurskoðun árs-
reiknings Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna (LV) en eignir sjóðsins námu
240 milljörðum í árslok 2006 og juk-
ust um liðlega 49 milljarða á árinu
eða um 26%. Ávöxtun sjóðsins var
20% á síðasta ári sem samsvarar
rúmlega 12% raunávöxtun. Þetta
gerir árið að öðru besta rekstrarári í
sögu lífeyrissjóðsins. Stjórn sjóðsins
mun, með tilliti til góðrar ávöxtunar
og tryggrar stöðu, leggja til við að-
ildarsamtök sjóðsins að lífeyrisrétt-
indi sjóðfélaga og greiðslur til lífeyr-
isþega verði hækkaðar frá 1. janúar
2007, að sögn Þorgeirs Eyjólfssonar,
forstjóra LV. Ákvörðun um hækkun
verður tekin fljótlega. »4
Ákvörðun heilbrigðisráðherra að
allur undirbúningur og eftirskoðun
vegna augasteins- og glákuaðgerða
á sjúkrahúsum skuli fara fram hjá
viðkomandi stofnun en ekki á stofum
úti í bæ, kallar á aukinn mannafla á
augndeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss og bætta aðstöðu. Slíkar
aðgerðir eru einnig framkvæmdar á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
og á St. Jósefsspítala. »6
Áhugi er í Færeyjum á að kanna
hagkvæmni þess að leggja rafstreng
frá Íslandi. Verið er að leggja loka-
hönd á forathugunarskýrslu og
reiknar Þorkell Helgason orku-
málastjóri með að í henni verði mælt
með því að lagðir verði fjármunir í
að kanna þetta verkefni frekar.
Færeyska útvarpið hefur fjallað um
þetta verkefni og kom þar fram að
tæknilega væri ekkert því til fyr-
irstöðu að leggja rafstreng milli Ís-
lands og Færeyja og það væri einnig
hægt að leysa það fjárhagslega. »1
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, segir við-
ræður í gangi milli lögreglunnar,
dómsmálaráðuneytisins og borgar-
yfirvalda um fjölgun eftirlitsmynda-
véla í borginni. Um átta löggæslu-
vélar eru í miðborginni en ekki hefur
verið ákveðið hversu mörgum þarf
að bæta við. »6
Ákveðið hefur verið að leggja
nokkra tugi milljóna í að bora eftir
heitu vatni í Kýrholti í Viðvíkursveit
í Skagafirði. Kristján Sæmundsson,
jarðfræðingur hjá Íslenskum
orkurannsóknum, segir verkefnið
mjög áhugavert jarðfræðilega vegna
þess að hversu mikið vatn sé á svæð-
inu. » 8
Erlent
Íraskar hersveitir hófu um
helgina árásir á skæruliða úr röðum
súnníta og á vígamenn úr dauða-
sveitum sjíta í Bagdad, að því er ráð-
gjafar Nuri al-Maliki forsætisráð-
herra fullyrtu í gær. Aðgerðirnar
njóta stuðnings Bandaríkjahers en
þær eru fyrsta skrefið í nýrri áætlun
bandarískra stjórnvalda um að
binda enda á linnulaust ofbeldið. »1
ÁSÓKN erlendra ferðamanna í að skoða Reykjavík úr
lofti hefur aukist gríðarlega enda útsýnið fagurt eins og
sjá má út um glugga Jóns Kjartans þyrluflugmanns.
Sigurður Pálmason, framkvæmdastjóri Þyrluþjónust-
unnar, segir standa til að fyrirtækið beiti sér meira á
þeim markaði og verður m.a. fengin níu farþega þyrla.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ferðamenn sækja í þyrluferðir
GUÐNI Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segist sannfærður um að
það sé ávinningur af markaðsátaki
í sölu íslenskra landbúnaðarvara í
Bandaríkjunum fyrir íslenskan
landbúnað og íslenska þjóð, en Val-
gerður Sverrisdóttir utanríkisráð-
herra sagði í fréttum RÚV á föstu-
dag að það væri ekki framtíð í því
að selja lambakjöt til Bandaríkj-
anna.
Guðni sagðist ekkert hafa um
þessi ummæli Valgerðar að segja.
