Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 17
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
hlutir af ýmsu tagi, einkum persónu-
legir munir.“
Nefnir hann teikningar barna sér-
staklega í þessu samhengi. „Það er
mjög fallegt þegar barnabörnin
leggja teikningar sínar með í kistu
ömmu eða afa.“
Ýmsa óvenjulega hluti hefur
Kristján Valur líka séð setta ofan í
kistur, svo sem viskípela, sígarettuk-
arton og jafnvel golfsett. „Sumum
þykir öruggara að senda menn með
golfsettið yfir móðuna miklu ef ske
kynni að spilað sé golf þar. Einum
man ég líka eftir sem vildi taka kven-
peysu með sér í gröfina. Hafði hann
þó aldrei verið kvæntur.“
Síminn hafður með til öryggis
Óttinn við kviksetningu mun að
líkindum fylgja mannkyninu alla tíð
og Kristján Valur segir að á síðustu
árum hafi menn víða slegið á hann
með því að setja farsíma í kistu hins
látna. Ekki veit hann þó til þess að
það hafi verið gert hér á landi enda
þótt ekkert banni það. Það gæti
breyst með nýju lögunum og reglu-
gerðum í kjölfar þeirra.
„Varðandi ótta við kviksetningu er
algengara að fyrir liggi beiðni frá
hinum látna þess efnis að skorið sé á
púls hans áður en kistunni er lokað.“
Það sem Pálma þykir hafa breyst
mest varðandi útfararsiði á síðustu
árum eru minningargreinar í dag-
blöðum. Þær séu nú í auknum mæli
til hins látna en ekki um hann eins og
tíðkaðist áður. „Sumir segja að þetta
sé of persónulegt en á móti kemur að
það getur verið gott að skrifa sig frá
sorginni. En þetta er hárfínn vegur
sem erfitt er að feta. Að mínu viti
getur minningargrein verið alveg
jafnsterk þótt hinn látni sé ekki
ávarpaður.“
Pálmi segir að það hafi einnig
færst í vöxt að börn skrifi um for-
eldra sína, foreldrar um börn og
maki um maka. „Það má deila um
hvort þetta sé góð eða slæm þróun.
Það er sjálfsagt að fólk geri þetta en
hitt er svo annað mál hvort það á er-
indi við almenning.“
Pálmi hefur orðið var við að ungt
fólk sé í auknum mæli farið að lesa
minningargreinar í dagblöðum og þá
ekki síður um vandalausa. „Þetta
helst í hendur við það að ættfræði-
áhugi hefur aukist gífurlega hjá
ungu fólki. Ekki hafði ég þennan
áhuga á þessum aldri. Þetta þýðir að
allar upplýsingar með minning-
argreinum þurfa að vera mjög ná-
kvæmar. Fólk hefur tilhneigingu til
að staðsetja alla ættingja hins
látna.“
Ljóðin vandmeðfarin
Morgunblaðið birtir helst aðeins
ljóð sem áður hafa birst opinberlega
í minningargreinum og segir Pálmi
að fólk leiti fyrir vikið í auknum mæli
til presta og biðji þá að lesa frum-
samin ljóð við útfarir. „Þetta setur
okkur í talsverðan vanda. Sumt af
þessum kveðskap er snilld, annað á
ekki erindi og allt þar á milli. Fæstir
prestar hafa forsendur til að leggja
mat á kveðskap og því eru þeir settir
í erfiða stöðu. Menn segja helst ekki
nei við syrgjendur.“
Varðandi kveðjur í útför segir
Pálmi það grunnregluna að ekki sé
lesin kveðja frá fólki sem er viðstatt
athöfnina, aðeins frá vinum og
vandamönnum sem eru fjarverandi.
„Það er líka góð regla að bera allar
kveðjur undir fjölskyldu hins látna.
Ég brenndi mig einu sinni á þessu.
Las kveðju frá manni í útför og fann
að það fór kliður um salinn. Síðar
komst ég að því að sá sem sendi
kveðjuna og hinn látni höfðu eldað
grátt silfur saman og þetta var til-
raun til sátta. Þetta var hvorki stað-
urinn né stundin fyrir slíka kveðju.
Síðan hef ég borið allar kveðjur und-
ir fjölskyldu hins látna og hún
ákveðið hvað skal lesið upp.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 17
Tími:
13:00 - 13:45
Staðsetning:
K5 - Kringlunni 1
Tími:
12:10 - 12:55
Staðsetning:
K3 - Kringlunni 1
Tími:
17:15 - 18:00
Staðsetning:
K1 - Kringlunni 1
Tími:
16:20 - 17:05
Staðsetning:
K2 - Kringlunni 1
NIMROY - Network Information
Manager Read Only
Kerfið er upplýsingaveita fyrir kerfisstjóra um nettengd
tæki og notendur. Kerfið birtir upplýsingar um gögn sem
safnað er í gegnum WMI, SNMP og frá Active Directory.