Þau hefðu komið fram fyrr. „Ég er
sannfærður um að það hefur verið
ávinningur fyrir íslenskan landbún-
að og íslenska þjóð af því markaðs-
átaki sem verið hefur í Whole
Foods-búðunum. Mjór er mikils
vísir og þar eigum við góða von um
að geta selt okk-
ar vörur sem há-
gæðavörur á háu
verði.“
Guðni sagði að
það væri engin
spurning að ís-
lenskar mjólkur-
vörur eins og
skyr seldust og
vektu mikla at-
hygli í Bandaríkjunum „Lambið
þykir einstakt. Svo er þetta auðvit-
að spurning oft um stöðu dollarans
og hverju hann skilar heim, en
átakið lofar góðu og hefur áhrif á
gríðarlega mörgum sviðum, eins og
hvað varðar kynningu á Íslandi.“
Hann sagði að það að komast inn
í 180–200 verslanir vítt og breitt
um Bandaríkin með kynningu skil-
aði hingað ferðamönnum og þar
hefði Ísland með hreina náttúru og
fjölskyldubúskap vakið mikla at-
hygli.
„Ég eyði ekkert tíma mínum að
ræða um þá sem efast. Það er öll-
um frjálst í sjálfu sér,“ sagði
Guðni.
Hann sagði að markaðurinn yrði
að mæta eftirspurn eftir kjöti frá
þessum markaðssvæðum. Bændur
hefðu þurft að selja hluta af afurð-
um sínum á erlenda markaði. Sem
betur færi hefði neyslan aukist hér
en það myndi eftir sem áður þurfa
að flytja út um þúsund tonn og þá
skiptu góðir markaðir miklu máli,
hvar sem þeir væru. Aðalatriðið
væri að fá sem hæst verð.
Sannfærður um ávinning
af markaðsátaki vestanhafs
Guðni Ágústsson
Kynning – Morgunblaðinu fylgir kynn-
ingarblaðið Sumarferðir 2007 frá
Terra Nova og kynningarblaðið Sér-
ferðir Heimsferða 2007.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÉG HARMA að þessi staða skuli
vera komin upp því ég taldi að þetta
skip væri að gera það best allra á
síðasta ári, þess vegna kemur þessi
uppákoma mér verulega á óvart,“
segir Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands, um
flutning Engeyjar RE til dóttur-
félags HB Granda í Hollandi en
skipið mun í apríl nk. halda til veiða
við strendur Máritaníu í Afríku.
Sævar segir jaðra við að hann
skilji ekki út á hvað útgerð á Íslandi
gengur í dag en t.a.m. virðist sem
flutningurinn sé ekki vegna þess að
aflaheimildir vanti. „Það er bara
verið að setja skipið í önnur verk-
efni og því kann að vera að útgerðin
þurfi annað skip til að ná öllum
veiðiheimildum á næsta fiskveiðiári.
Ég veit allavega ekki hvernig HB
Grandi ætlar að ná aflaheimildun-
um í kjölfar þess að þetta afkasta-
mikla skip hverfur úr flotanum.“
Hann segist sjá mikið eftir Eng-
eynni enda bar hún af í aflaverð-
mætum á sl. ári með 1,5 milljarða
króna.
Pirringur innan SSÍ
HB Grandi mun stofna dótturfyr-
irtækið Atlantic Pelagic B.V. í Hol-
landi og það fyrirtæki kaupa Eng-
eyna. Áhöfn skipsins hefur þegar
verið sagt upp störfum og í Morg-
unblaðinu í gær sagði skipstjórinn,
Þórður Magnússon, að illa væri
komið fyrir íslenskum sjómönnum.
„Ég er hjartanlega sammála Þórði.
Það er óviðunandi að það skuli vera
hægt að henda þessu til og frá eftir
þörfum eigendanna og það jaðrar
við vítaverð vinnubrögð að bjóða
mönnum upp á svona óvissu sem
virðist ríkja,“ segir Sævar og bætir
við að verulegur pirringur sé meðal
félagsmanna sjómannasambands-
ins. „Þarna eru menn sem eru mjög
hæfir og hafa verið að fara úr pláss-
um, ágætum og góðum plássum, til
að fara á flaggskipið og svo með
geðþóttaákvörðun, liggur mér við
að segja, eru þeir orðnir atvinnu-
lausir. Það er visst sjokk.“
Sævar efast þó ekki um að áhöfn-
in fái önnur störf jafnvel þó að hart
sé í ári hjá sjómönnum. Á sl. ári hafi
mönnum gengið ágætlega að fá
vinnu og byrjun þessa árs líti vel út.
„Vítavert að bjóða
upp á slíka óvissu“
Formaður SSÍ harmar að Engey verði flutt úr landi
Í HNOTSKURN
»Stærsta fiskiskip íslenskaflotans, Engey RE, verður
sent til veiða við Máritaníu á
vesturströnd Afríku í apríl
næstkomandi.
»HB Grandi fær kvóta ígegnum samstarf við hol-
lenskt fyrirtæki, Parlevvliet &
Van der Plas og verður skipið
gert út til veiða á makríl,
hrossamakríl, sardínu og
sardínellu.