Kerfið gefur möguleika á að leita eftir upplýsingum og
skoða skýrslur út frá söfnuðum upplýsingum.
Samstarfsaðili: Eimskip
Nemendur: Aðalsteinn Þorbergsson og Þorri Gestsson.
POS Controller og Data Replicator
Í verkefninu var smíðað bakvinnslukerfi ofan á afgreiðslu-
kassakerfi í eigu Landsteina Strengs sem byggir á Axapta
gagnagrunni. Einnig var þróuð gagnadreifiþjónusta
og gagnadreifikerfi til samstillingar gagnagrunna milli
afgreiðslukassa og miðlægs verslunargrunns á rauntíma.
Samstarfsaðili: Landsteinar Strengur
Nemendur: Haukur Arnar Sigurðsson, Hrólfur Gestsson og
Tobias Helmer.
TubTracker
Í verkefninu var þróað miðlægt eignastjórnunarkerfi
fyrir fiskikör. Fyrirtæki geta keypt aðgang að eigna-
stjórnunarkerfinu, skráð inn sín kör og fylgst með þeim
miðlægt á korti í gegnum vef. Skráningar notast við RFID og
lófatölvur.
Samstarfsaðili: Maritech
Nemendur: Grétar Berg Jónsson, Magnús Þór Haraldsson,
Reynir Þór Magnússon og Stefán Þór Björnsson.
Samþætting skýrslugerða símstöðvakerfa
Þróað var kerfi sem safnar saman upplýsingum frá mörgum
símstöðvum í einu og sameinar í gagnagrunn þar sem
meðal annars er hægt að kalla fram skýrslur um símnotkun.
Samstarfsaðili: Opin Kerfi
Nemendur: Björgvin Arnar Björgvinsson, Eiríkur Gunnar
Símonarson og Hafþór Hilmarsson.
AflaVísir
Smíðað var gluggakerfi sem heldur utan um aflaviðskipti
lítilla fiskvinnslufyrirtækja. Kerfið sér um öll skýrsluskil til
Fiskistofu, skattstofu og viðskiptamanna. Einnig er hægt að
bóka aflaviðskipti inn í Navision fjárhagsbókhald. Hægt er
að greiða fyrir afla með tengingu við vefþjónustu Glitnis.
Samstarfsaðili: Jakob Valgeir ehf.
Nemendur: Albert Brynjar Elísson, Elín Jónsdóttir og
Kolbrún Jónsdóttir.
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR
Tími:
15:30 - 16:15
Staðsetning:
K1 - Kringlunni 1
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKA 9 • KRINGLUNNI 1
SÍMI: 599 6200 www.hr.is
Nemendur sem eru að íhuga nám við skólann eru sérstaklega hvattir til að mæta.
á lokaverkefnum í tölvunarfræði
við Háskólann í ReykjavíkOPIN KYNNING
Útrásin og nýsköpun
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Morgunverðarfundur í tilefni af útgáfu skýrslu um
þekkingarsköpun útrásarfyrirtækja á Íslandi
Grand Hótel þriðjudaginn 9. janúar kl. 8:30-10:00
Dagskrá
Einkenni alþjóðavæðingar íslenskra fyrirtækja
Ásta Dís Óladóttir, doktorsnemi við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn.
Ásta Dís segir frá niðurstöðum rannsókna á alþjóðavæðingu íslenskra fyrirtækja.
Í rannsókninni er ljósi varpað á útrásina, einkenni hennar og umfang. Fjallað er um
hvernig íslensk fyrirtæki fara á markað erlendis. Spurt er hvað einkenni íslensk
fyrirtæki sem hafa haslað sér völl erlendis og hvort alþjóðavæðingin sé frábrugðin því
sem gerist annars staðar.
Skiptir útrásin máli fyrir nýsköpun hér heima?
Ásdís Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Ásdís kynnir efni nýrrar skýrslu Rannís um áhrif alþjóðavæðingar fyrirtækja á
nýsköpun á heimavelli. Rannsóknir sýna að á hinum Norðurlöndunum eru
alþjóðavædd heimafyrirtæki mun virkari í nýsköpun en annars konar fyrirtæki. Því er
velt upp hvort hið sama eigi við hérlendis. Fjallað er um reynslu tveggja íslenskra
fyrirtækja, Actavis og Össurar, sem hafa hagnýtt útrásina til nýsköpunar.
Fundarstjóri er Gunnar Haraldsson forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Fundurinn er öllum opinn.